Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1985, Page 5
DV. FÖSTUDAGUR1. FEBRUAR1985.
5
Það er ekki amalegt að styrkja vöðvana undir handleiðslu sterkasta manns
í heimi. Það fékk Steingrímur Hermannsson að reyna þegar hann smellti
sór á bekkpressu i hófi sem Jón Páll hált fyrir stuðningsmenn sína og vel-
unnara.
-KÞ/DV-mynd KAE.
SAMKOMULAG
HJÁ BM VALLÁ
Landið sígur og sjórinn hækkar- um 3,8 mm á ári:
BESSASTAÐIR
UMFLOTNIR SIÓ
Á NÆSTU ÖLD
Verður forsetasetrið að Bessastöð-
um umflotið sjó eða komið að nokkru
undir sjó þegar í lok næstu aldar?
„Ef ekki hefðu verið hlaðnir vamar-
garðar vestan á Alftanesinu væri nú
þegar kominn sjór yfir um í Bessa-
staöatjöm. Það stefnir í að Alftanes-
ið veröi hólmi eða eyja,” segir Jón
Jónsson jarðfræðingur.
„Reykjanesið og allt landið raunar
er að siga um leið og hækkar í sjón-
um. Það hefur verið metið að breyt-
ingin sé að jafnaöi um 3,8 millí-
metrar ó óri. Þetta er þekkt vanda-
mól ó eldfjallaeyjum. A Reykjanesi
hafa hlaðist óskaplegir hraunmassar
ó síðustu 10—12 þúsund órum, frá ís-
öld. Þetta segir til sín.
Þó er sjórinn að hækka. Menn hafa
notaö töluna 1,1 millímetra ó óri sem
jafnaðartölu. En það hvernig og
hvers vegna sjórinn hækkar er
óskaplega flókið mól. Þaö er jökla-
bróönun, neðansjóvargos, jarðvegur
sem árnar bera fram og ótal margt
annaö. Vandinn hjá okkur hefur
lengi blasað við og ýmislegt er gert
til vamar,” segir Jón Jónsson.
Fyrirtækið Fjarhitun hf. hefur gert
úttekt ó aöstæðum allt í kringum
Reykjanesið. Eins austur við Eyrar-
bakka og Stokkseyri. Ljóst er að þörf
er fyrir mikla vamargarða til viöbót-
ar þeim sem þegar hafa verið reistir.
Þeir eru þó aðallega til þess að verj-
ast brimi í hásævi.
Þegar svo verður komið að Bessa-
staðir standa ó hólma en ekki nesi
eða þegar sjórinn fer að flæða um
hlaðið má búast við að víðar verði
vott ó sömu slóðum. Er þá skemmst
að minnast þess að Kvosin í Reykja-
vík hefur fyrir löngu teygt sig undir
sjólinu í stórstraumsflóðum.
HERB
Agreiningur framkvæmdastjóra
steypustöðvar BM Vallár og tveggja
starfsmanna ó vigt leystist í gærmorg-
un með samkomulagi. Vigtarmennirn-
ir halda ófram vinnu sinni og því verk-
efni sem bætt var ó þá. Þeir fó þó ekki
launahækkun.
„Þeir fó athugun ó sinu vinnuálagi,”
sagði Víglundur Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri BM Vallór.
Vigtarmennirnir tyeir höfðu neitað
að taka að sér nótuvinnslu ón launa-
hækkunar. Framkvæmdastjórinn
brást við með þvi að segja þeim munn-
lega upp starfi. Starfsmenn fyrirtækis-
ins mynduðu þó samstöðu um að
leggja niður vinnu yrðu vigtarmenn-
irnir ekki endurráðnir.
-KMU.
Heilsuleysi hrjáir
borgarbúa:
Norska
flensan
komin?
Menn velta þvi nú fyrir sér hvort
norska inflúensan sé komin hingaö til
lands. Heilsuleysi hrjáir nú Reykvík-
inga og eykst ólag á borgarvaktina
jafnt og þétt aö sögn borgarlæknis.
Ein er sú pest sem hefur að undan-
fömu lagt menn unnvörpunj í rúmiö og
er hún talin líkjast mjög þessari
norsku inflúensu. Báöum fylgja höfuð-
og beinverkir, særindi í hálsi, hiti og
niðurgangur.
„Það hafa verið tekin að undanförnu
ó þriöja hundraö sýna, en sú norska
hefur ekki greinst enn,” sagði Lúðvík
Olafsson. „Það sem greinst hefur eru
tvær veirutegundir og hólsbakteria.
Það er að vísu rétt að önnur veiruteg-
undin er ekki ósvipuö norsku inflúens-
unni en samt af öðrum toga.”
Þessi svokallaða norska inflúensa
hélt sig í fýrstu eingöngu í Osló en \
hefur nú greinst utan hennar, svo sem í
Bergen. Ekki hefur hennar orðið vart
annars staðar ó Norðurlöndunum.
Annars eru Islendingar ekki einir
þjóða sem eru pestsæknir um þessar
mundir. A meginlandi Evrópu hefur
mikill lasleiki hreiðrað um sig og er
hann rakinn til kuldanna þar aö undan-
fömu. Sem dæmi mó nefna að sex
milljónir Þjóðverja af sextíu og sex
milljónum hafa lagst i rúmið af völd-
um gróu flensunnar svokölluðu. Hún
lýsir sér með háum hita, eymslum í
hólsi og særindum i öndunarfærum,
ekki ósvipuð lýsing og ó þeirri norsku.
nýja efnalaug við hlið nýja Vörumarkaðarins við Eiðistorg
á Seltjarnarnesi. Allar vélar og tæki af nýjustu og fullkomnustu
gerð. Sérmenntað starfsfólk mun kappkosta að veita þá bestu
þjónustu sem völ er á.
Komið og reynið viðskiptin, athugið okkar langa afgreiðslutíma.
Opið:
Eiðistorgi 15 úmi 61-12-16.