Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1984, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1984, Blaðsíða 14
14 DV. FÖSTUDAGUR14. DESEMBER1984. Menning Menning Menning Menning Góður gestur Gils Guflmundsson: Gestur. íslenskur fróðleikur, gamall og nýr. 247 bls. Iflunn 1984. Ekkert er eins gamalt og dag- blaðið frá því í gær, segir í frægri setningu og um það virðast flestir sammála eöa þeirri staðhæfingu því allir hlutir hafa sinn tíma. Eigi að síður er gamalt blað ekki alltaf gagnslaust. Þegar dagurinn er liðinn tilheyrir það sögu eöa varðveitir margvíslegar upplýsingar um menn og málefni sem hvenær sem er geta risið upp og rofið safnkyrrðina. Og þegar áratugir eru liðnir verða sum blöö ung aftur á vissan máta. Það þekkja allir er einhverra hluta vegna hafa þurft aö kemba gegnum ára- tuga gömul blöö í leitaöheimildum. Þar lesum við um þjáninguna, því fréttir blaða virðast yfirleitt vera slæm tíðindi, stöku sinnum um fram- farir. Og fyrir kemur aö góð tíðindi er að finna í blöðunum líka og svo er þar einnig geymdur f jöldi greina og fróðleikur sem leynst getur jafnvel í smáfrétt (lítil um sig í blaöi) eða jafnvel í auglýsingu, áður en auglýs- ingar urðu að fagi í taugastríði og teikningu. Gestur Það sitja oft menn á bókasöfnum undir þögn sem við minnsta hávaöa fellur á steinlagt gólfið og brotnar í þúsund mola og allir líta reiðilega upp til að lýsa vanþóknun sinni á griðrofum í húsi þögulla fræða. Sumir þessara manna eru svonefndir fræöimenn er rita upp úr gömlum skræðum, prentuðum eöa rituðum. Menn sem leita staöreynda og sögu innan við múrinn, meöan lífiö fyrir utan leikur viö hvem sinn fingur eða berst í úrsynningi. Safnið er hins vegar ávallt eins, a.m.k. í Gils Guðmundsson. augum okkar sem sjaldan komum þangað. Meðal þeirra er oft sjást á söfnum er Gils Guðmundsson rithöfundur, fv. alþingismaður og ritstjóri. Og hefur þannig géngið í mörg ár enda munu fáir betur kunnir í sagnheimi bóka og skjalasafna en hann og nú hefur hann enn einu sinni efnað í bók úr föngum sínum er ber heitið GESTUR en í eftirmála segir höf undur á þessa leið: Bókmenntir Jónas Guðmundsson „Riti því sem hér hefur göngu sína og hlotið hef ur naf nið Gestur er ætlaö aö flytja þjóðlegan fróðleik, gamlan og nýjan, í víðtækustu merkingu. Leitast verður viö að hafa efniö bæði fjölbreytilegt og fróðlegt, eftir ýmsa höfunda og víðsvegar að af landinu. Arin 1964—1972 gaf Iðunn út þjóöfræðiritiö Heimdraga, fjögur bindi alls, meö sagnaþáttum og margvíslegum fróðleik. Er Gesti ætlaö svipað hlutverk. I þessu fyrsta bindi er allmikið af efni, sem áöur hefur verið prentað í blöðum og tímaritum, sumt fyrir löngu, og má heita með öllu gleymt og grafið. Eru þar á meðal ýmsir hinir ágætustu þættir. Ætlunin er að halda áfram birtingu valins efnis af slíku tæi, sem nú er hvergi aðgengi- legt öllum þorra manna. Gera má þó ráö fyrir að í næstu bindum verði meira en í þessu af áður óprentuðum frásögnum.” Ég Moris M. Gilsfjörð Ekki er vitað um neina nákvæma skilgreiningu á því á hvaða augna- bliki hlutir tilheyra sögunni og hvenær ekki en til er þó sú regla að hafa það sem sannara reynist og eins hin að sagfræðingar séu ekki klæö- skerar sem klippa eigin sniö úr dúkum. Allt efniö veröur að komast tilskila. Hvaö Gest varðar þá eru flestir sagnahlutar þessarar bókar eftir ákveðna höfunda og birtast hér lítt eða ekkert breyttir nema hvaö staf- setning er færð til nútímahorfs, einkum í elstu föngunum. Gils kemur víða við. Frægöarmenn og almúgi segja frá. Eirikur Briem prestur, prófessor og þingmaður rekur æskuminningar sínar, Ámi