Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1984, Blaðsíða 4
4
DV. FÖSTUDAGUR 30. NOVEMBER1984.
Álit Ratsjárstöðvanefndar væntanlegt f Ijótlega:
„Ljóst að um 10
manns munu vinna
við hvora stöð”
Bókaklúbbur AB10 ára:
Álit ratsjárnefndar vamarmála-
deildar er væntanlegt fljótlega en
nefndin hefur unniö aö athugun á öll-
um þáttum nýrra ratsjárstööva sem
fyrirhugað er aö reisa á Vestfjörðum
og Langanesi. Hefur nefndin starfaö
viö þaö undanfarið ár.
Dr. Þorgeir Pálsson, talsmaöur
nefndarinnar, sagöi í samtali við DV
aö starf nefndarinnar heföi aðallega
beinst að því að kanna tæknilegar
hliðar ratsjárstöövanna og rekstur
þeirra. Hann kvaö þaö ekki rétt sem
komiö heföi fram í fjölmiðlum aö
undanfömu um fjölda íslendinga
sem fengju störf ef stöövarnar yröu
settarupp.
„Þaö er ljóst aö um þaö bil 10 Islend-
ingar munu fá störf viö rekstur
hvorrar stöövar,” sagöi Þorgeir. Þá
er ótalin sú vinna sem skapast viö
byggingu stöövanna en hún veröur
einnig í höndum Islendinga.
Þorgeir Pálsson: „Gætu komið
skipaeftirliti tilgóða".
Flugið nýtur góðs af
„Eitt af því sem nefndin kannaöi
var notkun ratsjárstöðvanna fyrir
íslenska flug- og skipaumferö.
Stöövamar koma fluginu til góöa,
þaö er enginn vafi á því,” sagöi
Þorgeir. Hann benti á aö Flugmála-
stjórn heföi þegar not af ratsjárstöö-
inni viö Sandgerði og hefði haft um 12
ára skeið, bæði fyrir innanlands- og
millilandaflugiö.
„Búnaöur þeirrar stöövar er aö
vísu oröinn gamall en hann verður
væntanlega endurnýjaöur,” sagði
Þorgeir.
„Það er líka ljóst aö stöðvamar
gætu komiö skipaeftirliti til góöa þótt
heppilegra væri aö hafa í þeim sér-
stakar skiparatsjár. Þetta er ekki
eins vel skilgreint og flugiö.”
Þorgeir vildi einnig taka þaö fram
aö margt af því sem sagt hefur verið
um stöðvarnar í fjölmiðlum væri
misskilniningur og í sumum tilfellum
beinlínis rangt. -FRI
Kristján Jóhannsson afhendir Simoni Steingrímssyni, fyrir hönd sjúkrahúsanna, bækurnar frá Bóka-
klúbbi Almenna bókafélagsins. Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri fylgist með.
dv-mynd: S.
Vegagerðarmenn keppast við að lagfæra skemmdirnar.
D V-mynd Ari Libermann
Grundará:
Vegurinn hrundi
Sá atburður átti sér staö fyrir
skömmu að vegurinn aö brúnni yfir
Gmndará í Grundarfirði hrundi. Haföi
vatnselgurinn grafiö í sundur jarðveg-
inn smátt og smátt án þess aö menn
yröu þess varir. Fór því svo aö lokum
aðvegurinngaf sig.
Aö sögn Sigurbergs Ámasonar,
byggingafulltrúa í Grundarfiröi, var
útbúiö vaö í ána og bílar ferjaðir yfir
á meöan viögerð á brúnni fór fram.
Sagöi hann einnig aö nú stæði fyrir dyr-
um að byggja tvær nýjar brýr í Grund-
arfjarðarbotni. Ný brú myndi því
væntanlega leysa gömlu brúna yfir
Gmndará af hólmi áður en langt um
liöi. „Brúargerð og eftirlit er slæmt af
hálfu vegageröarinnar,” sagöi Sigur-
berg, „þaö erum viö allir sammála
um.” -EH
Veröhækkanir:
Bíómiðinn 20
krónum dýrari
I dag hækkar verö á bíómiöum,
flugfargjöldum innanlands og
flutningstöxtum langferöabíla.
Á fundi Verölagsráös var ákveðið
aö heimila 11,5 prósent hækkun á far-
gjöldum í innanlandsflugi. Flugmiöi
fram og til baka til Akureyrar frá
Reykjavík kostaöi 3140 krónur og
mun kosta um 3500 krónur sam-
kvæmt þessari hækkun. Þá var einnig
heimiluö hækkun á aögöngumiðum
kvikmyndahúsa og hækka þeir í dag
um 20 krónur. Miðamir kostuöu áöur
90 krónur en kosta nú 110 krónur.
Loks var ákveðið aö heimila
hækkun á flutningstöxtum langferöa -
bíla. Þeir hækka um 7—18 prósent,
mismunandi eftir töxtum. Hækkunin
er aö meðaltali um 12 prósent.
-APH.
Laun kjaradeilunefndar
vekja forvitni á þingi
Fyrirspum til fjármálaráðherra
hefur borist frá Helga Seljan, þing-
manni Alþýöubandalagsins á þingi.
Hann vill fá skriflegt svar frá Albert
Guömundssyni um kostnað vegna
kjaradeilunefndar.
