Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1985, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1985, Blaðsíða 36
36 DV. FIMMTUDAGUR 24. JANUAR1985. FJÖLMIÐLAFRELSISVINDAR BLÁSA UM VERÖLD VÍÐA Víðar gerast umbyltingar í fjölmiðlaheiminum en hér á Islandi. Um víða veröld hafa tæknibreytingar og nývinsæl viðhorf orðið til þess að fólk hefur nú úr meira fjölmiðlaefni að velja en nokkru sinni áður. I flestum Vesturlandanna eru nú einhver takmörk fyrir frelsi til að útvarpa. Annars staðar er það á næsta leiti. I Frakklandi er það nú opinber stefna að afnema einokun ríkisins á ljósvakanum. Á Norðurlöndunum hefur sú einokun annaðhvort verið afnumin eða verður afnumin innan tíðar. Myndbandabyltingin gerir alls staðar vart við sig, jafnt hér á Islandi sem annars staðar. Borgir Banda- ríkjanna og Finnlands eru nú flestar að verða kapal- væddar. Varla líður á löngu áöur en slíkt gerist hér. Myndbanda- og nú myndplatnatæknin, þróast svo ört að það sem framleitt er í dag er úrelt eftir fimm mínútur, ekki bara á morgun eins og í gamla daga. Oft- hleypur tæknin fram úr ríkisvaldinu. Þannig eru gömul boð og bönn að engu höfð þegar þau miöast við úrelta tækni. Framfarirnar eru svo stórstígar að ríkisvaldið stendur gapandi við startlínuna þegar tæknin er komin í mark. Fjölmiðlafrelsið nýkomna um allan heim er tilraun rikisvaldsins til að halda í við framfarimar. Fréttarit- arar DV í London, Kaupmannahöfn og Washington seg ja hér f rá f jölmiðlamálum á sínum svæðum. —ÞóG Rœða Bandarikjaforseta tekin upp i sjónvarpsstöð i Washington. Frelsi til útvarpsreksturs gengur einna lengst í Bandarikjunum þar sem nœr hver útvarpsbyglja er upptekin. Þó eru þar lika kapalstöðvar og tals- verð sala á myndbandstækjum. BANDARÍKIN: Allan solarhrínginn — tíka í eldhúsinu Óskar Magnússon, Washington: Allt af öllu allan sólarhringinn. Þannig er bandarisku sjónvarpi best lýst. Sjónvarpsdagurinn hefst hér klukkan hálfsex aö morgni. Honum lýkur líka klukkan hálfsex aö morgni. Það er því ekki sjónvarpsleysi sem veldur því aö venjulegur meöalamer- íkani fer aö sofa klukkan 10 aö kvöldi. Utvarp er aö sjálfsögðu líka allan sól- arhringinn. Þar er valið um óteljandi stöövar. Allar byggja þær mest á tón- list en þær betri skjóta inn í ítarlegum fréttatímum. Gera má ráö fyrir aö meðalfjöl- skylda hér geti valiö um fimm til 10 sjónvarpsstöðvar. Margir ná allt upp í 13 stöövum. Kerfiö er í aðalatriðum tvíþætt: Hefðbundnar sjónvarps- stöðvar sem aðallega eru fjármagn- aöar með auglýsingatekjum. Þar á meöal sjónvarpsstöðvar eins og ABC og CBS. Á hinn bóginn geta nær allir gerst áskrifendur aö kapalkerfum. Þau eru oft auglýsingalaus en byggja afkomu sína á áskriftartekjum. Askrift aö kapalstöö kostar um 400 krónur á mánuöi. Fyrir það fé fá menn samfellda dagskrá allan sólarhring- inn. Ein kapalstööin sendir nær ein- göngu út bíómyndir eöa myndir gerðar sérstaklega fyrir sjónvarp. önnur sér- hæfir sig í íþróttum og sú þriðja tónlist. Þar er meginefnið líkt því sem viö þekkj um úr Skonrokki. Svæðisbundnar fréttir ABC og CBS eru meö mjög vandaða fréttatíma. Fréttir eru oft stað- bundnar. Þannig fá Steve í Washington og Allan bróöir hans í Harrisburg ekki endilega sömu fréttirnar þótt þeir fái aö ööru leyti sömu dagskrá ef þeir hafa báöir stillt á ABC. Allan fær fréttir úr sínu nágrenni og Steve úr sínu. Báðir fá svo sömu heimsfréttirnar. Mikil áhersla er á veöurfréttum. Þær taka hins vegar ekki jafnlangan tíma og Islendingar eiga aö venjast, þótt þær séu ekki síður ítarlegar. Þulirnir, sem