Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1984, Page 32
32
DV. MIÐVIKUDAGUR14. NÖVEMBER1984.
Sveinn Einarsson veiöistjóri lést 2.
nóvember sl. H mn fæddist að Miðdal í
Mosfellssveit 14. janúar 1917. Sveinn
nam leirkera- og postulínsgerð í
Þýskalandi. Sveinn vann við Listvina-
húsiö í tuttugu og fimm ár, þar af í 10
ár sem forstööumaður og meöeigandi.
Sveinn var tvíkvæntur. Fyrri kona
hans var Kamma N. Nielsen. Þau slitu
samvistum. Sveinn og Kamma
eignuöust fimm böm. Seinni kona Sveins
var Lára Einarsdóttir en hún lést árið
1975. Utför Sveins verður gerð frá
Dómkirkjunni í dag kl. 13.30.
Ágústa Ingjaldsdóttir lést 7.
nóvember. Hún fæddist í Auðsholti 20.
ágúst 1892. Foreldrar hennar voru
Jóhanna Magnúsdóttir og Ingjaldur
Hrjóbjartsson. Agústa var gift
Guðmundi Hallssyni. Þau eignuöust
þrjú börn. Utför hennar verður gerð
frá Langholtskirkju i dag kl. 15.
Rósa Guömundsdóttir, Þinghólsbraut
34 Kópavogi, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 15.
nóvember kl. 15.
Vigdís Hermannsdóttii kennari, Há-
túni 12, veröur jarðsungin frá Foss-
vogskirkju fimmtudaginn 15. nóvem-
ber kl. 10.30.
Þorsteinn Ólafsson tannlæknir, Lauf-
ásvegi 42, sem lést 6. nóvember, verð-
ur jarðsunginn frá Dómkirkjuiuii í
Reykjavík á morgun, fimmtudaginn
15. nóvember, kl. 13.30.
Kristjana P. Helgadóttir læknir, Set-
bergsvegi 1 Hafnarfirði, verður jarð-
sungin frá Hafnarfjarðarkirkju
fimmtudaginn 15. nóvember kl. 15.
Björn Jónsson lést 5. nóvember sl.
Hann fæddist í Reykjavík 25. ágúst
1926. Foreldrar hans voru Jón Árnason
og Sigríöur Björnsdóttir. Björn sat í
Samvinnuskólanum veturinn 1945—46.
Að loknu burtfararprófi þaðan hóf
hann störf hjá Sambandi ísl. sam-
vinnufélaga og starfaöi þar æ síðan.
Hann var um 12 ára skeið verslunar-
stjóri í bókabúð Norðra, sem
sambandið átti, en lengst af vann hann
í verðlagningardeild Sambandsins.
Björn var tvíkvæntur. Fyrri kona
hans var Ebba Sveinsdóttir. Hún lést
árið 1974. Þau eignuðust þrjár dætur.
Seinni kona Björns er Emelía G.V.
Húnfjörð sem lifir mann sinn. Utför
Björns verður gerð frá Fossvogskirkju
ídagkl. 13.30.
Sigþrúður Guðjónsdóttir, Flókagötu
33, sem lést 10. nóvember sl., verður
jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykja-
vík föstudaginn 16. nóvember kl. 13.30.
Kristjin Bjarnadóttir, Þingvallastræti
18 Akureyri, sem lést 8. nóvember sl.,
verður jarðsungin laugardaginn 17.
nóvember kl. 13.30 frá Akureyrar-
kirkju.
Franziska Karólína Sigurjónsdóttir,
Vatnsstíg 9 Reykjavík, verður jarö-
sungin frá Fossvogskirkju fimmtudag-
inn 15. nóvember kl. 13.30.
Gyða Guömundsdóttir, Furugeröi 1
Reykjavík, lést á Borgarspítalanum
13. nóvember.
Marteinn Björnsson, Koge Danmörku,
er látinn. Jarðarförin hefur farið fram.
Adam Björnsson, Bjarkarstíg 2 Akur-
eyri, lést í Fjórðungssjúkrahúsinu að
kvöldi 12. nóvember.
Maria Albina lést í St. Jósefsspítala,
Hafnarfirði, aðfaranótt 12. nóvember.
Útförin fer fram frá Kristskirkju í
Landakoti mánudaginn 19. nóvember
kl. 13.30.
Guðný Friðbjarnardóttir frá Klaustur-
hólum, Njörvasundi 7 Reykjavík, er
lést 6. þessa mánaöar, veröur jarð-
sungin frá Stóruborgarkirkju laugar-
daginn 17. nóvemberkl. 13.
Basarar
Kvenfélag
Hallgrímskirkju
Hinn árlegi basar Kvenfélags Hallgríms-
kirkju veröur í félagsheimili kirkjunnar laug-
ardaginn 17. nóvember og hefst kl. 14. Tekið
verður á móti basarmunum í félagsheimilinu
á fimmtudag miih kl. 17 og 22, föstudag milh
kl. 15 og 22 og fyrir hádegi á laugardag.
Ungar skólastúlkur með sýnishorn af herðatrjánum sem seld verða á laugar-
daginn.
