Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1984, Side 32
40
DV. FÖSTUDAGUR14. DESEMBER1984.
Peningamarkaður
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn
Stjörnureikningar eru fyrir 15 ára og yngri
og 65 ára og eltlri. Innistæður þeirra yngri eru
bundnar þar til þeir verða fuilra 16 ára. 65—74
ára geta losað innistæður með 6 mánaða fyrir-
vara, 75 ára og eldri með 3ja mánaða fyrir-
vara. Reikningamir eru verðtryggðir og bera
8% vexti.
Þriggja stjörnu reikninga er hægt að stofna
með minnst 500 þúsund króna innleggi. Upp-
hafsinnleg og hvert viðbótarinnlegg er bundið
í tvö ár. Reikningamir em verðtryggðir og
með 9% vöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá líf-
eyrissjóðum eða almannatryggingum. Inni-
stæður eru óbundnar og nafnvextir em 24%,
ársávöxtun 24%. Þessi bók er óverðtryggð.
Sérbókin fær strax 23% nafnvexti. 2% bæt-
ast við eftir hverja þrjá mánuði sé innistæða
óhreyfð. Arsávöxtun getur þannig orðiö
28,6%. Bókin er óbundin en óverðtryggð.
Búnaðarbankinn
Sparibók meö sérvöxtum er óbundin meö
28% nafnvöxtum og 28% ársávöxtun, sé inni-
stæöa óhreyfö. Vextir eru færöir um áramót
og þá bomir saman viö vexti af 6 mánaöa
verötryg^öum reikningum. Reynist þeir gefa
meiri ávöxtun er mismun bætt á Sparibókina.
Af hverri úttekt dragast 1,8% í svonefnda
va^taleiöréttingu. Sparibókin skilar því ekki
aröi nema innistæöa standi í minnst tvo mán-
uöi óhfeyfð.
Iðnaðarbankinn
A tvo reikninga í bankanum fæst IB-bónus.
Overðtryggðan 6 mánaöa sparireikning með
23,0% nafnvöxtum og verðtryggðan reikning
með 6 mánaða uppsögn og 3,5% nafnvöxtum.
Bónusinn er 3,0% í báðum tilvikum.
Fullur bónustimi er hálft almanaksáriö.
Hann tekur þó gildi strax og reikningur er
stofnaður og gildir til loka viðkomandi miss-
eris, sé ekki tekið út. Síðan verður reikningur-
inn að standa án úttektar allt næsta misseri til
þess að bónusréttur haldist.
Arsávöxtun á óverötryggða reikningnum
með f ullum bónus er 27,7%. Hægt er að breyta
í verðtryggingu með sérstakri umsókn.
Landsbankinn
Kjörbók er óbundin meö 28% nafnvöxtum
og 28% ársávöxtun sé innistæða óhreyfð.
Vextir eru færðir um áramót og þá bomir
saman við ávöxtun 6 mánaða verðtryggðra
reikninga. Reynist hún vera hærrier mismun
bættá Kjörbókina.
Af hverri úttekt dragast 1,8% í svonefnda
vaxtaleiðréttingu. Sparibókin skiiar þvi ekki
arði nema innistæða standi í minnst tvo mán-
uði óhreyfð.
Samvinnubankinn
Innlegg á Hávaxtareikningi ber stighækk-
andi vexti. 17% fyrstu 2 mánuöina, 3. mánuö-
inn 18,5%, 4. mánuðinn 20,0%, 5. mánuðinn
21,5%, 6. mánuöinn 23,0%, eftir 6 mánuði
24,5%, og eftir 12 mánuöi 25,5%. Sé tekið út
standa vextir þess tímabils þaö næsta einnig.
Hæsta ársávöxtun er27,l%.
Vextir eru færöir hvert misseri og bornir
saman viö ávöxtun 6 mánaöa verðtryggðra
reikninga. Sé hún betri færist munurinn á Há-
vaxtareikninginn.
Útvegsbankinn
Vextir á reikningi með Abót eru 17% nema
þá heila almanaksmánuðl sem innistæða er
óhreyfð. Þá reiknast hæstu vextir i gildi í
bankanum á óverðtryggðum reikningum, nú
24,7%, sem gefur 26,2% ársávöxtun sé inni-
stæða óhreyfö aiit áriö.
