Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1985, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1985, Síða 18
18 DV. MÁNUDAGUR 4. MARS1985. Þeir skipta þúsundum og eru úti um allt: SJ1JKRASAGA HASSISTANS Hinn dœmigerði kannabisneyt- andi hefur þrjár sambúðir að baki, á tvö börn og er alltaf með annan fótinn i foreldrahúsum. Þar til pabbi gamli gefst upp á honum. DV-mynd S6I- nes. Sjúkrasaga kannabisneytandans hefst þegar hann er 13—14 ára. Hann smakkar áfengi í fyrsta skipti, fyrsta skrefið er stigið. Þegar hann er orðinn 15 ára er hann farinn að drekka um hverja helgi. Verður und- antekningarlítið alltaf mjög öivaður. En heldur sig við eitt kvöld. Ári síðar á hann það til að drekka tvo daga um helgar. Hann lendir oft í vand- ræöum og er litið tii friðs þar sem hann fer. Þrátt fyrir allt lýkur hann grunnskóla með ágætum árangrí. Viö 17 ára aldur verða þáttaskii í lífi hans. Hann kynnist kannabisefnum. Að eigin mati hefur hann himin höndum tekið. Hann dregur mjög úr áfengisneyslu, hættir henni jafnvei alveg. Hann verður upptekinn af hassinu og talar niðrandi um áfengi. Rétt fyrir tvítugt flosnar hann upp frá menntaskólanámi. Er farinn að nota hass daglega í löngum skorpum en tekur þó stúdentspróf utanskóla. Þegar hér er komið sögu, árin orðin tvö um tvhugt, er hann farinn að drekka með hassinu og notar amfetamín um helgar. Peningavandræði fara að segja til sín. Hann gætir þess að vera alltaf með annan fótinn í foreldrahúsum. Enda hefur hann þrjár sambúðir að baki og á tvö börn. Hann dundar gjarnan við félagsfræðinám í Háskóla íslands. Það eru yfirleitt þrír þættir sem verða þess valdandi að hinn dæmigerði kannabis- neytandi leitar aðstoðar á sjúkrastöðinni Vogi. A) Honum gengur illa að stunda námið. Heimilislifið er í rúst ef það er þá eitthvað lengur. B) Hann er orðinn þunglyndur. Timburmenn og fjárhagsáhyggjur liggja þungt á honum. Hann örvæntir og er í sjálfsmorðshugleiðingum þegar verst lætur. C) Pabbi gamli er búinn að gefast upp á honum. Hann getur ekki lengur notið skjóls og fyrirgreiðslu í foreldrahúsum þar sem hann hefur verið með annan fótinn frá því hann flutti að heiman. Kannabisneytandinn leitar aðstoðar á sjúkrastöðinni Vogi. Fer i slopp, lætur loka sig inni og viðurkennir mistök sín. Hann verður að byrja upp á nýtt. -EIR. Tilfinninga- lega flatir hassistar „Mér þykir vanhæfni alls konar einkenna þaö fólk sem ánetjast hefur kannabisefnum,” sagöi Þórarinn Tyrfingsson, læknir á sjúkrastöðinni Vogi. „Þessir kannabisneytendur eru yfirleitt innhverfir, ákaflega uppteknir í eigin hugarheimi og vöntun á raunveruleikaskyni er áberandi. Þeir minna mig helst á fólk sem er að horfa á lélega video- spólu; þeir eru með sama svipinn á andlitinu.” Þórarinn Tyrfingsson ætti að vita hvað hann er að tala um. Þeir eru ekki fáir, kannabisneytendumir sem hafa gefist upp í vítahring áfengis og lyfja og leitaö hælis á Vogi. Þar leggja þeir spilin á boröið, fara í slopp, inniskó og biðja einfald- lega um hjálp. Þó svo það taki 5 vikur í einangrun. „Röksemdafærsla og þanka- gangur kannabisneytenda er öðru- vísi er gerist og gengur og eðlilegt þykir. Þeir geta hengt sig í eitt orð í miðjum samræöum og spunniö út frá því alls kyns „spekúlasjónir” og gleyma fyrir bragðið hvað um var rætt í upphafi. Það getur verið erfitt að halda uppi samræðum viö þetta fólk. Svo eru þeir svo tilfinningalega flatir í öllu látbragði að með ólík- indum er. Á meðan venjulegur „Kannabisneytendur eru yfirleitt innhverfir, ókaflega uppteknir i aigin hugarheimi og vöntun ð raunveruleikaskyni áberandi." alkóhólisti getur æst sig upp á háa cé út af smámunum þá situr kannabis- neytandinn og lætur sér ekki bregða. Framkoman virðist einhvem veg- inn dofin,” sagði Þórarinn Tyrfings- son, en bætti því við að þegar kanna- bisneytendur hættu að reykja hass löguðust þeir furðu fljótt og yrðu eins og venjulegt fólk. Tilfinningalífið yrðiafturmishæðótt. -eir. VAND- RÆÐI ÁVOGI Árlega koma 700 manns til meöferðar í sjúkrastöðinni á Vogi. Vandamál þessa fólks er ofdrykkja og fíkniefnaneysla. Þessi 700 manna hópur er að koma í fyrsta skipti í meðferö og eru þá ekki taldir með þeir sem koma æ ofan í æ. Einn fimmti hluti þessa hóps misnotar sannanlega kannabisefni í framhjáhiaupi með ofdrykkjunni. I aldurshópnum 20—30 ára misnotar aftur á móti einn af hverjum þrem kannabisefni. Meö misnotkun á kannabisefnum er átt við að viðkomandi neyti hass eða marijúana um hverja helgi heilt ár eða á hverjum degi í hálft ár. Þá misnotar helmingur kannabis- sjúklinganna einnig amfetamín. Af þessum 700 manna hópi eru 60 sem hafa reykt hass daglega í 2 ár eða meira. Það eru tæp 10% af sjúkl- ingahópnum. -EIR. EITUR ÁEYJU ÁR ÆSKUNNAR 1985 Marijúana- málí Hæstarétti Á síöasta ári lagði fíkniefnalög- reglan hald á 112 kannabisplöntur hérlendis. „Þetta eru yfirleitt smámál og hefur þeim öllum lokið með dóm- sátt,” sagði Guðjón Marteinsson, fulltrúi við fíkniefnadómstólinn. „Þó man ég eftir einum sem ekki vildi una dómsátt og fór málið fyrir Hæstarétt. Maðurinn bar því við að kannabisplönturnar hefðu ekki verið til neyslu heldur hefði hann ætlað að reisa skjólgarð eins og tíðkast í framandi löndum. Hæstiréttur tók rök hans ekki til greina,” sagði Guðjón Marteinsson. -eir. Hassisti á sjötugsaldri Sjúklingagarðurinn á sjúkra- stööinni Vogi er ærið skrautlegur og kennir þar ýmissa grasa. Meðal sjúklinga má nefna 68 ára gamla konu sem átti í verulegum vandræðum með kannabisneyslu sína. Með reyknum drakk hún áfengi. Til fróðleiks má geta þess að í stórborgum erlendis nota rónar kannabisefni meðfram drykkj- unni. Algeng sjón er að sjá þá sitja á bekkjum fagurra skrúögaröa og láta hasspípuna ganga. Þeir þurfa minna af ódýra rauövíninu á meöan. -EIR. í erlendum stórborgum fó rónarnir sér gjarnan reyk með. rauðvininu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.