Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1985, Síða 27
DV. MÁNUDAGUR 4. MARS1985.
27
íþróttir íþróttir
B-keppnin íNoregi:
Pólverjar í
þriðja sæti
Frá Jóni E. GuAjónssyni, frótta-
manni DV í Noregi.
Pólverjar tryggðu sór þriðja sætið
i B-keppninni ó laugardag þegar
j>eir sigruðu Tékka, 26—25, í hörku-
spennandi leik i B-keppninni í
Drammen á laugardag. Mikið
jafnræði með liöunum ailan tímann
en Pólverjum tókst að hala sigur i
land í lokin. Gawlik var marka-
hæstur Pólverja með ótta mörk.
Thomas Bartek og Brestovansky
skoruðu átta mörk hvor fyrir
Tékka.
Ungverjar unnu öruggan sigur á
Spáni í keppninni um fimmta sætiö.
Sigruöu, 29—25. Markakóngurinn
Kovacs var óstöövandi. Skoraöi 10
mörk í leiknum fyrir Ungverja. Þeir
Campanes og Munzo skoruöu mest
fyrir Spán, sex mörk hvor.
Leikur Finnlands og Bandaríkjanna
um níunda sætið var mjög spennandi
enda þar aö miklu aö keppa. Sigurveg-
arinn hélt sæti sínu í B-keppninni,
tapliöiö féll í C-keppnina. 1 lokin stóðu
Finnar uppi sem sigurvegarar, 27—26.
Leikurinn í járnum allan timann, 13—
13 í hálfleik. Jan Runnberg skoraöi
mest fyrir Finna, átta mörk, en hjá
USA var Joe Storey markhæstur.
Einnig meö átta jörk.
Frökkum tókst aö sigra Hollendinga
í keppninni um ellefta sætiö, 29—25,
eftir framlengingu. Staöan eftir
venjulegan leiktíma 23—23 en eftir
fyrri hálfleikinn 11—8 fyrir Frakkland.
Bernard Gaffet var markhæstur
Frakka með 7 mörk. Lambert Schuurs
skoraöi átta mörk fyrir Holland.
-JEG/hsim.
ENN VAR MARITA
KOCH FUÓTUST
— sigraði í 200 m hlaupi
á Evrópumeistaramótinu í Aþenu
Austur-evrópsku konurnar voru
mjög sigursælar á Evrópumeistara-
mótinu í frjólsum iþróttum sem hóð
var í Aþenu um helgina. Sigruðu
nær undantekningalítið en órangur
var heldur slakur. Marita Koch,
hlaupadrottningin austur-þýska,
bætti enn einni skrautfjöðrinni i
hatt sinn þegar hún sigraði í 200 m
hlaupi með miklum yfirburðum.
I langstökkinu náöist hvaö bestur
árangur. Sovéska stúlkan Chistiakova
stökk yfir sjö metra og tvær aðrar
komu skammt á eftir.
Helstu úrslit urðu annars þessi:
200 m hlaup
1. Marita Koch, A-Þýsk. 22,82
2. Kirsten Emmelmann, A-Þ. 23,06
3. Els Vader, Hollandi 23,64
800 m hlaup
1. Ella Kovacs, Rúmeníu 2:00,51
2. Nad. Olizarenko, Sovét. 2:00,90
3. Christeana Cojocaru, Rúm. 2:01,01
Hástökk
1. Stefka Kostalinova, Búlg. 1,97
2. Susanne Helm. A-Þýskal. 1,94
3. Danuta Bukowska, Póll. 1,90
400 m hlaup
1. Sabine Busch, A-Þýsk. 51,35
2. Dagmar Neubauer, A-Þýsk. 51,40
3. Alena Bulirova, Tékk. 52,54
Langstökk kvenna
1. Gal. Chistiakova, Sovét. 7,02
2. Eva Murkova, Tékk. 6,99
3. Heike Dreshler, A-Þýsk. 6,97
4. Helga Radke, A-Þýsk. 6,89
Kúluvarp kvenna
1. Helena Fibingerova, Tékk. 20,84
2. Claudia Losch, V-Þýsk. 20,59
3. Heike Hartwig, A-Þýsk. 19,93
4. Mihaela Loghin, Rúmeníu 19,89
1500 m hlaup
1. Doina Melinte, Rúmeníu 4:02,54
Ribe sigraði
Ribe þarf nú afleins eitt stig úr síflustu
þremur leikjum sinum til afl 1. deildar
sœti í handknattleik verfli i höfn í Dan-
mörku. Fólagið lagfli Brönderslev afl
velli, 24-19, í gœr. Þeir Gísli Felix
Bjarnason og Gunnar Gunnarsson leika
mefl Ribe.
