Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1985, Síða 3
DV. FÖSTUDAGUR15. FEBROAR1985.
3
Bullandi lodna, feit og fín:
UNNK) MEÐAN
AUGU HALD-
AST OPIN
„Hér er bullandi loðna. Hún er feit og
góö og undanfarna daga hafa landaö
hér á miUi 5 og 7 bátar á dag meö þetta
500 til 1100 tonn hver,” sagði Kristján
Guðmundsson hjá Hraðfrystihúsi
Eskif jarðar í samtali við DV.
MikU og góð loðnuveiði hefur verið
hér við land að undanfömu. I upphafi
vertiöar var gefið leyfi fyrir að veiöa
850 þúsund tonn. Þegar hafa veiöst um
700 þúsund, svo aðeins um 150 þúsund
tonn eru eftir, en loðnuvertíðinni lýkur
íjúní.
„Veiðitíminn er þó í raun úti í lok
mars,” sagði fuUtrúi hjá Loðnunefnd.
„Þar sem loðnan er þá búin að hrygna
ogdrepstþá.”
Hann sagði að um hádegi síðasta
sólarhring hefðu 20 skipt tiUtynnt um
14.500 tonn af loðnu þaö sem af var
sólarhringsins. Væri það mjög góð
veiði. „Bátarnir þurfa bara að stíma
svo lengi nú orðið þar sem allar hafnir
eru orðnar fullar af loönu. Er tU dæmis
um sólarhrings stim frá miðunum á
Faxaflóahafnimar og annað eins til
Raufarhafnar,” bætti hann við.
Aðspurður sagðist hann ekki geta
sagt um hvenær skipin yrðu búin aö
fyUa loðnukvótann. Yfirvofandi verk-
faU yfir- og undirmanna á fiskiskipun-
um setti þar strik í reikninginn. „Menn
eru orðnir uggandi þvi að ef verkfaU
skeUur á eyöileggst hreinlega loðnan
því að eftir að hún hrygnir er ekki hægt
aö veiöa hana,’ ’ sagði hann.
„Hér vinna alUr sem vettUngi geta
valdið á meðan þeir geta haldið sér
vakandi,” sagði Kristján Guömunds-
son hjá HraðfrystUiúsi Eskifjarðar.
„Við höfum ekki undan, ekkert nálægt
því. Nú er orðin löng bið eftir löndun
hér hjá okkur og það er útUokað aö
Konurhafna
allaböllum
„Samstaða um nýtt landstjórnarafl”
eða viðræður um það fyrirbæri var
orðað í bréfi til Kvennalistans frá
Alþýöubandalagmu. Bréf þetta mun
vera mánaðargamalt. KvennaUsta-
konur hafa skrifað svarbréf og hafna
viðræðum við Alþýöubandalagið.
1 því bréfi segir m.a. að engin stefnu-
breyting hafi orðið innan Alþýðu-
bandalagsins né annarra stjórnmála-
flokka sem gefi tUefni tU þátttöku
Kvennalistans í viðræðum um myndun
nýs stjórnmálaflokks.
Hafi Alþýöubandalagiö haft annað i
huga með viöræðuhugmyndum sínum,
til dæmis myndun nýrrar landstjórn-
ar hafna konumar þeim viöræðum
einnig.
,JEf hvorug túUcunin á boði Alþýðu-
bandalagsins á viö, þá gæti flokkurinn
ef til viU skýrt hvem tUgang boðiö
felur í sér,” segir í niðurlagi svarbréfs
Kvennalistakvenna.
-ÞG.
Þrírstjórar
ísætiþingmanna
Karvel Pálmason, Arni Johnsen og
PáU Pétursson hafa fengið leyfi frá
þingstörfum vegna erinda á öðrum
vettvangi. Varaþingmenn hafa tekiö
sæti þeirra í þingsölum. Sighvatur
Björgvinsson, framkvæmdastjóri
Norræna félagsins og fyrrverandi
þingmaður, hefur tekið sæti Karvels
um stundarsakir. Oli Þ. Guðbjartsson,
skólastjóri á Selfossi, hefur tekið sæti
Ama Johnsen og Brynjólfur Svein-
bergsson, samlagsstjóri á Hvamms-
tanga, sæti Páls Péturssonar.
-ÞG.
hægt verði að landa úr bát fyrr en i
fyrsta lagi á laugardag,” bætti hann
við.
Samkvæmt upplýsingum DV er
svipaö ástand á öllum Austfjaröar-
höfnunum.
-KÞ.
BÍLL ÁRS/NS
OPEL KADETT
í MIKLAGARÐI
OPEL KADETT, þessi víðfrægi verðlaunagripur,
fer víða þessa dagana og vekur alls staðar verðskuldaða hrifningu.
Næstu dagana bjóðum við öllum viðskiptavinum Miklagarðs að kynnast
þessum frábæra fjölskyldubíl og komast að raun um fjölmargar ástæður
þess að OPEL KADETT er handhafi titilsins „BÍLL ÁRSINS" og annarra
alþjóðlegra viðurkenninga á borð við „GULLSTÝRIÐ" o.fl.
OPEL KADETT
FJÖLSKYLDUBÍLL í FYRSTA SÆTI!
Nýr Opel er nýjasti bíllinn
BíLVANGURsf
HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300
jBr r[/
iiiini