Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1985, Qupperneq 8
8
DV. FÖSTUDAGUR12. APRlL 1985.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Norðmennbak
við víglínu?
Vamarmálaráðherra Noregs,
Anders C. Sjaastad, segir að ef
hemaöarumsvif á Norðurhöfum
aukast eins og þau hafa gert undan-
farið verði hann að biðja þingið um
aukin fjárútlát til varnarmála.
Ilann vill fá 3,5 prósent raunút-
gjaldaaukningu á framlagi til
hersins.
Sjaastad segir aö nauðsynlegt sé
að bæta tækjakost hersins, og bæta
viðbragðsflýti heraflans. Hann
segir að gífurleg hernaðarupp-
bygging Sovétríkjanna á höfunum
við Noreg sé áhyggjuefni. Hann
bendir á að geti Sovétríkin ráðið
þessum höfum muni stórir hlutar
Noregs lenda bak viö víglínu Sovét-
ríkjanna í hugsanlegustríði.
FiskurtilJapan
Norðmenn hafa eygt nýjan stór-
markað fyrir fiskafurðir sínar. Það
er .lapan. Fiskveiðiráöherrann
Thor Listaus heimsótti nýlega
•lapan. Niöui'staða hans var að ef
Norðmenn geta framleitt þann
fiskvarning sem Japanir vilja
kaupa þá geti Japan orðið að stór-
markaði.
Norðmenn seldu Japönum um
eitt prósent af heildarfiskinnflutn-
ingi þeirra í fyrra. Saintals flytja
Japanir inn 1,3 rnilljarða tonna af
fiski á ári. >að þýðir að ef Norð-
menn ná að auka sölu sína upp í
þrjú til fjögur prósent af þeim
markaði. þá er til mikilsað vinna.
Meiriatvinna
íNoregi
Atvinnuleysingjum hefur fækkaö
í Noregi undanfariö. Þar eru nú at-
vinnulausir um 68.000 manna eða
um f jögur prósent vinnuaflans.
Kn frá febrúar 1984 til febrúar
1985 fækkaði atvinnuleysingjum
um 9.000 inanns. 43.000 hinna
atvinnulausu eru karhnenn, en af
konum eru 25.000 atvinnulausar.
Óupplýstir
fráUSA
Breskir þinginenn eru óánægðir
með bandarískar hjálparhellur
sínar. Þeim finnst skiptinemamir.
sem koma tö Bretlands í nokkra
mánuöi til að hjálpa þeim og kjós-
endum þeirra, illa upplýstir og að
f lestu leyti til óþurftar.
Aðalstarf nemanna er að leita í
skjölum að upplýsingum ýmiss
konar. Fn þeir gera lítiö annað en
að þvælast fyrir í bókasafni þings-
ins, segir í skýrslu þingnefndar.
..Maður heyrir talað um
amerískan fótbolta og hvaö þeir
ætli að gera það og þaö kvöldið,”
segir einn bókavörðurinn, en svo
viti þeir varla nokkuð uin algjör
grandvallaratriði eins og ti! dæmis
hvaðellilaunera.
Bandaríkin
styðja
hryðjuverka-
menn
Fyrram y firmaður ley niþjónustu
Bandaríkjanna, CIA, hefur sagt að
sumar geröir skæruliöanna í
Nicaragua sem Bandaríkjastjóm
styður hljóti að kallast hryðjuverk.
Stansfield Tumer, sem var yfir-
maður CIA í tíö Carters, forseta,
sagði þetta í Managua, höfuöborg
Nicaragua, þegar hann var þar
ásamt þremur bandarískum þing-
mönnum til að kanna ástandið í
landinu. Hann sagðist ekki telja að
þjóðaröryggi Bandaríkjanna staf-
aði hætta frá Nicaragua og því
væri ekki hægt að afsaka stuðning
við skæruliöana.
Fyrir fjórum árum strandaði sovéskur kafbátur á skeri vifl Karlskrona-herstöðina. Nú segja Svíar að annafl
hvort kafarar með einhvem búnað með sór eða litill kafbátur hafi verið 6 sveimi nálægt sama svaeði.
Svíar skutu á kafbát
og leituðu i alla nótt
Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, fréttarit-
ara DV í Svíþjóð:
Sænski sjóherinn skaut síödegis í
gær á óþekktan kafbát aðeins um 500
metra fyrir utan hafnarmynnið í
Karlshamn í Blekinge. Sjóherinn hefur
undanfarna daga verið meö æfingar á
þessu svæði og er talið að hlutverk ó-
þekkta kafbátsins hafi veriö að
fylgj ast meö æfingunum.
Kaf bátsins hefur síðan verið leitað í
alla nótt án árangurs.
Sænski sjóherinn skaut á bátinn
með nýjum vopnum í gær. Varðskip
skutu fjölmörgum litlum skotum að
kafbátinum til þess að laska hann en
eyðileggja ekki alveg. Ætlunin með því
er að neyða kafbátinn upp á yfirborðið.
Reyndar era sjóhersmenn ekki viss-
ir um hvort um kafbát er að ræða. Þeir
segja að einnig kunni að hafa verið á
ferðkafarar.
Atburðurinn gerðist aðeins um 48
kílómetra frá Karlskrona-höfninni þar
sem sovéskur kafbátur strandaði 1981.
