Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1984, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1984, Side 2
2 DV. ÞRIÐJUDAGUR 20. NOVEMBER1984. lón Sigurdsson, forstjóri Þjóðhagsstof nunar: Fjárhagur sveitar- félaganna vænkast Fjárhagur flestra sveitarfélaga á landinu mun vænkast verulega á þessu ári að því er fram kom í ræðu Jóns Sigurðssonar, forstjóra Þjóðhagsstofnunar, á ráðstefnu um fjármál sveitarfélaga sem haldin var í gær. 1 ræðu J óns kom fram að talið er að rekstrartekjur sveitarfélaganna á þessu ári aukist um 42% frá fyrra ári á sama tíma og talið er að rekstrar- gjöld þeirra hækki um tæplega 24%. Hækkun vísitölu framfærslu- kostnaðar er hins vegar talin verða um 30% á árinu og hækkun vísitölu byggingarkostnaðar um 22% á milli áranna 1983 og 1984. „1 þessumtölum felst vísbending um verulega bætta fjárhagsstööu sveitarfélaganna á þessu ári þannig að þau ættu yfirleitt að geta grynnt á skuldum sem sö&iuðust hjá mörgum þeirra árin 1982 og 1983 og bætt greiðslustöðu sína,” sagði Jón Sigurðsson í ræðu sinnL Hann benti einnig á að heildar- skuldir sveitarsjóða hafi farið mjög vaxandi hin siðari ár i hlutfalli við tekjur þeirra. Skuldastaða þeirra væri þó misjöfn. Sagði hann að svo virtist sem skuldir fámennari sveitarfélaganna séu miklu meiri í hlutfalli við tekjur en hinna stærri. Með þeim breytingum sem orðið hafa á vaxtakjörum hin síðari ár verði þessi munur enn alvarlegri en ella vegna þungrar greiðslubyrði. Jón sagði einnig að í sumum sjávar- plássum væri dráttur á greiðslu sveitarsjóðsgjalda vegna erfiðleika í sjávarútvegi, þannig að það skipti í tvö horn um það hvernig þessi bati dygði til að koma fjármálum sveitar- félaganna á réttan kjöL Jón Sigurðsson sagöi einnig aö fjárhagshorfur sveitarfélaga fyrir næsta ár væru ekki sem verstar og ætti viðast hvar að vera vandræða- laust að koma saman fjárhags- áætlunum fyrir næsta ár. Hann gerði þó fyrirvara varðandi breytta efna- hagsstefnu í kjölfar nýgerðra kjara- samninga sem ekki væri vitað hvaða áhrif hefði á fjárhag sveitar- félaganna. ÓEF Ólöglegaríbúðirf Hamarshúsinu FJÓRIR FLUTTIRINN Nú er flutt inn í fjórar íbúðir í Hamarshúsinu viö Tryggvagötu í Reykjavík þó ekki liggi fyrir formlegt samþykki frá yfirvöldum fyrir íbúðunum. Að sögn eins íbúanna flutti hann inn fyrir 2 mánuöum. 1 vor skipaöi byggingafulltrúi Reykjavíkurborgar svo fyrir að öllum framkvæmdum yrði hætt við íbúðirnar þangað til endanlega væri búið að af- greiöa málið. Þessum fyrirmælum var ekki framfylgt. Nú liggur fyrir yfir- lýsing frá meirihluta bygginganefndar um að íbúðimar verði samþykktar en f jrrst þarf samþykki Skipulagsnefndar ríkisins sem ekki fæst fyrr en félags- málaráöherra samþykkir breytingu á aöalskipulagi. Umrædd breyting felur í sér að hætt verður við að leggja hrað- braut sem m.a. átti að liggja um lóð Hamarshússins. „Þetta mál er komið á leiðarenda og liggur á borðinu hjá félagsmála- ráðherra,” sagði Zóphónias Pálsson skipulagsstjóri. „Það er undir honum komið að samþykkja breytihgar á aöalskipulagi vegna íbúðanna í Hamarshúsinu.” -EH Komnar gardinur fyrir g/ugga í Hamarshúsinu enda ibúar fluttir inn íhúsið. D V-mynd Bj. Bj. Deilt um verkamanna- bústaði íGrindavík: Emstæðarmæður gegn öldruðum „Þetta er bara klikuskapur. Við höf- um sótt um íbúðir í verkamannabú- stööum í þrígang og aldrei fengið. Okk- ur þykir hart þegar eignafólk er farið að ganga fyrir um úthlutanir,” sögðu tvær fiskvinnslustúlkur í Grindavík í samtali við DV og báru sig illa undan úthlutunamefnd verkamannabústaöa þar í bæ. Þær eru 25 ára, hvor með sitt barnið og búa i leiguhúsnæði. „Okkur þykir meira en lítið undarlegt þegar ellilifeyrisþegar i eigin, skuldlausu húsnæöi eru famir aö ganga fyrir eignalausu, vinnandi fólki.” Að sögn Bjama Andréssonar sem á sæti í úthlutunamefnd verkamannabú- staða i Grindavík var 8 íbúöum úthlut- að í þetta skipti. Umsóknir voru marg- falt fleiri, nefndin ynni eftir ákveönum reglum og hvað þessar tvær íbúðir varðaöi hefði nefndin tekið einróma ákvöröun um aö láta ellilífeyrisþegana ganga fyrir. -EK. r Ovissaum sex- mannanefndina Fyrsta desember er gert ráð fyrir að nýtt búvömverð verði skráð. Hversu mikil sú hækkun verður er ekki vitað því enn er verið að vinna að gerð þeirra gagna sem verða að liggja fyrir til að meta hver hækkun búvara verður aðvera. Það