Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1985, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1985, Blaðsíða 18
18 DV. FIMMTUDAGUR 24. JANtJAR 1985. VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL Vinsælustu hverfin á fasteigna- markaðinum: „PÓSTHÓLF105” OG FOSSVOGURINN — fasteignamarkaðurinn tekið kipp—Grandinn ognýi miðbærinn dýrustu hverfin „Pósthólf 105 ásamt Fossvoginum eru eftirsóttustu hverfin í Reykjavík. Vesturbærinn er líka vinsæll og hefur ákveöinn kaupendahóp, framboðiö þar er þó frekar lítiö,” sagöi fasteignasali í höfuöborginni í samtali viö DV nú í vik- unni. En þaö er álit þeirra fasteignasala sem DV ræddi viö að kippur heföi komið í fasteignamarkaðinn síðustu tvær vikurnar eftir mikla ládeyðu í haust, eöa frá því verkföllin skullu á. Mest virðist vera spurt um 2ja og 3ja herbergja íbúðir, aöalsalan er í þeim. Þessar íbúöir vantar nú mjög á fast- eignasölurnar. Aö sögn fasteignasala er meðalverö 2ja herbergja íbúða í Reykjavík nú um 1,4 mUljónir kr. (Mjög breytilegt.) 3ja herbergja eru á um 1,8 mUljónir kr. og 4ra herbergja á um 2,0—2,2 miUjónir kr. Ágætiseinbýlishús á höfuðborgar- svæöinu, frá 150 fermetrum iU 200 fer- metra, kosta á bUinu frá 3,5 upp í 4,5 miUjónir. Sérstakar glæsihaUir eru seldar þetta á 6 eöa 7 miUjónir og allt upp í 10 miUjónir. „Pósthólf 105" er Háaleitishverfið En hvað er þetta „pósthólf 105” sem viðmælandi okkar kallaði svo? Þaö er Háaleitishverfið, HUöamar og götur nálægt gamla miðbænum eins og Bollagata og Guðrúnargata. Og þessi fasteignasaU er ekki sá eini sem telur „pósthólf 105” vinsælt hverfi. AlUr fasteignasalarnir sem DV talaði við minntust strax á Háaleitis- hverfið hvað vinsældir varðaði. Þeir voru líka á einu máU um aö Fossvogurinn væri vinsæll og þá ekki aðeins ReykjavUcurmegin heldur Uka Kópavogsmegin. Einn fasteignasali kvað meginsölu- tímabihð vera frá febrúar til júní. Sumarið væri aUtaf lélegt en svo tæki markaðurinn við sér á haustin. ,,I haust gerði hann það ekki enda óvenju- legt ástand í þjóðfélaginu.” Grandinn og nýi miðbærinn dýrust Talandi um fleiri vinsæl hverfi. Gefum Stefáni Ingólfssyni, verkfræð- ingi hjá Fasteignamati ríkisins orðiö: „Dýrasta hverfiö, og þá er ég aö tala um stærri hverfin, er Seltjamarnesiö og vesturbærinn. Fossvogurinn og nýi miöbærinn eru Uka dýr hverf i. ’' Vestur á Granda eru nýjar og vand- aðar íbúðir í fjölbýlishúsum og þaö sama er að segja um nýja miöbæinn við Ofanleiti. „Þetta eru dýrustu íbúð- irnar í bænum,” voru orð eins fast- eignasalans. Hvað gamla miðbæinn snertir mun vera þar nokkuð af ósamþykktum íbúðum. Töluverð ásókn er í þær og verðið oft í kringum 800 þúsund krónur, 2ja herbergja. Þetta þýðir að 2ja herbergja íbúðir rokka á biUnu frá um 800 þúsund kr. til um 1700 þúsund kr., tU dæmis vestur á Granda. Fossvogurinn mun dýrari en Breiðholtið Staður íbúðanna hefur mikið að segja. I rauninni ótrúlega mikið. Þannig er greinilegur verðmunur á 4ra herbergja íbúð í Breiðholti og Foss- vogi. Ibúðir sem em annars í svipuðunl gæðaflokki, og stutt á mUU hverfanna. „Verðmunurinn er um 400 þúsund krónur. Ibúðin í Breiðholtinu er á um 2,1 miUjón kr., en íbúöin í Fossvog- inum í kringum 2,5 miUjónir kr. Þetta er auðvitaö ekki algUt því íbúðarverð