Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1985, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1985, Síða 15
DV. ÞRIÐJUDAGUR19. FEBRUAR1985. 15 Tíðarandinn Tíðarandinn Tiðarandinn Tíðarandinn Tíðarandinn Tölvufræðslan: MARKMID- 0 ER MIKIL OCHAGNÝT Mikil þekking á stuttum tíma „Eftir þetta námskeið á maður að átta sig vel á því til hvers tölvur eru notaðar. Að okkar mati er þetta besta blandan á svo stuttum tíma. Markmiðið er mikil og hagnýt þekking á stuttum tíma. Við höfum einnig lagt geysilega vinnu í að gera góð og aðgengileg námsgögn.” Eftir að hafa verið einu sinni á nám- skeiði þá fá allir sem hyggjast halda áfram 20 prósent afslátt. önnur námskeið Það eru mörg námskeið önnur sem eru haidin hjá Tölvufræðslunni. Þar eru haldin mörg námskeið fyrir sér- fræðihópa. Það eru námskeið fyrir: lækna, verkfræðinga og kennara. Og eftir grunnnámskeiðiö er hægt að velja um fjölmörg framhaldsnámskeið á því sviði sem áhuginn beinist að. ÞEKKING „Tölvur eiga eftir að hafa meiri áhrif en þær hafa núna. Þær eru undir- staða þess aö lifskjör batni. Nú hefur aðeins verið stigið fyrsta skrefið. Siðan kemur aukin tölvutækni i sambandi við sjálfstýringarbúnað,” segir Ellert Olafsson, framkvæmdastjóri Tölvu- fræðslunnar. Það sem Ellert á við, þegar hann talar um sjálfstýribúnað, er það sem oft er kallað „róbotar” eða vélmenni. Menn hafa oft ímyndað sér að vél- mennin eigi eftir að taka völdin og ímyndað sér þessi vélmenni í manns- mynd. Ellert segir að reyndar sé þessi tölvustýring þegar hafin á mörgum sviöum í atvinnulífinu. Rennibekkjum, sögum og mörgu fleira er nú þegar stjómað af tölvum eða vélmennum. Áhersla á hagnýtt nám En víkjum nú að skólanum sjálfum. Skólastjóri þar er dr. Kristján Ingvarsson verkfræðingur. Auk hans vinna fjölmargir við kennslu á nám- skeiðum skólans, m.a. 10 verkfræðing- ar. Hjá Tölvufræðslunni er boðið upp á fjölmörg námskeið af ýmsu tagi. Við spyrjum fyrst um byrjendanám- skeiðið. „Við leggjum áherslu á að það sé hagnýtt nám og að þeir sem eru á þess- um námskeiðum geti nýtt sér það í starfinu,” segir Ellert. Byrjendanámskeiðin fara fram á kvöldin í fjögur skipti i hálfan mánuð. Þennan hálfa mánuð sem námskeiðið stendur yfir geta þátttakendur komið allan timann í skólann og æft sig við tölvumar, sér að kostnaðarlausu. Fyrsta kvöldið fer i almenna kynn- ingu á tölvum. Þar er skyggnst inn í tölvumar og hvernig hver hluti þeirra starfar og hvaða not eru af þeim. í kennslustund hjá Tölvufræðslunni. Nsesta kvöld er síðan fjallað um þaö hvemig tölvurnar em mataðar. Til þess að þær geti starfað verður að láta þær vinna eftir ákveðnu forriti. Á nám- skeiöinu fá þátttakendur nasasjón af einu forritunarmáli sem nefnist Basic. En flestir ættu nú að vita að til eru fjöl- mörg slík mál. Þriðja kvöldið er síðan fjallað ítar- lega um ritvinnslu. Það er einmitt rit- vinnsla sem getur komið allmörgum að gagni í sambandi við notkun á tölvum. „Þið blaðamenn ættuð aö reyna að nýta ykkur það meira,” segir Ellert. Fjórða kvöldið er síðan reynt að skyggnast inn í það sem nefnt er töflu- reiknar. Það fyrirbæri er í raun risa- vaxin tafla þar sem hægt er að setja upp allt á milli himins og jarðar. Launagreiðslur geta verið í slíkri töflu svo eitthvað sé nefnt. Hvert kvöld er kennt í þrjár klukku- stundir og greiða menn fyrir þetta 3600 krónur. Er þörfin fyrir hendi? Ellert segir að það að læra að þekkja tölvur geti hjálpað mörgum i starfi. Á þessu sviði hefur átt sér stað bylting og allir sem hafa einhverja þekkingu á tölvum tryggja stöðu sina sem starfs- kraftar. „Það er ekki á neinu sviði sem hægt er að læra eins mikið á skömmum tíma og á tölvusviðinu, ” segir Ellert. Hjá Tölvufræðslunni er eitt nám- skeið sem f jallar um heimilistölvur og reyndar annað sem er einungis ætlað fyrir unglinga. Ellert segir aö hugtökin heimilis- tölva og einkatölva séu ekki alveg ljós. Hann telur að það eigi eftir að verða miklar breytingar í sambandi við nota- gildi tölva á heimilum þegar tölvunet Pósts og síma kemur í gagnið. Þá geta tölvueigendur haft samband við aðrar tölvur. Fengið upplýsingar í tölvu- bönkum og sent öðrum upplýsingar. AFH. Framsýn: KRAKKARNIR VIUA HAFA „AKSJÓN” í KENNSLUNNI Nemanda leiöbeint á tölvu hjá Stjórnunarfólaginu. Stjórnunarfélagið: SINNUM