Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1984, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1984, Page 22
22 DV. ÞRIÐJUDAGUR 20. NOVEMBER1984. llnnið aö hreinsun rafstöövarinnar við Elliðaár i fyrra. Þetta er ein þeirra stöðva sem hægt yrði að nota ef rafmagnslaust yrði á Stór-Reykjavikursvæðinu. Rafmagnslaust á Stór- Reykjavíkursvæðinu Hvaða vararafaf I er þá fyrir hendi? Ef svo færi aö höfuðborgarsvæðiö yrði rafmagnslaust af völdum t.d. meiriháttar bilana í dreifikerfi Rafmagnsveitunnar eða náttúruham- fara í nokkra daga yrði þá hægt að sjá svæðinu fyrir nauðsynlegu vararafafli meðan það ástand varaöi? Lands- byggðin er nokkuö vel sett í þessu sam- bandi. Á Noröurlandi er 23 megavatta varaaflsstöð til reiðu ef á þarf að halda og á Austurlandi er 15 mega- vatta stöö svo að dæmi séu tekin. Sjúkrahús og nokkrar opinberar stofn- anir hafa yfir að ráða einkarafstöðvum en hvernig færi um Hitaveituna, stór- verslanir og hinn almenna borgara? Guðmundur Helgason, rekstrarstjóri Landsvirkjunar: „Gott öryggi á rafmagni til Reykja- víkursvæðisins” „Landsvirkjun á tvær varaafls- stöðvar á höfuðborgarsvæðinu,” sagði Guðmundur Helgason hjá Lands- virkjun. „önnur er hjá Álverinu og getur sú gasaflsstöð framleitt 35 mega- vött. Þá stöð er hægt að nota fyrir höfuðborgarsvæðið og jafnframt fyrir allt dreifikerfið. Hin varaaflsstöðin er við Elliðaár og getur framleitt með fullum afköstum um 19 megavött. Sú er að visu ekki starfrækt núna en henni væri hægt að koma í fullan gang á einum sólarhring. Þessar stöðvar ættu því að geta veitt nauðsynlega orku- afhendingu yrði þess þörf.” Er rafmagnskerfi höfuðborgar- svæðisins nægilega öruggt? Já, það tel ég. Það liggja þrjár 220 kUóvatta línur til Geithálsvirkisins og ein 130 kílóvatta lína. Frá Geithálsi liggja svo tvær línur til höfuðborgar- svæðisins. Og þó að t.d. ein lína bili eða faUi út þá eru hinar fuUfærar um að anna rafmagnsþörfinni. Eg held þvi að í heiid sé afhendingaröryggi rafmagns til Reykjavíkursvæðisins gott.” -ÞJV BORÐVIÐ STÓUNN SÓLEY Haukur Pálmason,aöstodarraf magns- st jórí hjá Raf magnsveitu Reykjavíkur: „Viðunandi orku- afhending í neyðar tilvikum” Ég held að öryggi höfuðborgarsvæð- isins, hvað varðar rafmagn í neyðartU- vikum, sé gott eins og kerfið er nú í dag,” sagði Haukur Pálmason aðstoðarrafmagnsstjóri þegar hann var spurður hvort unnt væri að sjá höfuðborgarsvæðinu fyrir nauösynlegu rafmagni í neyðartUvikum. „Það er auövitað spurning hvað menn vUja tryggja sig gegn alls konar óhöppum en eftir að línum f jölgaði frá Þjórsársvæðinu til Reykjavíkur stór- jókst öryggi í orkuafhendingu frá því sem var þegar aðeins var um eina Búr- feUslínu að ræða. Og eins og málum er háttað í dag teljum við að vel sé séð fyrir þessum málum hér á höfuð- borgarsvæðinu, bæði með mismunandi linuleiðum hingað og virkjunum sem eru ýmist í Sogi eða á Þjórsársvæðinu. Þannig að í neyðartUvikum, sem upp kunna aö koma, er hægt að halda uppi viðunandi neyðarþjónustu í orku- afhendingu. En hvaða varaaflsstöðvar hefur Rafmagnsveitan tU aðgrípa tU? „Rafmagnsveita Reykjavíkur hefur aðeins eina varaafisstöð tQ að grípa tU ef á þarf að