Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1984, Side 40
Jk.
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN
SEM
ALDREI
SEFUR
Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022.
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá í
sima 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað i OV, greið-
ast 1.000 krénur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið í
hverri viku,
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn. -
FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1984.
Eigandi trompmiðans nýlátinn:
Fimm milljónir á
óendumýjaðan miða
Hæsti vinningurinn í Happdrætti
Háskólans, saratals 5 milljónir
króna, kom upp á miða sem ekki
haföi verið endurnýjaður vegna frá-
falls eigandans.
A þriðjudag var dregið í Happ-
drætti Háskólans. Hæsti vinningur-
inn, ein milljón króna, kom upp á
svokallaðan trompmiöa auk f jögurra
heilmiða, allra með sama númeri,
sem samtals nífalda vinninginn.
Þessa miða áttu þrír Reykvíkingar,
einn átti trompmiðann, sem fimm-
faldar vinninginn, annar þrjá heil-
miöa og sá þriðji einn.
Reykvíkingurinn, sem átti tromp-
miðann og átti þvi að fá milljónirnar
fimm, féll frá fyrir aöeins rúmum
mánuði. Hafði hann átt miðann í 25
ár, alltaf endurnýjað með skilum en
aldrei fengið vinning. Ættingjar
mannsins höfðu í mörgu að snúast
eftir fráfall hans og gleymdist því að
endurnýja miöann. Höfðu þeir sam-
band viö Jóhannes L. L. Helgason,
framkvæmdastjóra Happdrættis Há-
skólans vegna þessa máls og sagöi
hann að fyrst miðinn hefði ekki verið
endurnýjaður yrðu milljónimar ekki
greiddar út. I samtáli við DV í fyrra-
dag sagði Jóhannes hins vegar að
vinningurinn hefði fallið i skaut
þriggja Reykvíkinga.
En þegar DV hafði samband við
hann í gær sagöist hann ekkert vita
um þetta mál enda heföi hann í nógu
öðru aö snúast en að kanna það.
„Ef miðinn hefur ekki verið endur-
nýjaður rennur vinningurinn til
okkar,” sagði Jóhannes.
— Varþessimiðiendurnýjaður?
„Egveitþaðekki.”
— Þegar menn hafa átt miða
svona lengi endurnýjast þeir þá ekki
sjálfkrafa?
„Aldrei.”
— Engin undantekning þar á?
„Nei,” sagði Jóhannes L. L.
Helgason.
-KÞ.
Útvarpslögin
ísaltyfir jólin
Nýtt frumvarp til útvarpslaga
veröur ekki afgreitt úr menntamála-
nefnd neöri deildar Alþingis fy rir jól.
Þar hefur það verið til umfjöllurtar
um skeið. Margir hafa verið kallaðir
á fund nefndarinnar og umsagna
víðaleitað,
Nú á síöustu fundum hafa margar
breytingartillögur og „hugmyndir”
borist frá stjórnarandstæðingum
sem ekki hefur unnist tími til að
vinna úr.
Veikindi hafa einnig tafiö
afgreiðslu frumvarpsins úr
nefndinni. Annað útvarpslagafrum-
5^ varp hefur verið lagt fram á Alþingi,
frá Sigríðu Dúnu Kristmundsdóttur,
Samtökum um kvennalista.
-ÞG
Mikiö fyrír Ktíð
/HIKUG4RDUR
Mjög mikið hefur verið um árekstra á götum Reykjavikur síðustu tvo daga. Voru yfir 30 bókaðir érekstrar
i fyrradag og annað eins i gær. Má reikna með að vel á annað hundrað bílar hafi skemmst i þessum
árekstrum og sjálfsagt annað eins i árekstrum þar sem ekki er kallað á lögregluna. Hér er mynd af einu
óhappinu i gær. í þessu tilfelli ók ökumaðurinn á umferðarljós við Hringbraut. Var hann ekki i bilnum þeg-
ar lögreglan kom á staðinn en gafsig fram við hana skömmu siðar og kom þá í Ijós að hann var réttinda-
laus. -klp- D V-m ynd S.
