Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1985, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1985, Blaðsíða 17
DV. MÁNUDAGUR 4. MARS1985. 17 Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Nær Treholt-málið til íslands? Vestri skrifar: Jæja, þó er Islandsvinurinn Arne Treholt aftur kominn í sviösljósið. Ekki seinna vænna. Þeir voru þó nokkrir hér á landi, sem hafa haft saman við hann að sælda, þótt ekki væri nema í hádegisverðarboöunum frægu, sem hann var vanur aö halda, meðan hann var og hét. En það var einnig í gegnum Evensen karlinn, sem sumir landa okkar báru hlýjan hug til Treholts. Evensen var nefnilega líka hollvinur Islands, á meöan hann var og hét, og bauð til margra góðmáltíöa á erlendri grund. Skyldi Evensen karlinn verða kvaddur tL1 að vitna við réttarhöldin í Oslo? Tre) olt var nú allténd hans hægri hönd, bæði á fundum í Moskvu ogannarsstaðar! Og það eru margar spuming->r, sem brenna á vörum alvörufrétta- manna og einnig leikmanna um þennan dæmalausa njósnara, sem Ame Treholt virðist hafa verið. Til dæmis er spurt víða: Var það Ame Treholt sem lék sér að Evensen, yfirmanni sínum, og fór á bak við hann árum saman — eða var það Evensen sem kom upp um Treholt? Sumir íslenskir embættismenn hafa látiö þau orð falla, meira aö segja opinberlega, það var að vísu rétt eftir að Treholt var tekinn fastur — að Evensen karlinn hefði ekkert vitað um tómstundaiðju Treholts, hægri handar sinnar! — Ef svo er, þá er eitt víst, og þaö er að hann hefur veriö litiö gefinn maður — í það minnsta enginn mann- þekkjari. Evensen hlýtur þó að hafa vitað um lifsmáta Treholts, eða hvað? En nú er Evensen karlinn orðinn dómari i Haag, viö alþjóöadómstólinn þar, ef ekki háyfirdómari! Hvað þýðir það og hvers vegna er hann þar niður kominn? Um þetta spyrja margir nú. Einnig spyrja margir hvort dómarar við Haagdómstólinn séu svo friðhelgir að ekki megi kalla þá til vitnis í njósna- máli. — Ef svo fer að Evensen verður ekki kallaður til vitnis i málinu, þá er það sönnun þess að honum hefur verið „komið í starf ” sem dómara til þess að veröa ekki leiddur fyrir rétt sem vitni! Þetta er þó með ólikindum og verður vart trúað. En svo mjög sem Islands er getiö i réttarhöldunum, vegna skjala sem Treholt á að hafa afhent Rússum um mikilvægi Islands, er meira en skrýtið ef ekki veröur einhver tilkallaður af Islands hálfu, sá eða þeir, sem mest höföu samskipti viö Treholt og hans flokksmenn og skoöanabræður á þeim tima! Á velmektarórum Treholts. Hér sést Evensen klingja glösum við rússneska viömælendur é einni hafróttarráðstefnunni. Ame Treholt er aldrei langt I burtu (yst til vinstri). ER MINNIÞITT TRYGGT? REYNDUAÐ LEGGJA ÞETTA SPIL Á MINNIÐ OG FLETTU BLAÐINU í verði Eins og þú veist, þá hefur dollarinn styrkt mjög stöðu sína undanfarna mánuði. Þetta hefur leitt til verðlækkunar sænsku krónunnar, og þar með gert okkur mögulegt að bjóða Volvo-bíla á enn lægra verði. Volvosalurinn er opinn alla virka daga frá kl. 9.00 til 18.00, og á laugardögum frá kl. 13.00 til 17.00. w SUÐURLANDSBRAUT 16 - SÍMI 35200
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.