Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1984, Síða 5
DV. ÞRIÐJUDAGUR 20. NO VEMBER1984.
S
Óskar Ólason yf irlögregluþjónn:
Radarinn okkar
lýgur aldrei
Þó hæstiréttur Noregs hafi komist
aö þeirri niðurstöðu að ekki sé alltaf að
marka radarmælingar lögreglunnar
þá horfir málið öðruvísi við hér á
landi,” sagði Oskar Olason yfirlog-
regluþjónn í framhaldi af frétt DV um
deilur í Noregi um áreiðanleika radar-
mælinga lögreglunnar og hæstaréttar-
dóm sem gekk ökumanni í hag.
„Okkar mælingar fara fram inni í
lögreglubílunum sjálfum en ekki í upp-
settum mæh við vegarkant eins og
tíðkast í Noregi. Við hættum þess kon-
ar mælingum fyrir 5 árum og ég þori
að fullyrða að mælingar okkar í dag
eru áreiðanlegar. Mælamir em athug-
aöir í þrígang fyrir og eftir mælingu og
fá ökumenn að vera viðstaddir ef þeir
vilja,” sagöi Oskar Olason.
Þaö sem af er þessu ári hefur lög-
reglan kært um 4000 ökumenn í
Reykjavík fyrir of hraðan akstur.
Sektargreiðslur þeirra nema umtals-
verðum fjárhæðum enda kostar 950
krónur að aka á bilinu frá 51 km hraða
upp í 70 þar sem hámarkshraði er 50
km/klst. Ef hraðinn fer yfir 70 er sekt-
in 1200 krónur en 1800 krónur á bilinu
frá 80—90 km hraða. Ef hraðinn er aft-
ur á móti kominn yfir 90 f er málið fyrir
Sakadóm og sekt vart undir 3000 krón-
um. Akstur yfir 100 km/klst. þýðir svo
Óskar Ólason yfirlögregluþjónn: —
Við fáum engar prósentur af hraOa-
sektunum.
ökuleyfissviptingu og um 6000 króna
sekt.
,,Eini tilgangur okkar með þessum
hraöamælingum er sá að reyna að
koma í veg fyrir slys á fólki. Við fáum
engar prósentur af sektunum þannig
að það er ekki það sem fyrir okkur vak-
ir,” sagði Óskar Ólason.
-EIR.
Seyðisfjörður:
GYLUR KAUPIR
GULLBERGIÐ
Búið er að ganga frá sölu á togaran-
um Gullbergi frá Seyðisfirði en kaup-
andinn var útgerðarfélag á staönum,
Gyllir hf. Kaupverðið var 90 milljónir
Súríni erlostæti
Islendingar íhuga nú útflutning á
súríni sem er einskonar fiskfars sem
má búa til úr fiski eins og karfa, löngu,
ufsa og ýmsum fleiri tegundum. Súríni
er einnig það hráefni sern notað er í
gervikrabba og gervihumar og er rætt
um að góðar markaðshorfur séu fyrir
hendi erlendis.
Slíkt fiskfars er aldagömul afurö í
Japan en er nú farið að framleiða víðar
svo sem í Kanada og Bandaríkjunum.
Farsið er blandað sérstaklega til að
auka geymsluþol og gæði og þykir mik-
ið lostæti, sérstaklega hjá Japönum
sem hafa uppskriftir að einum 50 mis-
munandi réttum þar sem uppistaöan
er súríni. Japanir framleiöa nú um
milljón tonn af farsinu á ári.
-EH
kr. en aðilar að kaupunum auk Gyllis
voru bæjarsjóður og hafnarsjóður.
Við kaupin mun nafn togarans breyt-
ast í Otto Wathne en Gyllir átti togara
meö því nafni sem seldur var Hafrann-
sóknastofnun.
Fiskvinnslan hf. átti Gullbergiö en
að sögn Trausta Magnússonar, skip-
stjóra á togaranum, var hann seldur
vegna fjárhagsörðugleika þess fyrir-
tækis. Hefur hann legið við bryggju af
þeim sökum i allt sumar. Togarinn
kemur til með aö leggja upp afla hjá
Fiskvinnslunni og Norðursíld.
Að sögn Trausta verður sama áhöfn
á hinum nýja Otto Wathne og var á
þeim gamla. Eru þeir farnir út, á troll,
en síðan er ætlunin aö sigla til Dan-
merkur þar sem togarinn fer í slipp og
skipt verður um skrúfu i honum auk
þess sem hann fer í 8 ára klössunina.
Skipstjórar verða tveir á togaranum,
auk Trausta veröur Páll Ágústsson
skipstjóri á hinum nýja Otto Wathne.
-FRI
Hann er íslensknr!
Hann er lagaóur
að líkamanum!
Hann fæst með eða
án arma og með
hvaða áklæði sem er!
Ef hann er 2000 krónum ódýrari en
innfluttur stóll, hversu mikið gætir
þú þá sparað í næsta skipti sem þú
pantar 25 stóla fyrir fyrirtæki þitt?
Rétt! 50.000 krónur. Hverniggæti
fyrirtækið haft not af 50.000 krónum
aukalega? Hvernig sem þú vilt nota
peningana þá ertu alltaf velkominn.
Hjá okkur gerir þú hagkvæm
innkaup. Við opnum klukkan 8.
STÁLIÐJANhf
SMIÐJUVEGI 5, KÓPAVOGI, SÍMI 43211
frá Skóverslun Þórðar Péturs- |
sonar, Laugavegi 95, sími 13570 og ■
Kirkjustræti 8, sími 14181, um stór- j
kostlegt úrval ■
AF SKOFATNAÐI
Þýskir og ítalskir/öklaháir skór og kuldaskór
fyrir dömur og herra
I Kuldaskór á herra í úrvali,
spariskór á dömur, mikið úr-
I val, spariskór á herra í úrvali
Hágæðakuldastígvél
frá þýska fyrírtækinu
JUBO, ökiahá, miðhá,
oghá.
Úrvaí af götuskóm
Drengjaskór, telpna-
skór, stærðir frá 28—
35.
IMýJustu tískulitir,
svart, grátt, hvítt,
brúnt og beige.
8?