Vaxtabreytingar:
Beðið eftir
Seðlabanka-
skýrslunni
Vaxtaskýrsla Seðlabankans sem
ríkisstjórnin bað um í síðustu viku
var ekki komin á borð viðskiptaráð-
herra í gær. Hún á meðal annars að
skýra tillögu seðlabankamanna um
vaxtabreytingar nú. Einnig á í henni
aö gera grein fyrir stööu viðskipta-
bankanna.
Af tækniiegum ástæðum er vöxtum
breytt á vissum mánaðardögum.
Næsti liklegi dagur er 21. desember.
Ríkisstjórnin mun tæplega fjalla
frekar um vaxtamálin fyrr en á
þriöjudag sem er 18. desember.
I samtaii við AlexanderStefánsson
félagsmálaráðherra sagði hann það
skoðun sína að þær vaxtahækkanir á
óverðtryggðum inn- og útiánum sem
seðiabankamenn vildu væru ekki
timabærar. Og „hækkun á afurða-
lánum úr 18 í 25% er alveg f ráleit” að
mati ráðherrans. HERB
Fiskverð:
Útgerðin
þarf 20%
verðhækkun
„Þaö þarf að minnsta kosti 20%
fiskverðshækkun til að vega upp á
móti kostnaðarhækkunum vegna
gengisbreytinga og olíuverðshækk-
ana,” sagði Kristján Ragnarsson,
fulltrúi seljenda í Verðlagsráöi
sjávarútvegsins, um tilboð fiskkaup-
enda um 10% fiskverðshækkun sem
lagtvar framígær.
Fiskkaupendur telja að í þeirra til-
boði felist að skilinn verði eftir iítils
háttar tekjuafgangur hjá fiskvinnsl-
unni í heild. Kristján Ragnarsson
sagði liins vegar: „Þeir gerðu sér
ljóst að þetta tilboð er ekkert sem við
gætum sætt okkur við. Þeir eru bara
að vekja athygli á stöðu sinni með
þessum hætti.” Hann sagði aö 20%
hækkun að meðaltali þyrfti til að
vega upp i kostnaðarhækkanir út-
gerðarinnar og síöan þyrfti eitthvað
tii viðbótar ef bæta ætti stööu henn-
ar. Hversu mikið það væri myndi
skýrast um helgina þegar út-
reikningar Þjóðhagsstofnunar um
afkomu útgeröarinnar lægju fyrir.
ÖEF
Geir og Shultz ræddu
um kjamavopn á íslandi
— ef ni viðtalanna ekki til umræðu í f jölmiðlum, segir Geir
LOKI
Ég gef skít í Bifreiðaeftir-
litiðl
„Ég hef rætt þetta mál við Shulzt
(utanríkisráðherra Bandaríkjanna)
og aðra, en efni okkar viðtala er ekki
til umræðu í f jölmiðlum,” sagöi Geir
Hallgrímsson utanrikisráðherra í
samtali viö DV í gær er hann var
spuröur um hvort hann hefði fengið
staðfestingu á skjali því sem banda-
ríski fræðimaðurinn William Arkin
kynnti honum og forsætisráðherra í
síðustu viku.
Geir Hallgrímsson er nú staddur í
Briissel þar sem fram fer fundur
utanríkisráðherra aöildarrikja
Atlantshafsbandalagsins. Upp-
lýsingar um skjal þetta ættu því að
vera nærtækar. En sem kunnugt er
stóð í skjali þessu að forseti Banda-
rikjanna hefði heimilað að sendar
yrðu 48 kjamorkudjúpsprengjur
hingað til lands á ófriðartímum.
Skjalið var frá árinu 1974 en Arkin
taldi sig hafa heimildir fyrir því að
þessar heimiidir hefðu verið
framlengdar ár frá ári síðan þá.
Þessi heimild, að flytja hingað k jam-
orkuvorp, stangast á við varnar-
samning íslands og Bandaríkjanna
og ítrekaðar yfirlýsingar margra
utanríkisráðherra Islands.
Geir Hallgrímsson sagði í samtali
við DV í gær að hann hefði fengið
munnlegar upplýsingar um þetta
mál. Hann vildi ekki segja hvort
staðfesting heföi fengist á hvort
þetta skjal væri ófalsað eða hvort
slíkar heimildir hefðu veriö gefnar
út. Hann sagðist eiga von á skriflegri
skýrslu og gæfi því engar frekari
upplýsingaraðsvokomnumáli. ÓEF