Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1985, Blaðsíða 1
Lenti
of hratt
Loftferðaeftirlit Flugmálastjórn-
ar sendi frá sér fyrr í þessari viku
skýrslu um atvik á Keflavíkurflug-
velli þann 12. febrúar í fyrra, þegar
DC-8 þota Flugieiöa meö 235 manns
um borö fór fram af flugbraut i lend-
ingu.
1 skýrslunni kemur fram að flug-
vélin hafi að öllum likindum snert
brautina á bilinu 700 til 780 metra
inni á braut þegar aðeins voru um
2.350 til 2.270 metrar eftir af
brautinni.
Snertihraði flugvélarinnar átti að
vera 270 til 280 kílómetrar á klukku-
stund en var þess í stað líklega um
290 kílómetrar á klukkustund, sam-
kvæmt því sem flugriti skráði. Þetta
var meiri hraði en þörf var á.
Hefði flugvélin snert brautina á
eðlilegum hraða átti hún að geta
stöðvast allnokkru áður en brautar-
endavarnáö.
Flugstjóranum voru gefin upp
bremsuskilyrði um tiu minútum
fyrir lendingu. Þau voru þá sæmileg
til góð. Fjórtán mínútum eftir lend-
ingu reyndust skilyrðin sæmileg til
léleg en þó ekki undir þeim mörkum
sem Flugleiðir setja vélum sínum.
Iskýrslunnisegir:
Líklegt er að bremsuskilyrði hafi
verið enn verri í lendingunni sjálfri
en þessar mælingar gefa til kynna,
eða einmitt meöan brautin var að
frjósa og á brautinni var bæði ís og
bleyta.
Upplýsingar um versnandi ástand
brautarinnar komust ekki fyllilega
til flugstjórans.
SlökkviUðsmaður beið við enda
brautarinnar til þess að dreifa hálku-
eyði. Flugstjóranum var ekki kunn-
ugtumþetta. -KMU.
Verkfall boðað
áfarskipunum
Samninganefnd undirmanna á far-
skipum boðaði í gær verkfall á far-
skipunum, með viku fyrirvara. Ef
samningar hafa ekki tekist fyrir
þann tíma kemur verkfallið því til
framkvæmda 30. janúar.
Engir fundir voru haldnir hjá
sáttasemjara vegna þessarar kjara-
deilu í gær. Iiklegt er taliö að deilu-
aðilar verði kallaöir saman siðdegis í
dag. ÓEF
„Grundvallarlögmálið er að það er
búið að leyfa Búseta að byggja. Ibúð-
irnar verða byggðar fyrst, síðan
kemur upp spumingin til hverra á að
úthluta þeim,” segir Jón Rúnar
Sveinsson, formaður Bíseta.
Jón Rúnar er ekki sammála þeim
ummælum félagsmálaráðherra sem
koma fram hér á síðunni. Hann telur
að lögin heimili Byggingasjóði
verkamanna að lána til búseturéttar-
íbúða.
„Alexander hefur leikið á Þorstein
Páisson þannig aö sjálfstæðismönn-
um hefur ekki tekist að kæfa félagið í
fæðingu. Þorsteinn átti að heita for-
maður félagsmálanefndar þegar lög-
in voru samþykkt, en hann hefur
greinilega aldrei lesið frumvarpið,”
segir Jón Rúnar.
Hann segir að ætlun Búseta sé að
byggja búseturéttaribúðir, en þeir
gætu þó sætt sig við að byggja ieigu-
íbúðir fyrir forgangshópa ef það væri
skilyrði fyrir lánveitingunni. Fram-
kvæmdir við 56 ibúöir á vegum Bú-
seta eiga að hef jast í sumar og sagði
Jón Rúnar að hugsanlega yrði tekið
lán innanlands eða erlent lán með
milligöngu norræns samvinnusam-
bands á sviði húsnæðismála meðan
beðið væri eftir láni frá Bygginga-
sjóði verkamanna. ÖEF
Nótaveiðiskipið Jón Finnsson RE hefur verið selt til Chile eins og greint hefur verið frá i frétt-
um. Seint í gærkvöldi lagði skipið af stað frá Reykjavík til hinna nýju heimkynna.
. DV-mynd S.
Ekki lánað til
búseturéttaríbúða
— en Búseti má byggja leiguíbúðir fyrir aldraða, námsmenn og öryrkja
„Það er ekki verið að opna fyrir
búseturéttarfyrirkomulagiö. En Bú-
seti getur fengið lán til að byggja
leiguíbúðir fyrir námsfólk, aldraða
og öryrkja, eins og lögin heimila öðr-
um félagasamtökum,” segir Alex-
Formaður Búseta:
r
Osammála
Alexander
ander Stefánsson Félagsmálaráð-
herra.
