Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1985, Blaðsíða 48
48
DV. MÁNUDAGUR 4. MARS1985.
Peningamarkaður
Innlán með sérkjörum
AlþýAubankinn: Stjörnurelkningar eru
fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri.
Innistæður þeirra yngri eru bundnar þar ti!
þeir verða fullra 16 ára. 65—75 ára geta losað
innstæður með 6 mánaða fyrirvara. 75 ára og
eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikning-
arnir eru verðtryggðir og með 8% vöxtum.
Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár. Reikningarnir eru
verðtryggðir og með 9% vöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá líf-
eyrissjóðum eða almannatryggingum.
innstæður eru óbundnar og óverðtryggðar.
Vextir eru 31% og á'rsávöxtun 31%.
Sérbók fær strax 3C%nafnvexti 2% bætast
síðan við eftir hverja þrjá mánuði sem
innstæða er óhreyfð, upp í 36% eftir níu
mánuði. Ársávöxtun getur orðið 37.31%
Innstæður eru óbundnar og óverðtryggðar.
Búnaðarbankinu: Sparibók með sérvöxtum
er óbundin 35% nafnvöxtun og 35% árs-
ávöxtun sé innstæða óhreyfð. Vextir eru
færðir um áramót og þá bornir saman við
vexti af þriggja mánaða verðtryggðum reikn-
ingum. Reynist ávöxtun þar betri er mismun
bættvið.
Af hverri úttekt dragast 1.8% í svonefnda
vaxtaleiðréttingu. Sparibókin skilar hærri.
ávöxtun en almenn sparisjóðsbók á hverju
innleggi sem stendur óhreyft í tvo mánuði eða
lengur.
IAnaðarbankinn: Á tvo reiknmga í
bankanum fæst IB-bónus. Overðtryggðan 6
mánaða reikning sem ber þannig 36%
nafnvexti og getur náð 39.24% ársávöxtun. Og
verötryggðan 6 mánaða reikning sem ber
3.5% vexti. Vextir á reikningunum eru bornir
saman mánaðarlega og sú ávöxtun valin sem
reynist betri. Vextir eru færðir misserislega,
30. júní og 31. desember.
Landsbanklnn: Kjörbók er óbundin með
35% nafnvöxtum. Vextir eru færöir um ára-
mót. Eftir hvem ársfjórðung eru þeir hins
vegar bomir saman við ávöxtun á 3ja mánaða
verðtryggðum reikningum. Reynist hún betri
gildir hún umræddan ársfjórðung.
Af hverri úttekt dragast 2.1% i svonefnda
vaxtaleiðréttingu. Kjörbókin skilar hærri
ávöxtun en almenn sparisjóðsbók á hverju
innleggi sem stendur óhreyft í tvo mánuði eða
lengur.
Samvinnubankinn: Innlegg á Hávaxta-
reikning ber stighækkandi vexti. 24% fyrstu 2
mánuöina, 3. mánuöinn 25.5%, 4. mánuðinn
27%, 5. mánuðinn 28.5%, 6. mánuðinn 30%.
Eftir 6 mánuði 31.5% og eftir 12 mánuði
32.5%. Sé tekið út standa vextir þess tímabils
það næsta einnig. Hæsta ársávöxtun er
35.14%.
Vextir era bomir saman við vexti á 3ja og 6
mánaða verðtryggöum sparireikningum. Sé
ávöxtun þar betri er munurinn færður á Há-
vaxtareikninginn. Vextir færast misseris-
lega.
Útvegsbankinn: Vextir á reikningi með
Ábét er annaðhvort 2,75% og full verðtrygg-
ing, eins og á 3ja mánaða verðtryggðum
sparireikningí, eöa ná 34,6% ársávöxtun, án
verðtryggingar. Samanburður er gerður
mánaðarlega, en vextir færðir í árslok. Sé
tekið út af reikningnum gilda almennir spari-
sjóðsvextir, 24%, þann aimanaksmánuð.
