Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1985, Blaðsíða 12
12
DV. ÞRIÐJUDAGUR19. FEBRUAR1985.
Spurningin
Ertu ánægð/ur með úrslit
landsleikja Júgóslava og ís-
lands?
Þrúður Óskarsdóttir nemi: Já, ég
er ánægð meö úrslitin í þessum þrem
leikjum. Strákamir stóðu sig frábær-
lega.
Olafur Gunnarsson bílapartasali:
Já, ég er ánægður með seinasta leikinn
en ekki hina 2 á undan.
Bima Jónsdóttir gjaldkeri: Já, ég
er mjög ánægö með úrslitin. Þetta er
frábær árangur.
Rúnar Guðmundsson nemi: Já,
ég er mjög ánægður, sérstaklega með
leikinn á fimmtudagskvöldið. Hann
varstórkostlegur.
Andrés Magnússon verkstjóri: Já,
mér fannst þetta vera mjög ánægjuleg
úrslit fyrir okkur.
Bárður Bárðarson afgreiðslumað-
ur: Já, ég er ánægður meö úrslitin á
fimmtudagskvöldið. Hins vegar gátum
við gert betur í hinum leikjunum.
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Byggðastefna, böl landsmanna
Skattgreiðandi skrifar:
Erindi Baldurs Hermannssonar
um daginn og veginn mánudags-
kvöld í síðustu viku í hljóðvarpi átti
sannarlega erindi til landsmanna.
Þar var m.a. drepið á það böl sem
byggöastefna í núverandi formi er.
Og þá einkum að viðhalda byggð í af-
skekktum héruðum með æmum til-
kostnaöi sem að stærstum hluta er
greiddur af skattgreiðendum þétt-
býlissvæðisins hér sunnanlands.
Auðvitað verða ekki allir ánægöir
þegar drepið er á þetta þjóðþrifa-
mál. Visast er að svona erindi sem
flutt var í útvarpið verði þagað í hel
eða þeir sem efninu voru sammála
þori ekki að tjá sig um það opinber-
lega, allra síst alþingismenn sem eru
allra landsmanna þýlyndastir þegar
um það er að ræða að biðla til
„atkvæðanna”.
En þessi umræða, að stefna að
flutningi fólks úr strjálbyggðum hér-
uðum, hingað til Suður- og Suð-
vesturlandsins er í raun mál
málanna því það verður æ erfiðara
aö halda þessu fólki uppi öllu lengur.
Það er ekkert annað en „uppihald”
á vegum ríkisins, skattgreiðendanna
þegar látiö er undan þrýstingi um að
leggja rafmagn, símalínur og vegi til
hinna ýmsu byggðarlaga sem engum
arði skila vegna fámennis og lé-
legrar framleiöni.
Og auðvitað er þaö staðreynd að
samhæfður og vel skipulagður þétt-
býliskjarni er mun líklegri til að
skila framleiðni og arði en mörg lítil
og aðskilin pláss á landsbyggðinni.
Vestfirðir eru dæmi um erfiða bú-
setu, líka Austfirðir og Norðaustur-
land. Á okkar dögum og heldur ekki
bama okkar verður lögð nútíma
samgönguæð til Vestfjarða, land-
leiðina.
Þótt þar vestra séu fengsæl
fiskimið í dag er mun hagkvæmara
að nýta byggð þar sem verstöð þar
sem fólk dvelur timabundiö til að
taka á móti afla. — Eða það sem er
enn betra. Hafa þar ekkert fólk en
senda skipin héðan og hafa þau
staðsett á miöunum nokkra mánuöi í
senn og láta móðurskip með vistir,
olíu og annan útbúnaö þjóna
skipunum á miðunum.
Skipverja á síðan að ferja á miðin
á tveggja vikna eða mánaðarfresti
og skipta þannig um áhafnir. —
Flutninga- eða móðurskip taki síðan
við afla togaranna, jafnóðum.
Þannig fæst nýtt hráefni í hæsta
gæða- og verðflokki.
Ýmislegt annað og meira er að
segja um kosti þess að grisja
byggðina í landinu. En núverandi
ástand er að sliga þjóðarbúskapinn.
Að þvíkemur að þetta verður lagt til,
ef ekki af þingmönnum, þá erlendum
lánardrottnum sem hafa þegar séð
þennan agnúa í búskap okkar.
