Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1984, Page 3
Sigurþór
DV. FÖSTUDAGUR14. DESEMBER1984.
3
Jón G. Sólnes
segir frá viðburðaríkri
og stormasanui ævi
skráð af Halldóri Halldórssyni blaðamanni
Jón Q. Sólnes er nafn, sem allir þekkja. liann er harðsvíraðasti
kapítalistinn í Sjálfstæðisflokknum, fyrrverandi bankastjóri á
Akureyri, Akureyrarmeistari í bæjarstjórnarsetu og fyrrverandi
þingmaður. Jón er jafnframt persónugervingur umdeildustu
fjárfestingar á íslandi hin síðari árin, Kröfluvirkjunar.
Hann hefur verið sakaður um mútuþægni og alis kyns
spillingu, en alltaf staðið slíkar ásakanir af sér. Oftar en einu
sinni kröfðust pólitískir andstæðingar þess, að hann segði af sér
þingmennsku.
En það var hans eiginn flokkur, Sjálfstæðisflokkurinn, sem batt
enda á pólitískan feril Jóns — urn stund. Árið 1979 var hann
sakaður um fjárdrátt og flokksfélagar hans þökkuðu honum
hálfrar aldar starf fyrir Sjálfstæðisflokkinn með því að sparka
hotium út af framboðslista flokksins.
f þessari bók ræðir Jón af hreinskilni um þessi mál, og eins
og hans er von og vísa skefur hann ekki utan af hlutunum. Mann
lætur forystu Sjálfstæðisflokksins fá það óþvegið, ef honum
finnst það við eiga. Pólitískir andstæðingar fá líka orð í eyra.
Jóns saga Sólness er merkileg saga. Hún er saga manns, sem
elst upp í fátækt, fer að vinna fyrir sér og leggja til heimilis
fósturforeldra sinna aðeins 15 ára gamall. Síðan hefur hann
komizt til æðstu metorða.
Jón Q. Sólnes hefur frá mörgu að segja, og í þessari bók svarar
hann í fyrsta skipti fyrir sig, svo að um munar.
Jákvæður llfskraftur
eftir riorman Vincent Peale
í þýðingu Baldvins Þ. Krisijánssonar
Fáar bækur hafa notið jafn mikilla vinsælda
hér á landi síðustu árin sem bækur Morman
Vincent Peale í þýðingu Baldvins Þ.
Kristjánssonar. Má þar nefna bækur eins
og Vörðuð leið til lífshamingju og Lifðu lífinu
lifandi.
í hinni nýju bók segir Peale frá því er hann
mætti Jesú Kristi í barnæsku og hvernig andi
hans auðgaðist er hann hóf að boða hina
jákvæðu lífskenningu.
í hverjum kafia er fjöldi sannra frásagna
fólks sem sjálft hefur reynt hinn jákvæða
lífskraft Jesú Krists.
Þrautgóðir á raunast und
16. bindi Björgunar- og sjóslysasögu íslands
eftir Steinar J. Lúðvíksson
í bókinni eru raktir atburðir áranna
1964—1966 að báðum árum meðtöldum.
Meðal atburða má nefna strand pólska
togarans Wislok, frækilega björgun
áhafnarinnar af mb. Strák, Þorbjarnarslysið
við Reykjanes, björgun áhafnarinnar af Wyre
Conquerer og strand breska togarans Boston
Wellvale við Arnarnes við ísafjarðardjúp.
Agúst á Brúnastóðum
lítur yfir farinn veg
í samfylgd tlalldórs Kristjánssonar
Ágúst bóndi á Ðrúnastöðum og fýrrum
alþingismaður er þéttur á velli og þéttur í
lund, gildur bóndi og góður félagsmálamað-
ur. Hann hefur notið virðingar mótherjajafnt
sem samherja.
Brúnastaðabóndinn var ekki borinn til efna
í skjóli ríkra foreldra. í bernsku var honum
ráðstafað af hreppsnefnd Eyrarbakka til
uppeldis hjá sveitarómögum og mátti una því
fýrstu árin að vera nefndur urðarköttur og
fiokkastaf krökkunum á Bakkanum til óæðri
stiga mannfélagsins og verða fýrir árásum
þeirra og áreitni.
BÓKAÚTGÁFAN ÖRN & ÖRLYGUR
Síðumúla 11, sími 84866