Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1985, Qupperneq 56

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1985, Qupperneq 56
FRETTASKOTIÐ (68) • (78) • (58) SIMINN SEM ALDREI SEFUP Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022. Hafir þú ábendingu efla vitneskju um frétt — hringdu þá i sima 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist efla er notað i DV, greið- ast 1.000 krónur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið i hverri viku, Fullrar nafnleyndar er gœtt. Vifl tökum vifl fréttaskotum allan sólarhringinn. Frjálst, óháð dagblað MÁNUDAGUR 4. MARS 1985. Sam/ð v/ð sjó- menn í morgun Samtök um kjarnorku- vopnalaust ísland Samtök um kjarnorkuvopnalaust Island voru stofnuð á fundi á Hótel Borg í gær. Markmið samtakanna er að berjast fyrir því að Alþingi gefi bindandi yfirlýsingar um að ísland muni aldrei taka við eöa leyfa öðrum ríkjum að koma fyrir kjarnorku- vopnum á landinu eða fara með slik vopn um íslenska lögsögu. Einnig hyggjast samtökin beita sér fyrir því að ákvæði um kjarnorkufriðlýsingu landsins verði sett inn í stjórnarskrá. Fundurinn á Hótel Borg var fjöl- sóttur og gengu þar undirskrifta- listar og söfnunarbaukar. Ávörp fluttu meðal annarra Erlendur Patursson, sem talaði bæði á færeysku og íslensku, Sigurður Áma- son læknir og séra Gunnar Kristjáns- son sem bar upp til atkvæða lög samtaka um kjamorkuvopnalaust Island. Séra Gunnar las einnig upp nöfn sjö manna sem skipa skulu fram- kvæmdanefnd samtakanna til bráða- birgða. Framkvæmdanefnd á að vinna að landsfundi samtakanna sem stefnt er að að halda eigi síðar en í maílok. SGV Reykur og gléðíbarna- herbergi Á laugardagsmorgun var slökkvi- liðið i Reykjavík kvatt til vegna elds í bamaherbergi i íbúð i Yrsufelli i Reykjavík. Þegar slökkviliðið var komið á staðinn kom í ljós að töluverður reykur var í herberginu en enginn eldur, aðeins glóð. Höfðu foreldrar vaknað við vondan draum er bamið var skyndilega farið að leika sér i reyk. Barniö var flutt til öryggis á slysadeild til rannsóknar. Sennilegt er talið að reykurinn og glóðin hafi stafað af tæki sem bamiö varaðleikasérvið. SGV Bílstjórarnir aðstoða senDiBiinsTöÐin Samningar voru í þann veginn að takast í kjaradeilu Sjómannasam- bands Islands og Landssambands íslenskra útvegsmanna klukkan níu í morgun. „Við vonum nú frekar að það geti verið stutt í samkomulag,” sagði Guðlaugur Þorvaldsson ríkissátta- semjari í samtali við DV. Samningamenn aðila sátu á fundi í alla nótt, frá klukkan 20.30 í gær- kvöldi. Eftir að úrslit lágu fyrir í at- kvæðagreiðslu yfirmanna á fiski- skipum um samkomulagið frá því á föstudag, jókst bjartsýni á að stytt- ast færi í samninga við undirmenn. Atkvæðagreiöslan fór þannig að 58,9 prósent sögðu já en 41,1 prósent sögöu nei. Alls greiddu 706 félags- menn atkvæði. 25 seðlar voru auðir eða ógildir. „Að mörgu leyti fengum við tals- vert í gegn,” sagði Guðjón A. Kristjánsson, forseti Farmanna- og fiskimannasambandsins, um árang- ur verkfallsins. „Lífeyrissjóðsmálið er eins og við vildum hafa það. Við fengum áfanga í leiðréttingu á líftrygginga- og slysa- málum. Kauptrygging hækkaöi. Við hefðum vissulega viljað ná á- fanga í kostnaöarskiptingunni fyrr en það er þó búið að snúa þróuninni við. Um það fengum við loforð,” sagöi Guðjón. Vestfjarðaflotinn fór nær allur á veiðar um helgina. Þar voru aðeins yfirmenn í verkfalli. Skip frá ýmsum öðrum smærri stöðum, eins og1 Skagaströnd og Breiðdalsvík, fóru einnig á veiðar af sömu ástæöu. Síðustu fréttir Samningar tókust milli sjómanna og útgorflarmanna klukkan 10.25 í morgun. Ef félagsfundir samþykkja i dag verflur verkfalli aflýst i kvöld. Mosfellingar fá kokkteil úr krönunum — kalda vatniö þeirra þykirsamt ekki sérlega svalandi Kalda vatnið í Mosfellssveit þykir ekki sérlega svalandi. Það er raunar 8—9 gráðu heitt. Þar sem kalda vatn- ið er kalt er þaö 4—5 