Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1984, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1984, Page 4
4 DV. ÞRIÐJUDAGUR 20. NÖVEMBER1984. Frá flokksráðsfundi Alþýðubandalagsins um holgina. Konurnar vinda af hespunum á moðan ræðumenn teygja lopann. DV-mynd GVA. Kaupmátt samninga er unnt að veria „Nú er því haldið fram að kjara- samningar BSRB séu óframkvæm- anlegir og ekki unnt að verja kaup- mátt þeirra. Þetta er rugl,” sagði Svavar Gestsson, formaður Alþýðu- bandalagsins, á flokksráösfundinum um helgina. Svavar sagði að næstu daga myndi verða lagt fram frum- varp af þingmönnum Alþýðubanda- lagsins um hvemig ver ja megi kaup- máttinn og jafnframt veita viðnám gegnverðbólgu. Svavar sagöi að tillögur Alþýðu- bandalagsins í þessum efnum væru þær að í stað þess aö gefa verðlag frjálst verði fylgst vandlega meö allri verömyndun, sérstaklega inn- flutningsverslun og haldiö aftur af verðhækkunum, meðal annars hækkunum á opinberri þjónustu. I stað þess að fella gengiö er lagt til að þjónustuaöilar verði skattlagðir til þess að styrkja stöðu þeirra útflutn- ingsgreina sem eiga við sérstaka erf- iöleika að stríða. Lagt er til að hagn- aður Seðlabankans verði gerður upp- tækur í ríkissjóð. Gerðar eru tillögur um aukna skattheimtu með því að leggja 100% álag á skatt á skrifstofu- húsnæði, leggja veltuskatt á bank- ana og að vaxtatekjur yfir ákveðnu marki verði skattlagöar. Einnig er lagt til að kannað verði hvort leggja eigi sérstakan tímabundinn veltu- skatt á þær greinar sem skilaö hafa mestum gróöa á undanfömum miss- erum. Svavar taldi að með þessum aöferðum væri hægt aö afla tekna i ríkissjóö er næmu einum milljarði króna. 1 þessum tillögum er einnig gert ráð fýrir að vextir verði lækkaöir vemlega til að bæta kjör húsbyggj- enda og atvinnuvega og að fraktgjöld verði lækkuð með lögum. Svavar lagði það til á fundinum að næsta miðstjóm Alþýðubandalags- ins fengi það verkefni að gera tillög- ur um framtíðaruppbyggingu ís- lenskra atvinnuvega. Þær tillögur yröu að byggjast á itarlegri rann- sókn á því hvers vegna lífskjör séu mun lakari hér á landi en i grann- iöndunum þrátt fyrir svipaðar þjóðartekjur á mann. „Mér kæmi ekki á óvart þótt niður- staðan yrði sú aö innflutnings- verslunin hér á landi væri 5 til 10% dýrari hér en nauðsynlegt væri mið- að við grannlönd okkar; það eitt gæti sparað þjóðarbúinu 5 til 7 milljarða króna — með því einu mætti bæta kaup um 10% í raunkrónum,” sagði Svavar Gestsson í ræðu sinni. „Mér kæmi ekki á óvart að út úr slíkri könnun kæmi í ljós að flutning- ar til landsins og frá því væru óheyri- lega dýrir og aö þjóðarbúið gæti — sagði Svavar Gestsson í ræðu á flokksráðsfundi A Iþýðuba ndalagsins sparað milljarða með skipulegu átaki til þess að auka þar hag- kvæmni. Mér kæmi ekki á óvart þótt í ljós kæmi í slíkri könnun að bankamir væra miklum mun dýrari hér á landi en í grannlöndum okkar reiknað á hvern íbúa. Mér kæmi ekki á óvart þótt í ljós kæmi að dreifingarkostnaður olíu væri margf aldur á við það sem gerist í grannlöndum okkar en það eitt að lækka oliuna til dæmis um einn tí- unda til fiskiskipanna gæti gjör- breytt afkomu útgerðar og sjó- manna. Mér kæmi ekki á óvart þótt í ljós kæmi að tryggingastarfsemin hér á landi væri allt of dýr. Og þannig mætti lengi telja,” sagði Svavar Gestsson. OEF Kfnverska tóbakið ívesturbænum: Gátan leyst „Þetta hefur komið fyrir áður og alltaf hafa það verið kínverskir tóbaks- pakkar sem slæðast hingað,” sagði Þórhallur Stefánsson, verkstjóri hjá Tóbakseinkasölunni, aðspurður um kínversku tóbakspakkana sem verið hafa í umferð í Reykjavík að undan- förnu. „Þetta er ekki mikið magn, aöeins nokkrir pakkar og skýringin er sú að í (pökkunarverksmiðjunum ytra er ís- lensku pökkunum pakkað næst á eftir þeim kínversku. Það sem gerist er að nokkrir kínverskir verða eftir í vélinni I og slæðast hingað til lands,” sagði Þór- hallur. Ekki taldi Þórhallur líkur á að tóbaksskortur hefði orðið í Kína vegna þessara mistaka: „Það er ekki reykt svo mikið af bandarísku tóbaki þarna í Kína, þeir framleiða eigin sígarettur.” -EIR Útvarp Suðurland Beðið eftir kerfi rásar 2 „Þetta er mál sem hefur verið rætt í sambandi við uppbyggingu á kerfi rás- ar 2 og verður tekið til heildarskoðun- ar varðandi hina ýmsu landshluta,” sagði Markús örn Antonsson, formað- ur útvarpsráðs, um framkomnar