Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1984, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1984, Blaðsíða 39
DV. FÖSTUDAGUR14. DESEMBER1984. 47 Útvarp Föstudagur 14. desember 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynn- ingar. 12.00 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 14.00 Á bókamarkaöimun. Andrés Björnsson sér um lestur úr nýjum bókum. Kynnir: Dóra Ingvadóttir. 14.30 Á Iéttu nótunum. Tónlist úr ýmsum áttum. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 Síðdegistónleikar. 17.10 Síðdegisútvarp. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvölds- ins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 20.00 Lög unga fólksins. Þóra Björg Thoroddsen kynnir. 20.40 Kvöldvaka. a. Frá safna- mönnum. Guömundur Olafsson spjallar um jólaköttinn. b. Úr Ijóðum Jóns Trausta. Elín Guðjónsdóttir les. c. Erfiður aðfangadagur. Olfar K. Þor- steinsson les frásögn eftir Rósberg G. Snædal. Umsjón: Helga Ágústs-: dóttir. . 21.30 Hljómbotn. Tónlistarþáttur í umsjón Páls Hannessonar og Vals Pálssonar. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 Traðir. Umsjón: Gunnlaugur Yngvi Sigfússon. 23.15 Ásveitalínunni.Umsjón: Hilda Torfadóttir. (RUVAIC). 24.00 Söngleikir i Lundúnum. 10. þáttur: „Little Shop of Horrors”. Umsjón: Árni Blandon. 00.50 Fréttir. Dagskrárlok. Næturút- varp frá RÁS 2 til kl. 03.00. Ftás 2 14.00—16.00 Pósthólfið. Lesin bréf frá hlustendum og spiluð óskaiög þeirra ásamt annarri léttri tónlist. Stjórnandi: Valdís Gunnarsdóttir. 16.00—17.00 Léttir sprettir. Stjóm- andi: JónOlafsson. Hlé 23.15—03.00 Næturvakt á rás 2. Stjórnendur: Vignir Sveinsson og Þorgeir Ástvaldsson. Rásirnar samtengdar aö lokinni dagskrá rásar 1. Sjónvarp Föstudagur 14. desember 19.15 Á döfinni. Umsjónarmaður Karl Sigtryggsson. Kynnir Birna Hrólfsdóttir. 19.25 Veröid Busters. Lokaþáttur. Danskur framhaldsmyndaflokkur í sex þáttum. Þýöandi Olafur Haukur Símor.arson. (Nordvision — Danska sjónvarpiö) 19.50 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.40 Kastljós. Þáttur um innlend málefni. Umsjónarmaöur Guðjón Einarsson. 21.25 Grinmyndasafnið. Kapp er bcst mcð forsjá. Skopmyndasyrpa frá árum þöglu myndanna. 21.45 Hláturinn lengir lífið. Sjötti þáttur. Breskur myndaflokkur í þrettán þáttum um gamansemi og gamanleikara í f jölmiölum fyrr og síðar. Þýðandi Guðni Kolbeinsson. 22.25 Kisulelkur. Ungversk bíómynd frá 1974, gerð eftir samnefndri sögu eftir Istvan örkény. Leik- stjóri Károly Makk. Aðalhlutverk Margit Dayka og Samu Balázs. Myndin er um samband aldraðra systra og er jafnframt ástarsaga annarrar þeirra. Hún sýnir að ástin á sér engin aldurstakmörk fremur en aðrar mannlegar til- finningar. Þjóðleikhúsiö sýndi leikgerð sögunnar árið 1982. Þýð- andi Hjalti Kristgeirsson. 