Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1985, Qupperneq 5
DV. FÖSTUDAGUR12. APRlL 1985.
5
Hitaveita Suðurnesja hef ði lítið grætt á samningi við íslandslax: _
„HEFÐUM FENGID TVÆR
KRÓNUR FYRIR TONNH)”
,,Nei, Hitaveita Suöurnesja tapar
ekkert á því að hafa misst af samn-
ingnum við tslandslax hf.,” sagði Ing-
ólfur Aðalsteinsson, framkvæmda-
stjóri Hitaveitu Suðurnesja.
Hitaveita Suðurnesja ætlaöi aö selja
tslandslaxi hf. tonnið af heita vatninu á
26 krónur. Þess vegna hafa margir velt
því fyrir sér hvort hitaveitan hafi ekki
misst af feitum bita fyrst ekki náðust
samningar við Islandslax hf.
En sjáum nánar hvernig Ingólfur út-
skýrir mál sitt.
„Heitavatnslögnin, sem leggja átti
til Islandslax hf., átti að vera um 6,5
kílómetra löng og hún átti aö kosta 23,7
milljónirkróna.
I samningaviðræðunum var gert ráð
fyrir að Islandslax hf. greiddi um 15,5
milljónir króna og Hitaveita Suður-
nesja afganginn, eða 8,2 milljónir
króna.
Miðað við að samningurinn heföi orö-
ið til 7 ára eins og til stóö, hefðum við
afskrifað 8,2 milljónir á 7 árum. Með
6% vöxtum hefði það gert 1.440 þúsund
krónuráári.”
Þá eru það tekjurnar. Sjáum hvað
Ingólfur segir um það hvað Hitaveita
Suðurnesja hefði fengið í aðra hönd
vegna samningsins.
„Það var gert ráð fyrir því að Is-
landslax hf. keypti lágmark 60 þúsund
tonn af heitu vatni á ári og tonnið á 26
krónur. Þannig hefðu tekjurnar á ári
Grindavík og íslandslax:
Sömdu um katt vatn
— bærinn eignast líklega jörðina Stað
„Samkomulagið felst í því að Is-
landslax hf. lýtur meir stjómun
bæjarfélagsins í framkvæmdum sín-
um. Þannig verður fyrirtækið að
taka tillit til allra reglugerða Grinda-
vikurkaupstaðar varðandi vatnstök-
una."
Þetta sagði Jón Gunnar Stefáns-
son, bæjarstjóri í Grindavik, vegna
samkomulags bæjarráðs Grindavík-
ur og Islandslax hf. sem gert var f yr-
ir skömmu. Bæjars*jðrn Grindavík-
ur á eftir ao samþykkja samkomu-
lagið.
„I rauninni er þetta samkomulag
sem fyllir upp í þann samning sem
ráöuneytið og Islandslax hf. gerðu 7.
mars sl. en okkurþótti sá samningur
ekki tæmandi eins og fram hefur
komið,”sagðiJón.
Það kom ennfremur fram hjá hon-
um að í samkomulaginu væri það
skilyrði að Islandslax hf. yrði með
heimilisfang í Grindavík. Og að
fyrirtækið yrði að fara í einu og öllu
eftir byggingacsamþykkt Grindavík-
ur í framkvæmdum sínum.
Samningur landbúnaðarráðuneyt-
isins og Islandslax hf. var gerður 7.
mars sl. Hann felur í sér leigu Is-
landslax hf. á kirkjujörðinni Stað til
50ára.
„Það eru miklar lúur á að viö,
eignumst jörðina inn„n tíðai. Við
ræddum um kaupin viö þá i ráðu-
neytinu í gær og þeir tóku mjög vel í
þau. Enn þá er samt ekki farið að
ræðaverðeða sk ilmála. ’ ’
Kirkjujörðin Staöur er um 5 kíló-
metra frá Grindavikurbæ, í vestur-
átt.
-JGH
r Stjórn Hitaveitu Suðurnesja:
íslandslax ætlaði
sér ekki að semja
og landbúnaðarráðherra með ósannindi á Alþingi
Að landbúnaöarráðherra hafi farið
ineð rangt mál á alþingi þann 26. mars
sl. og að það hafi aldrei veriö ætlun Is-
landslax hf. að semja við Hitaveitu
Suðurnesja, þrátt fyrir samningavið-
ræðurþessara aöila.
Þetta eru niðurstöður ályktunar sem
stjórn Hitaveitu Suðurnesja gerði 29.
mars síðastliðinn. I upphafi ályktunar-
innar er minnst á orð Jóns Helgasonar
landbúnaðarróðherra á alþingi 26.
mars.