er sexmannanefndin sem endan- lega ákveöur hverjar breytingamar veröa á búvömnni og launaliöum bænda. Sexmannanefndin er upphaf- lega hugsuð sem nefnd fulltrúa neyt- enda og bænda þar sem þessir aðilar eiga að semja um laun bænda og gæta þess að þau séu í samræmi við laun annarra i þjóðfélaginu. En sexmanna- nefndin heftir mnnið sitt skeið því nú sitja engir fulltrúar neytenda lengur í nefndinni. ASl tók sinn fulltrúa úr nefndinni 1974 og nú í sumar tóku hin samböndin tvö sína fulltrúa úr nefnd- inni, þ.e. Landssamband iðnaðar- manna og Sjómannafélag Reykjavik- ur. Þegar slíkt gerist á félagsmálaráð- herra að skipa fulltrúa i staö þeirra sem hverfa úr nefndinni. Nú fyrsta september þegar búvömverð var endurskoðað síðast féllust fulltrúamir sem setið höfðu áður sem fulltrúar neytenda á að sitja áfram í nefndinni en bara í þetta eina skiptL Nú fer hinsvegar að líða að því að búvömverðið verði endurskoðað að nýju eins og lög gera ráð fyrir. En ekkert hefur þó verið gert enn til að skipa nýja menn eða breyta tilhögun verðmyndunar í landbúnaði, sem reyndar hefur verið á dagskrá undanfarin ár. Segja má að nokkur óvissa riki því um framtíð sexmanna- nefndarinnar þessa stundina. APH Heimsmeistaraeinvígið í skák: Snúðugt jafntefli Heldur var meira líf yfir byrjunar- leikjunum í Moskvu í gærkvöldi en á föstudaginn. Karpov sem hafði hvítt í skákinni byggði upp vænlega stöðu þar sem menn hans stóðu vígreifir frammi fyrir hangandi peðum áskor- andans Ksparovs á miðjunni. 1 blaðamannastúkunni tóku menni sérstaklega eftir því hve móðir Kasparovs, sem ávallt er honum til trausts og halds á skákmótum, virt- ist áhyggjufull yfir taflstöðu sonar síns. I 21. leik neyddist Kasparov til að leika riddara sínum upp í borö og bjóða fram uppskipti og virkaði staða hans þá ekki beysin. Nú hugsaði Karpov sig um í hálf- tíma og átti hann þá einungis 25 mínútur eftir til að ljúka 19 leikjum. öllum viðstöddum til mikillar ftirðu rétti hann áskorandanum siðan höndina án þess að leika leik. Var hann þá að samþykkja jafnteflisboð sem Kasparov hafði boðið um leið og hann hafði leikiö riddara sinum upp í borðið. Þóttu þetta undur mikil þar sem staða Karpovs var að flestra áliti betri. Við undirritun friðar- samninganna leyfði frú Kasparov sér að brosa eilítið til viðstaddra greinilega hæstánægö meö jafnteflið. Meistararnir sátu síðan við taflið góðar tíu mínútur eftir skákina og virtu fyrir sér frekari leiki. Oneitanlega snubbóttur endir á skák sem virtist ætla að verða lífleg. 25. einvígisskákin: Hvitt: Anatolí Karpov. Svart: Garrí Kasparov. Drottningarbragð (Tarrash af- brigðið) 1. Rf3 dó 2. d4 Rf6 3. c4 e6 4. Rc3 Be7 5. Bg5 h6 6. Bh4 0—0 7. e3 b6 8. Be2 Bb7 9. Hcl. 1 17. skák einvigisins hrókfærði Karpov í þessari stöðu, hugmynd hans nú er að ráðast þegar til atlögu við mið-, borð Kasparovs. 9. - Rbd7 10. cxd5 exd5 11 0-0 c5 12. dxc5bxc5 Upp er komin einkennandi hanga- peðsstaða. Svörtu miðborðspeðin eru slitin frá öðrum peöum hans. Hvítur reynir því að sækja að þeim. Á móti kemur að svartur hefur frjálst tafl meðmönnum sínum. 13. Hc2 Hc814. Hd2 Db615. Db3. Heimsmeistarinn óttast ekki að hann kunni að sitja uppi með tvipeð á b-h'nunni þar sem hann fær þá spíl eftir a-línunni á staöinn. 15. — Hfd8 16. Hfdl Dxb3 17. axb3 Rb618. Re5 Hvítur leikur riddara sínum þegar á þennan áskjósanlega miðborðsrdt. Sá böggull fylgir þó skammrifi að d4 reiturinn veikist og gefur svörtum færi á framrás drottningarpeösins seinna meir. 18. —Kf8. Fyrst og fremst leikið til þess að valda biskupinn á e7 og fría þannig riddarann á f6. 19. h3 a6 20. Bf3. Skák ÁsgeirÞórÁmason Annar og ekki síðri möguleiki var 20. Hal með þrýstingi eftir a-línunni. 20. — Ba8. Svartur undirbýr gangfæri eftir hálfopinni b-línunni. 21. Rg4Rg8!? JAFNTEFLI! Rétt í þann mund sem leikurinn æsist er meisturunum jafnteflið þóknanlegt. Fyrrum heimsmeistari, Mikael Tal, hristi hausinn og stakk upp á framhaldinu; 22. Bxe7+ Rxe7 23. Re5 Ke8 (hvitur hótaði Rc4) 24. h4 og Tal átti ekki gott með að stinga upp á góðum leik fyrir svartan í þessari stöðu. Með jafnteflinu í gærkvöldi hafa Karpov og Kasparov tvöfaldað fyrrum met Capablanka og Aljekíns um flest jafnteflin í röö og hafa nú teflt sextán j afntefli í röö. Næsta skák er á morgun og hefur Kasparov hvítt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.