Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1984, Side 5
DV. FÖSTUDAGUR 30. NÖVEMBER1984.
5
Margir
bæjarstjórar
með
ráðherralaun,
jafnvel
mun meira:
Kjörum bæjarstjóra og bæjarritara
í Kópavogi var breytt á bæjarráðs-
fundi þar á þriðjudag um leið og gerð
var ný samþykkt um kjör f jármála- og
hagsýslustjóra bæjarins. Líklegt er að
heildarþóknun bæjarins til þessara
yfirmanna hækki talsvert. Þeir munu
hins vegar hafa verið meö mun lægri
laun en gerist og gengur fyrir sömu
störf í öðrum bæjarfélögum.
Samkvæmt heimildum DV er
aigengt að bæjarstjórar á höfuðborg-
arsvæðinu og í stærri bæjum annars
staðar séu með 80—90 þúsund krónur á
mánuöi með öllum sporslum taliö.
Bæjarstjórinn á Akureyri mun raunar
vera með talsvert meira. Hann situr í
stjómum nokkurra fyrirtækja sem
bærinn þar á aðild að. Bæjarstjórinn í
Kópavogi var aftur á móti ekki með
nema um 60 þúsund á mánuði með öllu
talið. Og bæjarritari minna.
Á bæjarráðsfundinum í Kópavogi á
þriðjudag var sem f yrr segir gerð sam-
þykkt um ný kjör fjármála- og hag-
sýslustjóra.Frá því hann var ráðinn
hefur hann haft hluta af tekjum sínum
vegna kennslu í Tækniskóla Islands en
hættir því í náinni framtíð. Ákveðið
var, samkvæmt heimildum DV, að nýr
kjarasamningur hans viö bæinn fæli í
sér sambærileg laun og hann hafði
fyrir með kennslunni. Þar með var
hann kominn upp fyrir bæjarstjóra og
bæjarritara í launum.
' Það mun vera ein ástæða þess að
kjörum þessara tveggja yfirmanna
bæjarins var breytt um leiö, auk þess
að meirihluti bæjarstjómar telur að
hún hafi „staðið sig illa gagnvart þess-
Karl Fr. Kristjánsson (t.h.) tekur á
móti viðurkenningu fyrir hönd Ultima
frá Þórkatli St. Ellertssyni, formanni
Dúfnaræktarfélags ísiands.
Dúfurí
firmakeppni
N ú um helgina voru afhent verðlaun
í firmakeppni Dúfnaræktarfélags
Islands. Verðlaunin voru afhent á árs-
þingi félagsins sem haldið var að
Fríkirkjuvegi 11 í Reykjavík. Keppnin
fór þannig fram að hvert fyriríæki fékk
dúfu til að keppa fyrir sína hönd. Dúf-
unum var sleppt samtímis við Hvera-
dali og flugu þær þaöan til bæjarins.
Sigurdúfan keppti fyrir verslunina Ul-
tíma í Reykjavík. Alls tóku 82 fyrirtæki
þátt í keppninni.
Afnám tog-
veiðibanns
Hafrannsóknastofnunin kannaði í
þessari viku hólf út af Húnaflóa og hólf
á Hombanka og Strandagrunni þar
sem togveiðar hafa verið bannaðar
síðan 11. október 1983 og 20. júní 1984.
Við þessa könnun kom í ljós að hlut-
fall smáþorsks var undir viðmiöunar-
mörkunum og að þama fékkst einnig
góðýsa.
Ráðuneytið hefur því, að tillögu
Hafrannsóknastofnunarinnar, ákveðið
að fella úr gildi reglugerðir um bann
við togveiðum út af Húnaflóa og um
bann við togveiðum á Hombanka og
Strandagrunni frá og með 1. desember
nk.
TOPPARNIR í KÓPA-
VOGITOSAÐIR UPP
um mönnum”, að sögn Ragnars
Snorra Magnússonar, formanns bæjar-
ráðs. Það var meirihlutinn einn sem
stóð að kjarabreytingunni, framsókn-
armenn, alþýðubandalagsmenn og al-
þýðuflokksmenn.
Gagnrýni minnihlutans
Fulltrúar minnihlutans, sjálfstæðis-
manna, bókuðu sérstaka gagnrýni
vegna þess aö auk fastra mánaðar-
launa og yfirvinnu samkvæmt stimpil-
klukku fengju þessir þrír yfirmenn
bæjarins full laun bæjarfulltrúa og
bæjarráðsmanna. Um leið félli niður
gömul regla um greiðslu fyrir fasta
yfirvinnutíma.
Samkvæmt nýju kjörunum fá yfir-
mennimir yfirvinnu greidda
„samkvæmt stimpilkortum og vinnu-
skýrslu með áritun næsta yfirmanns”,
nema bæjarstjóri „meö árritun for-
manns bæjarráðs”. Ragnar Snorri
Magnússon, formaður bæjarráðs,
sagði í samtali við DV að alveg væri
óvíst hvort hin nýju kjör hækkuðu
heildartekjur viökomandi starfs-
manna. En ætlunin væri að greiða
þeim fyrir þá vinnu sem þeir legðu
fram.
Richard Björgvinsson, bæjarfulltrúi
sjálfstæðismanna, sagöi hins vegar að
engan þyrfti að undra þótt bæjar-
stjóralaunin færu að nálgast 199
þúsund á mánuði og að laun hinna
tveggja hækkuðu í takt viö það. „Þetta
eru athyglisverðar tilfæringar í eina
kaupstaðnum þar sem nú er hreinn
vinstri meirihluti,” sagði Richard.
HERB
<■ >
I dag, föstudaginn 30. nóvember, opnum við nýja matvöru
verslun KRON að Furugrund 3, Kópavogi.
Hið glæsilega nýja verslunarhús er hannað með áherslu á
að allur aðbúnaður sé sem bestur - að vel fari um
viðskiptavini, starfsfólk og fjölbreytta matvöru.
Um leið og við bjóðum ykkurvelkomin í þessa nýju verslun
vonum við að hún eigi eftir að þjóna ykkur vel og lengi.
M Rúmgott og vel skipulagt húsnæði____________________
Glæsilegt kjöt- og fiskborð
Við bjóðum sérlega
hagstœtt kgnningamrð
á fjölda vörutegunda
vegna opnunarinnar
Allar mjólkurvörur í kæliskápum
2 djúpfrystar fullir af matvælum
Avaxta- og grænmetisborð
Greið aðkeyrsla
M Malbikuð bílastæði með hitalögnum
Opnunartími: 9-18 mánudaga til fimmtudaga
9-20 föstudaga
9-16 laugardaga
AUGLÝSINOAPJÓNUSTAN
FURUGRUND3
KÓPAVOGI