gráður. Mosfell- ingar fá kalda vatnið sitt aðallega sem eins konar kokkteil. Or Guddu- laug kemur vel kalt vatn, sem síðan er blandað 14 gráðu heitu vatni úr borholu í Laxnesdýjum. Ýmsar hugmyndir eru á lofti um að kæla kalda vatnið úr krönum Mos- fellinga. I sumar veröur borað í Mos- fellsdal. Til greina kemur að sam- tengja vatnsveitur á höfuðborgar- svæðinu. Loks hefur verið hugað að því aö nota vatn úr Hafravatni vegna iðnaðar, þá hreinsað með sömu tækni og Akurnesingar beita nú. En þetta er ekkí eina vatnsvanda- mál Mosfellinga. Um árabil hefur jarðvegurinn víða verið að þoma upp. Til marks um það er að bændur, sem ræktuðu matjurtir og fengu tvær, þrjár uppskerur á ári, hafa sumír gefist upp og jafnvel snúið sér að öðru. Jarðvegurinn hefur þomað og yfirborðshitinn horfið. Líklegt þykir að þetta tengist varmavirkjun- um Hitaveitu Reykjavikur. „Þeir keyra hér allt á tampi,” segir Páll Guðjónsson, sveitarstjóri í Mosfells- sveit. HERB Ríkið með svör í dag I dag mun samninganefnd ríkisins svara þeim launakröfum, sem aðild- arfélög BHM hafa lagt fram. Indriði H. Þorláksson, formaður samninganefndar ríkisins, sagði í morgun að enn væri óákveðiö hvort hvert einstakt félag yröi kallað á fund eða boðað til sameiginlegs fund- ar með fulltrúum BHM. Einnig sagði hann vera óákveðið hvort fundað yrði með kennurum sérstaklega í dag. -KMU. Finnski rithöfundurinn Antti Tuuri kom til landsins í gær. Hann tekur á móti bókmenntaverðlaunum Norflurlandaráfls á þriðjudagskvöld. Dóttir hans Hanne kom með honum hingað og ætla þau að ferðast umlandifl. -ÞG/DV-mynd GVA. Próf kjör rektors: Nafn Andra gleymdist I prófkjöri um kosningu háskóla- rektors, sem fram fór í síðustu viku, gleymdist nafn Andra Isakssonar. Samkvæmt reglu eiga að vera öll nöfn prófessoranna í Háskólanum á prófkjörslistum. Einar Sigurðsson, formaður kjör- nefndar, var spurður að því hvort prófkjörið væri lögmætt vegna þessa. „Þetta var lagfært strax um há- degi og nafni hans bætt á listann. Þess ber að gæta að hér er aðeins um prófkjör að ræða. Ef eitthvað svona hefði komiö upp í alvörukosningum þá væri það líklega krítískara. ” Einar sagði að Andri hefði sjálfur bent á þetta og ekki ætlað að gera neitt veður út af þessu. „Þetta er auðvitaö neyðarlegt. Ástæðurnar fyrir þessu eru skrif- stofuhaldslegar,” sagði Einar. Einnig benti hann á að samkvæmt reglum bæri kjörstjórn ekki að halda prófkjör. 1 reglunum væri aðeins heimildarákvæöi um þetta. Alvöru kosningarnar verða 2. apríl og þá verður rækilega passað upp á að allt verði eins og þaö á að vera. APH APH Helgi og Jóhann unnu Skákmennirnir Helgi Ólafsson og Jóhann Hjartarson tefla nú á alþjóð- legu skákmóti i Kaupmannahöfn. Þeir geta báöir náð titli stórmeist- ara, fái þeir sjö vinninga úr 11 um- ferðum. Félagarnir byrjuöu vel um helgina. Helgi vann Danann Carsten Höi og Jóhann vann sænska stór- meistarann Lars Karlsson. Meðal annarra þátttakenda eru stórmeistararnir Bent Larsen og Smyslov. HERB Umdeildar „pakkaferðir” Steindórsmanna Laugardagskvöld og -nótt var lög- reglan í Reykjavík nokkrum sinnum kölluð til vegna væringa með leigu- bílstjórum í Reykjavík. Höfðu leigubilstjórarnir þá króað af Steindórsbílstjóra, sem aka á litl- um sendibílum en höföu tekið einn farþega og voru að aka honum heim. I öllum tilvikum lauk máiinu meö því að tekin var skýrsla af Steindórsbíl- stjóranum og honum var síöan sleppt. Þó mun einn Steindórsbíl- stjórinn ekki hafa haft tilskilin leyfi til sendiflutninga. Eins og kunnugt er hafa Steindórs- menn á sendibílum leyfi til léttra pakkaflutninga og auðvitað aö ferja farþega með þeim. Fannst leigubíl- stjórumá Hreyfliog BSRsemþeir væru að seilast út fyrir sitt verksvið með þessum mannaflutningum þótt farþegarnir hafi vafalaust einhverjir veriö meö sígarettupakka eða álíka í vasanum. SGV 4 4 4 4 4 4 4 4 4 i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.