Mánaðarlega er ávöxtun 3ja mánaða verð-
tryggðs sparireíknings borin saman við
óverötryggðu ávöxtunina. Reynist hún betri
færist munurinn með vöxtum á ábótina í árs-
lok.
Verslunarbankinn
Kaskó er óbundin sparisjóðsbók meö 17%
nafnvöxtum. 31. desember ár hvert er bætt
við uppbót sem jafngildir hæstu ávöxtun inn-
lána eins og hún hefur verið í bakanum það
ár. Uppbótartímabil eruþrjú, janúar — apríl,
maí — ágúst og september — desember.
Uppbótarréttur skapast við stofnun reikn-
ings og stendur út viðkomandi tímabil sé ekki
tekið út. Rétturinn gildir siöan hvert heilt
tímabil, enda sé ekki tekið út. Ef tekið er út
gilda sparisjóösbókarvextirnir allt viðkom-
andi tímabil.
Sparisjóðir
A Trompreikningi færast vextir sé inni-
stæða óhreyfð. 17% fyrstu 3 mánuðina, 4.-6.
mánuö 20,0%, eftir 6 mánuöi 24,5% og eftir 12
mánuðí 25,5%. Hæsta ársávöxtun er 27,1%.
Ef innistæða er óskert í 6 mánuði er ávöxtun
borin saman við ávöxtun 6 mánaða verð-
tryggðs reiknings. Sé hún betri færist munur-
inn á Trompreikninginn.
Ríkissjóður
Spariskírteini ríkissjóös eru aö nafnveröi
1.000,10.000 og 100.000 krónur. Þau eru bundin
til 12.11.1987, verötryggö meö8% vöxtum.
Sölustaðir eru Seölabankinn, viðskipta-
bankar, sparisjóðir og veröbréfasalar.
Ríkisvbriar eru ekki boðnir út í desember.
Útlán lífeyrissjóða
Um 90 hfeyrissjóðir eru í landinu. Hver
sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lána-
upphæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að
lánsrétti er 30—60 mánuöir. Sumir sjóðir
bjóða aukinn lánsrétt eftir iengra starf og á-
unnin stig. Lán eru á bilinu 144.000—600.000
eftir sjóðum, starfstíma og stigum. Iánin eru
verðtryggö og með 5—8% vöxtum. Lánstími
er 15—35 ár eftir sjóðum og lánsrétti.
Biðtimi eftir lánum er mjög misjafn,
breýtilegur milli sjóða og hjá hverjum sjóði
eftir aðstæðum.
Hægt er að færa lánsrétt þegar viðkomandi
skiptir um lífeyrissjóð eða safna lánsrétti frá
fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í eitt ár og reiknaðir í
einu lagi yfir þann tíma. Reiknist vextir oftar
á ári verða til vaxtavextir og ársávöxtunin
verðurþá hærri en nafnvextirnir.
Ef 1.000 krónur liggja inni í 12 mánuöi á
24,0% nafnvöxtum og verðurinni6tæöani lok
þess tíma 1.240 krónur og 24,0% ársávöxtun i
því tilviki.
Liggi 1.000 krónur inni í 6+6 mánuði á 24,0%
vöxtum reiknast fyrst 12% vextir eftir sex
mánuðina. Þá er innistæðan komin í 1.120
krónur og á þá upphæö reiknast 12% vextir
seinni sex mánuðina. Lokatalan verður þann-
ig kr. 1.254.40 og ársávöxtuninn 25,4%.
Dráttarvextir
Eftirfarandi reglur gilda nú um dráttar-
vexti í reikningsviðskiptum:
Þegar kunngerðir skilmálar eru fyrir hendi
er hámark dráttarvaxta frá eindaga til
greiðsludags 2,75% á mánuði eða fyrir brot úr
mánuöi. Vaxtavextir reiknast ekki neina van-
skii standi lengur en 12 mánuði, þá 2,4% á
mánuði. Sé dagvöxtum beitt miðast þeir vtð
33,0% áári.
Af verðtryggðum og gengistryggðum skuid-
bindingum eru dráttarvextir 5% á ári til við-
bótar samningsvöxtum þegar verðtryggingu
eða gengistryggingu er haldið á skuldinni
sjálfri.
