Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1984, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1984, Blaðsíða 25
DV. FÖSTUDAGUR 30. NOVEMBER1984. 33 Menning Menning Menning Þióðskáld bamanna Jóhannes úr Kötlum: Ljóðasafn IX. Barnaljóð. Rvík, Mál og menning, 1984. Níunda bindi ljóöasafns Jóhannesar skálds úr Kötlum er •helgað barnaljóöum skáldsins. Hann orti mikinn fjölda barnaljóöa sem prentuö voru í 5 litlum ljóöabókum. Þær eru: Jólin koma frá 1932, Ömmusögur frá 1933, Bakkabræöur 1941, Ljóöiö um Labbakút sem út kom 1946 og loks Vísur Ingu Dóru frá árinu 1959. Þá eru í bókinni ljóð sem birst hafa á ýmsum stöðum á prenti og loks fáein ljóð sem líklegast hafa aldrei birst áður á prenti. Barnaljóðin eru allstór ljóöabók og sýnir ljóslega hversu mikla áherslu Jóhannes hefur lagt á aö leiða börn inn í heim ljóðsins. Og hann haföi þar erindi sem erfiöi, af því að mörg ljóöa hans hafa alltaf notið mikilla vinsælda meðal barna þessa lands og sum þannig aö hvert einasta barn kann þau. Ljóöiö Jólin koma þekkja allir og er það sungið fyrir hver einustu jól og þeir eru þónokkrir sem telja þetta vera þjóövísu. Svo fastan sess á hún í þjóðarvitundinni. Yrkisefni Jóhannesar í þessum ljóöum eru jólin, efni úr þjóösögum og ber þar hæst ljóöabálkinn um þá Bakkabræöur og loks ýmis fyrirbæri í náttúrunni. Barnaljóð Jóhannesar úr Kötlum innihalda mikinn fróðleik og sú hugsun læöist að manni aö þau hafi að einhverju leyti orðið til í þeim til- gangi að auðvelda honum kennslu- starfiö, sem var hans aðalstarf um árabil. Þar má nefna ljóðið Dagarnir (bls. 121), Mánuðirnir (bls. 122), Tólf bræður (bls. 129), en það fjallar um bræðurna 12, mánuðina. Fuglakantatan varð ásamt þjóðvísunni: Jóhannes úr Kötlum. Bókmenntir Sigurður Helgason Sat ég undir f jallinu fríða, heyrði ég fagran fuglasöng um dægurlöng. Ekki reikaöi hugur minn þá víöa. efniviður í Vorkantötu sem Sigur- sveinn D. Kristinsson tónskáld samdi árið 1968.1 fuglakantötunni er yrkisefniö fuglar sem setja svip á ís- lenska náttúru. Sérstök ástæða er til að fagna út- gáfu þessa níunda bindis ljóöasafns Jóhanhesar. Þar er safnað saman mörgum perlum, barnaljóðum sem öll eiga það skiliö aö ná eyrum allra Islands barna og annarra sem unna ljóðum, og kunna vel að meta á hversu næman hátt skáldiö nær að tjá hughrif þau sem náttúran hefur á hann. Þessi ljóð eiga án efa eftir að leiða margt barnið að öðrum ljóðum. Þau eiga eftir aö skapa marga ljóð- unnendur. En jafnframt er ástæða til að vekja athygli á einstökum barnaljóðum hans, sem út hafa verið gefin, mynd- skreytt á smekklegan hátt. Þessi út- gáfa er ekki myndskeytt, en það eitt rýrir ekki gildi hennar. Það er fyrst og fremst fólgið í því, að safnað hefur verið saman góðu og jákvæöu efnistórskálds. ) NOTAÐIR MAZDA BILAR I URVALI! Við höfum til sölu glæsilegt úrval notaðra MAZDA bíla í sýn- ingarsal okkar. Allir bílarnir eru í 1. flokks ástandi og þeim fylgir 6 mánaða ábyrgð frá söludegi. Sýnishorn úr söluskrá: GERÐ ÁRG. EKINN 323 1300 3 dyra ’82 31.000 323 1300 5 dyra sj.sk. '81 23.000 626 2000 4 dyra '81 24.000 323 1300 5 dyra ’81 39.000 323 1300 Saloon ’81 35.000 323 1300 Saloon sj.sk. '81 67.000 323 1300 Saloon '81 61.000 323 1400 5 dyra sj.sk. '80 45.000 929 H& 4 dyra 79 68.000 E 1600 sendibfll '81 69.000 GERÐ ÁRG. EKINN 929 LTD HT sj.sk. v/s '83 29.000 626 GLX 2 dyra HT sj.sk.v/s ’83 4.000 323 1300 3 dyra '83 23.000 929 SDX 4 dyra '82 22.000 929SDX4dyrasj.sk. '82 31.000 929 LTD 4 dyra sj.sk. v/s '82 38.000 929 Station '82 21.000 626 2000 4 dyra '82 37.000 626 1600 4 dyra '82 37.000 626 2000 4 dyra sj.sk. '82 21.000 MAZDA eigendur athugið: Vegna mikillar eftirspurnar bráðvantar okkur MAZDA 323 og 626 árgerðir 1983 og 1984 á söluskrá. Opið laugardag frá kl. 10-4 mazoa _________Mest fyrir peningana! Mabörghf Smiðshöföa 23 sími 812 99 TIL SÖLU Mazda 929 hardtop m/öllu, ekinn 29.000 km, útvarp + kassettutæki, sjálfskiptur. Upplýsingar hjá BHaborg i síma 81299. Heimasímar 75811 og 76827. TIL LEIGU Til leigu er í Skeifunni ca 85 fm húsnæði, hentugt fyrir skrifstofur, heildverslun eða smáiðnað. Upplýsingar í síma 685822. " ITT Ideal Color 3304, -fjárfesting í gæðum á stórlækkuöu verði. ITT Vegna sérsamninga við ITT verksmiðjurnar í Vestur Þýskalandi, hefur okkur tekist að fá takmarkað magn af 20" litasjónvörpum á stóríækkuðu verði. SKIPHOLTI 7 SÍMAR 20080 8c 26800

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.