Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1984, Blaðsíða 18
18
DV. FÖSTUDAGUR14. DESEMBER1984.
Engin gengisfelling
eða verðbólga
Hjá okkur færðu allt í jólaskreytinguna á lága
verðinu: grenibúnt 95 kr. Jólatré: þinur, rauð-
greni og fura. Kertaskreytingar frá 130 kr. Geysi-
legt úrval af gjafavörum. Odýrar jólatréskúlur.
Skreyttir krossar og greinar á leiði. Hvar færð þú
könglapokann á 5 kr?
I Blómaskálannm,
Kársnesbraut 2,
Kópavogi, sími 40980.
Svefnsófar í úrvali
Hæð 97 cm, lengd 170 cm,
breidd 75 cm.
VÖNDUÐ VARA Á VÆGU VERÐI.
Smiöjuvegi 6, Kópavogi símar: 45670 — 44544.
Ötal girnilegra rétta á matseðli okkar.
Njótið kvöldsins í Nausti.
Veitingahúsið Naust
Borðapantanir í síma 17759.
Neytendur Neytendur Neytendur
Verðlistinn heim-
sækir Hrafnistu
fyrir jólin
„Voöalega ertu púkó — þú ert aö
máta kjólinn sem mér fannst svo sæt-
ur. Hann er svo smart sko, já í alvöru,
þú gætir farið í leikhús og hvert sem er
í honum. Já, og hann væri líka fínn í
spilamennskuna. ’ ’
Viö erum stödd á Hrafnistu í Reykja-
vík og voru frúrnar þar að fá sér jóla-
kjólana. Verslunin Verölistinn hefur
gert að árlegum viöburöi hjá sér fyrir
jólin aö senda tvær konur með fullt af
kjólum í einn dag á vistheimilið Hrafn-
istu til að leyfa þeim borgurum sem
erfitt eiga meö aö fara mikiö út aö
velja sér kjóla þar. Verölag kjólanna
er frá 2.500 krónum og upp í 4.500 krón-
ur en veittur er 10 prósent afsláttur til
þessara kvenna, og breytingar eru
fríar.
Þórdís Gunnlaugsdóttir, starfsmaö-
ur Hrafnistu, sagöi að fólk keypti
þónokkuð utan á sig á þessum degi.
Þær sem eru göngufærar fara oft sjálf-
ar í bæinn og kaupa utan á sig og jafn-
vel færu þær bröttustu til útlanda.
Sigurborg Vilbergsdóttir, vistmaö-
ur, sagðist hafa saumað marga kjóla,
aöallega þó á börnin, fyrir nokkrum
árum. „Eg er of nísk til aö fara aö
henda 3.000 kr. í einn kjól en þó er einn
þarna á slánni sem mér líst mjög vel
á,” sagði Sigurborg. „Mér sýnist úr-
valið vera nokkuö mikiö. Þaö er
nauðsynlegt aö gera þetta sem Verð-
listinn gerir — þetta er mikil tilbreytni
fyrir fólkiö hér og um leið þægindi. Eg
er nýkomin hingaö á Hrafnistu — kom
í júlí og líkar mjög vel. Eg á tvo fína
kjóla sem ég get notast við lengur og
vil ég frekar nota peningana til að
gleðja barnabömin, sem eru orðin 11
talsins, já og svo auðvitað bamabarna-
börnin, sem ég hef nú ekki einu sinni
töluna á.”
Úlafía Bjarnadóttir, vistmaður,
sagði að enginn kjólanna höfðaöi sér-
staklega til sín. Hún sagðist eiga spari-
kjól frá Verðlistanum í fataskápnum
sínum, sem væri hvítur og svartur, og
notaöi hún þann kjól við hátíðleg tæki-
færi.
Sigríöur Friöriksdóttir vistmaður
sagðist vera svo lítil að enginn kjól-
anna passaði — alla vega ekki þeir
kjólar sem hana langaði í. „Ég vildi
kjól úr þykku og hlýju efni svo hægt sé
að nota hann mikið á veturna. ”
Afgreiðslustúlkurnar tvær frá Verð-
listanúm, Sólborg Arnadóttir og Jó-
hanna Bjarnadóttir, höfðu í nógu að
snúast og höfðu þær lítinn tíma til að
ræða við blaðamann. Þær sögðust
samt hafa mjög gaman af þessum degi
fyrir jólin. „Þaö er gaman að koma
hingað, hitta konurnar og gera þeim til
Starfsstúlkurnar á Hrafnistu höfðujafnvel áhuga á sumum kjólanna.
DV-myndBj. Bj.