Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1985, Blaðsíða 32
f
FRÉTT ASKOTIÐ
(68)*@)*(58)
SÍMSNN
SEM
ALDREI
SEFUR
Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022.
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá i
sima 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað i DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i
hverri viku,
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 1985.
Skýrsla um
Kefíavíkur-
herstöðina
öryggismálanefnd hefur sent frá sér
skýrslu um áætlanir varðandi her-
stöðina á Keflavíkurflugvelli og fram-
kvæmdir þar. Skýrslan er samin af
Gunnari Gunnarssyni, forstöðumanni
öryggismálanefndar.
1 skýrslunni er fjallað um byggingu
olíugeyma og olíuhafnar, staðsetningu
og fjölgun nýrra orrustuflugvéla,
byggingu styrktra flugskýla, endur-
nýjun ratsjárstöðva og uppsetningu
nýrra stöðva, byggingu á styrktri
stjómstöð og ýmsar aðrar bygginga-
framkvæmdir.
I skýrslunni kemur meðal annars
fram að kostnaður við fyrirhugaðar og
yfirstandandi framkvæmdir á Kefla-
víkurflugvelli, það er olíugeyma, olíu-
höfn, flugskýli og stjómstöð, nemur
um 284 milljónum Bandarikjadala eöa
rúmlega 11 milljörðum íslenskra
króna. Eru þá framkvæmdir við fyrir-
hugaðar ratsjárstöðvar undanskildar.
-ÓEF.
Málverk á uppsprengdu verði á uppboði í Reykjavík:
Vel við skál og
hækkaði prísana
Listmunauppboð var haldiö i
Reykjavík um helgina. Voru 43
málverk boðin upp. Fóru þau öll á
uppsprengdu verði, einhverju því
hæsta sem þekkst hefur hérlendis.
Er ástæðan sú að meðal þeirra sem
sóttu uppboðið var maður einn, vel
við skál. Bauð hann í nær allar
myndirnar og spennti þannig verðið
upp.
Listmunauppboðiö var haldið að
Gallerí Borg. Var þar margt um
manninn enda góð verk í boði. Fyrr-
nefndur maður mætti með fyrra
fallinu og hóf þegar frammíköll.
Bauð hann í hverja einustu mynd
hvað eftir annað. Þegar upp var
staðið hafði hann sjálfur keypt tíu
máiverk fyrir hundruö þúsunda. Hin
málverkin keyptu aðrir uppboðs-
gestir á mun hærra verði en talið var
að fengist fyrir þau þegar þeir
reyndu að yfirbjóða manninn.
„Þetta er rétt. Ég get ekki neitað'
þessu,” sagði Olfar Þormóðsson,
einn eigenda Gallerí Borgar. „Það
var lítið hægt aö gera við þessu en
undir það allra seinasta létum við til-
boð hans sem vind um eyru þjóta.”
Dýrasta myndin fór á 285.200
krónur sem er eitt alhæsta verð sem
fengist hefur fyrir málverk á
uppboði hérlendis að sögn tJlfars
Þormóðssonar. Var það mynd frá
Húsafelli eftir Ásgrím Jónsson. I þá
mynd bauð fyrrgreindur maður en
öðrum var slegin hún. Sú næstdýr-
asta var einnig eftir Ásgrim, falleg
mynd frá Nesstofu. Var hún slegin á
235.600. Er þetta verð með söluskatti.
— En hvers vegna var maöurinn
ekki settur út fyrir?
„Það gátum við ekki gert. Hann
keypti tíu málverk. Hann hefur
nokkum frest til að greiða þau. Geri
hann það ekki munu þeir sem voru
með næsthæstu tilboðin fá að ganga
inn i samninginn. Þá munum við úti-
loka manninn frá uppboðum okkar i
framtíðinni,” sagði tílfar
Þormóðsson.
-KÞ.
Sjómannaverkfall:
ALLT
STRAND
Hvorki rekur né gengur í
samningamálum sjómanna og
viðsemjenda þeirra. Eins og kunnugt
er hófu um 4000 yfir- og undirmenn á
fiskiskipunum verkfall síðdegis á
sunnudag.
„Mér sýnist langt í land,” sagði
Guðlaugur Þorvaldsson ríkissátta-
semjari í samtali við DV í morgun.
„Við sáum á um þriggja tíma fundi í
gær en það gekk ekki neitt.”
— Áttu von á löngu þófi?
„Ég veit það ekki, en eins og
staðan er nú er útlitiö langt frá þvi að
vera bjart,” sagði Guölaugur Þor-
valdsson.
Deiluaðilar komu saman til fundar
i húsakynnum rikissáttasemjara
klukkan 10 i morgun. Áttu menn
von áiöngumfundi
-KÞ.
