Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1984, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1984, Blaðsíða 4
4 DV. FÖSTUDAGUR14. DESEMBER1984. Franskt kvöld á Sögu Verslunarfulltrúi franska sendiráðsins og íslenskir umboðsaöilar fyrir frönsk vörumerki hafa nú tekið höndum saman og ætla að efna til tískusýningar eins og þær gerast glæsilegastar í París. Sýningin verður á Hótel Sögu annaö kvöld, 15. desember. Dagskrá franska kvöldsins í Súlnasal hefst klukkan 20.30 og verður franskur kvöldverður borinn fram. Tískusýningin verður undir stjórn M. Engel sem er heims- þekktur dans- og tískusýningarstjóri. Módel ’79 sýna. Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar leikur síðan fyrir dansi til klukkan3. Þessi franska sýning er sú fyrsta sinnar tegundar og átti verslunarfull- trúi Frakklands hér á landi frum- kvæðið. Hótel Saga og franska sendiráðið eru þeir aðilar sem standa að þessu kvöldi. „Eg fékk eiginlega hugmyndina þegar ég fyrst kom til Islands, í mars. Ég þurfti mikla hjálp til að hrinda þessu í framkvæmd en það gekk loksins,” sagöi Gina Letang, verslunarfulltrúi Frakklands. .dívenfólk virðist hugsa mikiö um klæðaburð hér á íslandi og finnst mér það klæða sig mjög „elegant! Ég veit aö sýning sem þessi getur orðiö góð. Franskar sýningar eru í gangi úti um allan heim og þurfti ég að ganga mikið á eftir frönsku sýningamefndinni til að fá að halda slíka sýningu hér,” sagði Gina. Þær verslanir seril eru meö franskan fatnað hér á landi eru til dæmis EVA, Hjá Báru, Gullfoss, Christine, Pelsinn, Cosmos, Herra- garðurinn, Englabörnin og Pakkhúsið. Frönsk fatagerðarframleiðsla er orðin fræg um allan heim og verða fræg frönsk vörumerki til sýnis, til dæmis Kenzo-Cacharel, Pierre Cardin, Yves St. Laurent, Antasia, Christian Dior og mörg fleiri. -JI. wmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm HLÝR OG VAND- AÐUR MOKKA- FATN- AÐUR Frakkastíg 12 Sími 12090 Fóðurstöðin í f jársvelti Loðdýrafóðurstööin á Dalvík er í algeru fjársvelti og nánast haldið uppi af Sparisjóði Svarfdæla. Stööin tók til starfa í vor en að sögn Eggerts Bollasonar, framkvæmdastjóra hennar, hefur engin fyrirgreiösla fengist frá rikisbönkunum. Þegar fóðurstöðin var stofnuö voru lagðar niður litlar stöðvar á Grenivík og Böggvisstöðum við Dalvík. Forsvarsmenn bankanna bæru því við, sagði Eggert, að þetta væri nýtt fyrirtæki og þeir hefðu fyrirmæli um að lána ekki til nýrra fyrirtækja. Hins vegar heföi Spari- sjóður Svarfdæla veitt mikla aöstoð og einnig heföi fengist stofnlána- deildarlán vegna tækjakaupa. Fóöurstöðin er í eigu loðdýra- bænda á svæöi Búnaðarsambands Eyjafjarðar. Fjárfesting, sem orðið hefur að leggja í, er um 10 milljónir króna. Auk þess er í pöntun tankbill sem ekki hefur tekist að leysa út vegna peningaleysis. Hann kostar um 4 milljónir króna fullbúinn. Með tækjum, sem væntanleg eru í sumar, er heildarkostnaður við stööina yfir 15 milljónir króna. Starfsmenn verða þrír í vetur. Hráefni í fóðrið er fengiö frá Hrísey og Dalvík. Komiö til bænda er þaö selt á kr. 4,50 kílóiö. Eggert taldi þaö meö því lægsta sem þekktist hér á landi. -JBH/Akureyri. Spástefnan: Við bætum ekki lífskjör okkar Frá spástefnunni sem haldin var á Loftieiðahóteiinu i gær. DV-mynd GVA. Við getum ekki gert ráö fyrir aö bæta lífskjör okkar á nokkrum næstu árum. Þetta álit kom fram í ræðu Jónasar Haralz bankastjóra á spá- stefnu Stjórnunarfélagsins í gær. Við megum ekki búast við að „ytri aðstæður” hjálpi okkur, markaðir erlendis, viðskiptakjör eða erlendir vextir. AuðUndir okkar