Halldór Blöndal alþingismaöur
sagði í DV í gær aö ef Búseti fengi lán
úr Byggingasjóði verkamanna væri
það brot á samkomulagi stjórnar-
flokkanna. Samkomulag hefði orðið
um að nefnd á vegum stjómarflokk-
anna semdi frumvarp um húsnæðis-
samvinnufélög.
I tilkynningu frá Búseta segir hins
vegar að félagið hafi fengið heimild
til að fá lán úr Byggingasjóði verka-
manna samkvæmt ákvörðun félags-
málaráöherra og Húsnæðisstofnunar
ríkisins. Sé því ekkert til fyrirstöðu
að framkvæmdir hefjist á þessu ári
við 76 búseturéttaríbúðir sem sótt
hafi veriö um lán til.
Alexander Stefánsson sagðist ekki
hafa veitt Búseta rétt til lána til að
byggja búseturéttaríbúðir. Húsnæð-
isstofnun hefði hins vegar óskað eftir
túlkun ráðherra á þeirri grein lag-
anna sem fjallar um lán til leigu-
íbúða. Hann hefði svarað því svo að
Húsnæðisstofnun væri heimilt að
veita lán til Búseta eins og annarra
félagasamtaka svo fremi sem þessar
leiguíbúðir væru ætlaöar námsfólki,
öldruðum og öryrkjum og til útleigu
með hóflpgum k jörum.
„Búseti getur eingöngu fengiö lán
til að byggja leiguíbúðir fyrir þessa
tegund af félagsmönnum sínum. Þaö
númerakerfi sem Búseti hefur fyrir
félagsmenn sína verður að bíða þess
tíma að sett hefur verið löggjöf um
húsnæðissamvinnufélög. Lán til bú-
seturéttaríbúða er ekki heimilt sam-
kvæmt þessu bréfi,” sagði Alexand-
er Stefánsson. ÓEF.
Kaupverð Kyndils hagstætt
— segir skipamiðlarinn—systurskipið með umtalsverða galla
Olíufélögunum Skeljungi og Olís
stóð til boða aö kaupa Torasund,
systurskip nýja Kyndils, á svipuðu
verði og DV greindi frá í gær að
öðrum aöilum hérlendis hefði verið
boðið. Fulltrúar olíufélaganna skoð-
uðu skipið.
Þetta kemur fram í fréttatilkynn-
ingu frá skipamiðluninni Gunnar
Guðjónsson sf. vegna forsíðufréttar í
DV í gær. Blaöið setti fram þá spum-
ingu hvort olíufélögin hefðu greitt 34
milljón krónum of mikið fyrir
Kyndil. Þessi fjárhæð er mismunur-
inn á verði Kyndils og því verði sem
sett var upp fyrir systurskip þess.
„Hinn nýi Kyndill var tvímæla-
laust talinn vænlegri skipakostur en
Torasund til kaups þar sem Tora-
sund er tæplega einu og hálfu ári
eldra og er með ýmsa mjög umtals-
veröa galla, svo sem að skipið er með
umtalsverðar botnskemmdir, önnur
ljósavél og annar ketill skipsins eru
ónýt og skipið hefur legið í um það bil
sjö mánuði í hálfgerðu reiðuleysi í
kjölfar gjaldþrots útgerðar skipsins.
Einnig má bæta við aö nýi Kyndill er
mikið fullkomnara skip en Torasund
hvað viðvíkur mengunarvörnum og
eldvarnarbúnaði,” segir í athuga-
semdum skipamiðlarans.
Staöhæfir hann að kaupverð
Kyndils hafi verið óvenju hagstætt.
Islensku olíufélögin hafi keypt það
fyrir 27,5 milljónir norskra króna.
Verð skipsins til fyrri eigenda hafi
verið 37 milljónir norskra króna við
afhendingu fyrir réttum tveimur
árum. Verð fyrir samskonar nýtt
skip í dag sé 44 til 45 milljónir
norskra króna. Segir skipamiðlarinn
að nýi Kyndill sá vafalítið fullkomn-
asta skip íslenska kaupskipaflotans.
„Varöandi getsakir um óvenju há
umboðslaun viljum viö taka fram að
kaupverö skipsins samkvæmt kaup-
samnmgi og afsali, norskrar krónur
27,5 milljónir, voru greiddar hinum
norsku seljendum í gegnum Utvegs-
banka Islands og Landsbanka Is-
lands til Vesturlandsbanken í Bergen
og eru upplýsingar norska blaðsins
um kaupverðið því afrangar,” segir í
fréttatilkynningunni, sem Magnús V.
Armann ritar undir.
-KMU.
§88111