Sjóhernum sænska hefur aldrei tek-
ist að neyða kafbát upp á yfirborðið.
r
Israel:
Þorpin aftur
í skotfæri
Borgarar í noröurhluta Israels eru í
dag aftur innan skotfæris eldflauga
skæruliöa eftir þriggja ára öryggi
langt bakvið víglínu Israeishers í
IJbanon, eftir að herinn drósig til baka
frá Nabatiyeh-svæðinu í suöur
Líbanon.
Israelsmenn hafa varað skæruliða í
Líbanon við að geri þeir árásir á
óbreytta borgara í ísrael muni af-
leiöingarnar verða mun verri en
jafnvel járnhnefastjórn Israelsmanna
á svæðinu undanfarið.
Heimildir innan hersins segja að
þrátt fyrir að ísraelsher hafi flutt sig
til baka nær landamærum Líbanons og
Israels hafi Israelsmenn enn stjórn á
um 19 prósentum landsvæðis
Líbanons.
Við brottflutninginn frá Nabatiyeh
fór 648. ísraelski hermaðurinn í
Líbanon þegar bíll hans keyrði á jarð-
sprengju.
Mikið var um árásir á hermenn
tsraela í Nabatiyeh undanfariö.
Israelar vonast til að þeim árásum fari
aðlinnaúrþessu.
Búist er við að brottflutningnum
verðilokiöí júní.
Deilan um kjamavopn í bandarískum skipum:
Stefnubreyting hjá
Bandaríkjamönnum?
Bandaríkjamenn segjast ekki hafa
þreytt þeirri stefnu sinni að segja ekki
hvort skip þeirra eru hlaðin kjarna-
vopnum eða ekki. Kínverjar segja þó
annaö. Þeir segja að Bandaríkjamenn
hafi f ullvissað sig um að þau bandarísk
skip sem koma við í kínverskum höfn-
um verði ekki hlaðin kjarnavopnum.
Nýsjálendingar fylgjast vel með
málinu. Þeir neituöu nær ölíum banda-
rískum herskipum um að leggja aö í
höfnum sínum eftir aö Bandaríkja-
menn neituðu að fullvissa þá um að
einungis kjamavopnalaus skip myndu
heimsækja Nýja Sjáland.
I tilkynningu sem Bandaríkjamenn
gáfu út geröu þeir þó enga tilraun til að
bera yfirlýsingar Kínverja til baka að
öðru leyti en að segja að þeir hefðu
ekki breytt stefnu sinni hvaö þetta
varðar. Ef yfirlýsing Kínverja um
samninginn við Bandaríkin er rétt er
þó ljóst að stefnunni í þessum málum
hefur verið breytt, eða hún brotin.
Umsjón
Þórir Guðmundsson og
Guðmundur Pétursson
V aldaræningjar og verkalýðsforysta:
Náðu samkomulagi um
borgarastjórn Súdan
Herstjómin í Súdan virðist hafa
komist að samkomulagi um að mynda
borgaralega stjóm í landinu sem fyrst.
I dag munu fulltrúar hinna ýmsu
verkalýðsfélaga og stjómmálasam-
taka ræða við fulltrúa hersins um
myndun bráðabirgðastjómar.
Yfirlýsing verkalýðsfélaganna og
ÞaO tók Swareddahab hershöfð-
ingja ekki langan tíma að ná sam-
komulagi við stjómmólaöflin i
Súdan úr myndun bróðabirgða-
stjórnar.
stjórnmálasamtakanna sagði að
viðræður hefðu verið í gangi síöan á
mánudag. Nú hefði 15 manna herstjóm
landsins samþykkt tillögur stjórn-
málaaflanna í landinu.
I yfirlýsingunni var ekki greint
nákvæmlega frá innihaldi samningsins
en herinn mun eiga að stjóma um 12
mánaða skeið þangað til borgaraleg
stjórn getur tekið við. Fyrri yfirlýsing
frá samtökum stjómmálaaflanna í
landinu sagði að „fuUveldisráð” og
ráöuneyti myndu stjórna landinu tU
bráðabirgða þennan tíma.
Swareddahab hershöfðingi á að
vera fyrir ráðinu. I því munu eiga sæti
fuUtrúar frá kristna og heiðna suður-
hluta landsins, þrír óbreyttir borgarar
sem herinn velur og fulltrúar verka-
lýðsfélaganna og stjómmálaflokk-
anna.
Yfirlýsing sagði að ráðuneytinu
myndi stjóma maöur sem alUr gætu
sætt sig við. Tveir ráðherrar myndu
fara með málefni suðurhluta landsins,
þar sem var virkur skærahernaður
gegn stjóm Nimeiris.
Swareddahab ræddi um bráöa-
birgðastjórnina í gærkvöldi við Sadek
Al-Mahdi, leiðtoga Ummah frjálslynda
þjóðemisflokksins, sem hefur um 10
miUjón fylgjendur, aöallega í vestur-
héruðunum. A1 Mahdi var í fangelsi
þangaö tU Nimeiri, fyrrverandi for-
seti, leysti hann úr haldi í október í
fyrra. Hann hafði gagnrýnt
íslamiseringu Nimeiris í þessu landi
sem er einungis múslímskt að hálfu.