Verslunarbánkinn: Kaskó-relkningurbm er
óbundinn. Um hann gilda fjögur vaxtatímabil
á ári, janúar—mars, apríl—júní, júlí—
september, október—desember. I lok hvers
þeirra fær óhreyfður Kaskó-reikningur vaxta-
uppbót sem miðast við mánaöarlegan út-
reikning á vaxtakjörum bankans og hag-
stæðasta ávöxtun látin gilda. Hún er nú ýmist
:á óverðtryggðum 6 mán. reikningum með
30% nafnvöxtum og 33.5% ársávöxtun eða á
verðtryggðum 6 mánaða reikningum meö 2%
vöxtum.
Sé lagt inn á miðju tímabili ag inn stæða
látin óhreyfð næsta tímabil á eftir reiknast
uppbót allan spamaðartímann. Við úttekt
fellur vaxtauppbót niður það tímabil og vextir
í reiknast þá 24%, án verðtryggingar.
*
tbúðalánarelkningur er óbundinn og með
kaskó-kjörum. Hann tengist rétti til lántöku.
Sparnaður er 2—5 ár, lánshlutfall 150—200%
miðað við sparnað með vöxtum og
verðbótum. Endurgreiðslutími 3—10 ár.
Utlán eru með hæstu vöxtum bankans á
hverjum tíma. Sparnaður er ekki bundinn við
fastar upphæðir á mánuði. Bankinn ákveður
hámarkslán eftir hvert sparnaðartímabil. Sú
ákvörðun er endurskoöuð tvisvar á ári.
Sparisjóðir: Vextir á Trompreikningi eru
stighækkandi. 24% fyrstu þrjá mánuðina, 4,—
6. mánuð 27%, eftir 6 mánuði 31.5% og eftir 12
mánuði 32.5%. Arsávöxtun 35.1%. Sé tekið út
af reikningi á einhverju vaxtatimabilinu,
standa vextir þess næsta tímabil. Sé
innstæða óhreyfö í 6 mánuði frá innleggsdegi
er ávöxtun borin saman við ávöxtun 6
mánaða verðtryggðs reiknings. Sú gildir sem
betri reynist.
Rikissjóður: Spariskirteinl, 1. fiokkur A
1985, eru bundin í 3 ár, til 10. janúar 1988. Þau
eru verðtryggð og með 7% vöxtum,
óbreytanlegum. Upphæðir eru 5.000,10.000 og
100.000 krónur.
Spariskirteini með vaxtamiðum, 1. flokkur
B 1985, eru bundin í 5 ár, til 10. janúar 1990.
Þau era verðtryggð og með- 6.71 vöxtum.
Vextir greiðast misserislegá á tímabilinu,
fyrst 10. júli næstkomandi. Upphæðir erú 5,
10 og 100 þúsund krónur.
Spariskírteini með hreyfanlegum A’öxtum
og vaxtaauka, 1. flokkur C1985, eru bundin til
10. júli 1986, í 18 mánuði. Vextir eru
hreyfanlegir, meðaltal vaxta af 6 mánaða
verðtryggðum reikningum banka með 50%
álagi, vaxtaauka. Samtals 5.14% nú.
Upphæðir eru 5,10 og 100 þúsund krónur.
Gengistryggð spariskirteini, 1. flokkurSDR
1985, eru bundin til 10. janúar eða 9. apríl 1990.
Gengistrygging miðast við SDR-reiknimynt.
Vextir eru 9% og óbreytanlegir. Upphæðir eru
5.000,10.000 og 100.000 krónur.
Spariskírteini ríkissjóðs fást í Seðla-
bankanum, hjá viðskiptabönkum, spari-
sjóðum og verðbréfasölum.
Útlán lífeyrissjóða
Um 90 bfeyrissjóðir eru í landinu. Hver
sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lána-
upphæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að
lánsrétti er 30—60 mánuðir. Sumir sjóðir
bjóða aukinn lánsrétt eftir lengra starf og
áunnin stig. Lán eru á bilinu 144.000—600.000
eftir sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru
verðtryggð og með 5—8% vöxtum. Lánstími
er 15—35 ár eftir sjóðum og lánsrétti.
Biðtími eftir lánum er mjög misjafn,
breytilegur milli sjóða og hjá hverium sióði
eftir aðstæðum.
Hægt er að færa lánsrétt þegar viðkomandí
skiptir um lífeyrissjóð eða safna lánsrétti frá
fyrri sjóðum.
IMafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í eitt ár og reiknaðir í
einu lagi yfir þann tíma. Reiknist vextir oftar
á ári verða til vaxtavextir og ársávöxtunin
verður þá hærri en nafnvextirnir.
Ef 1.000 krónur iiggja inni í 12 mánuði á
24,0% nafnvöxtum verður innstæðan í lok
þess tíma 1.240 krónur og 24,0% ársávöxtun í
því tilviki.
Liggi 1.000 krónur inni í 6+6 mánuði á 24,0%
vöxtum reiknast fyrst 12% vextir eftir sex
mánuöina. Þá er innstæðan komin í 1.120
krónur og á þá upphæð reiknast 12% vextir
seinni sex mánuöina. Lokataian verður
þannigkr. 1.254.40 ogársávöxtunin 25,4%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir
I mars eru dráttarvextir 4%. Dráttarvextir
á ári reiknast 48%, dagvextir era því 0.1333%.
Vfsitölur
Lánskjaravísitalan
fyrir mars 1985 er 1077 stig, en var 1.050 stig í
febrúar. Miðað er við 100 í júní 1979.
Byggingarvisitalan
fynr fyrstu þrjá mánuði ársins er 185 stig.
Hún var 168 stig síðustu þrjá mánuði ársins
1984. Miðað er við 100 í ianúar 1983.
VEXTIR BAWKA OG SPARISJÚOfl 1%)
innUnmhi sírkjörum SJA SERUSTA ílii iiinniiiii !i »i
INNUN OVERÐTRYGGÐ
SPARSJÓOSBXKUR óhumSn inrstate 24J) 244) 244) 244) 244) 244) 244) 244) 244) 24 5
SPARIREIKNINGAR 3p máfwSa uppróffi 215 m 274) 274) 274) 274) 2743 274» Z74> 715
6 mánate uppngn 380 m 304) 314> 384) 31.5 31J 304) 315
12 minaðu uppsógn 32ja 34Á 324) 31,5 324)
18 rnánafe uppngn JlJt 404 37Í
SPARNAOUR - LANSRÉTTUR Sparað 3-5 mánuói Zifi 274) 274) 274) 27J Z74> 715
Sparað 6 mán. og mairi 31JB 304) 274) 274) 31J 304) 304)
INXLANSSKlRTEM T16mánaða 32Á) 34,6 304) 315 31,5 315 3241 314>
TtKKAREIKNWGAR Avhararaðuingar 22JJ 224) 184) 11J 194) 1M 194) 194) 1M
Hbuparaðmmgar 1M 164) 1841 11J 194) 124) 194) 194) 18 5
innUn verðtryggo
SPARIREIKNINGAR JjimánM.wMgn 44) 15 041 15 14) 2.71 14) 14)
6 mánaða uppaögn 8.5 84> 3 5 3 5 3 5 3 5 3 5 15 3 5
innUn gengistryggð
GJALOEYRISREIKNINGAR Bandaríkjadalarar 9 5 9 Á M 84) 15 7J 15 15 95
Starfingapund 100 9Á 1M 11J 1M 1M 1041 10J 95
Veatur þýifc mörk 40 44) 44) 54) 4J 15 44) 44) 95
Darafcar krðnur 10,0 9.5 104) IJ 1M 1M 104) 104) 95
útlAn óverðtryggð
ALNIENNIR VlXLAR (forvairtir) 314) 314) 314) 314) 314) 3141 314) 315 314«
VIOSKIPTÁViXLAR (forvaxtx) 324) 324) 324) 324) 324) 324) 324) 324) 324)
ALMFNN SKULOAfiREF 3441 344) 344) 344) 344) 344) 344) 344) 344)
V10SKIPTASXUL0A8RÉF 354) 3M 354) 354) 354) 3M
HLAUPAREIKNINGAR Yfirdráttur 324) 324) 324) 324) 324) 324) 324) 324) 324)
trrUN VERÐTRYGGÐ
SKULDABRÉF Að 2 1/2 árí 44) 44) 44) 44) 44) 44) 44) 44) 4J
Lanpi an 2 1/2 ár 54» 54) 54) 54) 54) 54) M 5.0 55
DtUntilframleiðsiu
VÉGNA MNANLANOSSðLU 244) 244) 244) 244) 24J 244) 244) 244) 244)
VEGNA ÚTFLUTMNGS SOR raðtránym M U M M M M M M M
Um helgina
Um helgina
Ekki Mæjorka heldur Hrísorka
Það var ýmislegt bitastætt í ríkis-
f jölmiðlum helgarinnar.
