Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1985, Síða 9
DV. FIMMTUDAGUR 24. JANUAR1985.
t
9
Útlönd Útlönd Útlönd
Josef Mengele, lœknirinn sem
leiddi þúsundir gyflinga til daufla
sfns, er nú talinn búa f Paraguay.
Seldu
Bretar
Chile
vopn
fyrir
aðstoð-
Bretar fengu aö nota flugvelli í Chile
á meðan á Falklandseyjastríðinu stóð,
að sögn tímarits á Bretlandi. Blaðið
New Statesman sagði að í staðinn fyrir
afnotin af flugvöllunum hefði Breta-
stjórn lofað stjóm Pinochets í Chile að
selja Chile hvaða flugvél sem hún not-
aði í stríðinu gegn Argentínumönnum
áFalklandseyjumi.
Bretar fengu líka að senda njósnara
inn í Argentínu frá chilesku landsvæði,
samkvæmt samningnum, að sögn
blaösins.
I greininni segir að Bretar hafi
fengiö not af Punta Arenas flugvellin-
um. Þaöan hafi þeir sent njósnavélar
með chileskum merkingum yfir
Argentínu.
New Statesman segir að samkvæmt
samningnum hafi Bretar lofað að selja
Chilemönnum Hawker Hunter flug-
vélar. Einnig hafi Bretar lofað að
vinna gegn rannsókn Sameinuðu
þjóðanna á mannréttindabrotum í
Chile.
Talsmaður vamarmálaráðuneytis-
ins breska segir að árið 1980 hafi bann
á vopnasölu tii Chile verið afnumið, og
síðan hafi talsvert magn vopna verið
selt þangað.
Falklandsey jastríðið fór fram 1982.
Ráðuneytið neitaði því að samið
hefði verið um vopn í staðinn fyrir
aðstoð í Falklandseyjastríðinu.
VIKIV
ÍHVERRI
VIKU
Hjálpuðu Bandaríkjamenn
Mengele undan réttvísinni?
Nasistaveiðarar Simon Wiesenthal
stofnunarinnar sögðu í gær að þeir
myndu höfða mál gegn Bandaríkja-
stjórn til að fá að glugga í skjöl sem
kunna að sýna að Bandaríkin hjálpuöu
dauðabúðalækninum Josef Mengele að
komast undan réttvísinni.
Stofnunin hefur komist yíir skjöl
sem gefa til kynna að Bandaríkjamenn
hafi handtekið Mengele í Vín 1947. Þau
segja einnig aö Mengele hafi 15 árum
síðar sótt um vegabréfsáritun til Kan-
ada undir fölsku nafni.
Mengele er einn alræmdasti striðs-
glæpamaður nasistatímans í Þýska-
landi. Hann var þekktur sem „engill
dauðans” vegna hlutdeildar sinnar í aö
deyða gyðinga í dauðabúðum.
Hann er nú talinn hafa aösetur i Suð-
ur-Ameríku, sennilega Paraguay.
Hann er 73 ára ef hann er ennþá á lífi.
Bandaríkjamenn neita aö afhenda
umrædd skjöl vegna þess að þau varði
öryggi Bandarfkjanna.
Springer-strákurinn kominn f ram:
Var honum rænt?
Hinn íhaldssamil útgafandi, Axel
Springar. Var sonarsyni hans rsent?
Allir dóu
Allir þeir 21 sem voru um borð í
bandarískri herflutningavél sem
hrapaði í Karíbahafið nálægt
ströndum Hondúras í fyrradag lét-
ust, aö sögn bandaríska sendi-
ráðsins í Hondúras.
Talsmaður sendiráðsins sagði að
vélin hefði fundist um 400 metra frá
ströndu. Enn er ekki vitaö um
orsök slyssins.
Sonarsonur vestur-þýska milljarða-
mæringsins og blaðakóngsins kom
fram ómeiddur í gær án þess að
lausnargjald hefði verið greitt, aö
sögn lögreglu í Sviss.