Thorsteinsson segir frá dvöl sinni í Bessastaðaskóla (1844 —46) en hann er meöal seinustu nemenda þar. Greint er frá andláti Kristjáns VIII og Theodór Ámason ritar um tónlistarsögu Reykjavíkur. Viö fömm í langa ferð meö strandferöa- skipi þar sem sigling frá Eskifirði til Reykjavíkur tekur rúmar þrjár vikur en þaö var fyrir tæpri öld, eða 1890. Aftast eru smámunir, vísur og fleira sett saman í kafla og þar er meðal annars auglýsing úr blaðinu Haukur sem gefið var út á Isafirði: ,,Eg, Moris M. Gilsfjörð, neyti héðan af einskis áfengis sem drykkj- ar og bið því vini mína að bjóða mér ekki neitt þess konar framar. Staddur á ísafirði, 21. okt. 1897. MorisM. Gilsfjörö.” Og 26. nóv. 1897 tilkynnir sá hinn samiísamablaði: ,,Að ég, eins og ýmsir helstu menntamenn heimsins, þingmenn og þjóöhöfðingjar, hefi breytt skoðun minni og afturkalla nú yfirlýsingu þá, semég setti Í4. tbl. Hauks.” Það sem gefur þessu sagnasafni mest gildi, fyrir utan að lesa það sér til ánægju og fróðleiks, er að aftast í ritinu er nafnaskrá er svo sorglega oft vantar í bækur á íslandi. Einkum ævisögur og í bækur um þjóðlegan fróðleik. Slíkar skrár gera bækur eigi aöeins eftirsóknarverðari, þær breyta líka oft bók í handbók og spar- ar mikinn tíma ef menn vilja leita heimilda eöa að ákveönum atriðum í þykkri bók síöar. Þá er heimilda getið, en einnig það gjörir ritið merkara, ásamtártölum. Frágangur er því höfujidLog-útgáf- unni til sóma. JjjHdsGuðmundsson. Revklausi öskubakkinn heldur reykmengun í lágmarki. Ef þú vilt losna víö hvimleiðan reyk og halda andrúmsloftinu hreinu kemur nýi reyklausi öskubakkinn að góðum notum. Reyklausi öskubakkinn dregur reykinn I gegnum tvöfalda síu. Góö gjöf, tiivalin fyrirheimiliogá skrifstofuna Heimili Póstnr./staður__________________________________________________ Póstverslunin Prfma Opið allan sólarhringinn. Pöntunarslmi: 91/54943 Pósthólf 63 222 HAFNARFJÖRÐUR □ stk. Reyklausa(n)öskubakka Kr. 499,—□ stk. Aukafilter Kr. 48,— □ stk. sett (2 stk.) Rafhlðður □ Hjálögö greiðsla Kr__________□ Sendist I póstkröfu (kostn.Kr. 63,50) Nafn__________________________________________________________ Skært lúðrar hljóma Skœrt lúðrar hljóma, saga íslenskra lúflra- sveita. Ritstjórn og umsjón útgáffu: Atli Magnússon. Útgofendur: Samband islenskra lúflrasveita/ísafoldarprentsmiðja hf. Rúm öld er síöan fyrsta íslenska lúöurþeytarafélagið, lúörafélagið, lúðrasveitin eða hornaflokkurinn blés fyrst. öll hafa nöfn þessi verið notuð yfir þessa sérstöku tegund hljómsveitar og koma fyrir í bókinni. Sjálfur hallast ég helst að því síðast- talda það er að segja homaflokkur þótt að verulegu leyti sé alinn upp í sveit. Samt finnst mér að í mál okkar vanti verulega gott heiti á blásara- hópa þessa. Sumum kann að þykja öld nokkuö langur tími en sé þess gætt að þetta er allur sá tími sem viö Islendingar höfum spilað í hljómsveitum þá bliknar okkar saga í samanburöi viö sögu annarra þjóða, sé á lengdina lit- ið að minnsta kosti. Já, með horna- flokkunum hófst þetta allt saman og þeir urðu vagga íslensks hljóöfæra- leiks. Síðustu forvöð Aðdragandinn og upphafstímabiliö rekur Atli Magnússon á einkar greinargóðan hátt. Meö ritun sinni hefur Atli ekki einungis skráð upphaf sögu hljómsveitarleiks á Islandi af sagnfræðilegri nákvæmni og á lipru og auðskildu máli. Hann hefur beinlínis bjargaö menningar- verðmætum með því að hann byggir söguritun sína á samtölum við menn sem léku meö í upphafi þessarar aldar og þekktu og höfðu starfað með forgöngumönnunum. Það voru sannarlega síðustu forvöð því sumir þeirra eru nú látnir. Vera má