Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1984, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1984, Qupperneq 16
16 DV. ÞRIÐJUDAGUR 20. NOVEMBER1984. Spurningin Hvaða íslenskan leikara heldur þú mest upp á? Kristjana Guölaugsdóttir húsmóðir: Það er tvímælalaust Sigurður Sigur- jónsson. Eg hef séð hann bæði á sviði og í sjónvarpi og finnst hann alveg frábær. Linda Róbertsdóttir húsmóðir: Þaö er Róbert Amfinnsson. Eg hef séð hann i mörgum leikritum, þ.á m. i Amadeus þar sem hann stóð sig mjög vel. Stella Kristjánsdóttir gangavörður: Minn uppáhaldsleikari er Árni Tryggvason. Ég hef séð hann bæði á sviði og heyrt í honiun í útvarpi og finnst hann alveg dýrðlegur. Guðmundur örn smiður: Þaö er Amar Jónsson. Hann er frábær leikari og mér er hann minnisstæður í hlutverki Galdra-Lofts í Iðnó fyrir nokkrum árum. Björg Þórarinsdóttir húsmóðir: Sú leikkona sem ég held mest uppáer Þóra Friðriksdóttir. Hún hefur leikið mörg góð hlutverk, t.d. var hún frá- bær í leikritinu Ertu nú ánægð, kerl- ing? Jón Áraason skrifstofumaður: Uppá- haldsleikarinn minn er Siguröur Sig- urjónsson. Eg sá hann núna síðast í Dalalif i og þar var hann alveg frábær. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur BSRB-verkfall og far- sæll fjármálaráðherra Launþegi skrifar: Kannski verður aldrei ofmetið það tjón sem öll þjóðin varð fyrir þegar hið langa verkfall opinberra starfs- manna var nærri þvi búiö að ganga af þjóðarbúinu dauðu. Hitt var þó verra, að þröngur hópur eiginhagsmunahyggjandi for- sprakka opinberra starfsmanna skyldi geta fengið því framgengt að ekki var gengið til samninga á forsendu skattalækkana. Nú er borin von að opinberir starfsmenn nái nokkurn tima upp þeim launamissi sem þeir urðu fyrir í verkfallinu. — Og til hvers var þá öll baráttan? En eitt skyldu opinberir starfs- menn þakka fjármálaráðherranum okkar og þaö er að hann skyldi hafa þá framsýni til að bera að ákveöa í byrjun aö greiða ekki laun fyrirfram þegar séö varð að stefndi i langt verkfall. Hvernig stæöu opinberir starfs- menn nú ef þeir .hefðu fengið októberlaun sín greidd fyrirfram eins og þeir kröfðust? Þá hefðu þeir ekki fengið nein laun nú, fyrirfram vegna nóvember, því þeir hcfðu að sjálfsögðu þurft að greiða október- launin til baka og stæðu þvi uppi aö' loknu verkfalli með tvær hendur tómar. „Albert Guðmundsson er farsæll maður i starfi," segir launþegi m.a. í groin sinni. Auðvitað kom fyrirhyggja fjár- málaráðherra opinberum starfs- mönnum þeim vel að þessu leyti. Og það er fleira sem þeir opinberir starfsmenn mega þakka þessum ráðherra þótt þeim finnist hann ef til vill hafa verið fylginn sér í verkfalls- baráttunni, eins og honum bar sem forsvarsmanni rikisf jármála. Eða hver getur áfellst ráðherrann fyrir að gæta þess sem hann er settur yfir? Og það merkilega er að þrátt fyrir þá aðstöðu sem fjármála- ráðherra var í, er eins og hann komi ávallt sterkur út úr þeim málum sem á honum brenna. Það er kannski ekki neinn alls- herjarskoðanavettvangur, þar sem útvarpsstöðin rás 2 er en sýnir þó hvernig straumar liggja. Stöðin gerði könnun á því hver væri vinsælasti maður októbermánaðar, verkfallsmánaöarins mikla. Og kemur þá ekki í ljós að það er fjár- málaráðherrann sjálfur sem þar er efsturáblaði. Einhver hefði nú haldiö að einhver hinna verkfallsglöðu verkalýðs- rekenda færi þar fremstur, t.d. for- maður bókagerðarmanna eða sjálfur „allatollinn” í BSRB! - Nei, fólkið hafði vegið og metiö allar aðstæður. Það er ekki neinum ofsögum sagt af því að Albert Guðmundsson fjár- málaráðherra er farsæll maður í starfi og leik og það er þess vegna sem hann á skilið fylgi og hann fær þaðlíka. Aukatekjur kennara Sjómaður skrifar: Mig langar hér að leggja orð í belg varðandi laun kennara sem mjög era til umræðu nú. Það gætir mjög mikils ósamræmis í öllum málflutningi um þetta mál og það er ekki óeölilegt þvi þau eru mjög misjöfn. Uti á landi hafa kennarar t.d. fjögurra mánaða sumarfrí og þetta hefur enginn minnst á, ekki einu sinni fjármála- ráðherrann. Maöur sem hefur unnið í 20 ár eða lengur viö kennslu úti á landi kennir ekki nema 28 tima á viku. Þessi ákveðni maður, sem ég hef i huga, byrjar til sjós í endaðan mars og sá rær eftir hádegi þegar hann getur þvi hann vinnur ekki nema til tólf. Eg spurðist fyrir um þetta mál