Það var þó ekki laust við að ég vor-
kenndi þeim landsmönnum er ætluöu
að horfa á imbann á föstudagskvöld,
eiga ekki videó og áttu ekki annarra
kosta völ en horfa á einhverja
fræðslumynd um rigningu og vinda-
far.
Slík dagskrá á sjálfu föstudags-
kvöldinu er ekkert annaö en móðgun
við landslýð.
Laugardagskvöldið fór nú reyndar
fyrir ofan garð og neðan iijá mér í
sjónvarpsglápi. Á sunnudagskvöldiö
var það einn dagskrárliður er bar
höfuð og herðar yfir annað efni.
Stiklur Ómars Ragnarssonar, eitt af
því allra besta sem íslenskt sjónvarp
hefur boðiö upp á um dagana. Þátt-
urinn á sunnudagskvöld var nú ekki
einn af þeim bestu i Stikluröðinni en
góöur samt. Við fylgdumst með
leikaranum góðkunna, Árna
Tryggvasyni, og frú í suðrænu veðri
við skak á Eyjafirði.
Ámi vakti mann til umhugsunar
um alla þá skemmtilegu útivistar-
möguleika er tsland býður upp á.
Til hvers að leita langt yfir
skammt með endalausum ferðum til
sólarlanda en gleyma sínu eigin
landi sí og æ þegar ferðamöguleikar
sumarfrísins eru athugaðir?
Árni sagöist sækja sina lífsorku til
Hríseyjar á sumrin, eða Hrísorku
eins og hann kallaöi þaö í stað hinna
betur þekktari Mæjorkaferöa.
Ágætis samlíking sem á að fullu rétt
ásér.
Stikluþættir Ómars hafa
sannarlega kynnt föðurlandið betur
fyrir mörgu borgarbarninu er litlu
öðru hafði kynnst en hinu hefð-
bundna suðvesturhomi.
Við skulum bara vona að tíma-
bundin andakt sunnudagskvöldsins
eftir Stikluþátt verði ekki of skamm-
líf, heldur lifi með áhorfandanum og
komi fram í enn frekari athugun á
eigin landi og frekari ferðalögum
innanlands.
-Hannes Heimisson.
Bryndís
Hólm
frjáls-
íþróttakona
Ég horfi nú ekki mikið á sjónvarp,
æfingarnar taka það mikinn tíma.
Einkum eru það laugardagskvöldin
sem eru laus og þá horfi ég á bíó-
myndirnar ef þær eru góðar. Já, svo
er það íþróttaþátturinn að sjálf-
sögöu. Maður lætur hann aldrei fram
hjásérfara.
Mér finnst útvarpið hafa batnað
mikið að undanförnu. Rás 2 jók mjög
viö fjölbreytni þess og ég hlusta svo
til eingöngu á hana. Sérstaklega hef
ég gaman af þáttum Jóns Ólafssonar
á föstudögum, Léttir sprettir.
Andlát
Guðni Þorsteinsson múrarameistari,
Selfossi, lést á hjúkrunarheimilinu
Ljósheimum að morgni miðvikudags-
ins 27. febrúar.
Gróa Dagmar Gunnarsdóttir, Álfheim-
um 72, Iést i Landakotsspitala að
kvöldi 28. febrúar.
Ása Sigurðardóttir, Kapiaskjólsvegi 7,
lést I Landspitalanum 19. febrúar 1983.
Jarðarförin hefur farið fram 1 kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
Jön Hermann Indriðason, Álfaskeiði
121 Hafnarflrði, lést 28. febrúar I St.
Jósefsspitala, Hafnarflrði.
Guðlaug Guðmundsdóttir er látin.
