Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1985, Side 5
DV. MÁNUDAGUR 4. MARS1985.
5
Ársútgjöldin eru
744 þúsund krónur
Vísitöluf jölskyld-
an þarfað halda
vel á spöðunum:
Ef einhver undrast það hve pyngj-
an hans tæmist fljótt eftir hverja út-
borgun getur hann huggaö sig viö aö
þannig er þaö einnig hjá vísitölufjöl-
skyldunni. Samkvæmt útreikningum
Hagstofunnar eru útgjöld þessarar
fjölskyldu 744 þúsund krónur ó árinu,
mælt á verðlagi í byrjun ársins.
Vísitölufjölskyldan er dálítið ein-
kennileg. I henni eru tveir fullorðnir
og tæplega tvö börn, telst sem sagt
vera 3.66 einstaklingar. Hagstofan
fékk margar fjölskyldur í liö með sér
í lok síðasta áratugar sem héldu bók-
hald yfir útgjöld sín. Þannig fékkst
meðaltal sem enn er notast við og
síðan framreiknað.
Vert er aö hafa í huga að þessi
framreikningur lýsir ekki endilega
stöðunni í dag. Hugsanlegt er að fólk
geti sparaö og spari ýmislegt sem
það gat látið eftir sér þegar könnunin
var gerð. Þá eru í þessum fram-
reiknuðu útgjöldum kostnaðarliðir
sem ekki falla endilega til jafnt og
þétt ár eftir ár. Sem dæmi má nefna
að húsnæðiskostnaöur er metinn 10—
11% af heildarútgjöldunum. Siunir
eru komnir neðar eða geta sparað
viðhald um tíma. Aðrir eru þó auðvit-
að ofar, sumir svo um munar.
HERB
Verðbólguhraðinn
er nú nálægt 26%
lækkar úr 59% og stefnir í 12%
Eftir öllum sólarmerkjum að dæma
er hraði verðbólgunnar nú í mars og til
maíloka 5,9%, sem jafngildir 26% verð-
bólgu á 12 mánaða tímabili, ef sami
verðbólguhraði héldist. Þetta er mikil
breyting frá síöustu þrem mánuöum.
Og enn mun verða stórbreyting á tíma-
bilinu júní, júli og ágúst. Þá verður
verðbólguþróunin komin niður í 12%
miöað við 12 mánuði.
I mánuðunum desember, janúar og
febrúar komu af fullum þunga fram
afleiðingar „kollsteypunnar” í nóvem-
ber á síðasta ári. Á þeim þrem
mánuöum varð verðbólguhraðinn
12,3%, en það hefði þýtt 59% verðbólgu
á heilu ári með sama verðbólguhraða.
Nú er sem sé verðbólgan komin niður í
26% og stefnir i 12%. Ekki þýðir að spá
lengra fram í tímann.
Frá gengisfellingunni 20. nóvember í
vetur hefur orðiö mjög misjöfn gengis-
þróun, eftir gjaldmiðlum. Dollarinn
hefur hækkað um 7,6% en Evrópu-
gjaldmiðlar hafa lækkað að meðaltali
um 4%, miðað við krónuna. Að mati dr.
Sigurðar B. Stefánssonar, hagfræðings
hjá Kaupþingi hf., væri það helst
breyting á gengisskráningu krónunnar
sem raskað gæti spám um þróun verð-
lagsmála og verðbólgu, hækkun verð-
lags. En framangreindar spár eru frá
honum runnar.
HERB
Selfoss:
Frimurarar
skemmta eldri
borgurum
Frímúrarar á Selfossi buðu eldri
borgurum nýlega í kaffidrykkju í húsa-
kynni sín að Hrísmýri 1, Selfossi. Var
fjölmenni mikiö og veitt af mikilli
rausn. Af góðu iburðarmiklu brauði
sem konur félagsmanna bökuðu.
Borðin voru svo vel skreytt að
við höfðum ekki séð eins flottar veit-
ingar og íburðarmiklar.
Páll Jónsson tannlæknir var veislu-
stjóri og bauð gesti velkomna með
stuttri og skemmtilegri ræðu. Kjartan
T. Ólafsson vélstjóri, Irafossi, var
kynnir og stjórnaði almennum söng.
Var sungið af mikilli raust. Ræður
voru margar fluttar, athyglisverðar,
skemmtilegar og fróðlegar. Svava
Gunnarsdóttir söng einsöng og undir-
leik annaðist Þórlaug Bjarnadóttir.
