Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1984, Síða 17
DV. FÖSTUDAGUR 30. NOVEMBER1984.
25
þróttir
fþróttir
fþróttir
fþróttii
íþróttir
örk gegn ttalíu i gærkvöldi i Polar Cup í
landsleik.
skoruðu þessir leikmenn: Þorbergur
Aðalsteinsson 5, Páll 5, Kristján 5/2,
Jakob Sigurðsson 4, Atli 2, Bjami
Guðmundsson 2, Guðmundur
Guðmundsson 1 og Júlíus 1/1.
Jens Einarsson varði markið í fyrri
hálfleik og varði sex skot, þar af eitt
vítakast. Hinn ungi Haraldur Ragnars-
son varði markið í seinni hálfleik og
varði einnig sex skot og vítakast.
Rúmenskir dómarar dæmdu leikinn
— og voru þeir lélegir.
-SK/-SOS.
Ámi Sveinsson
til St. Niklaas
Frá Kristjáni Bernburg, frétta-
manni DV í Belgíu:
Ég ræddi við þjálfara belgíska
liðsins St. Niklaas í gær og hann
sagði mér að íslenski landsliðs-
maðurinn Ámi Sveinsson væri
væntanlegur til liðsins næstu daga,
myndi æfa með liðinu um tíma og
ef um semst gerast leikmaður hjá
því.
Saint Niklaas er frekar lítið félag
og leikur í 1. deild. Er þar í fallbar-
Ámi Sveinsson.
áttunni og í þriðja neðsta sæti. Að
sögn þjálfarans er félagið einnig að
leita að miðherja. Saint Niklaas er
lítil borg í hinum flæmska hluta
Belgíu, 10 km frá Lokeren og því
einnig skammt frá Beveren og
Antwerpen. Islenskir knattspyrnu-
menn eru þekktir á því svæði og
það var greinilegt á þjálfara St.
Niklaas að hann beiö spenntur eftir
Árna Sveinssyni.
-KB/-hsím.
Bjarna boðið
til Japans!
— þar sem allir sterkustu júdómenn heims mæta
til leiks. Bjarni má ekki keppa næstu sex vikurnar
vegna meiðslanna sem hann hlaut á NM í Osló
— Ég fór í myndatöku í gær og þá
kom í ljós að tognað hefði á vöðva við
viðbein þannig að ég verð að taka mér
smáhvíld frá æfingum, sagði Bjarni
Á. Friðriksson júdókappi, sem meidd-
ist á Norðurlandamótinu í júdó í Osló.
Bjarni sagði að það hefði komið fram í
myndatökunni að viðbein hægra megin
væri brotið — hefði brotnað 1978 er
hann meiddist.
Þetta leggst
vel í mig
— segir Páll Ólafsson
Frá Stefáni Kristjánssyni, Drammen.
„Þó við reiknuðum með sigri vanmátum
við ekki ítalina. Það var mjög mikil þreyta í
mönnum eftir löng og ströng ferðaiög. Liðið
er að komast í betri og betri æfingu með
hverjum leik og leikirnir hér í Noregi leggjast
vel í mig,” sagði Páll Ólafsson eftir leikinn
við Italíu í gærkvöld í Polar-Cup.
SK/hsím.
„Kominn tími til að
ísland sigri
á alþ jóðlegu móti”
— segir Jón H jaltalín Magnússon, formaður HSÍ
— Ég mun reyna að byrja að æfa
eins fljótt og ég get því að mér hefur
verið boðið í júdókeppni í Tokýo í
Japan í janúar, sagði Bjarni sem má
ekki taka þátt í keppni næstu sex vik-
urnar.
Mót þetta í Japan er boðsmót þar
sem allir sterkustu júdómenn heims
mæta til leiks — verðlaunahafar á
Evrópumóti, heimsmeistaramóti og
ólympíuleikunum. — Eg mun sjá strax
• Bjarni Á. Friðriksson sést hér með
bronspeninginn sem hann hlaut á OL í
Los Angeles.
í byrjun janúar hvernig ég verð og
hvort ég verð klár í slaginn í Japan,
sagði Bjarni.
-sos
Sjö mánaða bann!
Hollenski knattspyrnumaðurinn
Kees Bregman, félagi Janusar
Guðlaugssonar hjá Fortuna Köln,
hlaut í gær þyngsta dóm sem v-
þýska knattspyrnusambandið
hefur kveðið upp. Hann var
dæmdur í sjö mánaða keppnisbann
vegna ofbeldis við dómara í leik
Fortuna Köln og Saarbruecken
þegar hann mótmælti marki sem
hann taldi ólöglegt vegna rang-
stöðu. Bregman réðst þá að
dómaranum Norbert Brueckner’s
og sparkaði í fætur hans.
Bregman, sem er 37 ára, segir að
þetta séu lokin á knattspyrnuferli
sinum.
-SOS.
Frá Stefáni Kristjánssyni, blaðamanni
DV á Polar-Cup.
„Ég er ánægöur með leik islenska
liðsins, sérstaklega markvörsluna.
Liðið lék vel, átti sinn besta lcikkafla
síðari hluta fyrri hálfleiks og sigurinn
hefði getað orðið stærri. Bogdan hvildi
hins vegar nokkra lykilmenn og gaf
yngri mönnunum tækifæri. ítalska lið-
ið heidur slakt og ekki eins vel þjálfað
og ísl. liðið,” sagði Jón Hjaltalín Magn-
ússon, formaður HSÍ, eftir leikinn við
italiu. Hann kom til móts við ísl. liðið í
gær.
