Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1984, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1984, Blaðsíða 3
Sigurþór DV. FÖSTUDAGUR14. DESEMBER1984. 3 Jón G. Sólnes segir frá viðburðaríkri og stormasanui ævi skráð af Halldóri Halldórssyni blaðamanni Jón Q. Sólnes er nafn, sem allir þekkja. liann er harðsvíraðasti kapítalistinn í Sjálfstæðisflokknum, fyrrverandi bankastjóri á Akureyri, Akureyrarmeistari í bæjarstjórnarsetu og fyrrverandi þingmaður. Jón er jafnframt persónugervingur umdeildustu fjárfestingar á íslandi hin síðari árin, Kröfluvirkjunar. Hann hefur verið sakaður um mútuþægni og alis kyns spillingu, en alltaf staðið slíkar ásakanir af sér. Oftar en einu sinni kröfðust pólitískir andstæðingar þess, að hann segði af sér þingmennsku. En það var hans eiginn flokkur, Sjálfstæðisflokkurinn, sem batt enda á pólitískan feril Jóns — urn stund. Árið 1979 var hann sakaður um fjárdrátt og flokksfélagar hans þökkuðu honum hálfrar aldar starf fyrir Sjálfstæðisflokkinn með því að sparka hotium út af framboðslista flokksins. f þessari bók ræðir Jón af hreinskilni um þessi mál, og eins og hans er von og vísa skefur hann ekki utan af hlutunum. Mann lætur forystu Sjálfstæðisflokksins fá það óþvegið, ef honum finnst það við eiga. Pólitískir andstæðingar fá líka orð í eyra. Jóns saga Sólness er merkileg saga. Hún er saga manns, sem elst upp í fátækt, fer að vinna fyrir sér og leggja til heimilis fósturforeldra sinna aðeins 15 ára gamall. Síðan hefur hann komizt til æðstu metorða. Jón Q. Sólnes hefur frá mörgu að segja, og í þessari bók svarar hann í fyrsta skipti fyrir sig, svo að um munar. Jákvæður llfskraftur eftir riorman Vincent Peale í þýðingu Baldvins Þ. Krisijánssonar Fáar bækur hafa notið jafn mikilla vinsælda hér á landi síðustu árin sem bækur Morman Vincent Peale í þýðingu Baldvins Þ. Kristjánssonar. Má þar nefna bækur eins og Vörðuð leið til lífshamingju og Lifðu lífinu lifandi. í hinni nýju bók segir Peale frá því er hann mætti Jesú Kristi í barnæsku og hvernig andi hans auðgaðist er hann hóf að boða hina jákvæðu lífskenningu. í hverjum kafia er fjöldi sannra frásagna fólks sem sjálft hefur reynt hinn jákvæða lífskraft Jesú Krists. Þrautgóðir á raunast und 16. bindi Björgunar- og sjóslysasögu íslands eftir Steinar J. Lúðvíksson í bókinni eru raktir atburðir áranna 1964—1966 að báðum árum meðtöldum. Meðal atburða má nefna strand pólska togarans Wislok, frækilega björgun áhafnarinnar af mb. Strák, Þorbjarnarslysið við Reykjanes, björgun áhafnarinnar af Wyre Conquerer og strand breska togarans Boston Wellvale við Arnarnes við ísafjarðardjúp. Agúst á Brúnastóðum lítur yfir farinn veg í samfylgd tlalldórs Kristjánssonar Ágúst bóndi á Ðrúnastöðum og fýrrum alþingismaður er þéttur á velli og þéttur í lund, gildur bóndi og góður félagsmálamað- ur. Hann hefur notið virðingar mótherjajafnt sem samherja. Brúnastaðabóndinn var ekki borinn til efna í skjóli ríkra foreldra. í bernsku var honum ráðstafað af hreppsnefnd Eyrarbakka til uppeldis hjá sveitarómögum og mátti una því fýrstu árin að vera nefndur urðarköttur og fiokkastaf krökkunum á Bakkanum til óæðri stiga mannfélagsins og verða fýrir árásum þeirra og áreitni. BÓKAÚTGÁFAN ÖRN & ÖRLYGUR Síðumúla 11, sími 84866

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.