00.20 Fréttirídagskrárlok. Útvarp Sjónvarp Sjónarp kl. 20.40 — Kastljós: Uppboðstogararnir og staðan í útvarps- og sjónvarpsmálunum hér og annars staðar á Norðurlöndunum Sjónvarp kl. 22.25: Ástarsaga 70ára „unglinga” Bíómyndin í kvöld er ungversk, frá árinu 1974 og nefnist í íslenskri þýðingu Kisuleikur. Hún fjallar um samband tveggja systra sem komnar eru á sjötugsaldurinn. önnur þeirra á jafn- framt í ástarsambandi við fyrrum frægan óperusöngvara sem kemur reglulega að heimsækja hana. Það kemur því vel fram í myndinni að ást og afbrýði á sér engin aldursmörk. Þjóöleikhúsið sýndi Kisuleik á litla sviðinu 1982 með Herdísi Þorvaldsdótt- ur og Þorstein Hannesson í einu af aðalhlutverkunum. Þeir sem sáu þá leikgerð ættu því að vera vel kunnugir sögunni sem er eftir Istvan örkéney. Þýðandi myndarinnar er Hjalti Kristgeirsson. -þjv Þorsteinn Hannesson og Herdis Þorvaidsdöttir. Guðjón Einarsson verður umsjónar- maður Kastljóss í sjónvarpinu í kvöld. Þar mun hann ásarrit Hermanni Svein- björnssyni á Akureyri og Boga Agústs- syni í Kaupmannahöfn taka fyrir tvö mál sem bæði eru mjög svo forvitnileg. Það fyrra er mál sem mikiö hefur veriö fjallaö um að undanförnu og varðar útgerðina hér á landi. Er þar um að ræða hina svokölluðu uppboðs- togara. Hermann Sveinbjörnsson brá sér til Húsavíkur til að vinna hluta af þessu efni. Þar ræðir hann m.a. viö bæjar- stjórann og einnig útgerðarstjóra tog- arans Kolbeinseyjar, sem er á lista uppboðstogaranna. Þá ræðir hann við Gunnar Ragnars, forstjóra Slippstöðvarinnar á Akur- eyri, en margir útgerðarmenn segja að vanda skipasmíöaiönaðarins hafi verið velt yfir á útgerðina með þeim af- leiðingum sem nú blasi við. Guðjón ræðir síðan við Kristján Ragnarsson hjá LIU og Halldór As- grímsson sjávarútvegsráðherra um vanda þessara togara og hvað sé til ráða. I hinu málinu í Kastljósi ætlar Guðjón að kanna stöðuna í útvarps- og sjónvarpsmálunum hér á landi. Ut- varpslagafrumvarpið er í meðferð hjá alþingismönnum þessa dagana og kemur sjálfsagt þaðan einn góðan veðurdag. Frændur okkar annars staðar á Norðurlöndunum eru komnir skrefi framar en við í frjálsræðisátt í út- I sjónvarpinu í kvöld verður kastljós- inu m.a. beint að stöðunni í útvarps- og sjónvarpsmálinu. Það komst veruleg- ur skriður á það mál eftir verkfall BSRB í haust en í því störfuðu margar útvarpsstöðvar hér, m.a. stöð starfs- fólks DV, Fréttaútvarpið. Hljótt hefur verið um það mál að undanf örnu. varps- og sjónvarpsmálum. Bogi Ágústsson, sem starfar fyrir sjónvarp- ið í Kaupmannahöfn, segir okkur nán- ar frá því. Verður fróðlegt að hlusta á það eins og sjálfsagt allt annað í þess- um þætti í kvöld. -klp Útvarpið, rás 1, kl. 11.20 ífyrramálið: Lesið úr nýjum barnabókum I fyrramálið verður lesið úr íslensk- um og erlendum barnabókum sem koma út hér fyrir jóiin. Gunnvör Braga hefur umsjón með þessum þætti en kynnir er Sigurlaug M. Jónasdóttir. Er þetta þriðji þátturinn af fimm þar sem lesið er upp úr nýjum barnabókum nú fyrir jólin. Tveir síðustu þættirnir verða á þriðjudag og miðvikudag