Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1985, Side 39
DV. MÁNUDAGUR 4. MARS1985.
sjaldgæf vegna kostnaðar við
auglýsingar.
Annað dæmi um áhrif verðlaunanna
er að sænska kvikmyndastofnunin
bauð Norðurlandaráði að sýna fulltrú-
um á þinginu hér sænska útgáfu sem
dæmi um vel heppnaða norræna sam-
vinnu á sviði kvikmyndagerðar. Það
tók þingið nokkurn tima að taka þessu
boöi og þegar til kom var búið að bóka
öll eintök í Svíþjóð, hún er þaö eftir-
sótt. En hugsunina á bak viö þetta
metur maður út frá þessum sam-
norræna þanka. Hrafninn er sænsk-ís-
lensk mynd um norska flóttamenn. Þá
hefur mér einnig verið boðið til Banda-
ríkjanna en bandariska kvikmynda-
stofnunin ætlar að sýna myndina í maí
og margt fleira er í deiglunni.
Myndin er auglýst í Svíþjóð sem gull-
verðlaunamynd fyrir leikstjórn og það
hefur haft áhrif á aðsóknina. Hins
vegar varð ég ekki var við að
menningarverðlaun DV hefðu haft
áhrif á aðsóknina í Austurbæjarbíói.
Það komu 1800 manns í allt við endur-
sýninguna.”
Fornaldarhetjurnar góðu
Hvaða hugsun er það sem liggur til
grundvallar í myndum þínum?
„I Oðali feðranna er verið að afklæða
ákveðna rómantiska ímynd. Það
sama er ég að gera í Hrafninn flýgur.
Fomaldarhetjurnar góðu, sem við lás-
um um í barnaskóla eins og Hriflu-
Jónas og aðrir ágætir hugsjónamenn
útbjuggu þær, birtast okkur í allt
öðru ljósi í þessari mynd. Þetta eru
ekki frjálsræðishetjur á glitklæðum
heldur flóttamenn eins og Afganir í
dag. Draumur þeirra er að geta snúið
aftur heim til Noregs. Þeir hafa ekki
minnstu tilfinningu fyrir að vera Is-
lendingar. Hins vegar hefur þessi túlk-
un ekki farið eins öfugt í fólk og
afrómantíseringin í Oðali feðranna
vegna þess að verið er að fjalla um
tíma sem er það fjarlægur að hann
ógnar ekki nútíð áhorfandans.
Hrafninn flýgur er mynd þar sem
hvert einasta fyrirbæri er búið til frá
rótum. Bara það hvemig heiðið hof leit
út veit enginn nákvæmlega — eða
Jakob Þór Einarsson og Edda Björgvinsdóttir i Hrafninum. „Þetta er
dæmisaga um mann sem kemur með köllun i heiminn og sigrar alla óvini
sína þar til sú svíkur hann sem elskar hann mest."
Gullverðlaun sænsku kvikmyndaakademiunnar fyrir leikstjórn.
guðimir Oðinn og Þór. Ég bjó Oðin til
úr feiknalega stórum rekaviðardrumb
sem síðan var brenndur sótsvartur —
svartur vegna þess að Oðinn er guð
hrafnanna. Líkneskið af Þór var hins
vegar roðið mörgum lítrum af nauta-
blóði — rauöu blóöi vegna þess að hann
er guð stríösins, blóðsúthellinganna.
Þetta hljómar afskaplega einfalt
þegar sagt er frá eftir á en að búa
þessa guði til og gefa þeim þann
magíska kraft sem þeir hafa í mynd-
inni kostaði feiknamikil heilabrot og
endalausar tilraunir. Þaraa komum
við aö fyrirbæri sem snertir höfundar-
verkið sjálft og gerir ýtrustu kröfur til
þess skáldskapar sem myndin byggir á
Höfundarverkið liggur ekki bara í að
búa til söguþráð og persónur heldur að
hugsa hvern einasta hlut sem birtist í
myndinni og láta þá mynda eina
heild.”
Gerpla
Svipar þá fornmönnunum í Hrafnin-
um ekki til þess sem lesa má um í
Gerplu?
„Kveikjan að Hrafninum var áætlun
sem ég gerði eitt sinn um að kvik-
mynda Gerplu. Hins vegar er Gerpla
tortímingarsaga þeirra manna sem
trúa á stál. Þar er teflt saman öfgum
stíls og efnis þannig að úr verður bók-
menntalegt meistaraverk.
Hrafninn er hins vegar skáldskapur
hins sjónræna — drama sem byggir á
ákveðinni dæmisögu um mann sem
kemur með köllun í heiminn og sigrar
alla óvini sína þar til sú svíkur hann
sem elskar hann mest. Þá er hann
píndur og deyr táknrænum dauða en
snýr svo aftur úr gröfinni eða haugn-
um á efsta degi til að kveöa upp hinn
endanlega dóm.
Staðreyndin er hins vegar sú að ég
hefði aldrei gert Hrafninn ef áætlunin
um Gerplu hefði aldrei verið gerð á sín-
umtíma.”
Verður Gerpla þá aldrei kvikmynd-
uð?
„Því verða aðrir að svara. Bók-
menntaleg meistaraverk búa oft yfir
sjálfstæðu lífi sem ekki gengur aö yfir-
færa í annan miðil nema með list-
rænum sjónhverfingum sem af-
skaplega fáum er gef ið að kunna. ’ ’
G.K.
jggBK&t'- David Bowie — Paul McCartney
— Limahl — Frankie goes to Hollywood og fleiri
mœttir til að taka þátt í þessari stórkostlegu útsölu.
Verðið er f rá krónum 99,- á plötum og snældum
MUNIÐ AÐ UTSALAN STENDUR AÐEINS UT
HLJOMPLOTUUTSALAIM OKKAR
ER í FULLUM GANGOvx v L m
í.aMMAP
fÆlki n n Pöstkröfur. FÁLKINN
Suðurlandsbraut 8, s. 84670. S. 685149. Laugavogi 24, s. 18670.