Kristln Ágústa Þórðardóttir frá Súg-
andaflrði, Hrafnistu, Reykjavik, verð-
ur jarðsungin frá Hallgrimskirkju
þriðjudaginn 3. mars kl. 13.30.
Carl Gunnar Rocksén, fyrrverandi
vararæðismaður, Sólheimum 23, verð-
ur jarðsunginn frá Langhoitskirkju
þriðjudaginn 3. mars kl. 13.
Guðrún Jónsdóttir verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju mánudaginn 4.
mars kl. 13.
Ragnheiður Bogadóttir, Frakkastig 6Á,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 3. mars kl. 13.30.
Sveinn Jónsson leigubilstjóri, Ártúni 10
Selfossi, sem lést 23. febrúar, verður
jarðsunginn frá Skarðskirkju i Lands-
sveit miðvikudaginn 6. mars kl. 13.
Kveðjuathöfn verður 1 Selfosskirkju kl.
12.30 samadag.
Ólafur Ólafsson frá Eyri i Svinadal,
Kambsvegi 14 Reykjavik, verður jarð-
sunginn frá Fossvogskirkju i dag,
mánudag, kl. 13.30.
Tilkynningar
Tímaritiö Flug
Nýlega kom út 2. tbl. 21. árgangsaf tímaritinu
Flug. Meðal efnis í blaðinu má nefna grein
eftir Guðmund Hafsteinsson veðurfræðing
þar sem hann fjallar um flugveður að vetrar-
lagi og helstu þætti sem ber að hyggja að áður
en lagt er af stað í flug á þessum árstíma.
Þá er einnig grein um flugrekstur Leigu-
flugs Sverris Þóroddssonar eftir Gunnar Þor-
steinsson. Hann rekur þar sögu fyrirtækisins
og í spjalli við Sverri kemur fram að flug-
rekstur á Islandi er ekki dans á rósum.
Auk þessara greina er grein eftir Ragnar J.
Ragnarsson um sögu frönsku Jodel flugvél-
anna, en þessi saga er löng og flókin, því
margir hafa tekið að sér að smiða Jodel flug-
vélar. AA lokum má geta þess að í blaðinu eru
margar stuttar greinar og fréttir um ýmsa
þætti flugmálanna.
Tímaritið Flug er sjálfstœtt timarit, mál-
gagn Flugmálaféiags Islands og er tilgangur-
inn með útgáfu blaðsins að fjalla um helstu
þætti íslenskra flugmála, hvort sem er á sviði
atvinnuflugs, skemmtiflugs eða annarra
þátta flugmálanna. Ritstjóri Flugs er Rafn
Jónsson.
Kvenfélag Háteigssóknar
heldur fund þriðjudaginn 5. mars kl. 20.30 í
Sjómannaskólanum. Skemmtiatriði: Vigdís
Einarsdóttir les upp, síðan verður leikið á
gítar og sög. Allar konur í sókninni vel-
komnar.
Árshátíð Breiðfirðinga-
félagsins í Reykjavík
verður haldin í Domus Medica laugardaginn
9. mars kl. 19. Upplýsingar í simum 16689,
685771 og 33088.
Unglingameistaramót
í badminton
Unglingameistaramót tslands í badminton
1985 fer fram í Laugardalshöllinni dagana 16.
og 17.marsnk.
Keppt verður í eftirtöldum flokkum, öllum
greinum, ef næg þátttaka fæst.
Hnokkar/tátur f. ’73 og síðar.
Sveinar/meyjar f. ’71—’72.
Drengir/telpurf. ’69—’70.
Piltar/stúlkur f. ’67—’68.
Þátttökutilkynningar skulu berast til BSl
fyrir 9. mars nk.
Opið Reykjavíkurmót
fullorðinna
í badminton
Reykjavikurmeistaramót i badminton fer
fram í húsi TBR við Gnoðarvog dagana 9.—
10. mars nk. Badmintondeild Víkings mun sjá
um mótið að þessu sinni.
Mótið er opið þátttakendum frá félögum utan
af landi.
Keppt verður í eftirtöldum flokkum, öllum
greinum, ef næg þátttaka f æst:
meistaraflokki,
a-flokki,
öðlingaflokki,
æðstaflokki.