halda,” sagði Haukur. ,Sú vatnsaflsstöð er við EUiðaár og getur framleitt um 3 megavött. Hins vegar á Landsvirkjun tvær stöðvar á höfuð- borgarsvæðinu sem samtals gætu framleitt um 50 megavött þannig að miöaö við heildarþörf svæðisins, sem er 90 megavött, ætti að vera unnt að veita lágmarksþjónustu. Fyrir utan þetta eru svo sjúkrahús, bankar og aðrar stofnanir með eigin rafstöðvar í neyðartilvikum þannig að iágmarks- þörfum ætti að vera hægt aö sinna. ” -ÞJV Guðjón Petersen, f ramkvæmdastjóri Almannavarna: „Frumviðbrögð að tryggja mikilvægum stöðum rafmagn” „Frumviðbrögð Aimannavama ef bilanir eða annað kæmi upp í raf- magnskerfi höfuðborgarsvæðisins yrðu að tryggja mikilvægum stöðum rafmagn eins og t.d. Hitaveitunni,” sagði Guðjón Petersen hjá Almanna- vörnum. „Vandamálið er hins vegar það í dreifikerfinu að mjög erfitt er að greina það, t.d. er ekki hægt að hafa forgangsrafmagn á allar hitaveitu- holur og dælur. Það hefur verið rætt um að breyta þessu en það hefur ekki komist til framkvæmda. Þrátt fyrir þetta hefur margt verið gert að tillögu Almannavarna til að tryggja orkuaf- hendingu. Fyrir okkar tiistilli var lögð lína norðan sk jálftas væðisins og niður í Hvalfjörð og eykur það mjög á öryggið. Einnig er nú búið að taka út línumar sem lágu um Suðurlands- undirlendið með tilliti til jarðskjálfta.” En hafa Almannavarair lagt áherslu á að fá fleiri varaaflsstöövar til notk- unar á höfuðborgarsvæðinu? Já, það hefur verið lögð áhersla á það. Það var fyrir þrýsting frá Almannavörnum að Ríkisútvarpið var látið hafa vararafstöð og þannig hefur verið ýtt á að mikilvægir staðir hafi vararafmagn.” -ÞJV Feiiiborð og stóiar sem allt má hengja upp á vegg. „Strax og stóllinn var kominn á markaöinn var byrjað að reifa það að gera borð,” sagði Valdimar Harðar- son, hönnuður stólsins Sóleyjar og menningarverðlaunahafi DV. „Eg er búinn að basla við að búa til borð í meira en ár og var búinn að smíða svona 5—6 áður en þetta varð til. Núna um mitt árið fór að verða þrýst- ingur frá sölumönnum um aö fá borö með stólunum. Það varð til þess að ég fór út til Þýskalands í hálfan mánuð og við leystum þau vandamál sem eftir voru. Það sem sat i manni við borðið var að það væri í stíl við stólinn — fellan- legt. Vandamálið var að flest borð em með stífu uppi fyrir borðplötuna sem var ekki hægt á þessu borði. Það vandamál leystist ekki fyrr en við sett- um kjarna í miöjuna. Það var einnig vandamál að fá ódýra samsetningu á plötuna. Borðið fellur ekki um miöju. Það er því hægt að hengja það upp án þess að myndist bil frá veggnum. Einnig er hægt að snúa tveimur fótun- um undir því þannig að þeir þurfa ekki að rekast í fæturna á manni þegar maður situr við það. ” Valdimar sagði að verðiö á borðinu, sem kemur ekki í búðir fyrr en í jan- uar, yrði, ef gert væri ráð fyrir plötu með harðplasti, nokkurn veginn jafnt og á tveimur stólum. I framtíðinni ættu að koma fleiri borð í línunni af mis- munandi stærðum, ferköntuð borð og fleira. — En hvað heitir borðið? „Bara Sóleylíka.” SGV Nýja borðið. Eins og sjá má er það fettaniegt og með kjarna undir miðju.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.