Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1985, Blaðsíða 16
16
DV. ÞRIÐJUDAGUR19. FEBRUAR1985.
íþróttir
• Graeme Sharp.
Graeme Sharp
f rá keppni
Everton hefur orðið fyrir enn einu
áfallinu. Það var Ijóst í gær að
markaskorarinn mikli, Graeme
Sharp, sem hefur skorað 21 mark
fyrir Everton í vetur, verður frá
keppni i tvær vikur. Sharp
meiddist á ökkla i bikarleik gegn
Telford á laugardaginn, liðbönd
tognuðu.
Everton hefur áður misst Adrian
Heath vegna meiðsla í hásin og mun
hann ekki leika meira með félaginu í
vetur. Heath og Sharp eru
hættulegustu sóknarmenn Everton.
-sos.
Bingham valdi
vörubflstjóra
ílandsliðshóp
N-írlands
Billy Bingham, landsliðsþjálfari
N-Írlands, kom skemmtilega á
óvart þegar hann tilkynnti sautján
manna landsliðshóp sinn sem mæt-
ir Englendingum i HM í Belfast 27.
febrúar.
Bingham valdi óþekktan vörubíl-
stjóra frá Linfield, Martin McGaug-
hey, í hópinn í staðinn fyrir Billy Ham-
ilton sem er meiddur. McGaughey,
sem er áhugamaður, hefur skorað 44
mörk í 37 leikjum fyrir Linfield í vetur.
Pat Jennings, hinn gamalkunni mark-
vöröur Arsenal, er að sjálfsögðu í
hópnum sem er þannig skipaður:
• Markverðir. Pat Jennings, Arsenal og Jim
Platt, Coleraine.
• Varnarmenn. Jimmy Nicholl, WBA, Mal
Donaghy, Luton, John McClelland, Watford,
Nigel Worthington, Sheff. Wed., John O’Neill,
Leicester og Paul Ramsey, Leicester.
• Miðvallarspilarar. Gerry McElhinney, Ply-
mouth, Sammy McIIroy, Stoke, David
McCreerym, Newcastle og Noel Brother-
stone, Blackbum.
• Sóknarmenn. Garry Armstrong, Real
Mallorca, Jimmy Quinn, Blackbum, Norman
Whiteside, Man. Utd., Ian Stewart, QPR og
Martin McGaughey, Linfield.
sos
Navarro skor-
aðiþrennu
Franco Navarro, miðherji
landsliðs Perú, gerði þrjú mörk í
gær þegar Perúmenn unnu sigur,
3—0, yfir Bóliviu i upphitunarleik
fyrir HM, en Perú leikur ■ sama riðli
og Argentína, Kolumbia og
Venezúela.
Markvörður Bólivíu, Hoyos, bjargaði Bóli-
víumönnum frá enn stærra tapi. BóUvía
leikur í riðU með BrasUiu og Paraguay í HM.
• Guatemaia lagði Costa Rica að velU, 1—0,
í upphitunarleik fyrir HM í Guatemala City í
gær.
• Landslið Chlla lagði danska meistaraUðið
Vejle að velh, 5—0, í Calama í Chile í gær.
-sos.
fþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
Tölvur spá að Pólverj-
ar og Rússar mætist
— í úrslitaleik B-keppninnar í handknattleik sem hefst í Noregi í dag
Frá Jóni Einari Guðjónssyni,
fráttamanni DV i Noregi: — Tölvur
hór i Noregi eru búnar að spá þvi að
það verði Pólverjar og Rússar sem
leiki til úrslita 3. mars i B-keppninni
i handknattleik sem hefst hór i
Noregi i dag. Úrslitaleikurinn fer
fram i Jordalamfi-isknattleiks-
höllinni í Osló.
Það er búið að spá því að um 100 þús.
áhorfendur sjái þá 54 leiki sem verða
leiknir í 22 íþróttahöllum hér. 2000
sjálfboðaliðar vinna við keppnina og er
reiknað með að kostnaðurinn við
keppnina verði 6,5 milljónir norskra
króna.
Norðmenn eru mjög bjartsýnir á að
lenda i sjötta sæti og verða þar með
fyrsta þjóðin til að tryggja sér far-
seðilinn úr C-keppni í A-keppnina í Sviss
1986. Norðmenn leika nú í B-keppninni
sem gestgjafar.
