Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1984, Page 6
6
DV. FÖSTUDAGUR 30. NOVEMBER1984.
(Jtlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
A-þýskirhættir
aðnotaflísa-
byssumar
Innanríkisráðuneytiö í Bonn
greindi frá því í gær að austur-þýsk
yfirvöld hefðu nú fjarlægt af landa-
mærunum síðustu flísabyssu sína í
norðurhluta landanna. Um var aö
ræöa sjálfvirkar dauöagildrur sem
austantjaldsyfirvöld komu fyrir
viö landamærin. Um 60 þúsund
flísabyssur af gerðinni Sm—70
voru við landamærín þegar mest
lét.
Bandaríkin og Sovét-
ríkinsammála
Bandaríkin og Sovétríkin tóku
höndum saman í fjárlaganefnd
Sameinuðu þjóðanna og gær og
spyrntu gegn því að staðaruppbæt-
ur og risna starfsfólks Sameinuöu
þjóðanna yrði hækkuö, en þeir telja
þaö oflaunað.
Fjárlaganefndin, skipuð fulltrú-
um 159 aðildarríkja, samþykkti aö
fella niður fyrirhugaða 9,6% hækk-
un á staðaruppbótum starfsfólks
S.Þ. í New York (sem hefði orðið
skattfrjáls).
Fíkniefni fyrir 66
milljónir punda
Breskir tollþjónar slógu öll eldri
met í fyrra þegar þeir lögðu hald á
fíkniefni fyrir 66 milljónir
sterlingspunda.
Obbann tóku þeir við tolleit á
Heathrov-flugvelli, og kom meiri-
hlutinn af kókaíninu frá Suður-
Ameríku en heróínið aðallega frá
Indlandsskaga og þá meðal annars
frá Pakistan.
Af alls 1248 manns sem dæmdir
voru fyrir brot á fikniefnalögunum
voru 826 dæmdir í allt aö 13 ára
fangelsi.
Næstmesta smygliö, sem toll-
gæslan komst yfir, var klámefni,
bækur, tímarit og kvikmyndir.
Flugræninginn vildi
tala við mömmu!
Tvítugur flugræningi gafst upp í
Bandaríkjunum í dag. Hann rændi
litilli þotu í Atlanta og tók tvo gísla.
Hann hótaði að sprengja þotuna í
loftupp.
Alríkislögreglan sagði aö flug-
ræninginn hefði gefist upp eftir
fjögurra tíma samningaviöræður.
Hann vildi fá að tala við móður sína
og embættismann sem var að
hjálpa honum aö vinna bug á fíkni-
efnavandamáli sínu.
Dýrkuðu eldinn og
grófu upp silfur
Sovéskir fornleifafræðingar
hafa fundiö leifar 1.000 ára
gamallar silfumámaborgar í
Pamír-fjöllunum nálægt Kína og
Afganistan. Borgin var í fjögurra
kílómetra hæð. Líklegt er að silfur-
námurnar hafi verið ennþá hærra
uppi*
Fornleifafræöingarnir fundu út-
h'nur borgarstræta og rústir eld-
musteris. Ibúar borgarinnar dýrk-
uðu að öllum líkindum eldinn.
Fræöingarnir hafa einnig fundið
skjöl, verkfæri og djásn.
Ibúar borgarinnar seldu silfriö
til Kína og annarra Austurlanda.
Samningurinn
aðgengilegur
Hong Kong-stjórn sagöi í gær að
samningurinn sem Bretar gerðu
við Kínverja um framtíö eyjunnar
væri í grundvallaratriðum að-
gengilegur. Skýrsla stjórnarinnar
sagði þó aö mikið væri um mjög
mismunandi sjónarmið í ný-
lendunni. Sumir væru fullkomlega
fylgjandi samningnum. Aðrir væru
algerlega á móti honum.
Samkvæmt samningnum fá
Kínverjar yfirráð fyrir eyjunni
1997, en þjóðfélagsumgjörö Hong
Kong á ekki að breyta.
Barnaklám gífurlega útbreitt:
„Böm seld á upp-
boöi i Amsterdam”
Bandaríkjaþing hyggst efla mjög
baráttuna gegn barnaklámi eftir að
hafa heyrt vitnisburö sérfræöinga
um gífurlega útbreiöslu hvers kyns af-
brigða þess. Fulltrúi samtaka til
varnar börnum sagði þinginu að mark-
aðurinn fyrir bamaklám væri al-
þjóðlegur.
Hann sagði frá filippískum
drengjum sem heföu veriö teknir til
Astralíu undir því yfirskini aö þaö ætti
að ættleiöa þá. Tilgangurinn hefði hins
vegar verið að nota þá til ólöglegrar
framleiðslu á klámi. Börn væru seld á
uppboði í Amsterdam. Barnavændis-
ferðir væru skipulagðar í Bandaríkjun-
um, Vestur-Þýskalandi, Japan og Hol-
landi. Ferðamennirnir færu til Sri
Lanka, Thailands, Filippseyja og fleiri
landa til þess aö eiga mök við börn.
Hann sagði að fleiri en 2000 drengir
undir lögaldri stunduðu vændi í
Colombo á Sri Lanka.