Guðlaugur Þorvaldsson ríkissáttasemjari og Óskar Vigfússon, formaður Sjómannasambandsins, rssða
mólin milli funda i húsakynnum sáttasamjara f gær. Að baki þairra aru samninganefndarmenn.
DV-mynd GVA.
Bílstjórarnir
aðstoða
senDiBiLnSTöÐin
LOKI
Fyrsta - annað og . . .
hlkk . . . þriðjal
Viöskiptaráðherra vill ríkisbanka og einkabanka að jöfnu:
„FÆKKUN BANKANNA
MED SAMQNINGU”
„Fækkun viðskiptabankanna
veröur ekki meö þeim hætti að
elnhver bankanna verði lagður
niður, hvorki tJtvegsbankinn né aðr-
ir. Sérstök nefnd vinnur aö tillögum
um þessa fækkun. Fyrirmæli mln til
hennar voru að leggja fram tillögur
um fækkun viöskiptabanka með
sameiningu," segir Matthias Á.
Mathiesen viðskiptaráðherra.
1 samtali DV viö Steingrim Her-
mannsson forsætisráðherra i siðustu
vlku mátti skilja á honum aö Otvegs-
banklnn yrði lagður undir Búnaöar-
bankann eöa þann banka og Lands-
bankann. Forsætisréðherra lýsti
áður þeirri skoðun slnni aö hann teldl
raunar elnn rikisbanka nóg. Þeir eru
nú þrir.
Viðsklptaráðherra segir alls ekki
útilokað að fækkun banka nái elnnig
til einkabankanna. „Ef nefndin
kemst að þeirri niðurstöðu að slíkt sé
æskilegt veröur það skoðað. Þótt
rikisstjómin hafi ekki vald tli þess að
ákveöa samelningu annarra banka
en ríkisbanka má hugsa sér
samninga um viötækari sameiningu.
Raunar hef ég verið þeirrar
skoöunar að æskileg væru helminga-
skipti milli rfitisbanka og einka-
banka,” seglr Matthias A. Mathie-
sen. Til þess að uppfylla slíkar óskir
þarf nánast aö býlta bankakerfinu.
Nú eru rikisbankamir með 76% á
móti 24% einkabankanna, miðað við
innlán. Hlutföllin breytast i 64% og
36% fyrir rfltisbankana séu spari-
sjóöir taldir með elnkabönkunum.
HERB.
FulltrúarASÍ
ogVSÍáfundum:
„Erum að undir-
búa viðræð ur"
— segir Ásmundur
Stefánsson
„Þessir fundir voru ákveðnir
með samningunum í haust. Þá var
ákveðið að tveir menn frá hvorum
samningsaðila skyldu hittast og
fara yfir þau atriði sem heist kæmu
til greina i samningum og undirbúa
samningaviðræður,” sagði Ás-
mundur Stefánsson, forseti Alþýðu-
sambands íslands, i samtali viö
DV.
Undanfamar vikur hafa
fulltrúar ASÍ og VSÍ hist nokkrum
sinnum, tveir fulltrúar frá hvorum.
Eru þaö Ásmundur Stefánsson og
Bjöm Bjömsson hagfræðingur
fyrir hönd Alþýðusambandsins og
Magnús Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri VSI, og Vilhjálmur
Egilsson hagfræðingur fyrir hönd
Vinnuveitendasambandsins.
„Þetta em ekki samningafundir
enda er ekki búið að leggja neltt
ákveðið fyrir á þeim vettvangi,”
sagði Ásmundur.
— Er þetta undirbúningur fyrir
viðræður við ríkisstjómina?
„Ég get ekki sagt til um það að
svo stöddu. Við erum einungis að
tala viö atvinnurekendur og ekki
hægt aö segja núna hvað kemur ná-
kvæmlega út úr þeim samtölum,”
sagöi Ásmundur Stefánsson.
Hann sagði að næsti fundur
þeirra fjórmenninga væri áform-
aöur ikringumnsestuhelgi. -KÞ.
Milljónirvantar
til húsbyggjenda
Húsnæölsmólastofnun rikisins
vantar 185 milljónir króna til að
geta staðlð við skuldbindingar
sinar, Alexander Stefánsson
félagsmálaréöherra greindi frá
þessu á Alþingi í gær. Sérstökum
fyrlrspumum var belnt til hans ut-
an dagskrár um greiðsluvandræöi
Byggung. Sagði ráðherrann að
mfilið lægi fyrlr hjá fjármála-
ráðuneytinu tfl ákvörðunar. Þessu
máli tengdist aö lánsfjárlög 1985
væruennóafgreiddáAlþingi. -ÞG.