Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1984, Page 37
DV. ÞRIÐJUDAGUR 20. NOVEMBER1984,
37
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Þátttakendur i goHmótinu é Eindhovenvellinum ósamt aðdáendum af
öHum stærðum.
Jarðabætur
í Hollandi
Eitt síöasta stórmót ársins í golf-
íþróttinni var haldið um það leyti sem
prentararnir okkar voru komnir í
verkfall. Það varð að sjálfsögðu til
þess að alþjóö fékk ekki að vita um þau
merku afrek sem þar voru unnin.
Mót þetta var ekki haldiö hér á landi
heidur í hinu flata Hollandi, þar þönd-
ust landar vorir um með kúlur sínar og
kylfur og sléttuðu enn frekar úr mis-
hæðumálandinu.
Þeir voru þama í sérstakri golfferð
Samvinnuferða/Landsýnar og var
dvalið í sumarhúsunum i Kemper-
vennen. Voru um 50 manns í hópnum
en liölega 20 þeirra leika golf að stað-
aldri. Heimsóttu þeir velli í nágrenni
Kempervennen en þar er marga
fallega golfvelli að finna — bæði í Hoí-
landi og i Belgiu.
Goifmótið sjálft fór fram á Eindhov-
engolfvellinum sem er skógivaxin-
paradís. Þar voru leiknar 36 holur á
tveim dögum og mikið lamið og barið.
Keppt var um glæsileg verðlaun —
bæði til eignar og ferðavinning. Sigur-
vegarinn átti sem sé að fá ferðakostn-
aðinn endurgreiddan og var það því
vel þess virði að vanda sig.
Þegar upp var staðið i lokin kom í
ljós að þau Hrafnhildur Þórarinsdóttir
úr Hafnarfirði og Ingólfur Bárðarson
frá Selfossi voru jöfn — bæði á 151
höggi nettó. Þau ákváöu að skipta
ferðavinningnum á milli sín og voru
engar deilur um það á milli þeirra...
Betra aö hafa eitthvað en ekki neitt,
varsagt.
Þau fengu einnig góöa gripi til minn-
ingar um ferðina og mótið. Það fengu
ýmsir aðrir af keppendum enda mörg
afrek unnin sem vert var að veita verð-
launfyrir.
Sigurvegararnir á goHmóti SL í Hollandi, þau Ingólfur Bárðarson og Hrafn-
hildur Þórarinsdóttir, alsæl með bæði verðlaun tii eignar og ferðavinning i
bakhöndinni.
Fljúga skal fuglinn minn
Endalokin er ástæðuiaust að sýna. Við vitum þó hvorum megin hryggjar
farartækið liggur. DV-myndir Kristján Arí.
Kemst þótt
hægt fari
Cyndi Lauper var lengi búin að naga
þröskuldinn við dyrfrægðarinnar áður
en hún fékk náð fyrir augum og eyrum
poppaðdáenda. En á endanum bægsl-
aðist hún inn og hefur síöan skemmt
sér og öðrum prýðilega. „Þetta er eins
og að rétta skrattanum litla fingur,” er
haft eftir útgefanda hennar.
Gamli rámur
Rod Stewart siglir nú einn eftir að
hans heittelskaða Alana fór frá borði.
Gamli rámur rær þó ákaft þessa dag-
ana.en aflar lítið. Britt Ekland gekk
honum úr greipum en „það eru fleiri
fiskar í sjónum”, segir Rod.
Ellibelgur?
Tina Tumer er nú orðin 44 ára en
segist samt vera sprækari en hún var
fyrir aldarfjórðungi. Hún neitar stað-
fastlega að eldast, með viðunandi
árangri, og segist vera best þeirra
rokksöngkvenna sem nú eru á dögum.