að ein- hverjir efist um að háaldraðir menn muni vel og fari rétt með og því sé varhugavert að treysta frásögnum þeirra. Eg leyfi mér að halda hinu gagnstæöa fram því suma þessara manna þekkti ég og spilaöi meö allt frá unglingsárum og ber frásögnum þeirra í skráningu Atla í einu og öllu saman við það sem þeir skýrðu frá fyrir aldarfjórðungi síðan. Því álykta ég sem svo að söguritun Atla hafi algjört heimildargildi og hafi ekki nema í mesta lagi að brotabroti til eðli þjóðsögunnar. Hvað er svo merkilegt? Margir kunna að spyrja hvers vegna svo mikilvægt sé að snapa upp sögu upphafsára íslenskra horna- flokka. Uti um hinn stóra heim þar sem menn hafa um ára, já aldaraðir, notið miklu meiri fjölbreytni í músík en löngum þekktist hér á Islandi, þykja slíkir flokkar ekki endilega með allra fínustu eða merkilegustu hljómsveitum. Þeir eru ekkert sérís- Tónlist Eyjólfur Melsted lenskt fyrirbrigði nöldurshlustend- urnir sem fýla grön og segja að í hornaflokki fái pöpulsmúsíkantar svalaö sinni frumstæðu þörf fyrir að gera hávaða. Sannleikurinn er sá að sú tegund manna hefur löngum verið of upptekin af uppskafningshætti sín- um til að mega vera að því að heyra að ekki eru síður blásnir bliðu tón- amir og hægu þar á bæ, en hinir takt- föstu og fjörmiklu. Og hvemig færu fyrirmenn þjóðfélagsins að án að- stoðar lúðrablásaranna á hátíðleg- um stundum. Eg leyfi mér að vitna í Geir Hallgrimsson sem sagði þegar hann var borgarstjóri í Reykjavík — „ekki veit ég hvemig við færum að því að kveikja á Oslóartrénu í hvaða veðri sem er ef ekki væri Lúðrasveit- in til að bjarga málum”. Vagga íslensks hljóðfæraleiks Þeir eru ótrúlega margir sem ekki gera sér grein fyrir því að hjá lúðra- sveitunum er vagga íslenskrar hljómsveitarmenningar. Ur þeirra röðum komu fyrstu strengjaleikar- arnir. Þeir byggðu fyrsta, og líkast til eina húsið fram til þessa sem reist var í þeim tilgangi einum að vera tónlistarhús. Fæstir virðast meira aö segja vita að Tónlistarskól- inn í Reykjavík var stofnaður og var til húsa fram yfir Heimsstyrjöldina síöari í Hljómskálanum. Því er saga íslenskra lúðrasveita svo merkileg að hún er um leið saga upprisu þess tónlistarlífs sem við erum svo stolt af nú. Því er þessi söguritun hrein björgun menningarverðmæta. Misskærir, en saman hljóma þeir vel Að vísu er ekki bókin öll rituö af Atla Magnússyni og hún er ekki öll lipurlega og vel rituð saga. Margir kaflanna um einstakar lúörasveitir eru líkastir afmælispistlum, rituð- um af skyldu en ekki þörf, og sumir eru í besta falli eilítið upphafnar skýrslur. Einn kaflinn í bókinni er þó hreinasta perla. Það er hin merka söguritgerö Lárusar Zóphoníasson- ar, Um hornaflokka á Akureyri 1893—1982. Ritar Lárus þar gagn- merka sagnfræöi í beinskeyttum og einarðlegum stíl. Frá sjónarhóli bók- menntanna hefði best farið á því að láta Atla og Lárus rita bókina alla eftir eigin höfði. En slíkt hefði ekki verið heiðarleg hornaflokkasagn- fræöi. A landsmótum er hlustaö af sömu athygli á fámenna flokkinn úr fiskimannaþorpinu og hálft blásara- legíó úr borginni. Bókin er saga allra hornaflokka á Islandi og sérstakt ánægjuefni er að allir skuli að lokum standa saman um ritun og útkomu þessarar bókar því ekki voru allir sammála þegar ákveðið var að ráð- ast í verkiö. Bókin er íslenskum hornablásurum til sóma og þótt ekki séu allir kaflarnir ritaðir af sömu pennafærni þá er því ekki ósvipað farið og þegar menn blása saman — þótt einn lúðurinn hljómi öðrum skærar verður það ekki greint ef hlustaö er eftir samhljómnum. EM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.