Sven Axel Springer gaf sig fram við
lögreglu á flugvellinum í Ziirich. Hann
var vel á sig kominn en þreyttur. Fyrir
þremur dögum hvarf hann frá einka-
skóla í suðurhluta Sviss.
Hinn 19 ára gamli sonur íhaldssama
blaöakóngsins Axels Springer sagði að
sér hefði verið rænt á sunnudagsnótt.
En lögregla sagði að Springer yrði
yfirhejTður í dag. Hún viidi ekki segja
hvort hún teldi að um mannrán hefði
veriðaðræða.
Springer bjó í bænum Zuoz, nálægt
ítölsku landamærunum. Hann fór aö
heimsækja annan nemanda rétt fyrir
miðnætti á sunnudag. Síðan heyrðist
ekkert til hans.
Á þriðjudag fékk móðir hans átta
upphringingar. Henni var sagt að syni
hennar hefði verið rænt. Spiluð var
fyrir hana segulbandsupptaka með
rödd Sven Axels.
I gær var svo hringt í Springer útgáf-
una í Hamburg og lausnargjaMs
krafist.
Springer var hótað lífláti yrði lög-
reglu eða blöðum gert viðvart. Nokkur
blöð fréttu þó af málinu og birtu frétt-
ina.
Áhersla lögð á bættar
samgöngur
Fjármálaráðherrar Norðurlanda
sögðu í gær í Helsinki að þeir myndu
leggja til við ríkisstjórnir sínar að þær
tækju þátt í sérstökum sameiginlegum
efnahagsaðgerðum.
Meðai tillagna þeirra er 300 milljón
dollara pakki sem Norræni fjárfesting-
abankinn fjármagnar, til aö bæta
vega- og járnbrautarsamgöngur milli
Noregs, Svíþjóðar og Finnlands og til
að laga vegi í Finnlandi sem liggja til
helstu ferjustaða.
Tillögur ráðherranna munu fara fyr-
ir Norðuriandaráð þegar það kemur
saman í Reykjavik í mars.
Eftir fundinn i Helsinki sögðust ráð-
herramir ætla að leggja til að höfuð-
stóll Norræna iðnaöarsjóðsins yrði
aukinn, einnig yrði gripið til aðgerða
varðandi sameiginlegt vinnuafl Norð-
urlandanna og áhersla yrði lögö á að
styðja við útflutning landanna.
Magnús og Jóhann skemmta af
sinni alkunnu snilld.
Veitingahúsið NAUST,
sími 17759.
Nú kveðjum við Rúnar meistarakokk að sinni
og hefur hann sett þennan skemmtilega
matseðil saman sem á eftir að kitla
bragðlaukana hjá mörgum.
Fisksúpa að hætti Rúnars.
-0-
Bl. sjávarréttir úr Breiðafirði.
-0-
Hörpuskelfiskur eftir kenjum kokksins.
-0-
Fylltur skarkoli að hætti Búðinga.
— 0 —
Kryddlegnar gellur úr Jökuldjúpi.
-0 -
Kryddlegin lambasteik að hætti Bárðar Snæfellsáss.
-0-
Sigrlðarterta hin meiri.
Einhell
vandaöar vönir
VÖRUTRILLUR
KR. 1.256,00
VIÐGERÐAR-
LEGUBRETTI
KR. 1.443,00
Skeljungsbúðin
SiÖumúla33
símar81722 og 38125
nffHHTI
vandaðaðar vörur
Rafsuðuvélar
Handhægar gerðir
eru fyrirliggandi
gott verð
Skeljungsbúðin
Síðumúla33
símar 81722 og 38125
íTTffTBTi
vandaðaðar vörur
Hleðslutæki
6,12 og 24 volta.
Margargerðir.
BENSÍNSTÖÐVAR
SKELJUNGS
Skeljungsbúðin
Síðumúla33
símar 81722 og 38125