Brynleifur H. Steingrímsson læknir
fluttá frumort kvæöi. Rúmlega 50 eru í
áðurgreindri frímúrarareglu og það
var ekki frítt við að okkur, eldri
borgurunum, brygði við þegar við
komum og sáum alla gestgjafa okkar
svona fína og flotta í flottum bún-
ingum, kjólfötum og hvítt um hálsinn.
Var mikið tignarleg reisn yfir þessum
myndarlega hópi. Frímúraramir eiga
efri hæð í áðurgreindum húsakynnum
sínum sem eru 200 fermetrar að stærð.
Og innréttuðu það sjálfir í sjálfboöa-
vinnu. Dáöust margir að þeirra
f jöihæfni og dugnaði við vinnuna. Því
þetta eru nú allt embættismenn og það
héldu allir að þeir kynnu ekkert að
vinna svona.
Ein kona sagði, þegar við komum inn
í anddyri hússins: „Mér varð nú bara
hálfillt við að sjá svona marga menn i
svona fínum fötum. Eg hef aldrei séð
nema svona sex þegar verið er að
koma einhverju stórmenni ofan í
jörðina.”
Eg hef ekki séö öllu ánægöari
eldri borgara heldur en þegar við
fórum ánægð og glöð frá þessum gest-
gjöfum okkar. -Regina - Selfossi.
Húsnæðisskortur Hótel-
og veitingaskólans
Iðnfræöslunefnd Iðnnemasambands
Isiands vill vekja athygli á þeim gífur-
lega húsnæðisskorti sem Hótel- og
veitingaskóli Islands á við að glíma.
Þetta vandamál er margra ára gamalt
og hefur oft verið vakin á því athygli.
Iönnemar segja það óhæft meö öllu
að á meðan veitingahúsum og matsölu-
stöðum fjölgar svo mikið sem raun ber
vitni skuli yfirvöld menntamála
algjörlega hundsa þá auknu mennta-
þörf sem þessi þróun hlýtur að hafa í
för með sér. Iönnemar sætti sig ekki
við að iðnmenntun á tslandi sé sett á
lægri stall en aðrar menntabrautir.
Iönnemar vilja ekki sætta sig við að
verða jafnvel að þola seinkun á fyrir-
huguðum námslokum vegna húsnæðis-
skorts.
INSI kallar menntamálaráðuneytið
til ábyrgðar og hvetur um leið til að
iðnnemum í landinu verði skipað í
þann sess sem eðlilegt er, þ.e.a.s. á við
bóknámsbrautir. -þh.
Á laugardagskvöld, rótt fyrir niu, lentu tveir bilar í árekstri á Bústaðavegi við Ráttarholtsveg. Bilstjóri bils-
ins sem var á austurleið œtlaði að aka inn á bílastœði en fór i veg fyrir bilinn sem kom úr vesturátt. Annar
ökumanna var fluttur á slysadeild til rannsóknar.
SGV/DV-mynd S.
METTLER OG SAUTER
IÐNAÐARVOGIRNAR ERU
TRAUSTAR OG NÁKVÆMAR.
EI200, nýi vogarhausinn frá SAUTER er á svo hag-
stæðu verði að SAUTER vogarpaliur ásamt EI200
kostar minna en mekanísk vog. T.d. kostar 240 kg
pallur ásamt hausnum EI200 kr. 73 þús. án sölu-
skatts.
Nákvæmnin nemur 10 gr. allt vigtunarsviðið. EI200 er
varinn fyrir vatni og ryki samkvæmt IP65. EI200 má
fá með 2 úttökum fyrir tengingu við tölvu og prentara.
önnur nýjung frá SAUTER eru vogarpallar uppbyggðir að öllu leyti úr ryðfríu
króm-nikkel stáli, því tilvaldar þar sem salt og vatn eru fyrir hendi. SAUTER
vogirnar byggjast á METTLER rafeindatækni, þ.e.a.s. á því besta sem til er.
Góð og örugg þjónusta.
Byggmgavörusýning í Holtagörðum
Umfangsmikil byggingavörusýning
er nú í Holtagörðum. Lögð verður aðal-
áhersla á vörur fyrir baðherbergi og
ýmis rafmagnsheimilistæki.
Byggingavörudeild setur upp þrjú
fullbúin baðherbergi og einn Stóran
saunaklefa. Verða kynntar hinar
margvíslegu vörur á þessu sviði sem
deildin hefur á boðstólum og einnig
notar hún tækifærið til að kynna aörar
söluvörur og starfsemi sína.
Metller-Sauter. Frá míkrógrammi i 6 tonn.
Einkaumboð á íslandi.
SAUTER
KRISTINSSON HF.,
Langagerði 7,108 Reykjavík. Sími 30486.
T/UUtUuUL
-ÞH.