Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1984, Page 40

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1984, Page 40
FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022. Hatir þú ábendingu eða vitneskju um frétt — hringdu þó i síma 68-78-56. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað i DV, greið- ast 1.000 krónur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið i hverri viku, Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Frjálst,óháð dagblað ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 1984. Ákærðir vegna mannsláts Tveir 19 óra gamlir piltar hafa verið ákærðir fýrir að hafa orðið Þórði Jónssyni að bana aöfaranótt 23. desember sl. I ákæru ríkissak- sóknara segir að piltarnir tveir hafi farið offarí í varnaraðgerðum er til átaka kom á milli þeirra og hins látna. Atburðirnir áttu sér stað í Fif useli og var hinn látni bróðir annars á- kærða. -EIR. Fasteignasali ákærður Fastéignasali einn hefur verið á- kærður fyrir að hafa haft á aðra milljón króna af viðskiptavinum sínum á sviksamlegan hátt. Rak hann fasteignasöluna SkálafeU og var úrskurðaöur gjaldþrota 5. aprU 1983. Situr fjöldi manna fyrir bragðlð eftirmeð sárt ennið. -EIR. Jólagjafahandbók DV: Fylgirblaðinuá ^ fimmtudaginn Hin árlega jólagjafahandbók DV fylgir blaðinu á fimmtudag. I henni er að finna hugmyndir aðskemmti- legum jólagjöfum á 48 síðum. Eins og á siðasta ári verða jólagjafa- handbækurnar tvær, sú seinni kem- ur út 13. desember. Handbókin sem kemur út núna á fimmtudag ætti að koma sér ein- staklega vel fyrir fólk á lands- byggðinni, sem þarf aö hafa tim- ann fyrir sér og láta senda f póst- kröfu. AUar verslanir í því blaði munu þjóna landsbyggðinní með póstsendingum. Þar sem jólagjafahandbókin er seinunnin hefur hún tekiö langan tíma í vinnslu. Verð það sem gefið ** er upp í blaðinu getur því hafa breyst eitthvaö á þessum tima, sér- staklega nú þegar gengið breytist. Við vonum að lesendur taki því ekkiilla. Jólagjafahandbók DV hefur verið vel þegin af lesendum undan- farin ár, enda hefur hún hjálpaö mörgum aö finna hinar réttu jóla- gjafir. Þessi handbók ætti ekki síð- ur að létta leitina og gefa góðar hugmyndir. -ELA LOKI Hvenær hyllir BSRB Berta? Árekstur varð við Þjóðminjasafnið i Hringbraut í gærkvöldi. Engin veruleg slys urðu á fólki en einn farþegi i bilnum var þunguð kona. Grunur leikur á um ölvun. DV-mynd S. Dagsbrúnar- mennhylla Albert A fundi hjá verkamannafélaginu Dagsbrún sl. sunnudag gerðust þau tíðindi að fundarmenn risu úr sæt- um allir sem einn og hylltu Albert Guðmundsson fjármálaráðherra með dúndrandi lófaklappi sem stóö lengi. Málsatvik voru þau að eftir að fundurinn hafði samþykkt nygerða kjarasamninga og rætt ýmis önnur mál tók Guðmundur J. Guðmunds- son, formaður félagsins, til máls og lagði til að fundurinn samþykkti stuöningsyfirlýsingu við þings- ályktunartillögu fjármálaráðherra um að tekjur þeirra manna og kvenna sem láta af störfum vegna aldurs skuli skattlausar síðasta árið. Var tillaga formannsins sam- þykkt einróma með fyrrgreindum fagnaðarlátum. -EIR. Þjóðleikhúsið frestar Ríkarði III. þvíað BÚNINGARNIR HEFÐU KOSTAÐ 2 MILUÓNIR Ef staðið hefði verið við fyrri áætlanir og jólaleikrit Þjóöleik- hússins, Ríkarður III., verið frum- sýnt á tilsettum lima heföu búningarnir einir kostaö um 2 milljónir króna. „Þaö er rétt, búningakostnaðurinn er ein aöalástæöa frestunarinnar,” sagði Gísli Aifreðsson þjóöleik- hússtjóri i samtali við DV. „Breski búningateiknarinn Liz Da Costa átti að hafa 8 vikur til að fullgera búning- ana en vegna verkfallsins hafði hún aðeins 3 vikur til umráöa. Það hefði þýtt að búningamir heföu þurft að vinnast erlendis og það í breskri næturvinnu þannig að þeir einir hefðu kostaö 2 milljónir. ” Verkföll opinberra starfsmanna hér á landi komu I veg fyrir að breski búningateiknarinn gæti tekið mál af leikurum enda hefði það veriö verk- fallsbrot. Annars er Liz Da Costa afar þekkt á sínu sviði og siðasta verk hennar var einmitt að hanna búninga á dýrasta söngleik sem settur hefur verið á svið, Starlight Express eftir Andrew Lloyd Webber sem nú er sýndur í Lundúnum. Sú uppfærsla kostaði 3 milljónir punda eða um 130 milljónir íslenskra króna. I stað Ríkarös HI. og allra sér- saumuðu búninganna býður Þjóöleikhúsið landsmönnum upp á Kardimommubæinn á jólunum. -EIR. Er stærsta kaupskip íslendinga norskt? I blaðinu Svensk Sjöfart Tidning, þriðja hefti 1984, er birt mynd af islenska skipinu Akranesi og þaö taliö norskt en undir íslenskum fána. Skipið er talið eign skipafélagsins Jebsen frá Bergen sem eigi 30 skip til flutnings á lausavöru á bilinu 4000— 4500 tonn aö burðargetu. Þessi skip sigli undir ýmsum þjóðfánum, þar á meöal íslenska fánanum. Guðmundur Asgeirsson er fram- kvæmdastjóri Nesskips hf.: „Það er ósköp einfalt að svara þessu. Við eigum skipafélag sem heitir Isskip hf. og Jebsen á 40% í því. Síðan eiga Isskip og Nesskip Akranesið saman. Hlutur Jebsens í Akranesinu er 24%. Nesskip var stofnað árið 1974. Þaö Akranesíð — stærsta skipið ííslenska flotanum — en erþað norskt? á skipin Suðurland og Vesturland. Árið 1977 stofnuðu sömu aðilar og eiga Nesskip hf. Isskip hf. og keyptu þá skip af Jebsen sem hét Isnes. Þaö hefur nú verið selt. Arið 1979 var Selnes keypt, það er 5790 tonn. Tveimur árum síðar kom Akranes sem er stærsta skip sem skráð er á Islandi, 7490 tonn. Bæði þessi skip voru keypt frá Jebsen. Þau hafa síðan verið í flutningum til og frá Grundartanga og í ýmsum verkefnum erlendis. Islenskar áhafnir eru á þeim báðum. Guðmundur Ásgeirsson visaði þvi á bug að Akranesið væri norskt eins og sænska blaðið heldur fram. „Þetta er þó ekki að öllu leyti ósatt,” sagöi hann. Eignaraöild Jebsen aö fyrirtækinu sagöi hann ekkert leynd- armál. JBH/Akureyri í í í i i i I I t t I i i t

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.