Dómsmálaráðuneytiö í Hollandi
hefur aftekið meö öllu aö börn séu seld
á uppboöi í Amsterdam.
Tollþjónustumaður sagði þinginu að
um 85 prósent af barnaklámi í pósti til
Bandaríkjanna kæmi frá Hollandi,
Danmörku og Svíþjóð. Eitt tímaritið
heföi sýnt samfarir við um 18 mánaða
gamalt barn. Hann sagöi að toll-
þjónustan hefði leitað uppi heimilis-
föng sem birt væru í tímaritunum og
handtekiö framleiðendur barnakláms,
og viðtakendur.
Hann sagöi að vegna þess aö hæsti-
réttur hefði gefiö tollinum vald til aö
opna póst sem kemur frá útlöndum
væri nú auðveldara en áður að finna
slíkt efni.
Richard Gere
Gere gerðist ekki svo grófur, sögðu
vitnin.
Vændisferðir, tímarit sem sýna samfarir við 18 mánaða böm og klámuppboð á
böraum: þetta tíðkast allt.
Námamenn fá
peningana aftur
Réttur í Lúxemborg leyfði í gær
útdrátt á 4,38 milljónum sterlings-
punda í eigu verkalýðsfélags breskra
námuverkamanna. Peningamir höfðu
veriö f rystir aö beiöni bresks dómstóls.
Rétturinn í Lúxemborg ákvað þó að
bankinn þar sem peningarnir eru skuli
halda eftir 200.000 sterlingspundum
sem verkalýðsfélagið skuldar
breskum dómstólum, auk 50.000 punda
til að borga hugsanlegan kostnaö
vegna málaferla.
Námamenn fluttu peninga sína úr
landi þegar hklegt þótti aö hald yrði
lagt á sjóði þeirra í Bretlandi.
i málaferlum
Dómari í New ,York vísaöi á bug
kærum um líkamsárás og ofsóknir
sem bornar höfðu verið á kvik-
myndaleikarann Richard Gere. Bíl-
virki á viögerðarverkstæði einu í
N.Y. hafði kært Gere fyrir hótanir og
líkamsárás þar sem Gere átti að
hafa tekið bílvirkjann kverkataki og
slegið hann, í júlí í sumar.
Þrjár manneskjur báru því vitni
að Gere hefði ekki ráöist á bílvirkj-
ann, eins og hann hafði haldið fram,
og læknar vitnuðu um að hann bæri
enga áverka.
Þegar Gere (34 ára) yfirgaf réttinn
var honum samt birt stefna í 1,25
milljón dollara skaðabótamáli sem
bílvirkinn ætlar að höfða gegn
honum. — Leikarinn vinsæh ætlar að
stefna bílvikjanum á móti fyrir
meiðyröi og ærumeiðandi máls-
sóknir.
SJÓMENNIRNIR SEGJAST
SAKLAUSIR AF SMYGLI
Sex breskir sjómenn kváðust í gær
vera saklausir af að smygla 36 tonnum
af marijúana til Bandaríkjanna. Þeir
voru handteknir fyrr í þessum mánuði
eftir að fíkniefniö fannst í skipi þeirra
undan Nýja Englandi.
Yfirvöld í Bandaríkjunum telja aö
skip þeirra kunni aö hafa verið
móðurskip í víðtæku smygli á eiturlyfj-
umtillandsins.
Mönnunum sex er haldið í Boston.
Gert er ráö fyrir að mál þeirra fari
fyrir rétt í janúar. Verögildi
marijúanafarmsins er um 1,2
milljarðar íslenskra króna.
Skipið sem þeir voru á, Ramsland,
var með breskan fána og norska
pappíra. Hvorki Norðmenn né Bretar
segjast kannast við skipiö.
DOU „DINOSARAR” UT
AF GEISLAEITRUN?
Risaeðlur fornaldar, „dínósárarnir”
svonefndu, kunna aö hafa dáið út
vegna geislaeitrunar er niðurstaða
sovéskra vísindamanna sem birt var í
gær.
Geislaeitrunin telja þeir að hafi fylgt
aukningu úraníuminnihalds uppistöðu-
vatnanna þar sem risaeðlumar lifðu.
Sergei Nerucherv jarðfræðingur
skrifar um þessar niðurstöður ítarlega
grein í „Moskvu-tíðindin”, og eru þær
byggðar á rannsóknum sem gefa til
kynna að á þessu þróunarstigi jarðar
hafi náttúrulegt úraníum í klettum og
vatni vaxið mjög en líffræðingar telja
aö frumur hafi dregið í sig úraníum og
það hafi átt sína meginsök á því að
risaeðlurnar dóu út.
Neruchev segir að kenninar hans
byggist á rannsóknum á stein-
gervingum (dínósára) sem hafi sýnt
óeðlilega mikið magn úraníums. — Af
þessum rannsóknum er helst að sjá að
úraníuminnihald náttúrunnar hafi
verið í hámarki á 30 til 40 milljón ára
fresti.
m— ------------►
Geislarnir urðu eölunum að falli, segir
Sovétmaðurinn.