Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1985, Blaðsíða 2
2
DV. FÖSTUDAGUR15. FEBRUAR1985.
^925-19$$-
SKÁKSAMBAND
ÍSLANDS
60
ÁRN
0G ÁFRAM VAR TEFLT
Þaö var heldur daufur andi, sem
sveif yfir vötnunum á afmælismóti
Skáksambands Islands i gærkvöldi.
Fáir til þess aö gera voru mættir.
„Þaö er vegna þess aö þaö er
landsleikur í Höllinni,” sagöi einn.
„Það dregur úr aösókn hjá okkur.”
Hvaö um það, áfram var teflt.
Mönnum þótti það heldur þunnur
þrettándi aö strax á áttunda tíman-
um voru jafnteflisskákirnar orönar
þrjár.
„Maöur er orðinn leiður hérna,
tóm jafntefli. Þetta er eins og smit,”
sagöi maöur, stóð upp af stólnum,
bretti upp kragann á frakka sínum
oggekkút.
Skákskýrendur létu þaö þó ekki á
sig fá og Helgi Olafsson og Sævar
Bjamason skýröu skákirnar allt
hvaðaftók.
Ogáframhéltmótiö.
-KÞ
HVAR
ERU
MNG-
MENN-
IRNIR?
Osjaldan sjást í fjölmiðlum
myndir úr Alþingishúsinu við
Austurvöll, þar sem þingmenn sitja
að tafli. Því hefur veriö haldið fram
að þeir séu allra mestu skákmenn á
landi hér. Þeir eru hins vegar mjög
sjaldséðir gestir á Hótel Loftleiðum
þessa daga. Hvernig skyldi ástæðan
vera?
„Þeir láta aldrei sjá sig fyrr en
líða fer á mót á borö viö þetta og
spennan fer að aukast,” sagði
maöur, sem fylgist með öllum skák-
mótum.
Þá vekur athygli að Friðrik Olafs-
son, annar stórmeistara Islendinga,
hefur ekki heldur sést, en hann er
eins og menn vita skrifstofustjóri Al-
þingis.
.í'riörik vill bara tefla sjálfur,”
sagði maöur kunnugur honum.
„Honum finnst ekkert gaman að
horfa á aðra tefla,” bætti hann við..
„Þaö væri þó gaman að sjá hann hér
ogaöramennúrþingsölum.” -KÞ
Páll Jónsson i Pólaris, fyrir miðri mynd, var mættur til að fylgjast með
framvindu mála.
Boris Spassky og Helgi Ólafsson fylgjast með skák þeirra Bent Larsen
og Curt Hansen.
Þorsteinn Þorsteinsson, forseti Skáksambandsins, færði inn úrslit eftir
þvi sem þau bárust. DV-myndir GVA.
ÞESSIR VORU
Það var margt um manninn á Hátel
Loftlclðura í gær. Meðal þelrra voru Ein-
ar Tiinsbarg bóndi, HOmar Thora
mcnntaakólaneml, Frans Jerorski laga-
nemi, Jón Þóroddasou lögfraeðingur, Axel
Jónaaon, fyrrvcrandi alþinglamaður,
fiiimar Kariason, fyrrverandi tslanda-
melstari I skák, PáU Þór Bergsson,
bridge-maður, Kristinn B. Þorsteinsson
banknmaður, Eyjélfur Jánsson lögrcglu-
þjánn, Gunnar Gunnarsson, fyrrverandi
forseti Skáksarabandsins, Geir Rögn-
valdsson Innflytjandi, Bragi Sigurðsson
blaðamaður, Kristín Guöjohníén skák-
kona, Birglr ÓlafBSon, deUdarstjóri hjá
Flugleiðum, Ebtar S. Einarsson, fyrrver-
andi forseti Skáksambandsins, PáU
Magnússon fréttamaður, Arni Njálsson,
fyrrverandi fótboltamaður, ÞórhaUur
VUmundarson, forstöðumaður Örnefna-
stofnunar, Guðmundur G. Þðrarinsson
verkfrœðingur, EgUl Helgason blaðaraað-
ur, sfrra Baldur Kristjánsson, Bcnedlkt
Kristjánsson sjómaður, Stefán Þormar
Guðmundsson útibásstjóri Búnaðarbank-
ans i Vík, Sverrir Sigfússon, útibásstjóri
Búnaðarbankans í Kápavogl, fngólfur
Hjaltatin bamalæknlr, Kristján Thcó-
dórsson fyrrverandi landsliðsmaður l
skák, Jón Viglundsson bakarameistari,
Atli Magnússon blaðamaður, PáU Jóns-
son í Pótaris, Jón Magnásson stœrðfræð-
ingur, Hjörtur Gunnarsson kennari, Tóm-
as Arnason seðlabankastjóri, Ingvar As-
mundsson skélastjóri Iðnskólans, As-
mundur Ásgeirsson fyrrverandi islands-
melstari í skák, Guðlaugur Guðmunds-
son, fyrrverandi knuptnaður, Guðmund-
ur Arason, fyrrverandi forscti Skáksam-
bandsbxs, Haraldur Blöndal lögfrœðlng-
ur, Bryndis Guðmundsdóttir kennari, Sæ-
mundur Pálsson lögregluþjónn, HaUdór
Blöndal alþingismaður, Kristinn Bjarna-
son, útibússtjóri Búnaðarbankans I
Reykjavík, Páll Sólnes rá Akureyri og El-
rlkur Jónsson Eþíópíufarl. -KÞ
AfmælismótSI
LARSEN Á TOPPNUM
—okkar menn f ridsamir
Aðeins tvær skákir af sex möguleg-
um urðu virkilegar baráttuskákir í 3.