◄c
„Vestfirflir eru dsemi um erfifla
búsetu," segir brófritari. —
Mynd frá Breifladalsheifli afl
vetrarlagi.
Góðar
myndir
í bíó
Stebbi hringdi:
Mig langar að þakka bíóhúsunum
hér í Reykjavík fyrir hvað sýndar hafa
verið góöar myndir að undanförnu.
Um jólin var sýnd myndin með Limahl
í Bíóhöllinni, Indiana Jones í Háskóla-
bíói og fleiri. Svo er Stjörnubíó núna að
sýna Karate Kid. Þetta finnst mér og
fleirum alveg frábært. Það hefur oft
vantað að nóg væri af bama- og
unglingamyndum í bíó.
Limahl söng titillagið í jólamynd-
inni Never Ending story.
Óskrifud25 atriöi?
3841—2833 hringdi:
Það hefur mikið verið rætt um
blaðamannafund forsætis- og fjár-
málaráðherra í sjónvarpinu á dögun-
um. Menn hafa mikið velt þvi fyrir
sér hvers vegna forsætisráðherra
velfaði þessu blaði með 25 atriðum
sem enginn mátti sjá eða heyra hvað
á væri. Spuraingin er hvort það hafi
ekki verið óskrifað blað eins og fyrri
uppgjör þessarar ríkisstjórnar.
Þakkirtil Sólarlands
L.G. hringdi:
Eg er ein af þeim fjölmörgu sem
nýt þess í ríkum mæli að vera aðnjót-
andi stofnunar sem kaliar sig Sólar-
land. öll þjónusta og aðbúnaöur er til
fyrirmyndar og mig langar til aö
þakka fyrir það.
Fé landsmanna
lítils virii
Jóhannes Guðlaugsson skrifar:
Nú með hækkandi sól rís stórt svart
hús sem ætlaö er að geyma fé lands-
manna. Það fé er ekki mikils virði þar
sem undirstöður efnahagslífsins eru of
fáar til að afla gjaldeyris.
En ný hugmynd rís með nýju húsi.
Það er að gera hið nýja hús Seðla-
bankans að geymslubanka fyrir
erlenda aðila likt og gert er í Sviss.
Seölabankinn yröi sameinaður Lands-
bankanum eins og var þar sem ríkið á
4 banka, og keppir hver við annan.
Talað er um að bankakerfið sé of
stórt miðað við fólksfjölda. I staðinn
fyrir að rífa niður væri nær að tala um að
nýta það sem komiö er betur.
HRINGIÐ
1 ÍSÍMA
(68-66-11
kl. 13 til 15
Rás2:
SÖMU
LÖGIN
AFTUR
OG
AFTUR
G.S. skrifar:
Oft var það nú svo þegar hin eina
sanna rás 1 var að gera mann
brjálaðan með eilífu tilkynninga-
og sinfóníugargi að margir óskuðu
sér að þaö væru nú fleiri rásir. Og
viti menn. Eftir margra ára jarm í
blöðum og víðar birtist rás 2 með
fögrum loforðum um skemmtilega
og f jölbreytta dagskrá.
Þær vonir sem margir bundu viö
rás 2 hafa meira og minna
brugðist. Ekki svo að skilja að
popptónlist heyrist ekki. Stóri
gallinn á gjöf Njarðar er sá að það
eru álltaf spiluð sömu lögin aftur
og aftur, þannig að mesta rólyndis-
fólk er að verða bandvitlaust á
þessum sifelldu endurtekningum.
Svokallaður vinsældalisti er mjög
dularfullur og byggist á sím-
hringingum smákrakka að mestu
leyti sem troða lögum í efstu sæti.
Islensk tónlist virðist lítið eiga
upp á pallborðið á rás 2, sér-
staklega sú tónlist sem komið hefur
út á undanförnum 5 árum. Telst til
tiðinda ef slík tónlist heyrist.
Ekki er rás 2 gjörsamlega sneydd
hæfileikafólki. Vil ég þá helst nefna
Rokkrásina sem er mjög vel unnin
og er tvímælalaust besti þátturinn
á rás 2. Þá má einnig nefna
Kvennabúriö en Bylgjur hafa
valdið mér vonbrigðum.
Ég vona að skjótar endurbætur
nái fram að ganga sem fyrst.