getur verið mismunandi innan h verf anna s jálf ra.” Hér má skjóta því inn í að tU eru þeir sem eru með fordóma gagnvart ákveðnum hverfum. Rödd eins og þessi heyrist: „Ég get ekki hugsað mér að búa í Breiðholtinu.” Að sögn fasteignasala er nokkuö um að fólk sem einu sinni er komið í Breiðholtið vilji alls ekki flytja þaðan. Biður því um aðra íbúð í Breiðholtinu. Geysiieg óvissa framundan Fasteignasalamir eru ekki alUr jafn- bjartsýnir á að sú eftirspurn sem nú er á markaðnum haldist. „Eg tel að óvissa sé nú mikU og eitt er víst; hún á eftir að verða geysileg framundan. Sjáðu til, Húsnæðisstofnun virðist þung í vöfum, og fólk veit ekki hvenær lánin eru afgreidd þaðan. Svona ástand er Ulbærilegt fýrir kaupendur. Auk þess fær fólk mjög dræm svör í bönkunum um þessar mundir. Það er nánast orðið útilokað fyrir ungt fólk, sem ekki hefur safnaö dágóðum upp- hæðum, að kaupa sér íbúð. Dæmið gengur einfaldlega ekki upp hjá því.” Þegar Utið er á nágraniiabæi Reykjavíkur er sem ungt fólk úr Hafnarfirði sé að hverfa tU Garða- bæjar þar sem lítið er byggt af 2ja her- bergja íbúðum í Hafnarfirði, að sögn fasteignasala. Þá mun markaðurinn í MosfeUssveit ganga nokkuö í sveiflum. Lítið fram- boð þar núna og verðið um 15 til 20% lægra en í Reykjavík. Snotur hús í Mosó „Það eru margar mjög skemmti- legar eignir í Mosfellssveit. Einbýlis- og raðhús frá 150 tU 200 fermetra, mjög snotur hús og vinsæl,” er skoðun eins fasteignasalans. En hvað segir Stefán Ingólfsson, verkfræðingur hjá Fasteignamati ríkisins um uppsveifluna á fasteigna- markaðinum núna: „Það hefur sýnt sig að þessar sveifl- ur eru reglulegar. Verð fasteigna hækkar alltaf í byrjun árs. Eg veit í rauninni ekki hvers vegna. Kannski er þetta orðið sálrænt, það reikna alUr orðið með hækkun á þessum árstíma. Og hún bara kemur, svona eins og þorskgöngurnar. I fyrra hækkaði verð fasteigna á milli janúar og febrúar um 8% og aftur á mUU febrúar og mars um 3%. Það sem eftir var ársins hækkaöi verðið mjög lítið. Hækkunin frá október ’83 tU október ’84, varsvonanálægt 15%.” I þessu sambandi má geta þess að hækkun lánskjaravísitölu á árinu 1984 var um 19% og hækkun byggingarvísi- tölu á árinu 1984 var um 20%. 25 — 30% ódýrari íbúðir á Akureyri Stefán er með mjög athyglisverðar upplýsingar um mismuninn á markaðsverði fasteigna á Akureyri / Keflavík annars vegar og í Reykjavík hins vegar. En 2ja herbergja íbúð kostar nú um 25 til 35% minna á þessum stöðum en á höfuðborgarsvæðinu. Þá er salan úti á landsbyggðinni mjög treg og verðið víöa langt undir kostnaðarverði. Og á sumum stöðum seljast hús bara aUs ekki. Að sögn Stefáns Ingólfssonar vorul nálægt 3 þúsund íbúöir seldar í Reykja- vík á síðasta ári. Reynsla undangeng- j inna ára sýnir að fimmta hver íbúö sem seld er í Reykjavík er seld til landsbyggðarfólks. 