Viltu kaupa
herðatré?
Laugardaginn 17. nóvember mun Lions-
klúbburinn Njörður standa fyrir fjársöfnun til
styrktar fötluðum bömum. Mörg hundruð
skólaböm í Reykjavík munu þá ganga í hús og
selja herðatré og verður fénu varið til upp-
byggingar sumardvalarheimiUs fatlaðra
bama í Reykjadal í Mosfellssveit. Herða -
trjáasala af þessu tagi fór fram árið 1981 og
tókst þá mjög vel. Er það von þeirra Njarðar-
manna að svo verði einnig nú og að fólk taki
vel á móti sölubömunum en verð sex herða-
trjáa í pakka er aðeins 200 kr.
I gærkvöldi
í gærkvöldi
REYKBANNIÐ
Um næstu áramót má búast við að
„bannár” reykingamanna hefjist. Ef
svo verður má einnig búast viö því að
hinir ýmsu glæpir fylgi í kjölfarið.
Menn geta líklega komið saman í ein-
hverjum leynibúllum og haft
viöskipti hver við annan og sogaö í
sig óþverann í ómældu magni án
þess að eiga mjög á hættu að lenda
bak við lás og slá. Búast má við að
hér ríki skálmöld þar sem reykinga-
mann sitja á ráðum og finna upp á
öllum möguleikum til að brjóta lög
reykbannsins.
Þátturinn í gær um væntanleg
reykingalög varpaöi nokkru ljósi á
þaö hvort rétt sé að setja lög sem
hindra menn og verja gegn tóbaki.
Eg er sammála því að lög af þessu
tagi geta veriö varasöm og hugar-
farsbreytingar séu öflugri. Við
munum öll hvernig fór þegar átti að
banna brennivínið. I þessum nýju
lögum er reyndar ekki farið eins
langt og þá en samt er sami
keimurinn, heldég.
Það er ánægjulegt aö sjá að bama-
efni í sjónvarpi hefur aukist. Eg er
þeirrar skoðunar að halda eigi áfram
á þessari braut enda virðist þessi
stefna sjónvarpsins falla í góðan
jarðveg hjá þeim ungu.
Arnar Páll Hauksson.
Ármann Kr. Einarsson rithöfundur:
Meira af barnaefni
í útvarp og sjónvarp
Ég geri meira að því að horfa á
sjónvarp heldur en að hlusta á út-
varp. Sjónvarpiö er mun sterkari
miöill og höfðar meira til manns.
Fréttum sjónvarpsins, sem ég ann-
ars horfi alltaf á, sleppti ég að hluta til
í gær til að geta hlustað á fram-
haldsleikrit bama og unglinga,
Antílópusöngvarann. Þetta er mjög
gott leikrit en afar slæmt að það skuli
vera á sama tíma og fréttatími sjón-
varps. Annars hefur bamaefni í út-
varpi og sjónvarpi aukist frá því sem
var en þó finnst mér megi enn gera
betur í þeim málum.
Af sjónvarpinu í gær sá ég um-
ræðuþáttinn um tóbaksreykingar og
fannst mér hann athyglisverður. Þaö
er eitt samt við sjónvarpsdagskrána
sem mér finnst síður en svo gott fyrir
unga áhorfendur að sjá en það em
allar þessar of beldis- og glæpamynd-
ir sem sýndar era í sjónvarpinu. Það
væri mun betra að sýna fleiri enskar
myndir sem yfirleitt era vandvirkn-
islega gerðar og fullar af húmor.
Stundin okkar er eitt af því sem ég
fylgist vel með í sjónvarpi. Mér
finnst Stundin nokkuð góð en þó
finnst mér aö mætti vera meira af
innlendu efni í henni. Þaö er einnig
góð tilbreyting að láta krakka s já um
kynningar en framsögn þeirra mætti
vera betri. Þau tala oft á tíöum dálít-
ið óskýrt.
Tónleikar
Áskriftartónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar íslands
Þriðju áskriftartónleikar Sinfóníuhljóm-
sveitar Islands verða í Háskólabíói á morgun,
fimmtudaginn 15. nóv., og hefjast þeir kl.
20.30.
Efnisskráin verður sem hér segir:
ÞorsteinnHauksson: „Adastra”.
CarlNielsen: Flautukonsert.
Robert Schumann: Sinfónía nr. 2 í C-dúr,
op.61.
Verk Þorsteins Haukssonar var frumflutt
hér á listahátíð sl. sumar, en flautukonsert
Nielsens og Schumann sinfónían nr 2 hafa
aldrei heyrst hér á tónleikum fyrr.
Háskólatónleikar
Fjórðu Háskólatónleikarnir á haustmisseri
1984 verða í Norræna húsinu í hádeginu í dag,
miðvikudaginn 14. nóvember.
Flytjendur eru Anna Guðný Guðmunds-
dóttir, píanó, Oskar Ingólfsson, bassethorn,
og Sigurður I. Snorrason, klarinetta.
Flutt verður tónlist eftir Karl von Prandau,
Norbert Bergmiiller og Felix Mendelssohn
Bartholdy.