í næstu viku. Bækurnar, sem lesið verður úr í fyrramálið, eru þessar: Fjallakrili — óvænt heimsókn eftir Iðunni Steins- dóttur, Jólasveinafjölskyldan í Grýlu- bæ, eftir Guðrúnu Sveinsdóttur ogKári litli í skólanum eftir Stefán Júlíusson sem nú er komin út aftur. Erlendu bækurnar eru Símon Pétur eftir færeyska rithöfundinn Martin Næs í þýðingu Þórodds Jónssonar og bókin Karl Blomkvist og Rasmus eftir Astrid Lindgren í þýðingu Skeggja Ásbjarnarsonar. -klp 1/upeoleoh Reykjavik - simi 685333. SJÓNVARPSBðDlR Veðrið Þykknar upp í dag með vaxandi sunnanátt og hlýnar. Fer að rigna vestan til á landinu síðdegis í dag. Veðrið hér og þar ísiand ki. 6 í morgun: Akureyri heiðskirt —2, Egilsstaðir heiðskírt —4, Höfn léttskýjað —1, Kefla- víkurflugvöllur léttskýjaö 1, Kirkjubæjarklaustur heiðskirt —2, .Raufarhöfn heiðskírt —3, Reykja- vík léttskýjað —3, Sauðárkrókuri léttskýjaö —5, Vestmannaeyjar heiðskírt 0. Utlönd kl. 18 í gær: Bergen skýj- að 2, Helsinki snjókoma —5, Kaup- mannahöfn skýjað 2, Osló snjó- koma —1, Stokkhólmur skýjað —1, Þórshöfn þokumóða 8. Utiönd kl. 18 í gær: Algarve skýj- aö 13, Amsterdam þokumóða 4, Aþena léttskýjað 7, Barcelona (Costa Brava) léttskýjað 13, Berlín léttskýjað —1, Chicago skýjað 2, Glasgow mistur 6, Feneyjar- (Rimini og Lignano) þokumóða 5, Frankfurt þokumóöa 0, I.as Palmas (Kanaríeyjar) léttskýjaö 20, London rigning 7, Lúxemborg léttskýjað 4, Madrid hálfskýjað 8, ; Malaga (Costa Del Sol) skýjað 13, Mallorca (Ibiza) léttskýjað 14, Miami léttskýjaö 25, Montreal alskýjað 3, New York skýjað 13, Nuuk snjókoma —6, París rigning 8, Róm þokumóða 11, Vín þoku- móöa —2, Winnipeg alskýjaö —2, í Valencia (Benidorm) heiðskírt 13. Qengið \ Gengisskráning NR. 240 - 13. DESEMBER1984 Eining kl. 12.00 Kaup Sala Tollgengi Dollar 40.040 40,150 40.010 Pund 47.758 47.889 47.942 Kan. dollar 30.295 30,379 30.254 Dönsk kr. 3.6121 3,6220 3.6166 Norsk kr. 4.4707 4,4830 4.4932 Sænsk kr. 4,5307 4,5431 4.5663 E. mark 6.2203 6,2374 6.2574 Fra. franki 4,2147 4,2263 4.2485 Belg. franski 0,6434 0,6451 0.6463 Sviss. franki 15.6620 15,7051 15.8111 Holl. gyllini 11,4596 11,4911 11.5336 V-þýskt mark 12.9328 12.9683 13.0008 it. líra 0,02097 0,02103 0.02104 Austurr. sch. 1.8422 1,8473 1.8519 Port. Escudo 0,2419 0,2426 0.2425 Spá. peseti 0.2329 0,2336 0.2325 Japanskt yen 0.16158 0,16203 0.16301 irskt pund 40,340 40,451 40.470 SDR Isérstök 39,5444 39,6532 dráttarrétt. Símsvari vegna gengisskráningar 22190 Sæl nú! Hreinn hafði vinningana svo sann- arlega á hornum sér í dag! 14 Fisher Price raðhringir handa litlu börnunum. Vinningsnúmerin eru: 157280 - 32331 - 153758 - 2074 - 44279 - 101367 - 58802 - 125768 - 49950 - 553 - 130017 - 160569 - 195223 - 149264 ------------------——-- Upplýsingar um afhendingu vinn- inga eru gefnar hjá SÁÁ i sima 91-82399. Ps. Það skiptir engu máli hvenær miðarnir voru greiddir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.