Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1984, Síða 16
16
DV. ÞRIÐJUDAGUR 20. NOVEMBER1984.
Spurningin
Hvaða íslenskan leikara
heldur þú mest upp á?
Kristjana Guölaugsdóttir húsmóðir:
Það er tvímælalaust Sigurður Sigur-
jónsson. Eg hef séð hann bæði á sviði
og í sjónvarpi og finnst hann alveg
frábær.
Linda Róbertsdóttir húsmóðir: Þaö er
Róbert Amfinnsson. Eg hef séð hann
i mörgum leikritum, þ.á m. i
Amadeus þar sem hann stóð sig mjög
vel.
Stella Kristjánsdóttir gangavörður:
Minn uppáhaldsleikari er Árni
Tryggvason. Ég hef séð hann bæði á
sviði og heyrt í honiun í útvarpi og
finnst hann alveg dýrðlegur.
Guðmundur örn smiður: Þaö er
Amar Jónsson. Hann er frábær
leikari og mér er hann minnisstæður í
hlutverki Galdra-Lofts í Iðnó fyrir
nokkrum árum.
Björg Þórarinsdóttir húsmóðir: Sú
leikkona sem ég held mest uppáer
Þóra Friðriksdóttir. Hún hefur leikið
mörg góð hlutverk, t.d. var hún frá-
bær í leikritinu Ertu nú ánægð, kerl-
ing?
Jón Áraason skrifstofumaður: Uppá-
haldsleikarinn minn er Siguröur Sig-
urjónsson. Eg sá hann núna síðast í
Dalalif i og þar var hann alveg frábær.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
BSRB-verkfall og far-
sæll fjármálaráðherra
Launþegi skrifar:
Kannski verður aldrei ofmetið það
tjón sem öll þjóðin varð fyrir þegar
hið langa verkfall opinberra starfs-
manna var nærri þvi búiö að ganga
af þjóðarbúinu dauðu.
Hitt var þó verra, að þröngur
hópur eiginhagsmunahyggjandi for-
sprakka opinberra starfsmanna
skyldi geta fengið því framgengt að
ekki var gengið til samninga á
forsendu skattalækkana. Nú er borin
von að opinberir starfsmenn nái
nokkurn tima upp þeim launamissi
sem þeir urðu fyrir í verkfallinu. —
Og til hvers var þá öll baráttan?
En eitt skyldu opinberir starfs-
menn þakka fjármálaráðherranum
okkar og þaö er að hann skyldi hafa
þá framsýni til að bera að ákveöa í
byrjun aö greiða ekki laun fyrirfram
þegar séö varð að stefndi i langt
verkfall.
Hvernig stæöu opinberir starfs-
menn nú ef þeir .hefðu fengið
októberlaun sín greidd fyrirfram
eins og þeir kröfðust? Þá hefðu þeir
ekki fengið nein laun nú, fyrirfram
vegna nóvember, því þeir hcfðu að
sjálfsögðu þurft að greiða október-
launin til baka og stæðu þvi uppi aö'
loknu verkfalli með tvær hendur
tómar.
„Albert Guðmundsson er farsæll
maður i starfi," segir launþegi
m.a. í groin sinni.
Auðvitað kom fyrirhyggja fjár-
málaráðherra opinberum starfs-
mönnum þeim vel að þessu leyti. Og
það er fleira sem þeir opinberir
starfsmenn mega þakka þessum
ráðherra þótt þeim finnist hann ef til
vill hafa verið fylginn sér í verkfalls-
baráttunni, eins og honum bar sem
forsvarsmanni rikisf jármála.
Eða hver getur áfellst ráðherrann
fyrir að gæta þess sem hann er
settur yfir? Og það merkilega er að
þrátt fyrir þá aðstöðu sem fjármála-
ráðherra var í, er eins og hann komi
ávallt sterkur út úr þeim málum sem
á honum brenna.
Það er kannski ekki neinn alls-
herjarskoðanavettvangur, þar sem
útvarpsstöðin rás 2 er en sýnir þó
hvernig straumar liggja. Stöðin
gerði könnun á því hver væri
vinsælasti maður októbermánaðar,
verkfallsmánaöarins mikla. Og
kemur þá ekki í ljós að það er fjár-
málaráðherrann sjálfur sem þar er
efsturáblaði.
Einhver hefði nú haldiö að einhver
hinna verkfallsglöðu verkalýðs-
rekenda færi þar fremstur, t.d. for-
maður bókagerðarmanna eða sjálfur
„allatollinn” í BSRB! - Nei, fólkið
hafði vegið og metiö allar aðstæður.
Það er ekki neinum ofsögum sagt
af því að Albert Guðmundsson fjár-
málaráðherra er farsæll maður í
starfi og leik og það er þess vegna
sem hann á skilið fylgi og hann fær
þaðlíka.
Aukatekjur
kennara
Sjómaður skrifar:
Mig langar hér að leggja orð í belg
varðandi laun kennara sem mjög era
til umræðu nú. Það gætir mjög mikils
ósamræmis í öllum málflutningi um
þetta mál og það er ekki óeölilegt þvi
þau eru mjög misjöfn. Uti á landi hafa
kennarar t.d. fjögurra mánaða
sumarfrí og þetta hefur enginn
minnst á, ekki einu sinni fjármála-
ráðherrann. Maöur sem hefur unnið í
20 ár eða lengur viö kennslu úti á landi
kennir ekki nema 28 tima á viku. Þessi
ákveðni maður, sem ég hef i huga,
byrjar til sjós í endaðan mars og sá
rær eftir hádegi þegar hann getur þvi
hann vinnur ekki nema til tólf. Eg
spurðist fyrir um þetta mál hjá
fræðslustjóra í Borgamesi, hvemig
stæði á þvi að maðurinn gæti stundað
sjósókn samhliða kennslunni. Hann
gaf mér þá það svar að engin stétt
hefði náð jafngóðum kjörum og kenn-
arar.
