Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1984, Blaðsíða 1
(
t\
t
í
i
t
í
i
i
t
i
t
i
ti
9
!
i
i
i
i
i
i
i
i
i
Frjálst, óháð dagblað
DAGBLAÐIÐ — VÍSIR
252. TBL. — 74. og 10. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 1984.
Viðskiptahalli stefnir
nú 14,6 milliaröa
eða 1,2 milljörðum meira
Viðskiptajöfnuður við útlönd
stefnir nú í minnst 4,6 milljarða
króna á næsta ári eða 6% af áætlaðri
þjóðarframleiðslu. 1 þjóðhagsáætlun
fyrir 1985 var gert ráð fyrir 3.400
milljóna halla eða 4,4% af þjóðar-
framleiðslunni. Meö þessum 1.200
milljóna aukna viðskiptahalla fær
rikissjóður langleiðina bætt þau
auknu útgjöld sem leiða af kjara-
samningunum.
Á þessu ári verður viöskiptahall-
inn væntanlega minnst 3.500
milljónir eða 5,2% af þjóðarfram-
leiðslu árslns. 1 fyrra varð hallinn 1,3
milljarðar tæplega eða 2,4% móts við
þjóöarframleiöslu þess árs. Þróun
viðskipta við útlönd er þannig sifelld
og stóraukin skuldasöfnun erlendis.
Um þessar mundir eru erlendar
skuldir þjóðarinnar um 50 milljaröar
króna.
Samkvæmt heimildum DV er
óliklegt að ríkisstjómarflokkamir
nái samstöðu um frekari aðgerðir en
áður voru áformaðar til þess að
draga úr viöskiptahalianum, þrátt
fyrir nýviöhorf.
HERB.
GENGIÐ FELLT
UM12 PRÓSENT
Ríkisstjórnin samþykkti í gær að
fella meðalgengi ísienskrar krónu um
12% miðað við það gengi sem skráð var
síðastliðinn föstudag. Gjaldeyrisdeild-
ir bankanna voru lokaðar í gær en
opnaðar aftur í morgun eftir að ný
gengisskráning haf öi verið ákveðin.
I tilkynningu sem Seðlabankinn
hefur sent frá sér segir að meginá-
stæða þessarar gengisbreytingar séu
hinar miklu hækkanir launakostnaöar
sem orðið hafa að undanförnu en þær
hafi bæði í för með sér mjög aukinn
framleiðslukostnað útflutningsat-
vinnuveganna og vaxandi eftirspurn
sem mundi að óbreyttu leiða til aukins
viðskiptahalla. Hafa áhrif þessarar
þróunar þegar komið fram í Ört vax-
andi eftirspurn eftir gjaldeyri og
annarri spákaupmennsku svo ekki var
unnt að halda uppi eðlilegum gjald-
eyrisviðskiptum að óbreyttu gengi.
1 tilkynningu Seðlabankans segir
ennfremur að þessi gengisfelling sé
eingöngu til að endurreisa þau
rekstrarskilyröi sem atvinnuvegunum
voru búin fyrir launahækkanirnar og
þvi muni bankinn á næstu mánuðum
leitast við að halda meðalgengi krón-
unnar stöðugu.
Auk þessarar gengisfellingar hefur
gengi krónunnar sigið um 4% á undan-
fömum vikum.
-OEF.
STROKUFANGARNIR
ALLIR HANDTEKNIR
Fangarnir fjórir, sem struku frá
Kvíabryggju í fyrrinótt, hafa allir
verið handteknir. Þrír þeirra voru
handteknir í húsi í Kópavogi i gær-
kvöldi þar sem þeir vom gestkom-
andi hjá bróður eins þeirra. Sá fjórði
gaf sig fram við lögreglu af sjálfs-
dáöum í gær. Talið er að stroku-
fangamir hafi komist áleiöis til
Reykjavíkur á bíl sem þeir stálu í
Olafsvík en sá bíll fannst síðar yfir-
gefinn á Mýram. Að sögn lögreglu
hafa strokufangamir ekki enn verið
yfirheyrðir. -EH
Kristján Thorlacius:
Gengisr
fellingin er
óhæfuverk
DV leitaöi álits Kristjáns
Thorlacius, formanns BSRB, á á-
kvörðun ríkisstjórnarinnar um
að fella gengi krónunnar.
Kristján sagði að „með þessari
gengisfellingu væri ríkisstjórnin
að taka aftur þær kjarabætur
sem hún m.a. samdi sjálf um við
BSRB. Það hefur því miður skort
á almenna samstöðu samtaka
launafólks. A þetta treysti ríkis-
stjórnin. Hjá BSRB hefur
sannast að samtakamátturinn
var fyrir hendi. Slíkt afl verður
að myndast meðal alls þorra
launafólks annars er hætta á að
enn sigi á ógæfuhliöina til meira
efnahagslegs misréttís í þjóð-
félaginu. Ef launafólk er sam-
taka leyfa stjórnvöld sér ekki
slíka óhæfu sem gengisfellingin
er.” -GK.,
Það er traust þetta handtak þeirra Svavars Gestssonar, formanns
Alþýðubandalagsins, og Jóns Baldvins Hannibalssonar, nýkjörins
formanns Alþýðuflokksins. Ef til vill er þetta upphaf að samvinnu
vinstri flokkanna þótt flokkarnir hafi skammast hvor út í annan á
flokksþingunum um helgina. DV-myndGVA
KOPAR HANDA BANKARAÐI
Hér sést hvar tveir menn vinna við að leggja koparplötur
ofan á það allra helgasta í nýju Seðlabankabyggingunni,
fundarherbergi bankaráðs Seðlabankans. Myhdina tók
Gunnar V. Andrésson af efsta punkti byggingarinnar.