ÞORFUM ATVINNULÍFSINS „Það hafa allir tvímælalaust mikil not af því að fara á tölvunámskeið. öll endurmenntun er að aukast með vax- andi tækni á öllum sviðum,” segir Diðrik Eiríksson, framkvæmdastjóri tölvuskólans Framsýnar, er hann er spurður um notagildi tölvunámskeiða. Það er mikið um að vera hjá Fram- sýn og mörg námskeið í boði. Hægt er að velja um að taka grunnnámskeið annaðhvort á kvöldin eða daginn. Það stendur yfir í f jóra daga þegar það er tekið á daginn. Á kvöldin eru það 6 skipti og í hvert skipti er kennt í þrjár kennslustundir. Bæði námskeiöin standa yfir í hálfan mánuö. Fyrir þetta eru síðan greiddar 4500 krónur. Innifal- in eru öll námsgögn og kaffi eins og hver getur í sig látið. Þegar nám- skeiðinu lýkur fá svo allir viður- kenningarskjal. Á meðan námskeiðið stendur yfir geta svo allir komiö og fengið að æfa sig á tölvunum. Á þessum grunnnámskeiðum er farið í öll undirstöðuatriði. Þar má nefna ritvinnslu, Basic, upplýsinga- skrá og margt fleira. 40 námskeið Hjá Framsýn er hægt að velja um 40 námskeið af ýmsum tegundum. Þetta eru námskeið sem haldin eru fyrir einstaklinga og fyrirtæki. „Hér er allt i fullum gangi frá niu til ellefu á kvöldin,” segir sjálfur skóla- stjórinn sem er Eiríkur Þorbjömsson. Hjá Framsýn er námskeið fyrir unglinga á aldrinum 12—16 ára. Fyrir þeim er mikill áhugi. „Já, þau eru alltaf i gangi hjá okkur. Það er reynt að taka mið af því að verið er að kenna unglingum. Þarfir þeirra eru nokkuð á annan veg en hjá þeim fullorðnu sem eru að læra hér. Krakkamir vilja hafa „aksjón” í kennslunni. Þeir eru einnig mjög áhugasamir. Aður en þeir byrja eru þeir svo spenntir að þeir eru byrjaðir aö hringja hingað viku fyrr tÚ aö athuga hvort þetta sé nú ekki allt rétt með hvenær þeir eigi að byrja,” segir Eiríkur. Hann segir að yfirleitt séu þetta krakkar sem eiga eða hafa aðgang að tölvum. Oft séu þaraa krakkar sem hafa náð mjög miklum árangri í notkun tölva. Fyrir þá sem eru áhugasamir er oft hægt að búa til forrit i tengslum viö námsefnið. En hvað um heimilistölvumar? Er þetta ekki bara ein gerviþörfin til viðbótar sem er verið að þrengja inn á fólk? „Staðreyndin er oft sú að heimilis- tölvurnar eru notaöar á heimilum fyrstu þrjá mánuðina í að spila tölvu- leiki. Eftir það fer áhuginn að dvína og eftir 5 mánuöi er tölvan komin upp í skáp. Það er ekki fyrr en krakkarnir á heimilinu fara aö hafa áhuga á að gera eitthvað sjálf á tölvuna aö hún er tekin niður úr skáp aftur. Þau geta búið til ýmis forrit svo sem yfir plötusafniö eða í sambandi við stærðfræðina í skólanum. Þó svo að krakkarnir séu einungis í tölvuleikjum er það staðreynd að það skerpir hugann og eykur viðbragðs- flýti þeirra,” segir Eiríkur, skólastjóri skólans. -APH. „Það segir sig sjálft að ef menn kaupa sér tölvur þá veröa þeir að læra á þær. Okkar stefna er sú aö kenna fólki á þær tölvur sem það starfar við og á þau forrit sem það notar. Þaö er mitt mat að of mikiö sé gert úr því að hægt sé að læra á tölvur. Það er í raun nær ógemingur að læra á tölv- ur. Hins vegar er hægt að læra á það kerfi sem unnið er við hverja stund- ina,” segir Friðrik Sigurðsson, for- stoðumaður tölvufræðslunnar hjá Stjómunarfélaginu. Stjórnunarfélagið er stofnaö af mörgum fyrirtækjum og tilgangur þess er að sinna þörfum þessara fyrir- tækja og reyndar annarra á sviði endurmenntunar. Þar tekur tölvu- sviðiö stóran skerf. Friðrik segir að líklega hafi verið gert of mikið úr því að allir þurfi að fara á svokölluö grunnnámskeið. Ef einhver kaupir sér tölvu til að vinna við ritvinnslu er mikilvægast að hann læri að nota tölvuna til hlítar á þvi sviði. En það getur verið ágætt að fara á grunnnámskeið til að afla sér undir- stöðuþekkingar og skyggnast inn í upp- byggingu tölvunnar. Grunnnámskeið eru haldin hjá Stjómunarfélaginu og kosta þau 4500 krónur íslenskar. „Það er yfirlýst stefna hjá okkur að sinna þörfum atvinnulífsins,” segir Friðrik. Hann segir að algengt sé að fyrirtæki fjárfesti í tölvum og þá verður að kenna starfsfólkinu hjá viðkomandi fyrirtæki á tölvumar. Stjómunarfé- lagiö sér um aö útbúa og aðlaga nám- skeið þörf um slíkra hópa. Hjá Stjómunarfélaginu er valinn maður í hverju rúmi eins og hjá hinum tölvuskólunum. APH.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.