-SOS
2. Fita Lovin, Rúmeníu 4:03,46
3. Brigitte Kraus, V-Þýsk. 4:03,64
300 m hlaup
1. Agnese Possamai, Italíu 8:55,25
2. Olga Bondarenko, Sovéet. 8:59,03
3. Yvonne Murrey, Bretl. 9:00,94
60 m grindahlaup
1. Nellie Cooman, Hollandi, 7,10
2. Marlies Göhr, A-Þýsk. 7,13
3. Heather Oakes, Bretl. 7,22
-hsím.
Kári varð
__ t
stigahæstur
— á íslandsmeistara-
mótinu í bekkpressu
Kári Elisson fró Akureyri varð
stigahæsti einstaklingurinn ó Ís-
landsmeistaramótinu í bekkpressu
sem fór fram um helgina og hlaut
bikar að launum. Kári varð sigur-
vegari i 75 kg flokki — lyfti 52,5 kg.
Tvær stúlkur tóku þátt i mótinu.
Hildur Nieisen keppti í 60 kg flokki
— lyfti 52,5 kg og Margrét Óskars-
dóttir í 75 kg flokki, þar sem hún
lyfti 67,5 kg.
Daniel Olsen varð sigurvegari i
82,5 kg flokki - 130 kg.
Baldvin Skúlason sigraði i 90 kg
flokki — 140 kg.
Ólafur Sigurgeirsson varð sigur-
vegari i 100 kg flokki — 185 kg.
Vikingur Traustason sigraði i 110
kg flokki — 192,5 kg.
Hjalti Árnason bar sigur úr býtum
i 125 kg flokki - 192,5 kg.
SOS
Heimsmet í
baksundi
Igor Polyanski, Sovétrikjunum, setti
nýtt heimsmet í 200 m baksundi í gær í
landskeppni Austur-Þýskalands og
Sovétríkjanna í A-Berlín. Synti
vegalengdina á 1:58,14 mín. Eldra
heimsmetið átti landi hans Sergei
Zabalotnov, 2:58,41 mín., sett í Moskvu
í ágúst í fyrra.
hsim.
róttir íþróttir
í SPÖRTU
UTSALA
>
/
)
Á ÍÞRÓTTAVÖRUM.
Byrjuðum í morgun allsvakalega útsölu á
íþrótta- og vetrarvörum I verslun okkar í
Ingólfsstræti 8. Úrvalið er meiriháttar og verð
á hlutunum ekkert venjulega lágt. T.d.:
íþróttaskór, flest nr. frá 20 frá kr. 299,-
Fótboltaskór upp í nr. 39 frá kr. 399,-
Dömufimleika- og leikfimifatnaður frá kr. 250,-
Jakkar, frá kr. 900,-
Don Cano unglingaúlpur kr. 2.300,-
íþróttagallar barna frá kr. 800,-
íþróttagallar í fullorðinsstærðum frá kr. 999,-
íþróttabolir frá kr. 100,-
Golfskór, öll nr. frá 36 frá kr. 999,-
íþróttatöskur frá kr. 130,-
Alls konar hlífar frá kr. 40,-
Körfuboltaskór frá kr. 860,-
Leðurfótboltar kr. 350,-
Regnjakkar frá kr. 300,-
Ullarpeysur, Adidas kr. 800,-
Ullarvesti, Adidas kr. 600,-
Vattskíðahúfur frá kr. 150,-
Vetrarúlpur — vetrarjakkar — lúffur — eyrna-
skjól — skíðagleraugu — hanskar — húfur —
Moon Boots — vatthúfur — barnaskíðasett og
fleiri vetrarvörur.
ALLT Á ÚTSÖLU
Við rúllum boltanum til ykkar.
Nú er tækifærið til þess að gera
frábær kaup.
et
Póstsendum.
SPORTVÖRUVERSLUNIN _________
]
Laugavegur 49, simi 23610. Ingólfsstrœti 8, simi 12024