Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1985, Page 2
2
DV. FÖSTUDAGUR 8. MARS1985.
Fulltrúar sjómanna og útvegsmanna skrifa undir í annað sinn:
SKIPTAREGLURNAR
BREYTAST STRAX
— í fyrra samkomulaginu var miðað við næstu áramót
Samkomulag náðist í kjaradeilu
Sjómannasambands Islands við
Landssamband íslenskra útvegs-
manna og Félag íslenskra botn-
vörpuskipaeigenda í hádeginu í gær.
Fulltrúar deiluaðila undirrituðu
samkomulagið um klukkan þrettán.
Þetta var annaö samkomulagið
sem þeir skrifuöu undir í deilu þess-
ari. Það fyrra mætti mikilli andstöðu
sjómanna og var kolfellt. Úrslit fyrri
atkvæöagreiðslunnar lágu fyrir urn
miðnættiá þriðjudagskvöld.
Guðlaugur Þorvaldsson rikissátta-
semjari tilkynnti deiluaðilum í há-
deginu á miövikudag að sáttafundur
yrði klukkan 16 daginn eftir, á
fimmtudag. Seint á miðvikudags-
kvöld ákvað Guðlaugur hins vegar
að flýta fundinum. Hann hófst klukk-
an tíu í gærmorgun. Þremur tímum
síðar var búið að skrifa undir.
Síðdegis á miðvikudag kallaði
Halldór Ásgrímsson þá Oskar Vig-
fússon og Kristján Ragnarsson, for-
svarsmenn deiluaðila, til fundar við
sig í sjávarútvegsráðuneytinu. Lík-
legt verður að telja að á þeim
fundum hafi grunnurinn verið lagður
aðsamkomulaginu.
Stærsta viðbótin við fyrri samning-
inn er sú aö lækkun kostnaðarhlutar
útgerðar utan skipta um tvö prósent
kemur strax til framkvæmda en ekki
frá næstu áramótum, eins og gert
var ráð fyrir í yfirlýsingu ríkis-
stjómarinnar. Þessi breyting þýðir,
aö sögn Oskars Vigfússonar, 0,9
prósent kauphækkun fyrir sjómenn.
Yfirmenn, sem búnir voru að semja,
munu einnig fá þessa hækkun strax.
Meöan verið var að ganga frá
samkomulaginu í hádeginu í gær var
skrifstofa sáttasemjara í stöðugu
símasambandi við Halldór Asgríms-
son sjávarútvegsráðherra, sem var
á Egilsstöðum. Halldór féllst á
breytinguna fyrir hönd ríkisstjómar-
innar.
I nýja samkomulaginu eru fata-
peningar einnig hækkaðir úr 540
krónum á mánuöi upp í 750 krónur.
-KMU.
Samkomulag hefur náflst. Kristján Ragnarsson kveður Guðlaug Þorvaldsson. Jón Fulltrúar sjómanna lesa yfir samkomulagið.
Sigurðsson fylgist með.
DV-myndir: GVA.
Ýmsir hlutir gerðust sem
komu niður á samningunum
—segir Óskar Vigfússon
Kristján
Ragnarsson:
Vitanúvið
hvaðþeirbúa
„Það sem þama bætist viö er að
þessi kostnaöarhlutdeíld kemur til
skipta nú þegar,” sagði Kristján
Ragnarsson, framkvæmdastjóri
Landssambands íslenskra útvegs-
manna.
„Það var gagnrýnt og talið
óákveðið hvenær þetta ætti að
gerast. Núna kemur þetta til launa-
hækkunar strax hjá sjómönnum.
Þá vita þeir viðhvað þeir búa.
Það kostar okkur að hækka þessa
fatapeninga úr 540 krónum í 750
krónur. Fastakaupiö á stóru
togurunum hækkar um sömu tölu
og þessi tala hækkar.”
— Telurðu að þetta komi til með
að duga til að sjómenn samþykki?
„Það hvarflar bara ekki að mér
að við séum aö undirrita sam-
komulag öðru sinni sem ekki muni
duga,” sagði Kristján Ragnarsson.
-KMU.
„Eg held að þessi viðbótar-
samningur komi aðeins til móts við
þau sárindi, sem virtust vera í
mönnum, varðandi það loforð ríkis-
stjórnarinnar um kostnaðarhlut-
deildina að hún skyldi beita sér fyrir
því að það kæmi fýrir árslok. Það
virtist fara mjög fyrir brjóstið á
okkar mönnum,” sagði Oskar Vig-
fússon, forseti Sjómannasambands
Islands.
,,Síöan er þaö að þrátt fyrir fyrri
yfirlýsingu mína varðandi fata-
peninga, um að ég teldi brotið blað í
samskiptum sjómanna og útvegs-
manna að sjómenn hefðu rétt til þess
að fá greiðslu frá vinnuveitenda
sínum vegna hlífðarfata, töluðu
menn um þetta sem hálfgerðan
„tittlingaskít”, sem væri ekki nema
rétt fyrir sjóhatti. En þessi upphæð
er hækkuö upp í 750 krónur á mánuði.