Búið er að raða niður í riðla sem eru
þannigskipaðir:
A-RIÐILL. Noregur, Spánn,
Tékkóslóvakía, og Italía. Leikið verður
í Kristjansand og Skien.
B-RIÐILL. Frakkland, Kongó,
Rússland og Finnland. Leikið verður í
Bergen og Stavangri.
C-RIÐILL. Búlgaría, Kuwait, A-
Þýskaland og Holland. Leikiö verður
í Osló, . Sarpsborg, Lilleström,
Drammén og Freðrikstad.
D-RIÐILL. Ungverjaland, Banda-
ríkin, Pólland og Israel. Leikið verður í
Þrándheimi, Namsos og nágrenni.
• Keppnin byrjar í kvöld og þá
verða þessir leikir: Noregur—Spánn,
Tékkóslóvakía—Italía, Frakkland—
Kongó, Rússland—Finnland,
Búlgaria—Kuwait, A-Þýskaland—Hol-
land, Ungverjaland—Bandaríkin og
Pólland—Israel.
-JEG/-SOS.
upphugsinn
Frá Kristjáni Bernburg, frétta-
manni DV i Belgiu:
— Kemur Gordon Lee til KR
efla ekki? Þessi spurning hefur
oft skotifl upp kollinum afl und-
anfömu en Lee hefur verlfl orfl-
aflur við fólög i Grikklandi.
Þaö kom fram í Englandi í gær,
þegar Lee var spurður um hvað
hann ætlaði að gera, að hann hefur
ekki gert upp hug sinn. „Eg veit
ekki hvað ég geri — ég hef ekki
gert upp hug minn ennþá.”
-sos
I
I
I
I
I
I
■mmS
„VERÐ ALLTAFISLENDIN
segir Þórdís Jónsdóttir skíðakona sem keppir fyrir Noreg í Evrópukeppninni í alpagreinu
Frá Jóni Einari Gufljónssyni, frétta-
manni DV i Noregi:
„íslenska vegabrófið er miklu
flottara, óg ætla að halda því og
þafl þó óg keppi einhvem tima síflar
fyrir Noreg i heimsmeistarakeppni.
Ég verfl þó alltaf áfram
íslendingur, " sagði Þórdis Jóns-
dóttir þegar ég ræddi vifl hana i gær
þegar hún kom frá Þrándheimi eftir
afl hafa orflifl Noregsmeistari i
bruni og stórsvigi um helgina.
Árangur hennar hefur vakið
verulega athygli hér í Noregi — mikið
skrifaö um að íslensk stúlka hefði orðið
Noregsmeistari í tveimur greinum.
Mest þó í blöðunum í Þrándheimi og
þar í kring sem mótið var haldið.
Blaðamenn þyrptust þar að Þórdísi og
spurðu mikið um aðstöðu skíðafólks á
Islandi. Hvort þar væru skíðalyftur
alls staðar og góðar brautir. Þeir vissu
bókstaflega lítið sem ekkert um
skíðafólk á Islandi og aðstöðu þar.
Þegar blaðamennirnir komust að því
að hún hefði dvaliö sjö ár í Noregi var
því slegið upp að Þórdis hefði lært allt
í sambandi við skíði í Noregi. Það er þó
ekki alveg rétt — Þórdís lærði auövitað
að renna sér á skíðum á Isafirði hér
árum áður.
Best í síðari umferð
Eins og fram kom í DV í gær sigraði
Þórdís í bruni á föstudag, stórsvigi á
laugardag. Þegar ég reyndi að afla
frétta af svigkeppninni á sunnudag var
í fyrstu talið að Þórdís hefði verið
dæmd úr leik í sviginu á sunnudag. Það
var þó ekki rétt. Að vísu keyrði hún á
hlið í fyrri umferðinni, tafðist mjög og
náði slökum tíma. Hún vildi þó ljúka
Jim Howard
stökk 2,35 m
Jim Howard setti nýtt glæsilegt
Bandaríkjamet í hástökki, þegar
hann stökk 2,35 m á Columbus-
frjálsiþróttamótinu i Cleveland á
sunnudagskvöldið.
