Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1985, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1985, Blaðsíða 10
10 DV. FIMMTUDAGUR 24. JANUAR1985. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd „Soldill kapítalismi getur ekki skaðað oss ff — segir Deng Xiaoping sem stendur á áttræðu og er í kapphlaupi við tímann til þess að koma umbótum sínum í kring Deng Xiaoping. Myndin er tekin þegar hann flutti margivitnaða ræðu sina i október 6 35 óra afmæli alþýðulýðveldisins. . . Nauösyn ber til þess aö telja gamla félaga á aö víkja úr sæti til þess aö yngri mönnum veröi komið aö,” sagði Deng Xiaoping í ræðu á fundi með ráögjafanefnd miöstjórn- ar. Fyrstu vikur þessa árs bera því vitni aö hann ætlar ekki að láta sitja viö orðin tóm, því aö mannaskipti í ýmsum embættum og þá aöallega innan hersins gefa til kynna aö uppyngingarherferðin er hafin. — Fjörutíu gamlaðir herforingjar, eftirlegukindur frá árum Maos for- manns, sögðu af sér. Dugar ekki að loka öllum gáttum Og á nýja árinu hefur Deng árétt- að þá stefnu sína að færa efnahagslíf Kína inn í 20. öldina og opna um leið landiö fyrir vestanvindinum. ,,Ekk- ert land fær fylgst meö þróuninni ef þaö lokar gættum,” segir Deng. Deng stendur á áttræöu og keppist viö aö festa umbótahugmyndir sínar í sessi áður en hann neyðist frá að hverfa. Fyrir skömmu opnaöi hann erlendu f jármagni leið til f járfesting- ar í f jórtán hafnarborgum Kína sem sýnir glöggt hve tímarnir hafa breyst í Kina frá ríkisárum Maós. Nýlega boðaði hann aö ríkið mundi hætta að kaupa eins og áöur ákveðna kvóta af landbúnaðarframleiðslunni sem hafði framkallað offramleiðslu á korni. Samningur stjórnar hans við Bretland um framtíð Hong Kong mun leiöa til þess að við yfirtöku Hong Kong munu tvö stjómkerfi vera í einu og sama landinu. Það «g þykir þó geta orðið fordæmi fyrir hugsanlega samninga síðar meir um endurheimt Taiwan (Formósu) og sameiningu við Kína. I utanrikismál- um hefur Deng fært sér klókindalega í nyt spennuna milli risaveldanna og stýrt Peking mitt á milli Moskvu og Washington. Fyrir nokkrum vikum heimsótti Ivan Arkipoff, fyrsti að- stoðarforsætisráöherra Sovétríkj- anna, ráðamenn í Kína og er það fyrsta heimsókn háttsetts embættis- manns til Kína síðan 1969. I þessum mánuði mun formaður herráðs Bandaríkjanna, John Vessey hers- höfðingi, heimsækja Kína. Gula kverið hans Dengs Þessi hröðu vinnubrögö Dengs hafa vakið upp einhverjar gagnrýn- israddir sem hafa áhyggjur af því að hann leiði landið „beint niður hinn kapítalíska veg,” en aðstoöarmenn hans kveða slíkt tal jafnharðan niður. Þeir segja að hann vilji að efnahagslífið skili meiru af sér og njóti meiri hagkvæmni, en bera á móti því að hann ætli að afnema með öllu ríkisforræðið eða leyfa hömlu- laust tjáningarfrelsi. Markmið hans er „sósíalismi með kínversku and- liti,” eins og þaö er útmálaö í „Gula kverinu”, samansafni yfirlýsinga Dengs, sem nýlega var gefið út í Bejing. Meiri hagkvæmni, meiri virkni og árangur er grunntónninn í boöskap Dengs og í anda þess voru manna- skiptin í hernum á dögunum. Flestir foringjarnir sem sögðu af sér voru komnir yfir sextugt, þriggja stjömu hershöfðingjar eða hærra settir. Margir þeirra höfðu staðfastir fylgt stefnu Maós um „alþýðuher” og voru tregir til aö breyta hemum til nútímavísu. Ennfremur höföu þeir notið mikilla áhrifa í menningarbylt- ingunni og létu sér miður líka að Deng beitti sér fyrir því aö fjárveit- ingum ætluöum hernum var frekar beint til borgaralegra þarfa. Enn- fremur hefur Deng unnið að því að stjaka foringjum í hemum út úr póli- tíkinni. Ætlun hans var að fá yngri menn í foringjastöður hersins úr þessum 100 foringjaskólum sem her- inn hefur í Kína. „Ég vildi gjarnan sjá menn með opnara hugarfar í hemum,” sagði Deng nýlega. Fjögur forgangsverkefni 1 umbótaherferð sinni hefur Deng sett f jögur markmið efst og í ákveð- inni röð. Fyrst og fremst umbætur í landbúnaði en þær hafa verið í fram- kvæmd síöustu árin. Næst, og þær eru þegar hafnar, umbætur í iönaði. I þriðja lagi umbætur og átak í vísind- um og tækni og ekki fyrr en í fjórða lagi uppdubbun hersins. — Á meöan hefur herinn t.d. veriö notaður tölu- vert til aðstoðar við nýbyggingar og mannvirkjagerð til borgaralegra þarfa og ýmis sjúkrahús og gistihús, sem herinn hafði áður forgang að, hafa verið tekin í borgaralega þágu. Athyglisverðara er þó hitt að fjórir fimmtu af vopnaverksmiðjum Kína eru nú komnar í framleiðslu neyslu- vamings og skila saumavélum, ísskápum og vélhjólum. Deng hefur farið sér hægar við að yngja upp innan flokksins. 