Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1984, Qupperneq 1

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1984, Qupperneq 1
( t\ t í i t í i i t i t i ti 9 ! i i i i i i i i i Frjálst, óháð dagblað DAGBLAÐIÐ — VÍSIR 252. TBL. — 74. og 10. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 1984. Viðskiptahalli stefnir nú 14,6 milliaröa eða 1,2 milljörðum meira Viðskiptajöfnuður við útlönd stefnir nú í minnst 4,6 milljarða króna á næsta ári eða 6% af áætlaðri þjóðarframleiðslu. 1 þjóðhagsáætlun fyrir 1985 var gert ráð fyrir 3.400 milljóna halla eða 4,4% af þjóðar- framleiðslunni. Meö þessum 1.200 milljóna aukna viðskiptahalla fær rikissjóður langleiðina bætt þau auknu útgjöld sem leiða af kjara- samningunum. Á þessu ári verður viöskiptahall- inn væntanlega minnst 3.500 milljónir eða 5,2% af þjóðarfram- leiðslu árslns. 1 fyrra varð hallinn 1,3 milljarðar tæplega eða 2,4% móts við þjóöarframleiöslu þess árs. Þróun viðskipta við útlönd er þannig sifelld og stóraukin skuldasöfnun erlendis. Um þessar mundir eru erlendar skuldir þjóðarinnar um 50 milljaröar króna. Samkvæmt heimildum DV er óliklegt að ríkisstjómarflokkamir nái samstöðu um frekari aðgerðir en áður voru áformaðar til þess að draga úr viöskiptahalianum, þrátt fyrir nýviöhorf. HERB. GENGIÐ FELLT UM12 PRÓSENT Ríkisstjórnin samþykkti í gær að fella meðalgengi ísienskrar krónu um 12% miðað við það gengi sem skráð var síðastliðinn föstudag. Gjaldeyrisdeild- ir bankanna voru lokaðar í gær en opnaðar aftur í morgun eftir að ný gengisskráning haf öi verið ákveðin. I tilkynningu sem Seðlabankinn hefur sent frá sér segir að meginá- stæða þessarar gengisbreytingar séu hinar miklu hækkanir launakostnaöar sem orðið hafa að undanförnu en þær hafi bæði í för með sér mjög aukinn framleiðslukostnað útflutningsat- vinnuveganna og vaxandi eftirspurn sem mundi að óbreyttu leiða til aukins viðskiptahalla. Hafa áhrif þessarar þróunar þegar komið fram í Ört vax- andi eftirspurn eftir gjaldeyri og annarri spákaupmennsku svo ekki var unnt að halda uppi eðlilegum gjald- eyrisviðskiptum að óbreyttu gengi. 1 tilkynningu Seðlabankans segir ennfremur að þessi gengisfelling sé eingöngu til að endurreisa þau rekstrarskilyröi sem atvinnuvegunum voru búin fyrir launahækkanirnar og þvi muni bankinn á næstu mánuðum leitast við að halda meðalgengi krón- unnar stöðugu. Auk þessarar gengisfellingar hefur gengi krónunnar sigið um 4% á undan- fömum vikum. -OEF. STROKUFANGARNIR ALLIR HANDTEKNIR Fangarnir fjórir, sem struku frá Kvíabryggju í fyrrinótt, hafa allir verið handteknir. Þrír þeirra voru handteknir í húsi í Kópavogi i gær- kvöldi þar sem þeir vom gestkom- andi hjá bróður eins þeirra. Sá fjórði gaf sig fram við lögreglu af sjálfs- dáöum í gær. Talið er að stroku- fangamir hafi komist áleiöis til Reykjavíkur á bíl sem þeir stálu í Olafsvík en sá bíll fannst síðar yfir- gefinn á Mýram. Að sögn lögreglu hafa strokufangamir ekki enn verið yfirheyrðir. -EH Kristján Thorlacius: Gengisr fellingin er óhæfuverk DV leitaöi álits Kristjáns Thorlacius, formanns BSRB, á á- kvörðun ríkisstjórnarinnar um að fella gengi krónunnar. Kristján sagði að „með þessari gengisfellingu væri ríkisstjórnin að taka aftur þær kjarabætur sem hún m.a. samdi sjálf um við BSRB. Það hefur því miður skort á almenna samstöðu samtaka launafólks. A þetta treysti ríkis- stjórnin. Hjá BSRB hefur sannast að samtakamátturinn var fyrir hendi. Slíkt afl verður að myndast meðal alls þorra launafólks annars er hætta á að enn sigi á ógæfuhliöina til meira efnahagslegs misréttís í þjóð- félaginu. Ef launafólk er sam- taka leyfa stjórnvöld sér ekki slíka óhæfu sem gengisfellingin er.” -GK., Það er traust þetta handtak þeirra Svavars Gestssonar, formanns Alþýðubandalagsins, og Jóns Baldvins Hannibalssonar, nýkjörins formanns Alþýðuflokksins. Ef til vill er þetta upphaf að samvinnu vinstri flokkanna þótt flokkarnir hafi skammast hvor út í annan á flokksþingunum um helgina. DV-myndGVA KOPAR HANDA BANKARAÐI Hér sést hvar tveir menn vinna við að leggja koparplötur ofan á það allra helgasta í nýju Seðlabankabyggingunni, fundarherbergi bankaráðs Seðlabankans. Myhdina tók Gunnar V. Andrésson af efsta punkti byggingarinnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.