• Valerie Brisco-Hooks setti nýtt
heimsmet í 500 yarda hlaupi — hljóp á
l:02,3mín. -SOS.
Everton enn
á heimavelli
dregið 18-liða úrslit ensku bikarkeppninnar
Heppnin laikur vlfl bikarmeist-
ara Everton i FA-bikar-
keppninni. i gær var dregifi í 6.
umferð keppninnar — átta lifla
úrslit — og enn einu sinni leikur
Everton á heimavelli.
Mætir þó i fyrsta skipti liöi úr 1.
deild í keppninni nú. Annaöhvort
Ipswich eða Sheff. Wed. I 6.
umferð er talið ákaflega þýðingar-
mikið að leika á heimavelli. Þá eru
yfirleitt ekki nema sterk lið eftir og
K.H-1
heimavöllurinn getur skipt
sköpum. I undanúrslitum er leikið
á „hlutlausum” völlum.
Drétturinn i gœr i hoild var þannig.
Vegna frestana al. laugardag é fimm leikj-
um er i engum hinna fjögurra leikja i 6.
umferð öruggt hvaða fið leika þá innbyrðis.
Man.Utd. ~ Wimbloon eða We»t Hom
Everton — Ipswich eða Sheff. Wed.
Southampton eða Bamaley—York eða
Liverpool
Luton eða Watford—Millwall eða
Leiceater.
Leikirnir i 6. umferð verða háðir 9. mara.
-haim.
I
Þórdís Jónsdóttir.
DV-mynd Eiríkur Jónsson.
keppninni og í síðari umferðinni náði
hún langbestum tíma keppenda. Varð
þar í 15. sæti samanlagt, en svigið er
aðalgrein hennar.
Stúdent í vor
Þórdís verður stúdent í vor. Á eftir
að ljúka tveimur prófum. Er í Alpine
skólanum. Það er sérstakur mennta-
skóli fyrir skiðafólk. Allt skipulagt þar
á þann hátt að nemendur hafi sem
besta aðstöðu til að iðka skíða-
íþróttina. „Það er frábært að vera í
þessum skóla, ég hef fengið að æfa eins
og ég hef viljað jafnhliða náminu. Frá-
bærir þjálfarar og ég á þessari aðstöðu
mest að þakka hve vel hefur gengið á
skíðunum,” sagði Þórdís.
Keppir á EM fyrir Noreg
„Ég er ákveðin 1 að vera áfram
EM1988 í
V-Þýskalandi
V-Þýskaland fékk flest atkvæði í Bem í gær
Þafl bendir allt til afl Evrópu-
keppni landsliða fari fram i V-
Þýskalandi 1988. Undirbúnings-
nefnd EM kom saman i Bern i gær
og fengu V-Þjóðverjar þá flest at-
kvæfli en Englendingar voru næstir
á blafli. Þafl verflur svo endanlega
ákveðifl hvar EM verflur þegar
framkvæmdastjóm UEFA kemur
saman i Lissabon 15. mars.
Eftir fundinn í gær eru möguleikar
Hollands og Norðurlandanna, Sví-
þjóðar, Finnlands, Noregs og Dan-
merkur, úr sögunni.
Það sem mælir gegn því að EM fari
fram í Englandi eru ólætin sem hafa
verið kringum knattspymuáhuga-
menn frá Bretlandseyjum undanfarin
ár víðs vegar um Evrópu. Englending-
ar hafa þó ekki gefist upp og benda á
að ólæti séu einnig á völlum í V-Þýska-
landi. Englendingar gera sér enn vonir
um að fá EM 1988 en þá verður enska
knattspymusambandið 125 ára.
Það sem vinnur með V-Þjóðverjum
er að landslið V-Þýskalands hefur
staðið sig vel í EM á undanfömum
árum. Þá eru þar margir glæsilegir
vellir til staðar sem voru endurbyggðir
fyrir HM-keppnina í V-Þýskalandi 1974
en sú keppni heppnaðist í alla staði
mjög vel og var mjög vel skipulögð.
I fyrstu umferð hafa V-Þjóðverjar
vinninginn og talið er víst að þeir hafi
hann einnig þegar ákveðiö verður í
Lissabon hvar keppnin verður haldin.
-sos.
íþrótfir
íþróttir
íþróttir