15 nýjar fasteignasölur Og ekki er annað að sjá en sam- keppnin á mUU fasteignasala hafi aldrei veriö meiri. Fasteignasölur á höfuðborgarsvæðinu eru nú á bUinu 50—60 talsins, þar af eru 15 sem stofn- aðar voru á síðasta ári. Einn fasteigna- sali sagðist telja að 25 fasteignasölur gætu þjónaö markaðinum. Lítum á aldur þeirra sem kaupa fast- eignir. Stefán Ingólfsson: „Fjórði hver kaupandi er á aldrinum 22 til 26 ára, flestir byrja að kaupa á þessum aldri. Og um helmingur kaupenda er á aldrinum 22 tU 32 ára.” Það er mjög áberandi að yngsta fólk- inu í kaupendahópnum fækkar ár frá ári. A síðustu fjórum árum hefur því fækkað um 20%. Það segir sína sögu umástandið.” Reykjavík og Kaupmannahöfn Berum sölu á 3ja herbergja íbúð í Reykjavík saman við sölu 3ja her- bergja íbúðar í Kaupmannahöfn. Sam- kvæmt upplýsingum Stefáns er greiðslan fyrir Reykjavíkuríbúðina þessi: 75% út á árinu, 10% yfirtekin áhvílandi lán og 15% útgefin skulda- bréf (lán seljanda). I Kaupmannahöfn Utur dæmið svona út; útborgun 10%, yfirtekin áhvílandi lán 55% og útgefin skuldabréf (lánseljanda) 35%. Þrátt fyrir þennan mismun er mun meira um að fólk erlendis leigi sér íbúö og noti peninganatil ávöxtunar. Eitt er þaö vandamál sem orðið er alvarlegt á fasteignamarkaðnum hér- lendis, það er skerðing á kaupmætti vinnulauna. Eigið fé í íbúðinni farið að rýrna Fólk hefur heUt sér út í kaup á fast- eign og í skuldir í leiöinni. Áætlanir þess gengu út á að laun og lánskjara- vísitala hækkuöu í sama hlutfalU. Sú hefur ekki orðið raunin. Nýi miðbærinn og hluti af „póst- hóifl 105”, einhver vinsælustu hverfln á fasteignamarkaði höfuð- borgarinnar. Fasteignamarkaður- inn hefur nú tekið kipp að sögn fast- eignasala. „Fimmta hver íbúð sem seld er í Reykja vík er seld til lands- byggðarfólks.” Lánskjaravísitalan hefur siglt fram úr laununum. Þetta eykur á greiöslu- vandræðin. Þegar svo við bætist að fast- eignaverð hækkar minna en lánskjara- visitalan kárnar gamaniö. Kaupand- j inn hefur orðið þess áskynja að eigið fé hans í íbúðinni er farið að rýrna. i Veröbólgan er þannig orðin versti óvinur húsbyggjenda í staö þess að vera h jálparheUa á árum áður. Lands byggðarfólk hefur lent sér- staklega Ula í lánum og byggingar- kostnaði. Söluverð húsa er þar miklu lægra en kostnaðarverðið. Og skuldug- ir íbúðareigendur á landsbyggöinni eiga sannarlega ekki sjö dagana sæla. Flutt inn í fokhelt Svo er aö heyra á fasteignasölum sem yngsta fólkið sé nú farið að leggja áherslu á íbúðir sem eru aðeins fok- heldar eöa tUbúnar undir tréverk. Það ræður ekki við annað enda fær það hlutfallslega mikU lán út á svona íbúðir. Oft mun það vera svo að þetta fólk býr í foreldrahúsum á meðan það er að koma íbúðinni í íbúöarhæft stand. Þaö flytur síðan inn, ósjaldan í allt meira og minna óklárað. I lok ársins voru lán Húsnæðisstofn- unar ríkisins, miðað við fokheldar íbúðir: Einstaklingur 540 þús. kr., 2ja til 4ra manna fjölskylda 685 þús. kr., 5 til 6 manna fjölskylda 802 þúsund kr. og 7 manna fjölskylda og stærri 926 þúsundkr. íbúðarkaup herskylda íslendinga? Ætlunin er að fækka um einn flokk en ekki er vitað hvenær það verður. Lík- legast þó á þessum ársfjórðungi sam- kvæmt upplýsingum Húsnæðisstofn- unar. Á yfirstandandi ári mun Húsnæðis- stofnun, co. Byggingarsjóður ríkisins, fá um 1790 milljónir til ráðstöfunar en í fyrra fékk hann um 1300 milljónir króna. Dugir þessi 1790 milljón króna upp- hæð? Tíminn verður að leiða það í ljós. A meðan skulum við velta orðum útlendings, sem býr í Reykjavík, fyrir okkur. Hann sagði: „Islendingar hafa sína herskyldu. Þeir eru kvaddir í herinn þegar þeir kaupa sér íbúð. ” -JGH.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.