Þegar sérstakir skilmálar eru ekki fyrir
hendi er heimilt að reikna dráttarvexti jafn-
háa og vexti á 12 mánaða sparireikningum.
Vísitölur
Lánskjaravísitala mælir í flestum tilfellum
verðbætur á verðtryggð lán. Hún var lOOstig í
júní 1979.1 desember 1984 er Iánskjaravísital-
an 959 stig, 2,24% hærri en í nóvember.
Byggingarvísitala fyrir síðasta ársfjórðung
1984 er 168 stig miðaö við lOOstig í janíiar 1983.
VEXTIR BANKA GG SPABISJÚÐA (%)
INNLÁN MED SÉRKJÖRUM SJA sérlista 5 fl x S i II t| tí 11 Lands bankmn | !| ! i h Ú
innlAn úverðtrvggo
sparisjOosbxkur öbundm innstæða 1700 17.00 17.00 17.00 17.00 17.00 17.00 17.00 17.00 17.00
SPARIREIKNINGAR 3ja mánaða uppsogn 20.00 21.00 20.00 20.00 20.00 20.00 20.00 2000 2000 20.00
5 mánaóa uppsogn 2450 26 00 2450 24.50 23.00 2450 23.00 25.50 24.50
12 mánaða uppsogn 25.50 27.00 2550 24.50 25.50 24.70
18 mánaða uppsogn 27 50 29.40 27 50
SPARNA0UR lANSREHUR Sparað 3 5 mánuði 20.00 21.00 20.00 20.00 20.00 20.00 20.00 20.00
innlAnsskírteini Sparað 6 mán. og mexa 2300 24.30 23.00 20.00 2300 2300 23.00
tekkareikningar Til 6 mánaóa 24.50 26 00 24.50 2450 24.50 24.50 24.50 24.50 24.50"
Avisanareánmgar 15.00 12.00 12.00 12.00 12.00 12.00 12.00 12.00
Hlaupareiknmgar 900 12.00 12.00 12.00 9.00 12.00 12.00 12.00
innlán verðtrvggd
SPARIREIKNINGAR 3ja mánaóa uppsogn 4.00 3.00 3.00 2.00 4.00 2.00 3.00 2.00 4.00
6 mánaóa uppsogn 6.50 5.50 6.50 3.50 6.50 5.00 6.00 500 6.50D
INNLAN GENGISTRYGGÐ
GJALOEYRISREIKNINGAR Bandaríkjadolarar 950 9.50 9.50 9.50 9.50 8.00 9.50 9.50 950 9.50
Slerlmgspund 950 9.50 9.50 9.50 9.50 8.50 9.50 9.50 9.50 9.50
Vestur þýsk mork 400 4.00 4.00 4.00 400 4.00 4.00 4.00 4.00 4.00
Danskar krónur 9.50 950 9.50 9.50 950 8.50 9.50 9.50 9.50 9.50
útlAn óverðtrvggð
ALMENNIR VlXLAR (forvextx) 24.00 23.00 2300 24.00 23.00 23.00 24.00 24.00 24.00
VIÐSKIPTAVlXLAR (forvexú) 24.00 24.00 2400 24.00
ALMENN SKULOABRÉF 26 00 26.00 25.00 26.00 25.00 26.00 2690 26.00 26.00
VIÐSKIPTASKULOABRÉF 28.00 28.00 28.00 2800 28.00
HLAUPAREIKNINGAR Ylvdráttur 26.00 25.00 24.00 26 00 24.00 25.00 26.00 26.00 2500
útlAn verðtryggð
SKULOABRÉF Aó 2 1/2 ári 700 7.00 7.00 7.00 7.00 7.00 700 7.00 7.00
Lengri en 2 1/2 ár 600 8.00 8.00 8.00 8.00 8.00 8.00 800 8.00
útlAn TIL FRAMLEIÚSLU
VEGNA INNANLANOSSOlU 18.00 18.00 1800 18.00 18.00 18.00 18.00 18.00 18.00
VEGNA UTFLUTNINGS SDR re*nimynt 9.75 9.75 9.75 9.75 9.75 9.75 9.75 9.75 975
úrattarvextir
2.75% Á MÁNUOI 33.00 33.00 33.00 33.00 33.00 33.00 33.00 3300 33.00
1) Sparáfóduí Hafnadjaröar. Sparsjóóur Vutmannaeyja og SpatBjóóur Bolufigarviltur bjóóa 25.50% nafnvexti meó hæstu ársávortun 27.10%.