Þátttökutiikynningar skulu berast til
Magnúsar Jónssonar, Badmintondeild Vik-
ings, hs. 81705, vs. 27790, í síðasta lagi fimmtu-
daginn 7. mars nk.
Almanakshappdrætti
Landssamtaka
Þroskahjálpar
Dregið hefur verið í almanakshappdrætti
Landssamtakanna Þroskahjálpar fyrir febrú-
ar. Upp kom númerið 5795. Vinningurinn í
janúar er 2340.
Vinningar á árinu 1984, frá mars til des.:
31232 - 47949 - 53846 - 67209 - 81526 - 88273
-105262 -111140 -124295 -132865.
íslenska pílu-
kastsfélagið
heldur mót í húsnæði Pöbbsins, Hverfisgötu
46, sunnudaginn 3. mars. Keppt í 501 í undan-
riðlum kl. 12.30. Urslit fara fram kl. 20 sama
dag. Skráning í sima 621756 og 19011.
Fræðslu og skemmti-
fundur Félagsíslenskra
snyrtisérfræðinga
Hinn árlegi fræðslu- og skemmtifundur Fé-
lags íslenskra snyrtifræðinga verður haldinn
að Hótel Sögu, Súlnasal, þriðjudagskvöldið 5.
mars kl. 20.30.
Margar fróðlegar og forvitnilegar uppá-
komúr verða á dagskránni.
Aðaigestur kvöldsins verður förðunar-
meistarinn Emma Kotch frá Complections
Intcmational London School of Make-up og
sýnir hún förðun.
Auk hennar verður tískusýning, dans, make-
up, eftirherma, flutt verður stutt ávarp, happ-
drætti og snyrtivörukynningar.
Kynnir kvöldsins verður Heiðar Jónsson
snyrtir.
Góð kvöldskemmtun fyrir dömur og herra á
öllum aldri.
Húsið opnað kl. 19.30.
Skemmtinefndin.
Skákkeppni stofnana
og fyrirtækja 1985
hefst i A-riðli mánudaginn, 4. mars, kl. 20, og í
B-riðli miðvikudaginn, 6. mars, ki. 20. Teflt
verður í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur
að Grensásvegi 44—46. Keppnin verður með
svipuðu sniði og áður — í aðalatriðum á þessa
leið:
Tefldar verða sjö umferðir eftir Monrad-kerfi
í hvorum flokki um sig. Umhugsunartími er
ein klukkustund á skák fyrir hvom keppanda.
Hver sveit skal skipuð fjórum mönnum auk
1—4 til vara.
Fjöldi sveita frá hverju fyrirtæki eða stofnun
er ekki takmarkaður. Sendi stofnun eða fyrir-
tæki fleiri en eina sveit skal sterkasta sveitin
nefnd a-sveit, næsta b-sveit o.s.frv. Þátttöku-
gjald er kr. 2.500 fyrir hverja sveit. Nýjar
keppnissveitir hefja þátttöku í B-riðli.
Keppni í A-riöli fer fram á mánudagskvöldum
en í B-riðli á miðvikudagskvöldum. Fyrsta
kvöldið verður tefld ein umferð en tvær
umferðir þrjú seinni kvöldin. Mótinu lýkur
með hraðskákmóti sem fram fer í A-riðli
þriðjudaginn, 28. mars, kl. 20, og í b-riðli
fimmtudaginn, 28. mars, kl. 20.
Þátttöku má tilkynna í sima Taflféiagsins á
kvöldin, ki. 20—22. Lokaskráning í A-riðil
verður sunnudaginn 3. mars, kl. 14—17, en í
B-riðil þriðjudaginn, 5. mars, kl. 20—22.
Afmæli
90 ára afmæli á i dag, mánudaginn 4.
mars, firú Sigrfður Jónsdóttir frá Norð-
urgötu i Mýrdai, Þrastargötu 7 i Rvik.
Hún ætlar að taka á móti gestum 1 dag i
Templarahöllinni viö Eiriksgötu, eftir
kl. 19. — Sigriöur var gift Lárusi
Knudsen sem látinn er fyrir allmörgum
árum. Hann var starfsmaður Reykja-
vlkurhafnar.