hjá fræðslustjóra í Borgamesi, hvemig stæði á þvi að maðurinn gæti stundað sjósókn samhliða kennslunni. Hann gaf mér þá það svar að engin stétt hefði náð jafngóðum kjörum og kenn- arar. Svo er annað sem mætti bæta við þetta. Það er vert að athuga hversu margir ríkisstarfsmenn, bæði lög- reglumenn og kennarar, hafa fengið úr hlutatryggingarsjóði sjómanna. Eg veit um ríkisstarfsmenn sem hafa fengiö þaðan peninga. Skýrslur um slíkt hljóta að liggja fyrir hjá Fiski- félaginu og þar væri hægt að finna út hvaða menn þetta eru. Þetta þarf að athuga áður en þessir ríkisstarfsmenn ætla sér að gleypa bæði himin og jörð. Þeir Rokkrásarmenn, Skúli og Snorri. Poppunnandi var mjög ánægður með umfjöllun þeirra um hljóm- sveitina Stranglers. Góð kynning á Stranglers Þakklæti til lækna Sjúklingur hringdl: Eg vil bera fram þá áskorun til lækna aö breyta þessu skriffinnskuveldi hjá sér því þeir eru orðnir svo kaffærðir í slíku að þeir geta varia lengur sinnt sjúklingum. Ef allir læknar taka sig saman þá er auðveldlega hægt að breyta þessu. Annað atriði vil ég einnig benda á. Eg hef verið sjúklingur i ein 25 ár og öðrum eins mönnum og læknum hef ég aldrei í minu lífi kynnst. Það er því mikil ósanngimi þegar verið er að ráöast á læknastéttina meö alls konar skítkasti því það er mikið sem þessir menn verða að þola í sinu starfi. I minu tilfelli er það svo að þeir læknar sem ég hef leitað til hafa jafnvel neitaö að taka við greiðslu fyrir störf sín. I þessu sambandi vil ég þó undanskilja tannlækna. Læknar almennt og hjúkrunarkonur af gamla skólanum hafa reynst mér mjög vel í veikindum minum og er ég mjög þakklát fyrir það. Poppunnandi hringdi: Ég vil hér þakka umsjónar- mönnum Rokkrásarinnar kærlega fyrir góðan þátt um hljómsveitina Stranglers sem var á dagskrá á fimmtudaginn var á rás 2. Eg hef haldið mikiö upp á hljómsveitina allt Nemi skrifar: Þann 14. nóvember sl. birtist grein frá bifvélavirkjum á Akranesi á les- endasíðunni. Þar er þyngdarlögmálið gert að umræðuefni og ég ætla að leit- ast viö að svara þeim spumingum sem þar var varpað fram. Lofttæml: Sé byssukúlu skotið lóðrétt upp með einhverjum upphafshraða minnkar hraði hennar jafnt og þétt vegna aðdráttarkrafts frá jörðu og að frá því hún kom fyrst til Islands og þáttur þeirra félaga gerði tónlist þeirra mjög góð skil og gaf góöa heildarmynd af því sem hún hefur verið aö gera i gegnum árin. Mér hefur einnig gefist ööru hverju því kemur að hraðinn verður núll. Hve hátt kúlan fer er háð þyngd hennar og upphafshraða. Þegar kúlan hefur falliö í þá hæð sem henni var upphaflega skotið úr hefur fallhraði hennar vaxið og er nákvæmlega hinn sami og upphafshraðinn. Við loftmótstöðu: Imyndum okkur að sömu kúlu sé skotið og í fyrra dæminu nema nú vinna tveir kraftar kostur á að hlusta á þætti þeirra félaga um ýmsar aðrar hljómsveitir og tónlistarmenn og finnast mér þessir þættir yfirleitt mjög áhuga- verðir. Ég vona að þeir félagar haldi áf ram á sömu braut. gegn hreyfingu kúlunnar, þ.e. loftmót- staða og þyngdarkraftur. Afleiðingin er sú aö kúlan missir ferð sína upp á viö mun hraðar og kemst því ekki jafnhátt upp og áöur. Þegar kúlan hefur náð hámarkshæð byrjar hún að falla á ný. Þyngdarkraftur jarðar dregur hana niður en nú vinnur loft- mótstaðan gegn hreyfingu hennar og því verður lokahraðinn minnl en upphafshraðinn. Fallhraði hluta Meira um reið- hjólaþjófnað Móðir hringdi: Mig langar að koma því á framfæri viö forráðamenn baraa og unglinga aö þeir fylgist vel meö því hvaða hjólum böm þeirra eru á. Eg hef oröiö fyrir því tvivegis á undanfömum mánuðum að reiðhjólum barnanna minna hefur verið stoliö. Virðist í þvi sambandi engu skipta hvort hjólin eru læst eöa ekki. I fyrra skiptið fannst hjólið aftur langt frá heimUi okkar, eða í Hafnaretræti, en hitt hjólið höfum við ekki fundið þrátt fyrir mikla leit. Það var af vinsælli tegund, BMX, og við höfum farið til lögreglunnar en það hefur ekki komið þangað ina Hjá lögreglunni var reyndar allt yfirfullt af reiðhjólum þannig að það sýnir að hjólaþjófnaðir erutíðirhér. Eg vil því beina þeim tilmælum til foreldra að þeir athugi hvort böra þeirra hafi i fórum sínum illa fengin reiðhjól. Skaði þeirra sem verða fyrir því að hjólum er stolið er neMega tilfinn- anlegur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.