,,Eg held að við eigum góða mögu-
leika gegn Austur-Þýskalandi í kvöld
og það á sigri. Það veröur þó erfiöur
leikur því Austur-Þjóðverjar eru að
venju með sterkt Uð. Það er hins vegar
langt síöan ísland hefur sigrað á al-
þjóðlegu móti og kominn tími til að á
því veröi breyting. Að því stefnum við
hér í Noregi,” sagði Jón Hjaltalín enn-
fremur.
-SK/hsím.
Frábærar
móttökur
Frá Stefáni Kristjánssyni, frétta-
manni D V í Drammen:
— Þegar íslendingar mættu til leiks
gegn ítölum i Tönsbergi í gærkvöldi
var þeim ákaft fagnað og fengu leik-
menn islenska liðsins hreint frábærar
móttökur. Það var eins og týndi sonur-
inn væri loksins kominn hcim.
-SK/-SOS
Éinar Þorvarðarson.
I Fyrirliði Noregs |
I vill til íslands I
I Frá Stefáni Kristjánssyni, fréttamanni |
IDV í Drammen: ■
— Gunnar Pettersen, fyrirliði norska (
Ilandsliðsins, sem hefur leikið 101 lands- ■
leik og skorað 296 mörk í þeim, lýsti því |
yfir hér í gærkvöldi að hann væri tílbúinn |
| að koma til Islands næsta vetur og leika I
Iþar eitt keppnistímabil. Gunnar, scm I
leikur með Skiens Ball, sagði að hann ef-1
_ aði það ekki að hann myndi læra mikið á |
| þ ví að lcika á tslandi.
-SK/-SOSj
Ánægður
með mark-
vörsluna
— sagði Einar
Þorvarðarson
Frá Stefáni Kristjánssyni, Drammen.
„Báðir ísl. markverðirnir stóðu sig
vel og ég er ánægður með sigurinn en
viö verðum af leika mun betur — af
meiri grimmd — gegn A-Þjóðverjum
ef okkur á að takast að sigra þá,” sagði
aðalmarkvörður ísl. liðsins, Einar Þor-
varðarson, eftir leikinn en hann var
hvíldur í gærkvöld.
„Það verður spennandi aö sjá
hvernig okkur gengur á þessu móti.
Leikurinn gegn Norðmönnum verður
einnig mjög erfiður, sigur þar getur
fallið hvoru liðinu sem er í skaut.
Ég var óánægður með mína frammistöðu í
Icikjunum við Dani en þó markvarsla hafi þar
ekki vcrið cins góð og verið hefur hafði það
ekki áhrif á leik isl. liðsins. Það var fyrir
mestu,” sagði Einar.
SK/hsím.
• Bjarni Sígurðsson.
Bjarnier
hjá Brann
Frá Stefáni Kristjánssyni, frétta-
manni DV í Drammen:
— Bjarni Sigurðsson, landsliðsmark-
vörður í knattspyrnu, er nú staddur
hér í Noregi þar sem hann er að kanna
aðstæður og ræða við forráðamenn 1.
dcildartiðsins Brann. Bjarni hefur hug
á að stunda nám á Norðurlöndum
næsta ár og jafnframt að leika knatt-
spyrnu með náminu.
-SK/-SOS
Stórþvott- *
ur í Köben
Frá Stefáni Kristjánssyni, frétta-
manni DV í Drammen:
— Það er óhætt að segja að það hafi
verið stórþvottur hjá fararstjórum
landsliðsins þegar komið var inn á hót-
el það í Kaupmannahöfn, sem landsliö-
iö bjó i aðfaranótt fimmtudagsius.
Fararsljórarnir þurftu að skola úr
landsliðspeysum þeim scm leikið var í <-
gcgn Dönum í Horsens. Síöan voru ofn-
arnir í hcrbcrgjum leikmanua og far-
arstjórnar notaöir til að þurrka peys-
urnar.
-SK/-SOS
Boðið upp á
herbergi
með konu!
Frá Stefáni Kristjánssyni, frétta-
manni DV í Drammen:
— Það átti sér stað skemmtilegt at-
vik hér í Drammen þegar íslensku
landsliðsmeunirnir voru að skrá sig
inn á hótelið. Bogdan landsliðsþjálfari
var fyrstur til að fá lykil sinn — hann
hvarf á braut og hélt upp á herbergið
sitt.
Hann kom svo fljótlega niöur aftur
og sagði að það hefðu átt sér stað mis-
tök — það væri kona inni á herberginu
hans. Þegar að var gáð kom í ljós að
Bogdan hafði fengið rangan lykil.
Landsliðsmennirnir höfðu mjög
gaman að þessu og einn sagöi að það
væri ekki á hverjum degi sem menn
fengju svona góöa þjónustu: ,,Að boðið
væri upp á herbergi meðkonu í.”
-SK/-SOS
íslendingar
— hafa verið erfiðastir
fyrir Dani
Frá Stefáni Kristjánssyni, frétta-
manni DV í Drammen:
— ísleudingar eru önnur þjóðin á
þessu ári sem nær þremur stigum út úr
tveimur landsleikjum gcgn Dönum í
Danmörku. Heimsmcistarar Rússa
náðu þeim árangri fyrr á árinu.
• Danir voru ekki yfir sig hriínir yfir hvern-
ig leikirnir gegn Islendingum fóru en þeir
vifturkenndu þé ai) Islcudingar væru vel aft
árangri sínum komnir — þeir vœru meft
sterkt landslift.
-SK/-SOS
þróttir
íþróttir
íþrótt
íþrótt
íþróttir