Tónleikamh- hefjast kl. 12.30 og standa í
u.þ.b. hálftíma.
Tónleikanefnd Háskóla Islands.
Pass með tónleika í Safari
Þungarokkshljómsveitin Pass heldur tónleika
fimmtudagskvöldið 15. nóvember í Safari. A
efnisskránni er eingöngu frumsamið efni.
Tilkynningar
Hallgrímskirkja —
starf aldraðra
Opið hús verður haldið í safnaðarheimilinu á
morgun, fimmtudaginn 15. nóvember, og
hefst kl. 14.30. Dagskrá og kaffiveitingar.
Konur, komið sem flestar í íslenskum búningi
ogstundvislega.
Safnaðarsystir.
Minningarkort líknar-
sjóðs Áslaugar Maack
fást á eftirtöldum stöðum: Pósthúsinu við
Digranesveg, Kópavogi, Bókabúðinni Vedu,
Hamraborg 5, Öglu Bjarnadóttur, Urðarbraut
5, s. 41326, Sigríði Gísladóttur, Kópavogsbraut
45, s. 41286, Helgu Þorsteinsdóttur, Drápuhlíð
25, Rvik,s. 14139.
Frá Stóðhestastöðinni
Arlegt uppboö hjá Stóöhestastöðinni fellur
niður á þessu hausti. Tveir vanaðir hestar,
tamdir, eru þó til sölu. Þeir eru Ýmir 951 frá
Ysta-Bæli, grár fæddur árið 1976, viljugur
gangmikill alhiiða reiðhestur og Hólmi 959 frá
Stykkishólmi, fæddurárið 1976. Gráblesóttur,
viljugur reiðhestur með allan gang. Báðir eru
þeir efnilegir skeiðhestar. Um það má
fræðast í ættbók Búnaðarfélagsins. Öskað er
eftir skriflegum tilboðum í hestana sem
sendist Búnaðarfélagi Islands fyrir 1.
desember 1984. Askilinn er réttur til að hafna
of lágumtilboðum.
Nú er verið að velja ný stóðhestaefni í
stööina en endanleg ákvörðun um það verður
tekin síöar í þessum mánuði.
Bridge
Bridgedeild
Barðstrendingafélagsins
Eftir 5 kvöld í aðaltvímenningskeppni
félagsins er staða 10 efstu para þessi:
1. Ragnar Þorsteinsson
Sigurbjörn Ármannsson 835
2. Hermann Olafsson —
Gunnlaugur Þorsteinsson 821
2. BirgirMagnússon —
Björn Bjömsson 808
4. Stefán Olafsson —
Kristján Olafsson 896
5. ÞórarinnÁrnason —
RagnarBjömsson 790
6. Friðjón Margensson —
Ævar Ármannsson 787
7. Agústa Jónsdóttir —
Guðrún Jónsdóttir 775
8. Sigurður Jónsson —
Sveinn Sigurkarlsson 774
9. IsakSigurðsson —
Ragnar Hermannsson 771
10. Kristinn Oskarsson —
Olafur Jónsson 765
Þann 19. nóvember nk. hefst hraösveita-
keppni félagsins. Þátttaka tilkynnist til Helga
Einarssonar í síma 71980 og Sigurðar
Kristjánssonar í sima 81904.
Siglingar
Akraborg:
Vetraráætlun Akraborgar hefur tekið gildi.
Virka daga fer skipið f jórar ferðir á dag milli
Akraness og Reykjavíkur. Á sunnudögum
þrjár ferðir. Þá er fyrsta ferðin með skipinu
kl. 11.30 frá Akranesi og kl. 13 frá Rvík.
Þannig er áætlunin.
Frá Akranesi Frá Rvík
kl. 8.30 kl. 10.00
kl. 11.30 kl. 13.00
kl. 14.30 kl. 16.00
kl. 17.30 kl. 19.00
Yfir vetrarmánuðina eru engar ferðir eftir
kl. 19.00.
Fundir
Félag óháðra borgara
í Hafnarfirði
heldur aöalfund fimmtudaginn 15. nóvember
kl. 20.30 í Góðtemplarahúsinu. Venjuleg aðal-
fundarstörf.
Stjórnin.
Kvenfélag Kópavogs
Fundur veröur haldinn í kvenfélagi Kópavogs
fimmtudaginn 15. nóvember kl. 20.30 í félags-
heimilinu. Spilaö veröur bingó eftir kaffi.
Stjórnin.
Bfll skemmdur
á bflastæði
Á mánudaginn var ekið á kyrrstæða
bifreið við Krummahóla 2 í Reykjavík
og hún stórskemmd. Sá sem tjóninu
olli flúöi af hólmi og hefur ekkert látið í
sér heyra.
Öhappið var á milli kl. 18.00 og 19.45
á mánudaginn. Var ekið inn í hliðina á
dökkri Honda bifreið sem þar stóð. Ef
einhver hefur orðið var viö þetta er
viðkomandi beðinn um að láta lögregl-
una vita.
Bella
Eg ætla að gista hjá Hjálmari en
hringi Jesper viltu þá heldur segja
honum að ég hafi farið heim með
Vemer.