jafnframt eru veöur- fræðingar, lýsa veörinu reiprennandi. Inn í er skotið myndum af ýmsum stöð- um til að lífga upp á. Kort eru óspart notuð. Iþróttir fá sömuleiðis umfjöllun í hver jum fréttatíma. Auglýsingar Auglýsingum er sífellt skotiö inn í dagskrá sjónvarpsstöðvanna, jafnvel fréttatímamir fá ekki friö fyrir auglýs- ingum. Raunar eru sumar auglýs- ingamar um komandi fréttatíma. I fyrstu er allt þetta auglýsingamagn hvimleitt, en venst furöu vel. Menn læra fljótt aö bíöa með aö pissa til næsta auglýsingainnskots eöa sinna öðrum álíka smáerindum. Auglýsingar eru þó fleiri en til slíkra hluta er nauðsynlegt. Þær venj- ast því sennilega aldrei til fulls, sér- staklega vegna þess hve ótrúlega leiöinlegar og barnalegar margar þeirra eru. Olíkt því sem Islendingar eigaaövenjast. Sjónvarpsdagskráin er eðlilega mjög mísjöfn. Mjög margt gott efni er á dagskrá, aðallega fréttir og bíó- myndir, en inn á milli ótrúlegt rusl. Sunnudagur er áhersludagur hjá sjón- varpsstöðvunum. Þá er yfirleitt fín dagskrá langt fram á kvöld. Ekki bara væmnar sunnudagsmyndir. A sunnu- dagsmorgnum er barnaefni eld- snemma og líka á laugardögum. Þegar líöur á sunnudagsmorguninn koma vandaðir fréttaskýringaþættir og í kjölfar þeirra bíómyndir. A sunnudag- inn var sáum viö til dæmis Steina og Olla, Bush og Reagan á sömu stöð á sama morgni. Yfirleitt eitthvað Enda þótt mikið rusl slæðist með í dagskránni hér má yfirleitt finna eitt- hvaö sem horfandi er á, jafnvel þótt maöur hafi bara fjórar stöövar. Spum- inga- og skemmtiþættir ganga í sífellu. Dallas, Dynasty, Hotel og nú nýr fram- haldsþáttur eftir sömu kappa og gera Dallas. Sá heitir Berrengers og á ef- laust eftir aö veröa hörkuvinsæll.' Ég ræddi viö íslenska fjölskyldu sem hefur veriö búsett hér í þrjú ár. Henni bar saman um að fjöldi stöðv- anna skapaði ekki nein stórvandamál. Yfirleitt veldu menn sér ,,sína stöð” sem horft væri á reglulega en aðeins skipt á aðrar stöövar ef sérstaklega góöir þættir væru þar. í eldhúsinu A sumum heimilum er f jöldi stööv- anna vandamál. Þá er þaö leyst meö fleiri sjónvarpstækjum svo allir geti horft á sína dagskrá. Amerískar hús- mæður hafa líka margar hverjar sjónvarp í eldhúsinu og horfa þar á síö- degis „sögumar” með eldhúsverkun- um. Gott litsjónvarpstæki af venju- legri stærö kostar hér um 20.000 krónur en lítil svarthvít tæki geta menn keypt og dritað um allt hús. Stykkið kostar álíka og meðalreyfari. FJÖLMIÐLA- FRELSI í HEIMILIS- SAMSTÆÐUNNI Smáplatan, eöa leysidiskurinn, er Rolls Royce hljómplatnanna. En á þessu ári er gert ráö fyrir að smá- platan veröi að fólksvagni. Plötumar og plötuspilararnir eru aö komast í slíka fjöldaframleiðslu að verð þeirra er á hraðri niðurleið. Búast má viö aö áöur en áriö er liðið veröi spilarinn lítiö dýrari en venjuleg hljómtæki, þó platan veröi áfram eitt- hvaödýrari. Smáplötumar hafa veriö seldar í tvö ár. Þeir sem þekkja markaðinn telja aöá næsta ári eða 1987 muni salan virkilega aukast. Þá verður hægt aö fá tæki fýrir heimilið, bílinn og til ferða- laga. Auk þess veröa þá komin á markaðinn lesminni fyrir tölvur, sem bygg ja á sömu tækni og nota sams kon- ar smáplötur. Þessi lesminni, (Com- pact Disc-Read Only Memory, eöa CD- ROM) geta geymt geysimikið magn upplýsinga sem síðan er hægt aö kalla fram á tölvuskerm. Ótrúlegt minni Meö lesminniskerfi getur hver smá- plata geymt ótrúlegt magn upplýs- inga. Á 10 sentímetra breiðri plötu komast fyrir 550 megabitar. Þaö er 1.500 sinnum þaö upplýsingamagn sem rúmast á venjulegri diskettu og nægjanlegt til aö