Orörétt segir: „I umræöum á alþingi
þann 26. mars sl. um fyrirspurn vegna
vatnstöku Islandslax hf. í landi Staðar
í Grindavík sagði landbúnaðarráð-
herra, Jón Helgason, í svari sínu viö
þeirri spurningu hvort honum hafi
verið ljóst, þegar hann heimilaöi Is-
landslax hf. vatnstöku í landi Staöar,
að samningaviðræður væru á loka-
stigi:
„Fulltrúi landbúnaðarráðuneytis,
sem vann að samningsgeröinni, hafði
samband við framkvæmdastjóra Hita-
veitu Suðurnesja í janúarmánuði sl.
Og þá geröi hann grein fyrir því að
hann teldi, að ef ekki yrði um samn-
inga að ræða milli Hitaveitu Suður-
nesja og Islandslax hf. þá myndi gerð-
ur samningur eða heimild í samning-
um um töku á heitu vatni úr landi jarð-
arinnar Staðar. Þannig að þarna var
samband á milli meö nokkrum fyrir-
vara.”
I ályktuninni se'gir að framkvæmda-
stjóri Hitaveitu Suðurnesja kannist
ekki við að hafa verið settir þessir
kostir og að stjórn Hitaveitu Suður-
nesja hafi verið ókúnnugt um fyrirætl-
anir landbúnaðarráðherra um samn-
ingsgerð viö Islandslax hf.
Orðrétt segir síöan: „Stjórn Hita-
veitu Suðurnesja mótmælir því þess-
um ummælum ráðherra sem ósönn-
um.”
Þá er í ályktuninni lýst vonbrigðum
með vinnubrögð forsvarsmanna Is-
landslax hf. Sagt að samningaviðræð-
ur hafi hafist 31. október á síðasta ári
og að síðasti viðræðufundur hafi verið
5. febrúar.
„Fulltrúar Hitaveitu Suðurnesja
höfðu ekki ástæöu til að ætla annað en
samkomulag heföi náðst um öll atriði,
nema hvað óskað var viðræðna um
hækkun tengigjalds vegna lengri lagn-
ar en áöur haföi verið ætlað.
Síöan berst svo tilkynning til Hita-
veitu Suöurnesja þann 4. mars frá Is-
landslax hf. um að „samningurinn
skuU settur í salt” og þann 7. mars er
undirritaður samningur milli landbún-
aöarráðherra og Islandslax hf.
Með hUðsjón af því, að framkvæmdir
lslandslax hf. í Staðarlandi hófust um
áramót og hafa haldið áfram síöan,
hlýtur stjórn Hitaveitu Suöurnesja að
álykta að aldrei hafi veriö ætlun for-
svarsmanna Islandslax hf. að semja
við Hitaveitu Suðurnesja, þar sem þeir
hafi vitað um aöra kosti í vændum.”
-JGH
orðið 1.560 þúsund krónur.
Af þessu sést að við höfum farið á
mis við 120 þúsund krónur á ári með
því að gera ekki samninginn. Eða rétt-
ara sagt; við heföum í raun fengið 2
krónur fyrir tonnið.”
Þess má geta í lokin að tonnið af
heita vatninu til iðnaðar í Grindavík
erseltá38krónur. -JGH
SÝNING
á METTLER-SAUTER RAFVOGUM
með tölvubúnaði verður föstudaginn 12. og
laugard. 13. þ.m. frá kl. 10—19, að Langagerði
7. Sviss METTLER —SAUTER vogirnar eru
hannaðar fyrir rannsóknarstofur, iðnaðarfyrir-
tæki og matvælaframleiðendur og ná tökum á
míkrógrammi og upp í 6 tonn. Komið og kynnist
því nýjasta og fullkomnasta sem völ er á.
Mettler-Sauter. Frá míkrógrammi í 6 tonn.
Einkaumboð á íslandi,
SAUTER KRISTINSSON HF.f
Langagerði 7,108 Reykjavík. Sími 30486.
~7fL£JEL£JL.
IMISSAIXI
■ « ■ IIIIIIP mu
SUNNY
NISSAN SUNNY Sedanl.5GL
Með Nissan Sunny færðu bókstaflega alia þá aukahluti sem þú verður að panta sérstak-
lega í aðra bíla, t.d. upphituð framsæti, útvarp, tölvuklukku, snúningshraðamæli, öryggis-
belti fyrir fimm, þriggja hraða miðstöð, rafhitaða afturrúðu, farangursgeymsla og bensín-
lok eru opnanleg úr ökumannssæti, þurrkur á framljósum, tveir útispeglar stillanlegir innan
frá, Ijós í farangursrými o.m.fl. Auðvitað er Sunny framhjóladrifinn. Vélin er 83 hestöfl,
1500cc.
MUNIÐ BÍLASÝNINGAR OKKAR ALLAR HELGAR KL.14-17.
INGVAR HELGASON HF.
Sýningarsalurinn/Rauðagerði, simi 33560.