Svo er annað sem mætti bæta við
þetta. Það er vert að athuga hversu
margir ríkisstarfsmenn, bæði lög-
reglumenn og kennarar, hafa fengið úr
hlutatryggingarsjóði sjómanna. Eg
veit um ríkisstarfsmenn sem hafa
fengiö þaðan peninga. Skýrslur um
slíkt hljóta að liggja fyrir hjá Fiski-
félaginu og þar væri hægt að finna út
hvaða menn þetta eru. Þetta þarf að
athuga áður en þessir ríkisstarfsmenn
ætla sér að gleypa bæði himin og jörð.
Þeir Rokkrásarmenn, Skúli og Snorri. Poppunnandi var mjög ánægður með umfjöllun þeirra um hljóm-
sveitina Stranglers.
Góð kynning á Stranglers
Þakklæti
til lækna
Sjúklingur hringdl:
Eg vil bera fram þá áskorun til lækna
aö breyta þessu skriffinnskuveldi hjá
sér því þeir eru orðnir svo kaffærðir í
slíku að þeir geta varia lengur sinnt
sjúklingum. Ef allir læknar taka sig
saman þá er auðveldlega hægt að
breyta þessu.
Annað atriði vil ég einnig benda á.
Eg hef verið sjúklingur i ein 25 ár og
öðrum eins mönnum og læknum hef ég
aldrei í minu lífi kynnst. Það er því
mikil ósanngimi þegar verið er að
ráöast á læknastéttina meö alls konar
skítkasti því það er mikið sem þessir
menn verða að þola í sinu starfi. I minu
tilfelli er það svo að þeir læknar sem ég
hef leitað til hafa jafnvel neitaö að taka
við greiðslu fyrir störf sín. I þessu
sambandi vil ég þó undanskilja
tannlækna. Læknar almennt og
hjúkrunarkonur af gamla skólanum
hafa reynst mér mjög vel í veikindum
minum og er ég mjög þakklát fyrir
það.
Poppunnandi hringdi:
Ég vil hér þakka umsjónar-
mönnum Rokkrásarinnar kærlega
fyrir góðan þátt um hljómsveitina
Stranglers sem var á dagskrá á
fimmtudaginn var á rás 2. Eg hef
haldið mikiö upp á hljómsveitina allt
Nemi skrifar:
Þann 14. nóvember sl. birtist grein
frá bifvélavirkjum á Akranesi á les-
endasíðunni. Þar er þyngdarlögmálið
gert að umræðuefni og ég ætla að leit-
ast viö að svara þeim spumingum sem
þar var varpað fram.
Lofttæml: Sé byssukúlu skotið lóðrétt
upp með einhverjum upphafshraða
minnkar hraði hennar jafnt og þétt
vegna aðdráttarkrafts frá jörðu og að
frá því hún kom fyrst til Islands og
þáttur þeirra félaga gerði tónlist
þeirra mjög góð skil og gaf góöa
heildarmynd af því sem hún hefur
verið aö gera i gegnum árin. Mér
hefur einnig gefist ööru hverju
því kemur að hraðinn verður núll. Hve
hátt kúlan fer er háð þyngd hennar og
upphafshraða. Þegar kúlan hefur falliö
í þá hæð sem henni var upphaflega
skotið úr hefur fallhraði hennar vaxið
og er nákvæmlega hinn sami og
upphafshraðinn.
Við loftmótstöðu: Imyndum okkur
að sömu kúlu sé skotið og í fyrra
dæminu nema nú vinna tveir kraftar
kostur á að hlusta á þætti þeirra
félaga um ýmsar aðrar hljómsveitir
og tónlistarmenn og finnast mér
þessir þættir yfirleitt mjög áhuga-
verðir. Ég vona að þeir félagar haldi
áf ram á sömu braut.
gegn hreyfingu kúlunnar, þ.e. loftmót-
staða og þyngdarkraftur. Afleiðingin
er sú aö kúlan missir ferð sína upp á
viö mun hraðar og kemst því ekki
jafnhátt upp og áöur. Þegar kúlan
hefur náð hámarkshæð byrjar hún að
falla á ný. Þyngdarkraftur jarðar
dregur hana niður en nú vinnur loft-
mótstaðan gegn hreyfingu hennar og
því verður lokahraðinn minnl en
upphafshraðinn.
Fallhraði hluta
Meira um reið-
hjólaþjófnað
Móðir hringdi:
Mig langar að koma því á framfæri
viö forráðamenn baraa og unglinga aö
þeir fylgist vel meö því hvaða hjólum
böm þeirra eru á. Eg hef oröiö fyrir því
tvivegis á undanfömum mánuðum að
reiðhjólum barnanna minna hefur
verið stoliö. Virðist í þvi sambandi engu
skipta hvort hjólin eru læst eöa ekki. I
fyrra skiptið fannst hjólið aftur langt
frá heimUi okkar, eða í Hafnaretræti,
en hitt hjólið höfum við ekki fundið
þrátt fyrir mikla leit. Það var af
vinsælli tegund, BMX, og við höfum
farið til lögreglunnar en það hefur ekki
komið þangað ina Hjá lögreglunni var
reyndar allt yfirfullt af reiðhjólum
þannig að það sýnir að hjólaþjófnaðir
erutíðirhér.
Eg vil því beina þeim tilmælum til
foreldra að þeir athugi hvort böra
þeirra hafi i fórum sínum illa fengin
reiðhjól. Skaði þeirra sem verða fyrir
því að hjólum er stolið er neMega tilfinn-
anlegur.