Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1985, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1985, Síða 4
4 DV. FIMMTUDAGUR 24. JANUAR1985. Umdeildar hraflahindranir á Vesturgötu. DV-mynd KAE Umferðarnefnd fjall- ar um strætóstríðið Jónas Kristjánsson ritstjóri i rœðustóli. Til vinstn á myndinni er Magnús Ólafsson, ritstjóri NT, og Eínar Davíðsson timavörður. DV-mynd KAE Strætóstríð þaö sem upp er komið vegna hraðahindrana á Vesturgötu var tekið fyrir á fundi Umferðarnefnd- ar Reykjavíkurborgar í gær. Þar var ákveðið að nefndarmenn skyldu kynna sér máliö fram til næsta fundar, mið- vikudaginn 30. janúar nk. Vagnstjórar SVR neita enn aö aka Vesturgötuna vegna hraðahindrana. Þess í stað ekur leið 2 nú um Mýrar- götu. Vagnstjóramir höfðu afhent Um- feröarnefnd borgarstjóra, svo og for- stjóra SVR, mótmælabréf. Þar segir meðal annars að vagnstjórarnir telji hindranirnar ekki þjóna þeim tilgangi sem ætlaður hafi veriö í upphafi. Hins vegar skapi þær vissa hættu í umferð- inni. Til dæmis veröi að aka strætis- vögnunum á öfugum vegarhelmingi að gatnamótum. Sé þar um að ræöa brot á umferðarlögum. Allir vagnstjórarnir á leiö 2 skrifuðu undir mótmælaskjalið. Það var lagt fram á fundi Umf erðarnefndar í gær. Sveinn Björnsson, forstjóri SVR: „ÖKUM EKKIUM VESTURGÖTUNA” Dagblaðaumræða á JC-fundi Ritstjóramir Jónas Kristjánsson, DV, og Magnús Olafcson, NT, voru gestir á félagsfundi JC Borgar sem haldinn var sl. þriðjudagskvöld í veitingahúsinu Uxanum. Fluttu þeir framsöguræður um málefnin Er þörf fyrir tvö síðdegisblöð? og Af hverju njóta blööin ekki trausts almenn- ings? Að framsögu lokinni svöruöu ritstjóramir margvislegum fyrir- spurnum fundarmanna. Umræðan fór vel fram eða eins og fundarstjóri oröaði það er hann þakkaði þeim félögum fyrir kom- una: „Við bjuggumst við að þið mynduð rífast eins og óðir hundar.” -ÞJV meðan hindranimar eru óbreyttar Olíuverðið: Hækkunin úr sögunni? „Við sjáum okkur ekki fært aö láta strætisvagnana aka Vesturgötu meðan hraðahindranirnar þarstanda óbreytt- ar,” sagði Sveinn Bjömsson, forstjóri Strætisvagna Reykjavíkur, er DV ræddi við hann. Sveinn sagði að hraðahindranirnar neyddu ekki aðeins vagnstjóra tii aö aka á öfugum vegarhelmingi. Þær væru svo þröngar aö vagnamir hefðu rispast og skemmst við það aö fara í gegnum þær. Væri útilokað fyrir vagn- ana að komast þar fram hjá. Nefndi Sveinn dæmi um aö bíl frá iðnfyrirtæki heföi verið lagt í götuna meðan gos- drykkir heföu veriö losaöir af honum. Strætisvagn hefði mátt bíöa í sex mínútur þar sem hann heföi ekki kom- istframhjá. ,,Svo virðist sem minni bílum sé ék- ið á miklum hraða milli hindrananna,” sagði Sveinn. „Utkoman er því sú að þær bitna fyrst og fremst á al- menningsvögnunum. Hingað hefur hringt fjöldi fólks úr vesturbænum sem vissi ekki að til stæði að setja hindranirnar upp,” sagði Sveinn. „Það hefur lýst megnri óánægju með þær. Fólkið saknar líka vagnanna sem nú ganga ekki lengur umVesturgötuna. Hindranirnar hafa veriö mikill höfuöverkur fyrir okkur. Ef engin breyting verður á þessum málum liggur beinast við aö taka ákvörðun um nýja akstursleið vagnanna. Eg vona þó í lengstu lög að ekki þurfi til þess að koma.” -JSS Ákveðið hefur verið að fresta ákvörðun um hækkun á verði olíu fram í næstu viku. Kristján Ragnars- son, framkvæmdastjóri Landssam- bands íslenskra útvegsmanna, sagð- ist í samtali viö DV gera ráð fyrir að krafa olíufélaganna félli alveg niður. „Það var aldrei nein forsenda fyrir þessari hækkun,” sagöi Kristján. „Lækkunin á verði olíu erlendis vegur upp á móti hækkuninni á gengi dollars. Olía er því ekki dýrari í inn- kaupum nú en verið hefur. Það sem olíufélögin eru að biðja um eru hraðari greiðslur inn á innkaupa- jöfnunarreikning. Til þess vilja þeir hækkun á álagningu. Álagningin var lækkuð 21. nóv. í haust og það eru engar forsendur fyrir að breyta því nú.” Vilhjálmur