geyma alla Encyclopædiu Brittanicu, og meira til. Mest spennandi er þó að vegna þess að lesminniskerfið notar sams konar plötur og notaðar eru við hljómplötuna og myndplötu, sem einnig er til, þá má nota eitt tæki fyrir allar þessar plötur. Þannig er hægt að nota plötuspilarann til aö spila myndplötu til aö sýna í sjón- varpi, hljómplötu til spilunar í gegnum hátalara og lesminnisplötur til skoðun- ar á sjónvarps- eða tölvuskermi. Hreinn tónn Sérfræðingar segja aö ekki sé nema eitt eöa tvö ár þangaö til farið veröur að nýta þessa sambyggingartækni. Pioneer fyrirtækið í Japan er komiö með á markaöinn samstæöu sem gerir fólki kleift aö nota spilarana til að sjá sjónvarpsmynd og heyra stereo hljóm- burö. Þaö voru Sony og Philips sem komu fyrst fram með smáplötuspilarann 1983. Þessi fyrirtæki þróuöu tæknina saman. Smáplöturnar eru gerðar úr plast- húöuöu áli. Til aö taka upp á þær eru tölvur notaöar til aö prenta merki í plötumar sem leysigeislatæki í spilaranum les síöan. Þessi aöferö útrýmir öllum auka- hljóðum og skrjáfi sem heyrist á venjulegum plötum og gefur óvenju- tæran og hreinan hljóm. Tóngæöin rýr- ast aldrei því leysigeislahausinn kem- ur aldrei viö plötuna. 8.000 krónur Fyrstu samstæðurnar kostuöu um 1.500 dollara, eöa um 60.000 krónur. Þlötumar kostuöu 600 krónur upp í 800 krónur. En verðið féll fljótt niður í 600 doll- ara, eða rúmar 20.000 krónur, og sum tæki kosta ekki nema 8.000 krónur. Plöturnar kosta nú tæpar 500 krónur. Flest stærri hljómplötuútgáfufyrir- tæki gefa nú út smáplötur. Alls eru til um 2.000 mismunandi plötutitlar. Á þeim er jass, rokk, óperur og sinfóníur, svo eitthvaö sé nefnt. Vasadiskó Afleiðingin er sú að í Bandaríkjun- um einum seldust á siöasta ári 225.000 smáplötuspilarar. Á þessu ári er gert ráð fyrir aö 30 framleiðendur selji 400.000 eintök. Smáplöturnar eru svo litlar að næstum er hægt að nota þær í vasa- diskó. I fyrra komu nokkur fyrirtæki meö spilara í bíla. Þeir kostuöu um 20.000 krónur stykkiö eöa ekki ýkja miklu meira en góðar tegundir bíl- segulbanda. Sony kom með ferðatæki. Byltingin er á næsta leiti. Bráðum geyma kannski svona tæki bíómyndir, tónlist og tölvutexta. Þaö tæki sem kallað er „plötu- maöurinn,” er ekki ólíkt „Walkman” tækinu og kostar um 12.000 krónur. „Plötumaðurinn” er sölubesta smá- plötutæki Sonyverksmiðjanna, að sögn talsmanns fyrirtækisins. „Við höfum framleitt 20.000 ferða- tæki á mánuöi í Japan og önnum samt ekki eftirspuminni,” sagöi hann. Tals- maöurinn bætti við að Sony hygðist tvöfalda framleiösluna á þessu ári. Sony er líka eitt fyrsta fyrirtækið sem ætlar aö framleiða lesminnistækja- samstæðu. Hún á að vera komin á markaðinn áöur en næsta ár er liðið. Brittanica í skúffu Kenneth Lim, sem er ráðgjafi Data- quest-fyrirtækisins, segir aö fyrstu les- minnisspilararnir veröi seldir úr verk- smiðjunni á um átta til 10 þúsund krón- ur. Allt kerfiö myndi síöan fara á allt upp í 100.000 krónur. Miðað viö það verð eru það einungis fyrirtæki sem geta keypt slík tæki að einhverju ráöi. Svo nokkur ár munu líða þangaö til almenningur hefur ráö á aö geyma Encyclopædiu Brittanicu á smáplötu niöri í skúffu. Þegar er byrjað að selja smáhljóm- plötur á Islandi. Velflestar búðir hafa þessi tæki á boðstólum. Gunnar Gunnarsson hjá Japis segist til dæmis eiga von á tæki innan tíðar sem muni kosta innan við 30.000 krónur. Vasadiskótækið frá Sony mun senni- lega einnig koma innan tíðar. „Það er svo lítið að það kemst fyrir í jakka- vasa,” sagði Gunnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.