Þingmaöurinn vill fá aö vita hver
kostnaður hafi verið af störfum
kjaradeilunefndar í nýafstaöinni
kjaradeilu ríkisins og BSRB. Hann
spyr bæði um beinan launakostnað og
annankostnaö.
I fjölmiðlum hafa veriö nefndar
háar fjárhæðir um tilkostnaö og laun
nefndarmanna. Því má reikna meö aö
fleiri hafi áhuga á svari fjármálaráð-
herra en fyrirspyrjandinn þegar þaö
liggur fyrir. -ÞG.
Gáfu 2600 bækur
— til 26 sjúkrahúsa
Bókaklúbbur Almenna bókafélags-
ins varö 10 ára þann 26. september
síöastliðinn. I tilefni af afmælinu hefur
klúbburinn ákveöiö aö gefa hverju af
hinum 26 sjúkrahúsum í landinu 100
bækur. Forráöamenn klúbbsins
afhentu fulltrúum sjúkrahúsanna
bækurnar á samkomu á Hótel Holti í
gær. Alls eru þetta 2600 bækur sem
metnar eru á eina milljón króna.
A þeim 10 árum sem bókaklúbbur-
inn hefur starfaö hefur hann gefiö út
nærri 400 bækur og 160 hljómplötur,
auk listaverkatilboöa og utanlands-
ferða. Félagar í klúbbnum eru nú
orðnir rúmlega 17000. I tilefni af
afmælinu býöur klúbburinn félögum
sínum listaverkiö Heimdall eftir Hall-
stein Sigurösson. Fyrsta félaga klúbbs-
ins, Svavari Gests, var fært listaverkið
aö gjöf á samkomunni á Hótel Holti. Þá
var leitaö til félaganna um efni í bók.
Hefur hún verið gefin út undir nafninu
„Haukur i homi”. Þar eru saman-
komnar 16 smásögur eftir félaga
klúbbsins. Til aö kóróna höföingsskap-
inn á afmælisárinu býöur klúbburinn
félagsmönnum sínum 50 prósent af-
slátt af flestum bókum sínum.
GK
Seðill i orgelsjóð
— safnað fyrir orgeli í Hallgrfmskirkju
Nú stendur yfir fjársöfnun til orgel-
kaupa handa Hallgrímskirkju.
Söfnunin er meö nokkuð nýstárlegu
sniöi þar sem áhugamenn um mál-
efniö skora hver á annan um framlag
aö upphæö 1000 krónur. Söfnunin er
því keöjuverkandi.
Þaö voru fimm einstaklingar sem
hrundu fjársöfnuninni af staö. Þeir
eru Sigurbjöm Einarsson biskup,
Guörún Helgadóttir alþingismaöur,
Salome Þorkelsdóttir alþingismaöur,
Ingólfur Guðbrandsson forstjóri og
Knut Ddegárd forstjóri.
Nöfn gefenda veröa birt vikulega í
dagblööum og síöan færö inn í sér-
staka bók sem varðveitt verður í
Hallgrímskirkju. Þeim sem taka
áskorun veröa sendir gíróseölar.
Miöstöð söfnunarinnar er í Hallgríms-
kirkju.
Níu lánveitingar frá Húsnæðismálastjórn:
Rúmar260 milljónir til húsnæðislána
Húsnæöismálastjórn hefur sam-
þykkt aö hleypa af stokkunum níu
lánveitingum, samtals aö fjárhæö
262 milljónir króna. Koma þær til
greiðslu í desember. Lánveiting-
arnar fara fram meö þeim hætti er
hér greinir:
1. Seinni hluti og 2. hluti til þeirra,
sem fengu fyrri hluta og 1. hluta
greidda eftir 25. mars 1984, skulu
koma til greiöslu eftir 3.
desember 1984 ( 92 m. kr.).
2. 3. hluti til þeirra, sem fengu 1.
hluta greiddan eftir 5. október
1983, skal koma til greiðslu eftir
3. desember 1984 (19 m. kr.).
3. Seinni hluti til þeirra, sem fengu
fyrri hluta greiddan eftir 15.
apríl 1984, skal koma til greiðslu
eftir 5. desember 1984 ( 8. m.kr.)
4. G-lán til þeirra, sem sóttu um
fyrir 1. apríl 1984 og eru aö
skipta um íbúð, skulu koma til
greiöslu eftir 10. desember 1984
(58 m. kr.).
5. 1. hluti til þeirra, sem geröu
fokhelt í júní 1984, skal koma til
greiðslu eftir 10. desember 1984
(13 m.kr.).
6. Fyrri hluti til þeirra, sem geröu
fokhelt í september 1984 og eru
aö eignast sína fyrstu íbúö, skal
koma til greiðslu eftir 12.
desember 1984 ( 23. m.kr.).
7. 1. hluti til þeirra, sem gerðu fok-
helt í júlí 1984, skal koma til
greiöslu 15. desember 1984 (19
m.kr.).
8. Seinni hluti til þeirra, sem fengu
fyrri hluta greiddan eftir 20.
maí 1984, skal koma til greiöslu
eftir 15. desember 1984 (10
m.kr.).
9. 3. hluti til þeirra, sem fengu 1.
hluta greiddan eftir 5. nóvember
1983, skal koma til greiðslu eftir
17. desember 1984 ( 20 m.kr.).