eru og verða takmarkaöar. Við erum alltof sein af stað tU þess að nýjar atvinnugreinar bjargi okkur úr örðugleikunum á næstu árum. Við getum ekki vænzt óbreyttrar tekjuskiptingar. Marg- reynt er að breyta henni, en tekst ekki. „Því væri rétt,” sagði Jónas Haralz, „að launþegar og atvinnu- rekendur gerðu nú samkomulag tU margra ára um óbreytt laun.” Hann og annar ræöumaöur, ViUijálmur EgUsson hagfræðingur, lögðu á- herzlu á, að stefnunni yrði breytt og reynt að skapa stöðugleika í efna- hagnum að nýju í von um að geta rifið sig upp úr örðugleikunum á nýj- umgrundvellieftirnokkurár. -HH, Heimsmeistarakeppnin ískák: Fyrstisigur Kasparov Askorandinn í heimsmeistaraein- víginu í skák, Garrí Kasparov, vann sinn fyrsta sigur í einvíginu er heims- meistarinn Karpov gaf 32. skák þeirra. Skákin fór í bið eftir 40 leiki og átti Kasparov mun betri biðstööu. Karpov gaf skákina án frekari taflmennsku. -FRI. Jökulskonur í vinnu á Þórshöfn „Við ætlum aö vinna svona meðan færi gefst og eitthvað er að gera,” sagði Eyrún Guðmundsdóttir frá Rauf- arhöfn þegar hún kom í gærmorgun á- samt fjórum öðrum konum til að vinna hjá Hraðfrystihúsi Þórshafnar. Alls eru því komnar hingað til vinnu átta konur frá Raufarhöfn og fimm voru væntanlegarídag. Ekki er ákveöið hvernig kostnaði vegna ferða og uppihalds verður hátt- að. Ey rún sagði að sér hefði veriö lofað snarli og tvö þúsund krónum fyrir bilinn hjá verkalýösfélaginu á Raufar- hö&i. Jóhann A. Jónsson, fram- kvæmdastjóri Hraöfrystihúss Þórs- hafnar, sagði að reynt yrði aö fá At- vinnuleysistryggingasjóð til að taka þátt íkostnaðinum. Forsendan værisú að ef þessi vinna fengist ekki væri fólkiö atvinnulaust. I gær var lokið við að landa um 100 tonnum úr togaranum Rauöanúpi. Stakfellið er bilað en fer út fyrir helgi. -JBH/Þórshöfn. Þrír í gæslu — vegna innbrota Rannsóknarlögreglan handtók í gær þrjá unga menn sem grunaðir eru um að hafa á samviskunni mörg innbrot sem framin hafa verið að undanfömu. Hafa þeir verið úrskuröaðir í 5 til 7 daga gæsluvarðhald á meðan verið er að rannsaka mál þeirra nánar. Þeir eru aðallega grunaöir um innbrot í verslanir og sölubúðir en búist er við að eitthvað fleira geti komið fram í dagsljósiðviðyfirheyrslurnar. -klp- Óveðurs- tónleikar? Frá Sigurjóni Gunnarssyni, frétta- ritara DV í Borgamesi: Sl. vor komu þeir Kristinn Sig- mundsson söngvari og Jónas Ingi- mundarson píanóleikari í Borgarfjörð oghéldutónleika. Þeim sem komu til að heyra þá og sjá í Borgameskirkju verður sú stund ógleymanleg. Fyrir tónleikana og á meðan þeir stóðu yfir gerði slíkt óveður að engu var líkara en veöurguöunum væri eitthvað í nöp við þá félaga. Þeim félögunum hefur líkað vistin vel í Borgarfirði því þeir hafa nýlega sent frá sér hljómplötu sem var tekin upp í Logalandi í Borgarf irði. IMýir tónleikar Þetta óveðurstal er hér nefnt vegna þess að þeir félagarnir eru væntanleg- ir hingað nú um næstu helgi og veður- guðirnir hafa nú þegar hitað sig upp því bæði aðfaranótt mánudags og þriðjudags var hér slæmt veður. Já, tilhlökkunin er mikil. Tónleikarnir verða í Logalandi á* morgun, 15. desember, kl. 21 og í Borg- arneskirkju sunnudaginn 16. desember kl. 15. 1 fréttatilkynningu frá Tónlistar- félagi Borgarfjarðar, er stendur fyrir tónleikum þessum, segir að efnis- skráin sé fjölbreytt, bæði lög eftir inn- lenda og erlenda höfunda. Allir era vel- komnir meðan húsrúm leyfir. Það er vissulega fagnaðarefni þeg- ar þeir Kristinn Sigmundsson og Jónas Ingimundarson koma í Borgarfjörð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.