Jónsson, forstjóri Olíufélagsins, sagðist „enga trú hafa á að þetta mál verði saltað. Það liggur fyrir hvað olía kostar eriendis og gengið er að lækka. Til að mæta því verður aö hækka olíuverðiö hér á landi. Það er auðvitað álitamál hvað á að greiða skuldina á innkaupajöfn- unarreikningi niður á skömmum tíma. Hún hefði aldrei orðið til ef oh'uverðið hefði fengið að hækka eöli- lega.” -GK í dag mællr Dagfari_____________I dag mælir Dagfari____________í dag mælir Pagfari Prédikað í slúðurdálkum Það fór eins og Dagfari spáöi að NT hefur gengið Óháða söfnuðinum á hönd. Prestur safnaðarins hefur tek- ið að sér slúðurdálka blaösins og samkvæmt nýjustu og áreiðanleg- ustu upplýsingum Þjóðviljans verð- ur klerkur dubbaður upp í ritstjóra- stöðu með útmánuðum. Er þetta væntanlega gert í hagræðingarskyni, tU að elga innangengt í vígöa mold þegar blaðið geispar golunni. Fróðlegt er að lesa hvað þeim í Óháða söfnuðinum er hugleiknast á mUIi þess sem prédikanirnar eru samdar fyrir guðsþjónusturnar. Nema slúðrið í NT sé lesið upp í pré- dikunarstólnum: Það vita þeir einir sem hlýða bæði á boðskap prestsins í NT og á safnaðarfundum. Það sem stendur hjarta þessa guðsmanns næst er að úthúða hinum svokallaða „fjölmiðlarisa”, tsfUm, fyrir það að ógna frelsinu með því að vUja standa þannig að rekstri sinum að hann beri sig. Það er nefnUega talið ógn við frelsið að fyrirtækiö vUji hagnast. Manni skilst að það gangi að frelsinu dauðu. Þessar áhyggjur slúðurdálkaprestsins stafa af því að isfilm, eins og reyndar þelr aðrir sem hyggja á sjónvarps- og hljóð- varpsrekstur, hafa áhuga á auglýs- ingum í dagskrám sínum. Þetta fær svo mikið á guðsmanninn að hann grípur tU kristilegra nafnbóta og uppnefnir aðstandendur ísfilm sem „gróðapunga og braskara”. Munu þetta einkum vera kveðjur til Sam- bands íslenskra sveitarfélaga, sem er einn stærsti hluthafinn i tsfilm, og sannast hér sem endranær í guðsriki að „Iaun heimsins eru vanþakklæti”. Varla þarf að taka fram að það eru „gróðapungarnir” í SÍS sem hafa haldið blessuðum Tímanum á lífi þangað til NT gekk í Óháða söfnuð- inn. Ekki er það heldur ósennUegt að slúðurdálkahöfundur NT láti gamm- inn geisa í fagnaðarerindum sínum þegar hann veit sem er að nú þarf NT ekki lengur á SÍS að halda. Það er kominn annar bjargvættur tU sög- unnar. Það gerðist sem sagt á að- ventunni að Seölabankinn gaukaöi að NT litlum tólf mUljónum króna, samkvæmt upplýsingum Helgar- póstsins. Þetta litUræöi er auðvitað veitt í þágu frelsis og þess boðskapar að það sé ljótt að græða. Það sé hins vegar miklu betra og réttlátara að Óháðum söfnuðum og stjórnmála- flokkum, sem enginn nennir að sinna, sé rétt hjálparhönd með opin- beru fé — bakdyramegin. Lánveitingar Seðlabankans eru því rausnarlegri sem viðkomandi biað er minna og ómerkUegra og ekki dugar minna en tólf mUIjónir króna þegar i hlut á blað sem ekki er lesið og aUs ckki keypt. Satt að segja er maður hálf- undrandi á þvi að NT skuU vera að bisa við að birta auglýsingar á síðum sínum þegar þaö er slík ógnun við frelsið eins og guðsmaðurinn hefur fundið út. Það er auðvitað ljótt að græða og það eru allt saman gróðapungar sem vUja reka fyrirtæki með hagnaði. Þetta hefur NT haldið i heiðri með myndarlegum taprekstri og þetta hefur hinn guðs útvaldi leiðtogi Óháða safnaðarins bent á og þarf þá ekki frekar vitnanna við. Ekki fer presturinn að fara með ósannindi á almannafæri. Og þar sem Seðla- bankinn er bæði guðhræddur og frelsisunnandi hleypur hann undir bagga þegar dagblöð eins og NT þurfa á skotsUfri að halda tU að sann- kristinn boðskapur komist til skUa. Svo ekki sé talað um hversu þægi- legra það er fyrir Seðlabankann að ■ eiga hauk í horni þegar bera þarf blak af þeirri almáttugu stofnun, sem hefur komist næst himnaríki í hcUagleikanum, að NT og prestinum ólöstuðum. Dagfari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.