1983 var talaö um herferð til þess að leiörétta stefnu flokksmanna og endurskoöun á embættismönnum hans á þrem þrepum: Uti í dreifbýlinu, í þéttbýl- inu nær miðstjóminni sjálfri, og loks meðal almennra óbreyttra flokks- félaga. I desember síðastliðnum greindi Bo Yibo, sem yfirumsjón hefur með þessari endurskoðun, frá því á fundi meðal flokksbroddanna, að þessi áætlun væri ekki lengra komin en á annað þrep. Hann upp- lýsti að flokkurinn hefði ákveðið að víkja ekki fyrrverandi Rauðum varðliðum úr flokknum, en þeir áttu mestan þátt í rótinu á áratug menn- ingarbyltingarinnar. „Þeir voru of ungir þá til að skilja hið rétta í hlut- unum,” sagðiBo. Frjálslyndinu takmörk sett Þrátt fyrir frjálslyndi Dengs gagnvart fjölmörgum þáttum hefur stefna Bejing breyst lítið gagnvart listamönnum. A þingi rithöfunda- samtakanna (sótt af 2.500 fulltrú- um) var þeim ræðumönnum klappaö mest lof í lófa sem kröfðust aukins tjáningarfrelsis. „Kina þarf að eiga sína Dante, Shakespeare, Göethe og Tolstoj,” sagði Ba Jin, hinn áttræði formaður samtakanna. En menn eru ekki of bjartsýnir í þessum efnum, minnugir þess þegar Maó formaður lofaði öllu fögru um frelsi í listtján- ingu í herferö „hundrað blóma” 1956—57, þá var hann fljótur að sjá sig aftur um hönd. Síðan Deng kom til valda hafa þeir, sem héldu úti rót- tækustu skrifunum á „Lýðræðis- múmum” í Bejing 1979, endað í fangabúöum. Meðal embættismanna flokksins heyrist naumast önnur af- staða en bókmenntirnar hljóti aö þjóna byltingunni. Til þess að trygg ja f ramgang þess verks sem Deng er byrjaður á, áfram eftir hans dag, þarf hann aö feta sig varlega við aö umbylta kerf- inu, án þess að kasta alveg frá sér sósíalismanum. I október reyndi hann að sefa gallhörðustu maóistana sem óttuðust að hann hefði gengið of langt. ,JSvolítill kaptítalismi getur ekki skaöað okkur,” sagði hann en fullvissaði þá um leið um að ný broddborgarastétt mundi ekki rísa upp í kjölfar umbótanna. Heimsókn sovéska aðstoöarforsætisráðherrans og nýjustu viðræður Kína og Sovét- ríkjanna geta skoðast sem tákn þess að Kína ætlar ekki að arka einstefnu- götu vesturveldanna. Þykjast menn finna þar nokkra þíðu í sambúð kommúnistarisanna. Þjóðarsál Kínverja Tíminn einn mun leiða í ljós hvort Kína framtíðarinnar verður með því marki sem Deng vill setja á það. Margir landar hans eru byrjaðir aö kvarta undan því að umbætur hans Námsmaður við tölvudútl, innreiðin í 20. öldina. hafi vakiö upp spillingu, atvinnuleysi og verðbólgu. Vegna niðurgreiðslna greiða Kínverjar lítið í húsaleigu og ýmsar mikilvægar neysiuvörur og eftirspurn eftir ýmsum innfluttum varningi hefur aukist með meiri kaupgetu. Ymsir spá því að framtíð- in velti ekki á hugmyndafræðinni heldur meir á þjóöarsálinni. Kín- verskur sósíalismi, segja þeir sem vel þekkja til Kínverja, hlaut allt frá upphafi að vera fyrirfram dæmdur til þess að vera ööruvísi en í Sovét- ríkjunum. Kaupmangseðli og iðju- semi sé ríkara i Kínverjum. I slíkum vangaveltum vilja margir gleyma rótgróinni tortryggni Kínverja á allt útlenskt. 1 októberræðu sinni for- dæmdi Deng tvö tímabil einangrun- arhyggjunnar í Kína. Þaðfyrrafrá miðju valdaskeiði Mingkeisaraætt- arinnar (1368—1644) og fram á nítjándu öld og hið síðasta síðustu tvo áratugi. „Þetta hefur háð okkur og það háði forfeðrum okkar,” sagði hann. Þykist ekkert gera sjálfur I augum Dengs hlýtur mikið að velta á því að eftirmaður hans standi nógu styrkum fótum til þess að hrinda öllum afturhvarfsatlögum. Hann virðist sjálfur reiða sig mest á Ahao Ziyang forsætisráðherra og Hu Yaobang flokksformann. Segir Deng hverjum sem heyra vill að þeir ann- ist allar daglegar framkvæmdir, taki allar ákvarðanir, og sjálfur streitist hann viö að „gera hreint ekki nokk- urn skapaöan hlut”. En eftir lífs- hlaup þar sem hann sjálfur var þrívegis fórnarlamb hreinsana veit Deng allra manna best hve valt ver- aldargengið er í valdabákni Kína og að það helst ekki á réttum kili án þess að hreyfa legg né lið. Enda bera stöðugar fréttir breytinga í Kína því vitni að Deng lætur ekki grasiö gróa undir fótum sér og að hann ætlar ekki að falla hið fjórða sinn í and- (varaleysi. Gamall handvagn og ísskápur úr fyrrverandi vopnaverksmiöju, gamail timi og nýr. Umsjón: Guðmundur Pétursson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.