Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1984, Síða 8
DV. FÖSTUDAGUR14. DESEMBER1984.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Muhammad Ali
i málaferíum út
af herskyldunni
Muhaminad Ali, fyrrum heims-
meistari í hnefaleikum, hefur höföað
50 milljón dollara skaðabótamál vegna
dómsins sem hann hlaut 1967 fyrir aö
neita að gegna herþjónustu í Víetnam-
stríðinu. Einnig krefst hann þess að
honum verði úrskurðaður heimsmeist-
aratitillinn frá árinu 1967 til 1971.
Kröfur sínar byggir Ali á því að hiö
opinbera hafi brotið á honum rétt til
þess að hlýða trúarlegri sannfæringu
sinni og samvisku og neita að gegna
herskyldu.
Ali segist hafa verið klerkur í
múhameðstrúarsöfnuði sínum en hiö
opinbera heldur því fram aö ástæður
hans fyrir því að neita herskyldunni
hefðu verið pólitískar og kynþáttaleg-
ar en ekki trúarlegar.
3.500 ÁRA
GAMALT HOF
Fundist hefur í Uzbekistan í
Asíuhluta Sovétríkjanna elsta hof
elddýrkenda sem sögur fara af.
Hofiðsem var 45X65 metrar fannst
á Shwrabad-steppunni og er taliö
3.500 ára gamalt. 1 miðju þess
munu hafa verið fjögur altari til-
einkuð náttúruöflunum fjórum
eldi, vatni, lofti og vatni. Annar
hluti hofsins var ætlaður til smíði
trúarlegra gripa og vínframleiðslu.
tm
Sanyo HiFi system 234
^SANYO
er með á nótunum
O Stórglæsileg hljómtækjasamstæða í
vönduðum skáp með reyklituðum gler-
hurðum.
O 2x40 watta magnari með innbyggðum
5 banda tónjafnara.
O Priggja bylgju stereo útvarp með 5 FM
stöðva minni.
O Segulbandstæki fyrir allar snældugerð-
ir, með „soft touch" rofum og Dolby
suðeyði.
O Hálfsjálfvirkur tveggja hraða reimdrif-
inn plötuspilari.
Allt þetta fyrir aðeins
kr. 29.900.- stgr
Gunnar Ásgeirsson hf.
Siióurlandsbraut 16 Simi 9135200
ÞREKHJÓL
\
FRÁ KETTLER
VÞÝSKALANDI
• Vönduð og traust
þrekhjól
• Fjórar mismunandi
gerðir
• Verðfrá kr. 4.888
• Sendum í póstkröfu
• Kreditkortaþjónusta
Varahluta- og
viðgerða-
þjónusta
Ferslunin^^H
/VMRKlÐ
Suðurlandsbraut 30 — Sími 35320
Hin geysistóra skipasmíðastöð i Uddevalla verður nú lögð niður og 2400 manns
missa vinnuna. DV-mynd Jóhannes Reykdal.
Svíþjóð:
ASÍULÖND SKUTU
SKIPASMÍÐASTÖD-
INA í KAF
Hin geysistóra skipasmíðastöð í
Uddevalla í Svíþjóð mun hætta störf-
um og með henni 2400 starfsmenn
stöðvarinnar. Þetta var ákveöið á
þriðjudag eftir að ljóst varð að engin
leið er til að fá stöðina til aö bera sig.
Það er samkeppni frá Japan, Suður-
Kóreu og Kína sem verður stöðinni aö
falli. Asíulöndin geta boðiö lágt verð
vegna lítils launakostnaðar. Þetta verö
geta Svíar ekki keppt við.
Augljóst hefur verið að hverju
stefndi undanfarin ár. Fyrir 10 árum
unnu hjá fyrirtækinu 10.000 manns.
Fordæma ofbeldi
gegn diplómötum
Javier Perez de Cuellar, fram-
kvæmdastjóri Sameinuöu þjóðanna,
hvetur til tafarlausra aðgerða til þess
að draga úr ofbeldi gegn diplómötum.
Minntist hann sérstaklega á tvo banda-
ríska embættismenn, sem flugræningj-
ar myrtu í Teheran á dögunum, og
sömuleiðis breskra og jórdanskra
diplómata.
„Mérsýnist ljóst aöallar ríkisstjórn-
ir og fólk allt þurfi aö gefa þessu gaum
til þess aö halda í skef jum þessari vax-
andi ógnun við siðmenntaö samfélag,”
sagði framkvæmdastjórinn í gær-
kvöldi. — Allsherjarþingiö hafði þá í
undirbúningi ályktun til fordæmingar
ofbeldi gegn diplómötum og sendiráð-
um.
Flyja Bhopal
Lögregla og hermenn eru í
viðbragðsstöðu í Bhopal þar sem 100
þúsund borgarbúa hafa yfirgefið heim-
ili sín á meðan sérfræðingar reyna að
gera skaölaust eiturgas sem orðiö hef-
ur 2.500 manns að bana.
Fólk tróðst um til þess aö komast
með lestum, bifreiðum eða uxakerrum
burt úr borginni eöa sem lengst frá
Union Carbide-verksmiöjunni. Þar eru
15 tonna birgðir enn af eitraða gasinu.
Hið opinbera segir enga hættu stafa
af því aö verksmiðjan verði sett í gang
til þess að búa til skordýraeitur úr
þessum birgðum. En fréttin um að svo
skyldi gert fældi fólk burt úr borginni.
Fylkisstjórnin hefur sett upp ellefu
búðir við útjaðar borgarinnar til þess
að taka viö 125 þúsund manns. Fjögur
þúsund manna liðsauki hefur verið
sendur lögreglunni í borginni sem er
eins og draugabær.
Samkomulag í sjónmáli
Bjartsýni ríkir nú varðandi fyrirhug-
aðan fund leiðtoga þjóðarbrotanna
tveggja á Kýpur í janúar. Taliö er aö
Rauf Denktash, leiðtogi Tyrkja á
eynni, hafi samþykkt málamiðlunar-
tillögu aöalritara Sameinuðu þjóð-
anna, Perez de Cuellar. Leiðtogi
Grikkja, Spyros Kyprianou, mun þó
hafa fyrirvara á ýmsum atriðum í
þeimpakka.
Talið er að málamiðlanirnar gangi
út á að tyrkneski minnihlutinn muni
hafa neitunarvald í 10 málum, svo sem
utanríkisstefnu, varnarmálum, flutn-
ingamálum, bankamálum og öðru.
Tyrkneski herinn, sem heldur þeim
þriðjungi eyjarinnar þar sem menn af
tyrknesku bergi brotnir búa, mun
hverfa á brott, samkvæmt hinu fyrir-
hugaða samkomulagi. Tyrkir, sem
halda 37 prósent eyjarinnar, munu
gefa eftir eitthvert landsvæði. Sam-
komulagið fyrirhugaða gerir ráð fyrir
aö stofnaöar verði tvær þingdeildir: í
annarri fengju Tyrkii' 30 prósent þing-
sæta og í húini 50 prósent.