umferð afmælismóts Skáksambands
Islands. Islensku skákmennimir
veigruðu sér allir við að taka hina
minnstu áhættu og sömdu allir jafn-
tefli mjög snemma nema Margeir
Pétursson og Karl Þorsteins en Mar-
geir vann þá skák eftir miklar svipt-
ingar.
Þaö voru Danimir Curt Hansen og
Bent Larsen sem tefldu svo sannar-
lega skák kvöldsins. Þeir gáfu okkar
mönnum þar með alvarlega ráön-
ingu: I svona skákmótum verða
menn að hafa fyrir hlutunum ef
áranguráaðnást.
Marqeir — Karl, 1:0
Gífuriega mikil baráttuskák þar
sem Margeir hafnaði þráleik í byrj-
uninni og lagöi allt á eitt spil til þess
aðhljóta vinning.
Hvitt: Margelr Pétursson
Svart: Karl Þorsteins
Mótteklð drottningarbragð.
1. d4 d5 2. Rf3 Rf6 3. c4 dxc4 4. Rc3
a6 5.e4b5 6.e5Rd5 7.a4Rb4 8.Be2
Bf5 9.0—0 Rc2 10. Ha2 Rb4 11. Ha3
Rc212. Ha2 Rb413. Ha3 Rc214. Rh4!
Margeir víkur hér frá þráleiknum
og leggur þar með allt í sölumar til
þess að hreppa vinning í skákinni.
14. — Bd3 15. Bxd3 cxd3 16. e6! fxe6
17. Dh5+ g6 18. Rxg6 hxg6 19. Dxh8
b4 20. Bh6 Kd7 21.Bxf8bxa3
Hér töldu sumir best að leika 21. —
Rc6, en sá leikur hótar biskupi hvíts
áf8.
22. d5 Kc8 23. Dg7 exd5 24. Bxe7 De8
25. bxa3 d4 26. Rd5 Rd7 27. Bg5 De6?
27. — De5 veitti meira viðnám.
Skák
ÁsgeirÞ. Árnason
28. Dh8+ Kb7 29.Dxa8+!
og svartur gafst upp. Eftir 29. —
Kxa8 30. Rxc7 + fellur svarta drottn-
ingin og hvítur hefur þá hrók meir.
Hansen — Larsen, 0:1
Skemmtilegasta skák umferðar-
innar sem af helstu spekingum á
Hótel Loftleiðum er talin hafa skipt
oftumeigendur.
Það er erfitt að telja sjáifan sig til
skákþjóðarinnar Islands og þurfa að
sækja Dani til þess að veita okkur
skemmtilega baráttuskák hér uppi á
Islandi.!
Hvítt: Curt Hansen (Danmörku)
Svart: Bent Larsen (Danmörku)
Nlmzo-lnd versk vöm
1. d4Rf6 2.c4e6 3.Rc3Bb4!
Að sjálfsögðu teflir Larsen Nimzo-
indverska vöm í tilefni af því að tveir
Danir eigast hér við. Senniiega til
þess að undirstrika eignarréttartil-
kall Dana til Arons Nimzovich, höf-
undar þessa byrjunarkerfis en hann
dvaldi um langan tima í Danmörku.
4. e3 0-0 5. Bd3 d5 6. a3 Bxc3 7. bxc3
dxc4 8. Bxc4 c5 9.Rf3Dc7 10.Ba2b6
11. 0-ú Bb7 12. c4 Rbd7 13. Bb2
Had8 14. d5?!
Vafasöm framrás. Svartur ein-
angrar nú peð á d línunni og endar
með því að vinna það. Ennfremur
fær hann frípeð á c línunni. Hins veg-
ar opnast nú taflið nokkuð og svartur
má verulega gæta sín á aö ekki skelli
flóöbylgja á kóngsstöðunni.
14. —exd5 15. cxd5 c4! 16.d6Dc6 17.
Hacl b5 18. Bbl Hfe8 19. Hfel He6
20. e4 Hxd6 21.Dc2Rc5 22.e5Hd2!
Friðhelgur hrókur vegna máts á
g2. Þó svartur hafi unnið peð má
hann nú verulega vara sig á hótunum
hvíts.