2) Sparisjóóur Bohjngarvíkur býóur 7% nafnvexti. .
I gærkvöldi
I gærkvöldi
„TEENY-BOP’ & „MORDBRÉF’
Sigurður Guðmundur Tómasson
færist hægt og bítandi í aukana í þátt-
um sínum um daglegt mál. í gær-
kvöldi (og í morgun) var enginn ann-
ar en Þórbergur Þórðarson munstr-
aður á skútuna og undireins drifinn
upp á dekk. Vitaskuld lét hann hend-
ur standa fram úr ermum; kenndi
einum, benti öðrum. Það vakti
athygli mína að þau dæmi um lág-
kúrulegar klisjur, sem Þórbergur
nefndi upp úr minningargreinum, er
nú helst að finna á íþróttasíðum dag-
blaðanna. Hvernig getur staðið á
því?
Eftir þáttinn um daglegt mál
heyrði ég, mér til furðu, vinsældalist-
ann á rás tvö. Það var nú meira
„teeny-bopiö”. Og kannski ekki að
undra eins og listinn er valinn. En
annars nenni ég ekki að agnúast út í
það.
Undir miönætti hlýddi ég svo á þátt
frá deild Ríkisútvarpsins á Akureyri,
Milli stafs og hurðar. Hann var í um-
sjón Olafs H. Torfasonar og Hildu
Torfadóttur og ku eiga að vera á dag-
skrá einu sinni í mánuði. I blöðunum
les ég að þátturinn eigijið fjalla um
fólk sem „lent hefur milli stafs og
hurðar í kerfinu” og í fyrsta þættin-
um í gærkvöldi var „morðbréfamál-
iö” tekið fyrir. Þetta var afskaplega
áheyrilegur þáttur og uppbygging
hans að ýmsu leyti skemmtileg og
athyglisverð. Stuttum atriðum, aðal-
lega viðtölum, úr ýmsum áttum var
skeytt saman frjálslega. Ég er
reyndar ekki frá því að þátturinn
hafi veriö helsti laus í reipum, og
tónninn var stundum svolítiö skrýt-
inn, en á heildina litið var þetta
áhugaverður þáttur.
Um málið segi ég ekki eitt einasta
orð. . . Qlugi Jökulsson.
Ingibjörg Jörundsdóttir lést 6. desem-
ber sl. Hún fæddist 30. september 1896.
Inigbjörg giftist Salomóni Mosdal
Sumarliðasyni en hann lést árið 1981.
Þau eignuðust fimm börn, en tveir
drengir þeirra létust í fæðingu. Utför
Ihgibjargar verður gerð frá kirkju
Fíladelfíusafnaðarins í dag kl. 13.30.
Ástvaldur Eydal lést í San Francisco
26. nóvember. Minningarathöfn um
hann fer fram í Laugarneskirkju
mánudaginn 17. desember kl. 13.30.
Sigmar Benjamínsson, Mörk Kópa-
skeri, lést 8. desember. Utförin fer
fram frá Snartastaöakirkju laugar-
dagínn 15. desember.
Þorsteinn Pjetursson, Akurgerði 39,
fyrrum starfsmaður fulltrúaráös
verkalýösfélaganna í Reykjavík lést í
Borgarspítalanum miövikudaginn 12.
desember.
Steinunn Valdemarsdóttir, Sólbrekku
10 Húsavík, verður jarðsungin frá
Húsavíkurkirkju laugardaginn 15.
desemberkl. 14.
Tilkynningar
_______v___
Myndlistarsýningar á sjúkra-
húsinu á Akureyri
Nú standa yfir tvær myndlistarsýningar á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Ragnar
Lár listmálari sýnir í borðstofu nokkur olíu-
málverk og gvassmyndir. Ennfremur hefur
myndum eftir Iðunni Agústsdóttur listmálara
verið komið fyrir í setustofum og á göngum.
Báðar munu sýningamar standa fram á
næsta ár.
Jólatrésafhending
Föstudaginn 14. desember kl. 17.00 verða
tendruð ljós á jólatré því sem Kristiansand,
vinabær Keflavíkur í Noregi, gefur Kefl-
víkingum.
