Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1985, Side 7
DV. FÖSTUDAGUR12. APRlL 1985.
7
Hvergerðingur hafði samband við
neytendasíðu vegna varahlutar er
hann vantaði í bifreiö sína.
Vanhagaði hann um hægri stýris-
enda í Audi 100 árgerð 1977. Eins og
gefur að skilja fór Hvergerðingurinn
fyrst í Heklu h/f, umboösaðila Audi á
Islandi. Þar var hluturinn til og kostaði
3.671 krónu. Þótti manninum það frek-
ar dýrt svo hann ákvað að láta ekki þar
við sitja og kannaði úrvalið í öðrum
varahlutaverslunum. I verslun O.
Engilberts í Armúla var sami vara-
hluturinn til og kostaöi aðeins 2.057
krónur. Að sögn Hvergerðingsins var
hér um nákvæmlega sama hlut að
ræða og f ékkst í Heklu.
Sveinn Jóhannsson, afgreiðslumað-
ur hjá Heklu h/f, staðfesti fyrrgreint
verð en vildi bæta því við að hér væri
um „original” varahlut að ræða beint
frá bifreiðaverksmiðjunum í Þýska-
landi og án efa meiri gæðavara en sá
hlutur er manninum bauðst í 0. Engil-
berts.
Friðrik Kristjánsson, afgreiðslu-
maöur hjá 0. Engilberts, sagði að þeir
væru með stýrisenda í Audi og fleiri
bifreiðir frá Tridon pökkunarverk-
smiðjunum í Danmörku. Tridon væri
ekki framleiðandinn heldur keyptu
þar inn mikið magn varahhita frá hin-
um ýmsu bifreiðaframleiðendum og
pökkuðu undir sínu nafni. Að sögn
Friöriks var fyrrgreindur varahlutur
framleiddur í Vestur-Þýskalandi og
taldi hann allar likur á að hér væri um
svokallaöa „original” vöru að ræöa.
Vegna magninnkaupa Tridon gætu
þeir leyft sér að vera með mun lægra
verö en t.d. bifreiðaumboðin sem
fengju varahlutina beint frá framleiö-
endum og oft fáa í hvert sinn.
hhei.
•1 .liTTÍVTvn
FOSSHALSI 27 - SlMI 687160
lllka Salminen klippir hárifl stutt i hnakkanum. Þetta módel var mefl
Ijósrautt hár afl framan en dökkt i hnakkanum. DV-mynd GVA.
Hártískan:
Mikið að f raman,
snöggt í hnakkanum
Hárið á að vera stutt í hnakkanum en
meira ofan á höfðinu. Frá þessu og
ýmsu öðru í sambandi vjð nýjustu hár-
tískuna skýrði finnskur hárgreiðslu-
meistari, Illka Salminen, á sviðinu á
Hótel Loftleiðum á dögunum.
Salminen kom hingað á vegum fyrir-
tækisins Artic, sem ftytur inn ýmiss
konar hársnyrtivörur frá Cutrin of
Scandinavia.
Nú geta menn haft hár í „öllum regn-
bogans litum”. Hægt er að fá alls kyns
glansskol til þess að dekkja hárið.
Þetta er í formi froðu sem til er í
sautján litum. Það þvæst úr eftir 4—5
þvotta. Þá eru einnig til fastir litir,
lagningarvökvi með lit o.fl., o.fl. Rauði
liturinn er vinsælastur, bæði mahóní
og kastaníubrúrm. Gjaman em notaðir
tveir litir f yrir sömu persónuna sem er
vægast sagt mjög sérkennilegt.
A.Bj.
Raddir neytenda Raddir neytenda
FRAMHALD Á
HEIMIUSBÓKHALDI
„Hef ekki prófaö þetta áður, en sýn-
ist á öllu að haldið verði áfram,” segir
m.a. í bréfi frá N.N., Olafsfirði, sem
sendir okkur sinn fyrsta upplýsinga-
seðil.
Það heimili var með 3.883 kr. í með-
altalskostnað fyrir mat- og hreinlætis-
vörurífebrúar.
A.Bj.
SKIPPER
LC 888
Tölvu Loran
Þafl getur tekifl á þolinmæðina að
biða eftir afgreiðslu i stórmarkaði.
Þetta þekkist varla úti á lands-
byggðinni þar sem fjölmenni er
ekki eins og i höfuðborginni.
FÖSTUDAGSKVÖLD
Hagstætt verð
og greiðsluskilmálar
Fridrik A. Jónsson h.f.
Skipholti 7, Reykjavik,
Simar 14135 — 14340.
I Jl! HUSINU11JI5 HUSINU
OPIÐ í ÖLLUM DEILDUM TIL KL. 8 í KVÖLD
Glæsilegt úrval
húsgagna
á tveimur hæðum.
OPIÐ LAUGARDAG KL. 9-16
Munið okkar
hagstæðu
greiðslu-
skilmála
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121
acna ii'HijgpE
uL^r. uuuucjjj^i
Li. [3 uum^naijj
mmíjf*« mu«auu I v■ i■ í;,
Sími 10600
iSy-"#
KJOTMIÐSTÖÐIN
Laugalæk 2. Simi 686511.
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Varahlutafrumskógurinn
Það borgaði sig
að hringja
Nú er rétti tíminn
að panta
FLEKAM0T
Leitið upptýsinga:
BREIÐFJÖRÐ
Or BUKKSMIOJA-STEYPUMÓT-VBtKPALLAR
SICTUNI 7 - 121 REYKJAVIK-SIMI 29022