Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1985, Side 1
Sandgerðishöfn í morgun. Sjórinn fossar inn á bryggjuna. Mennirnir vaða burt. DV-mynd GVA.
Hvassviðri suðvestanlands í hæsta flóði ársins:
Bryggjur á bólakafi en
bátamir stóðust brimið
„Þetta hefði orðið miklu verra ef
vindáttin heföi verið meira vest-
anstæð. En það skolast samt
hressilega af bryggjunum. Það er
svona fets sjór Úggjandi á Norður-
bryggjunni,” sagði Þórhallur Gísla-
son, hafnarvörður í Sandgerði, í
morgun.
DV var í Sandgeröishöfn í morgun
á háflóbinu klukkan 7.07, hæsta flóði
ársins. Þar var mikill viöbúnaður,
menn um borð í hverjum báti,
viðbúnir hinu versta.
Vindur var suðsuðvestan, sjö til
níu vindstig. Brimið barði á bátun-
um, hafnargörðum og byggingum.
Ekkert lét þó undan.
I Sandgerði mundu menn eftir því
að snemma í janúar í fyrra varð þar
stórtjón. Ellefu bátar slitnuöu þá upp
og skemmdust meira eða minna.
„Brimið er ekki eins mikið núna
en flóðiö er geysilegt,” sagði Jón
Júliusson vigtarmaður. I Sand-
gerðishöfn lágu 35—40 bátar, togari
og fragtskip.
„Það var gengið mikiö betur frá
bátunum núna heldur en í fyrra.
Núna var meira um viðvaranir,”
sagði Þórhallur Gislason.
I Grindavík, Þorlákshöfn, á Akra-
nesi, Eyrarbakka og Stokkseyri
höfðu menn áhyggjur í gær þegar séö
var að hverju stefndi, í að hvassviðri
og stórstraumur færu saman. Hvergi
fréttist þó af t jóni í morgun.
„Hér í Grindavik eru bryggjumar
í vesturhöfninni á bólakafi. Það er
ekki einu sinni bílfært um þær,
jafnvel vörubílar kæmust ekki,”
sagði Vilmundur Ingimarsson
hafnarvörður klukkansjöímorgun.
„Hér eru menn um borð í öllum
bátum, komu klukkan hálffimm í
morgun til að binda þá betur,” sagði
Vilmundur.
I Reykjavík iokaðist Eiðsgrandi
um tíma vegna grjóts sem skolaðist
áland.
-KMU.
Kennaradeilan:
Bráðabirgða-
samkomulag?
Það er mat margra að launadeilur
BHM og ríkisins eigi eftir að hafna í
kjaradómi. Það telur a.m.k. Kristján
Thorladus, fonnaður Hins íslenska
kennarafélags.
„Við sjáum ekki aðra leið úr því
sem komið er, eftir 5% boð ríkisins.
Það er greinilegt að þeirra hug-
myndir eru ekki á sömu nótum og
hjá aðildarfélögum ríkisins.” Ef
málin fara fyrir kjaradóm þýðir það
m.a. að kennarar mæta ekki til
starfa fyrr en í lok mars. Þá er
liklegt að kennarar verði famir til
annarra starfa og öruggt að skóla-
starf þessarar annar veröi eyðilagt.
„Þá er ég hræddur um að við
verðumfarnir,” segirKristján.
Hann segir að ef kennarar fái skil-
merkilegar tryggingar fyrir því að
kjör þeirra verði bætt, þá muni hann
leggja til að gert verði bráðabirgða-
samkomulag. Kennarar muni þá
snúa til starfa þó samningar séu
ekki komnir í höfn. Nú er verið aö
ræða endurmatsskýrsluna. Um hana
hefur verið boðaður f undur í dag.
-APH.
Skautgest-
innílærið
Skot hljóp úr riffli í heimahúsi á
Flateyri í gærmorgun og lenti í læri á
gesti sem þar var staddur. Sátu tveir
menn að drykkju þegar atburðurinn
varð. Engir sjónarvottar voru að at-
burðinum en talið er aö húsráöandi
hafi orðið leiður á gestinum og beðiö
hann að fara heim. Hafi gesturinn
neitaö að fara og húsráðandi dregið
fram riffil, með þeim afleiðingum að
skothljópúrhonum.
Húsráðandi hringdi strax í héraðs-
lækninn á Flateyri. Var gesturinn
fluttur á sjúkrahús á Isafirði í að-
gerð. Haföi skotið farið í gegnum
lærið og skilið eftir mikið sár.
Húsráðandinn er í haldi hjá lög-
reglunni. Ekki hefur enn verið unnt
að yfirheyra hann vegna öhrunar.
Pétur Kr. Hafetein, sýslumaður á
Isafirði, sagði í samtali viö DV í
morgun að gæsluvarðhaldsúr-
skurður yröi mjög sennilega kveðinn
upp fyrir hádegl Húsráðandi er
rúrnlega þrítugur en gesturinn um
fimmtugt. -EH.
Vaxtalækkun?
Veröbólga og lánskjaravísitala
hafa lækkað, lfltur eru á vaxta-
lækkun um mánaöamótin.
Þar sem verðbólgan er á niðurleið
er vaxtalækkun í endurskoðun. Búist
erviö20til25% verðbólguáárinu.
Vísitölumálin eru í athugun, að
sögn forsætisráðherra, og hefur
veriö haft eftir hmum að vel komi til
greina aö taka lánskjaravisitöluna
úr sambandi þegar verðbólgan sé
komin niöur í 10 til 12%. -ÞG.
Heildverslunin Glóbus:
Ritari kæröur fyrir fjárdrátt
— ung kona í gæsluvarðhald vegna málsins
Rúmlega tvítug kona, skrifstofu-
stúlka hjá heildversluninni Glóbus,
hefur setið í gæsluvarðhaldi vegna
rannsóknar á meintum fjárdrætti í
starfi.
Að sögn Erlu Jónsdóttur, deildar-
stjóra hjá Rannsóknarlögreglunni,
þá var konunni sleppt um helgina
eftir að hafa setið í varðhaldi síðan
27. febrúar, daginn eftir að fjárdrátt-
urinn komst upp. Erla sagði að kon-
an hefði viðurkennt að hafa dregið
sér f jármuni fyrirtækisins í rúmlega
ár. Ekki væri enn ljóst um hve mikið
fé væri aö ræða þvi bókhaldslegum
athugunum væri ekki lokið.
Konan, sem er ritari hjá fyrirtæk-
inu, mun hafa dregið sér f é með þeim
hætti að stinga undan staðgreiðslum
sem hún tók á móti frá viðskipta-
vinum, bæði reiðufé og ávísunum.
Hafði konan til umráða stimpia með
nafni fyrirtækisins og gat með þeim
hætti framvísað ávísunum sem henni
bárust í hendur. -EH.