Bjöm Eiden, 1. sendiráðsritari norska sendi-
ráðsins, afhendir tréð en Hilmar Pétursson,
formaður bæjarráðs, veitir því viðtöku.
Lúðrasveit Tónlistarskólans í Keflavík
leikur undir stjórn Jónasar Dagbjartssonar
og kór Keflavíkurkirkju syngur jólalög undir
stjóm Siguróia Geirssonar.
Að lokum koma jólasveinarí heimsókn.
Ályktun um verðtryggingu
launa
A fundi miðstjómar ASI 6.12. sl. var eftirfar-
andi ályktun samþ. samhljóða:
Miðstjóm Alþýðusambandsins vekur sér-
staka athygli á þeim hluta kjaramálaályktun-
ar ASl-þings sem fjallar um verðtryggingu
launa. Miðstjórnin lýsir þeirri eindregnu
skoðun, að það eigi að vera samningsatriði
milli samtaka launafólks og atvmnurekenda
hvernig kaupmáttur launa er tryggður.
Stjómvöld hafa með lögum afnumið verð-
bætur á laun, en vísitölubinding er við lýði
áfram á fjölmörgum sviðum. Lán eru flest að
fullu verðtryggö og fjölmargir hópar sækja
tekjur sinar með sjálfvirkum framreikningi
kostnaðarþátta sem efnislega er ekkert annað
en verðtrygging. Enn má minna á að ýmsir
tekjustofnar ríkisins eru vísitölubundnir, t.d.
bensíngjald. Launainönnum er einum ætlað
að bera verðhækkanir án bóta.
Af háifu verkalýðshreyfingarinnar snúast
kjarasamningar um kaupmátt en ekki kaup-
tölur. Tryggiæ kaupmáttur er forsenda kjara-
samninga til lengri tíma. I því efni koma ýms-
ar leiðir til greina og má þar minna á hug-
myndir verkalýðshreyfingarinnar í nýaf-
stöðnum kjarasamningum.
Miðstjórn ASI skorar á rikisstjórnina og
löggjafann að leggja á hilluna hugmyndir um
framlengingu á banni gegn verðtryggingu
launa. Það er ekki aðeins rangt heldur einnig
óskynsamlegt að torvelda þannig eðlileg sam-
skipti aðila vinnumarkaðarins og hindra
samninga til lengri tíma.
50 ára afmælishóf
Golfklúbbs Reykjavíkur
verður haldið I Atthagasai Hótel Sögu föstu-
daginn 14. desember nk. og hefst með borð-
haldi kl. 19. Verð aögöngumiða kr. 1.000. —
Miðasala og borðpantanir hjá formanni og
framkvæmdastjóra. Tryggið ykkur miða í
tíma þar sem húsrými er takmarkað.
-JOLó-iæ.vsur
JOLA-stof&n
; JOLA-fondur
iilÓLPfefe
Jólablað Lopa og bands
komið út
Níunda tölublað Lopa og bands er nú
. nýkomið út. Að þessu sinni er blaöið helgað
jólahaldi.
Það færist nú í vöxt að jólagjafir séu gerðar
í heimahúsum og kemur blaöið til liðs við þá
sem það vilja gera og birtir uppskriftir að
ýmsum fallegum prjónavörum af hentugri
stærð.
Glæsilegar samkvæmispeysur skipa veg-
legan sess í blaöinu og fylgja þeim vandaðar
uppskriftir.
Blaðið gægist í áhugaverðan heim íslenskra
hagleiks- og hugmyndasmiða. Eggert feld-
skeri og þær systur, Helga og Þórunn Egilson,
segja frá starfi sínu í skemmtilegum viðtölum
og blaðið birtir athyglisverðar myndir af
framleiðslu þeirra.
Ekki má gleyma jólahaldinu sjálfu. Gildi
hf. hefur nú tekið við rekstri Grillsins á Hótel
Sögu og franski matreiðslumeistarinn þeirra,
Francois, staöfærir fyrir islenska sælkera
franskan jólamat með leiðbeiningum í máii
og myndum sem koma öllum í jólaskap.
Borðskreyting í tilefni jólanna og nýstárleg
jólatrésskreyting er unnin af ungum innan-
hússarkitekt, Guðrúnu Margréti. Hún hefur
líka ýmislegt til málanna að leggja um jóla-
pakkana, sem oft vefst fyrir fólki að gera, svo
og ýmsar aðrar fallegar jólaskreytingar.