23. Df5 g6 24. Dg5 Re6 25. Dh4 Hxb2
26. exf6 Dd6 27. Be4 Bxe4 28. Hxe4 h5
29. Hcel Rf 8
Tími keppenda var er hér var kom-
ið sögu farinn að minnka allískyggi-
lega. Larsen er minnugur hins fom-
kveðna: „riddari valdar alltaf kóng
svo vel” og leikur honum því ömgg-
lega í vömina.
30. g4! Dd5 31. Re5?!
Rétt er að leika hér 31. Hd4! og enn
er óvíst um úrslit. Nú sígur hins veg-
ar á ógæfuhliðina fýrir hinn unga
Dana. Larsen verst fimlega loka-
árásinni.
31. — Hbl! 32. gxh5Hxel 33. Hxel
He8 34. Dg5
34. —Rd7!
Vinningsleikurinn. Sókn hvíts
rennur nú út í sandinn.
35. hxg6 Hxe5 36. Hxe5 Rxe5 37.
gxf7+ Kxf7 38. Dg7+ Ke6 39. h4
Ddl+ 40. Kh2 Dg4+
og hvítur gafst upp.
Þar með hefur Larsen náð að
hefna harma sinna gegn hinum unga
Dana. 1 fyrra tefldu þeir nefnilega
einvigi i Kaupmannahöfn sem sá
ungi vann. Einvigi þetta var mjög at-
hyglisvert fyrir þær sakir að f ullt hús
var ávallt af áhorfendum en það
hafði ekki gerst í Danmörku áður.
Larsen hefur nú einn og hálfan
vinning og vænlega biöskák gegn
Margeiri og hlýtur því óneitanlega
að teljast sigurstranglegur í þessu
móti.
Helgi — Jóhann, 1/2:1/2
Þeir leikbræöur Helgi og Jóhann
brúkuðu aðeins eina klukkustund til
þess að gera jafntefli í þessari skák.
Jóhann sýndi þó klærnar í byrjuninni
með því að velja kóngsindverska
vörn sem oftast leiðir til nokkuð
snarpra vopnaviðskipta.
Aö þessu sinni svaraði Helgi með
hálfleiðinlegu uppskiptaafbrigði og
sætti sig þar með við skiptan hlut.
Jón L. — Jusupov, 1/2:1/2
Skömmu eftir að þeir Helgi og Jó-
hann höfðu undirritað friðarsamn-
ingana, bauð Jón L. hinum sovéska
andstæðingi sínum upp á skiptan
hlut.
Jón hafði þá komiö auga á hulinn
þráleiksvaríant. Líklega hefur Sov-
étmaðurinn verið sammála okkar
manni um jafnteflisleiðina vegna
þess að hann samþykkti jafnteflið
eftir nokkra umhugsun.
A morgun á Jón að tefla sína frest-
uðu skák úr fyrstu umferð viö Tékk-
ann Hort. Sleppi hann án taps úr
þeirri orrahríð má hann vel við byrj-
un mótsins una. En hann haföi
flensupest 1 upphafi þess eins og
kunnugt er og reyndar leit um tíma
út fyrir að hann gæti ekki teflt með.
Hann er þó nú óðum að braggast.
Guðmundur — Spassky,
1/2:1/2
Einhvern veginn hafði undirritað-
ur á tilfinningunni að hvorugur tefl-
andi þessarar skákar hefði haft
minnsta áhuga á því að hrein úrslit
fengjust. Rétt til málamynda léku
þeir þó nokkra leiki og sömdu síðan
jafntefli. Hvorki í anda hins gal-
vaska keppnismanns né til fyrir-
myndar fyrir þá fjölmörgu áhorfend-
ur sem lögöu leiö sína niður aö Hótel
Loftleiðum í gærkvöldi.
Hort — Van der Wiel,
1/2:1/2
Ofugt við þær skákir aörar sem
enduöu með jafntefli var þessi skák
tefld til botns og var ekki samið jafn-
tefli fyrr en við blasti uppskipti á öll-
um mönnum, sem leitt hefði til jafn-
teflis peösendatafls.
Biðskákir úr 1. og 2. um-
ferð
Biðskák Helga og Larsens úr
fyrstu umferð lauk með jafntefli.
Upp var komin staöa þar sem Helgi
hafði hrók, kóng og biskup gegn hrók
og kóng Larsens og taldi Helgi von-
laustveraaövinna.
Vegna biðskákar Helga við Larsen
var ekki unnt að tefla biðskák Mpr-
geirs við Danann úr 2. umferð, hins
vegar tefldu Guðmundur og Jusupov
sína biðskák og fór hún aftur í bið.
I dag er frídagur keppenda. Hann
verður notaður til þess að tefla ofan-
greindar tvær biðskákir svo og frest-
uðu skák Jóns við Hort.
4. umferð mótsins hefst kl. 14.00 á
morgun, laugardag.
AþA.