til- lögur um sérstakar útvarpssendingar fyrir Suöuriand. Markús sagði að vonandi um áramót yrði uppbyggingu dreifikerfis rásar 2 aö mestu lokið og sköpuðust þá þessir möguleikar fyrir staðbundið útvarp. Fyrst svo stutt væri þangað til væri eölilegra að bíða og taka fyrir stærra dæmi heldur en að taka einstakar ákvaröanir fyrir einstaka landshluta. JBH/Akureyri Litlu börnin áhyggjufull 1 litlum skóla úti á landi, Grunnskóla Geiradalshrepps, eru sextán nemendur á aldrinum sex til ellefu ára. Þrátt fyr- lir ungan aldur eru bömin í Geiradals- jhreppi áhyggjufull yfir ástandinu í heimsmálum. Á málfundi, sem var haldinn í skólanum nýlega, samþykktu (nemendur eftirf arandi ályktun til allra þjóða heimsins: „Leggið tafarlaust niður öll vopn og vítisvélar. Notið vopnaframleiðslupeningana til matar- framleiðslu handa hungruðum heimi. Gefið okkur og komandi kynslóðum framtíð í friði og bræðralagi þar sem allir menn eru jafnir.” -EH I dag mælir Dagfari í dag mælir Dagfari í dag mælir Dagfari Formannskosning úr móðurkviði Alþýðuflokkurinn hélt uppi viðtek- inni venju sinni og slátraði formanni sínum um helgina. Eftir því sem fylgi flokksins hefur minnkað síðasta áratuginn hefur formönnunum fjölg- að. Það hefur sjálfsagt verið mat þeirra kratanna að Kjartan væri bú- inn að reyto alUþaö fylgi af fiokkn- um, sem í hans valdi stæði og því þótti rétt að skipta um, samkvæmt þeirri formúlu að formennirnir séu þær fugiahræður hjá flokknum sem fæla fyigið frá. Kjartan Jóhannsson tók því drengilega, þegar flokksþing þeirra kratanna gaf honum sparkið og lof- aði að standa heils hugar með hinum nýja formannl. Nú er það að vísu að , heyra á Jóni Baldvin að hann ætli að taka upp nýja formannsstefnu og stækka Alþýðuflokkinn, en óvist er hvort honum takist það nýstárlega ætlunarverk, meðan Kjartan lofar að halda í höndina á honum. Af Kjartani er það að segja, að honum þótti vel og karlmannlega mælast, þegar ósigurinn varð opin- ber og mátti jafnvel heyra hlý orð í hans garð að kveðjuræðunni lokinni. Kratar bregða greinilega ekki út af þeim gamla og góöa íslenska sið, að tala vel um látna, enda er það jafnan svo, að stjórnmálamenn njóta þá fyrst sannmælis, þegar þeir eru ekki lengur fyrir öðrum eða horfnir af sjónarsviðinu. Er nú vonandi að Kjartani Jó- hannssyni muni vel farnast, þá loks hann er laus við það ok, að bera lík- kistuna með Alþýðuflokknum á herð- unum. Jón Baldvin Hannibalsson hefur tekið það verk að sér og ekki með öllu óvanur að sippa heilum flokkum upp á herðar sér og niður aftur. Alþýðu- flokkurinn mun vera þriðji flokkur- inn sem Jón Baldvin tekur að sér að jafnhenda. Sá er hinsvegar munurinn að Jón er kominn heim þegar Alþýðuflokk- urinn er annarsvegar, eins og hann sjálfur hefur ítarlega tíundaö í sigur- vimunni. Ekki er þaö aðeins, að hinn nýkjörni foringi kratanna, sé fæddur í Alþýðuhúsinu vestra, heldur hefur hann rifjað það upp að þáverandi for- maður Alþýðuflokksins, Jón Bald- vinsson, hafi vitjað sin i móðurkviði, með þeim afleiðingum, að hann ber nú nafn hans. Það er ekki oft, sem menn geta sannað formannskrýn- ingu sina, með tilvisun til framlið- inna, og það áður en þeir sjálfir eru í og drjúg reynist sú forspá, sem þann- heiminn bornir. Mikil eru þau örlög ig fleytir dætrum og sonum liðinnar stjórnmálasögu til æðstu metorða. Vaknar raunar sú spurning, úr þvi hin nýja forystukynslóð kratanna er svo forlagatrúar, sem raun ber vitni, hvort kosningin á flokksþinginu hafi ekki verið næsta óþörf, eða þá að minnsta kosti fjarstýrð að handan. Það er heldur ekki dónalegt fyrir Jón heitinn Baldvinsson, einn ágætasta formann Alþýðuflokksins fyrr og sið- ar, að eiga svo innangengt í flokkinn, nokkrum áratugum eftir andlát sitt, að Hafnarf jarðarkratar fái ekki rönd við reist. Munurinn er hins vegar sá, að Jón Baldvinsson hafði það tak- mark að stækka flokkinn. Það er meira heldur en hægt er að segja um arftakahans. Nú er aðeins að biða og sjá, hvað langan tíma það taki Alþýðuflokkinn að boia Jóni Baldvin Hannibalssyni frá. Eltt er víst, að það mun ekki ganga jafnátakalítið fyrir sig og aftökur Gylfa, Benedikts og Kjart- ans. Jón Baldvin hefur nefnilega ýmislegt lært af karli föður sinum og þess vegna er jafnlíklegt, að það verði Jón sem gangi af Alþýðu- flokknum dauðum en ekkl öfugt. Dagfarl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.