Margt fleira skemmtilegt má finna í jóla-
blaöi Lopa og bands, má nefna jólaföndur fyr-
ir böm, sem oft vilja leggja hönd á plóginn við
jólaundirbúninginn, vefnað, fatagerð úr
mokkaskinnsafgöngum, dúkku og fleira.
Prjónablaöiö Lopi og band fær æ betri
viötökur hjá lesendum og er síðasta tölublað
uppselt hjá útgefanda. Jólablaðið kostar 184
krónur í lausasölu, áskriftarverð er 151 króna.
Forseta íslands afhent
trúnaðarbréf
Nýskipaður sendiherra Kenya, hr. Ernest
Cheruiyot arap Lang’at, afhenti 27. nóv. sl.
forseta Islands trúnaðarbréf sitt að viðstödd-
um Geir Hallgrímssyni utanríkisráðherra.
Síðdegis jiáði sendiherrann boð forseta Is-
lands á Bessastöðum ásamt fleiri gestum.
Sendiherra Kenya hefur aðsetur í Stokk-
hólmi.
Sjálfsbjörg, félag fatlaðra í
Reykjavík og nágrenni
heldur opið hús, jólagleði, í kvöld, föstudags-
kvöld, í félagsheimilinu, Hátúni 12.
Barnagæsla KSS
A morgun, iaugardaginn 15. desember, stend-
ur KSS (Kristileg skólasamtök) að barna-
gæslu í húsi KFUM að Amtmannsstíg 2b frá
kl. 13.00 til 18.00..
Gefst þar foreldrum tækifæri til aö koma
börnum sínum í gæslu á meðan þau gera jóla-
innkaupin.
Fyrir bömin verður margt aö gerast, farið í
leiki, dansað kringum jólatré, jólasveinar
kíkja í heimsókn, föndrað og margt fleira.
Verðið er vægt og rennur ágóðinn beint til
kristniboðsins.
Gallerí Borg
Brian Pilkington sýnir um helgina myndir
sem eru í nýrri bók sem komin er út á vegum
Nýs-lífs manna.
Norræn jól og kvikmynda-
sýning í Norræna húsinu
Sunnudagínn 16. des. kl. 16.00 í 'undarsal:
Norræn jól — upplestur, Lúsía og þemur
hennar, söngur o.fl., dagskrá fyrir börn og
fullorðna. Allir hjartanlega velkomnir.
Kl. 19.00:
Kvikmyndasýning — danska sakamála-
gamanmyndin Kassinn stemmir sýnd á
vegum kvikmyndaklúbbsins Norðurljósa.
Dregið hefur verið í jóla-
dagatala-happdrætti Kiwan-
isklúbbsins Heklu,
fyrir dagana 1,—14. des. 1984.
Upp komu eftirtalin númer:
l.des. 1592 8. des. 1891
2. des. 708 9.des. 1245
3. des. 698 10. des. 2312
4. des. 1519 11. des. 1168
5. des. 227 12. des. 2120
6. des. 814 13. des. 1976
7. des. 1874 14. des. 43
Litlu jólin
hjá KFUM og KFUK
Sunnudaginn 16. desember kl. 15 verður efnt
til jólahátíðar fyrir alla fjölskylduna í húsi
KFUM og KFUK við Amtmannsstíg 2b í
Reykjavík.
Dagskrá verður fjölþætt, jólaþáttur, helgi-
leikur, barnakór, hugvekja, gengið verður í
kringum jólatréð og jólasveinar koma í heim-
^ókn með góðgæti í pokum sínum.
Vegna veitinga verður aðgangseyrir kr. 50.-
Allir eru velkomnir.
Um kvöldið kl. 20.30 verður almenn sam-
koma á sama stað. Þá talar Astríður Haralds-
dóttir, tónlistarfulltrúi KFUM og KFUK.
Villi Þór í
Ármúlanum
I samantekt um jólaklippinguna á
neytendasíðu DV í gær var sagt að
Hársnyrting Villa Þórs væri í Síðu-
múla. Það er ekki rétt. Hún er í
Ármúla 26. Beðist er velvirðingar á
þessu.