Eg held að ef menn fara að leggja
þetta saman með tilliti til ársstarfa
hl jóti þetta að vera nokkurs virði. ”
— Menn töluöu um að oröalag í
yfirlýsingu ríkisstjómarinnar um
kostnaöarhlutdeildina væri loðið. Má
ætla að sjómenn hafi ekki treyst
loforði ríkisstjómarinnar?
„Þetta var loðið orðalag og það
sem verra var: Þetta átti að koma
fram í árslok. Núna er þetta gert
strax. Ef ríkisstjómin stendur ekki
við það loforð þá er höfuðverkurinn
útgerðarmanna. Þetta er nefnilega
inni í okkar samkomulagi.”
— Hvað þýðir þessi tvö prósent
kostnaðarhlutur í beinhörðum
peningum?
„Ætli það komi ekki 80 milljónir til
skipta fyrir sjómenn. Það þýðir um
0,9 prósent í kaupi. Það er nú ekki
meira en það. En þetta er prinsip-
mál, — mikið prinsippmál meðal sjó-
mannastéttarinnar. Þama er verið
að raska hlutaskiptingum og þaö er
verið að hala til baka. En við mjög
erfiðar aðstæður. Þið hafið heyrt yfir-
leysingar forsætisráðherra, sjávar-
útvegsráðherra og fleiri aöila um að
hún skyldi ekki hreyfð í upphafi. En
við erum þó búnir að hreyfa um þessi
tvö prósent og það sem meira er: Við
erum búnir að hreyfa hana gagnvart
sölum erlendis. Það er miklu þyngri
vog vegna þess aö erlendis era níu
prósent tekin í frádráttarlið vegna
þessarar kostnaðarhlutdeildar. Hún
lækkar í sjö prósent við þessa
aðgerð.”
— Var það ótti ykkar við lög sem
ýtti á eftir þessum samningum?
„Nei. Við óttumst ekki lög í þessu.
Hins vegar þýðir ekki að líta framhjá
þeirri staðreynd að það var orðið
mismunandi álag á félög sjómanna
eftir þvi hvar þau vora á landinu.
Sumir voru farnir að stunda sjóinn.
Aðrir ekki. Og það er ekki annað
hægt en að taka tillit til þess, þótt það
komi niður á samningsgerðinni.
Þaö sem skeði meðan við vorum í
samningaviðræðum kom niður á
samningsgeröinni. Samstaða
sjómanna var geysilega mikil í upp-
hafi þessara átaka. Siöan hafa ýmsir
hlutir skeð sem ég hirði ekki frekar
um að segja álit mitt á. Eg geri ráð
fyrir að þið vitið hvaö ég er að meina
með þessu,” sagði Oskar og var
rokinn á braut. -KMU.
„Varanleg skipti á bömum óhugsandi”
Bamaskiptin á Fæðingardeildinni:
segir dr. Sigurður S. Magnússon prófessor
Martröð hverrar fæðingardeildar
era án efa bamaskipti. Þaö er nú einu
sinni svo að ákaflega erfitt er að
þekkja hvítvoðunga í sundur. Or þessu
er bætt með sérstökum merkingum og
er slíkt kerfi talið óbrigðult.
Lena fæddi bam á fæöingardeild
Landspítalans þann 28. febrúar sl.
Viku seinna fór hún heim með tveggja
daga gamalt barn sem var ekki
hennar. Ruglingurinn komst upp
skömmu eftir að Lena var komin heim
með barnið.
Uppi er ágreiningur meðal
hjúkrunarfólksins og Lenu sem heldur
því fram að bömin hafi ruglast
tveimur dögum áður en hún fór heim.
Starfsmenn fæðingardeildarinnar
segja hins vegar að á því sé ekki fræði-
legur möguleiki. Ruglingurinn geti
ekki hafa varað nema í nokkra klukku-
tíma. Hvítvoöungar séu handfjatlaðir
af svo mörgum að einhver hlyti að
hafa orðið þess var aö bömin hefðu
raglast. Annað barnið hafi alltaf verið
merkt.
Dr. SigurðurS. Magnússon prófessor
og yfirlæknir kvennadeildar Land-
spítalans var spurður að því hvort
svona lagað hefði skeð áður og hvort
varanleg skipti á börnum væru hugs-
anleg?
„Nei, það er óhugsandi að svoleiðis
hafi komið fyrir. Það myndi þýða að
tvö börn væru ómerkt og líkurnar á
slíku eru hverfandi.
Nokkrum minútum eftir fæöingu eru
bæði móðir og bam merkt með
armbandi. Þetta kerfi er notað alls
staðar í heiminum með góðum
árangri. Bömin era annað hvort merkt
um úlnliðinn, hálsinn eða öklann. I um-
ræddu tilfelli tel ég að hafi orðið víxl á
vöggum barnanna.
Það verður sennilega aldrei hægt að
segja nákvæmlega til um það hvenær
raglingurinn skeði. Bömin era hand-
f jötluð af svo mörgum og því held ég að
þetta hafi ekki skeð fyrr en rétt fyrir
heimför móðurinnar.”
DV gerði tilraun til að ná tali af hinni
móðurinni sem enn dvelst á fæðingar-
deildinni en hún vill ekkert segja um
málið opinberlega.
-EH.
m------------------►
Lena Betak var látin hafa barn
annarrar konu til afl fara mefl hoim.
DV-mynd Bj. Bj.